Helgarpósturinn - 07.01.1988, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 07.01.1988, Blaðsíða 9
fréttir og rabbþætti, í framtíðinni. Hans Kristján neitaði þessu. Hann sagði rekstur stöðvarinnar ganga vonum framar. í Tímanum í gær var greint frá því að til stæði að íslenska myndverið seldi sinn hlut í Stöð tvö. Ragnar Gudmundsson, framkvæmdastjóri íslenska myndversins, hvorki játaði þessu né neitaði. Hann dró þó enga dul á að fjármagnskostnaður væri Stöðinni þungur í skauti. í samtali við Helgarpóstinn neitaði Hans Kristján því að þessi sala á hlutabréf- um stæði til. VEISLAN Á ENDA Þessi misvísandi ummæli Hans Kristjáns og annarra um Stöð tvö er dálítið lýsandi fyrir ummæli flestra forsvarsmanna ljósvakamiðlanna. Ef upplýsingar þeirra um hlutdeild í auglýsingamarkaðinum eru lagðar saman má ætla að þessi markaður sé um helmingi stærri þegar honum er skipt niður en þegar litið er á hann sem heild. Ástæða þess liggur sjálfsagt í því, að auglýsingamark- aðurinn er ákaflega viðkvæmur. Menn veigra sér við að auglýsa hjá útvarps- eða sjónvarpsstöðvum sem standa höllum fæti. Því er um að gera að bera sig vel. En af því sem að ofan greinir má ljóst vera að áhorfendur og áheyr- endur þessara stöðva munu ekki njóta sömu veislu á þessu ári og því síðasta. Stöðvarnar draga nú saman seglin hver og ein og það er spá flestra að einhverrjar þeirra muni leggja upp laupana áður en langt um líður. Af þeim sparnaðaráform- um sem forsvarsmenn þessara stöðva láta uppi er ljóst, að þessi samdráttur mun fyrst og fremst bitna á vönduðu dagskrárefni. Ef til vill mun fjölmiðlabyltingin verða til þess að íslendingar sitja uppi með einhæfara og erlendara efni en áður. Bifreiðaeftirlit ríkisins. Skoðar nú hina sjóreknu bíla án fullnægjandi afstöðu og með verulegan þrýst- ing á sig úr sitthvorri áttinni. Líklegast bjargar stöðin sér úr klipunni með því að samþykkja skráningu með skilyrðum um úrbætur. sinna skoðunum sem þessum fyrr. Þannig fór hluti skoðunarinnar fram í Keflavík í gær en í dag þarf að færa bílana til Reykjavíkur. Hlutverki sínu hefur hún hingað til gegnt með því aðallega ,,að sparka í dekk og keyra einn hring í kringum húsið", eins og einn viðmælandi blaðsins sagði og í raun hefur ekkert gæða- eftirlit farið fram. Staðreyndin er því sú að fjölmargir bílar hafa „staðist" skoðun sem víða eriendis væru teknir úr umferð — t.d. skakkir og skældir tjónabílar. Á hinn bóginn hlýtur að vera erfitt að hundsa við- horf sérfræðinganna — framleið- enda vörunnar sjálfrar, umboðsað- ila þeirra og öflugra neytendasam- taka bifreiðaeigenda! Júlíus Vífill fær lokaorðin: „Hvað ef Boeing- flugvélaverksmiðjurnar gæfu út yf- irlýsingu um að tilteknar flugvélar væru hættulegar? Myndi nokkur vilja fljúga með slíkum flugvélum? Myndi nokkurt flugfélag kaupa slík- ar flugvélar? Bílar eru mun hættu- legri og mannskæðari samgöngu- tæki en flugvélar." ERLEND YFIRSÝN 'eftir Magnús Torfa ólafsson. Brottvísun úr spánskri flugstöð æsir menn í Pentagon til of stopa Felipe González er mikið í mun að hatda trúnað við þjóð sína. Enn er NATÓ að jafna sig eftir sviptingar sem fylgdu gerð samkomulags risaveldanna um útrýmingu með- aldrægra og skammdrægra kjarnorkuskeyta. Þá skell- ur á bandalaginu bylur úr annarri átt. í fyrsta skipti frá því de Gaulle rak aðsetur Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjaher á dyr úr Frakklandi árið 1966 hefur stjórn bandalagsríkis ákveðið einhliða að vísa banda- rískum herafla á brott úr þýðingarmikilli herstöð. Þótt aðilar hafi enn ekkert látið frá sér fara opinberlega um málið er orðið alkunna að stjórn sósíal- istaforingjans Felipe González á Spáni hefur tilkynnt Bandaríkja- stjórn uppsögn samnings um veru 401. skammfleygu árásarsveitar bandaríska flughersins í flugstöð- inni Torrejón rétt vestan við Madrid. Þýðir það að flugvélarnar 72 af gerðinni F-16 skulu verða þaðan á brott innan þriggja og hálfs árs. Þessi ráðstöfun sýnir, að þolin- mæði González gagnvart Banda- ríkjastjórn er þrotin. í þrjú misseri hafa staðið árangurslausar samn- ingaumleitanir, þar sem Banda- ríkjamenn hafa þvælst fyrir og neitað að taka alvarlega þá yfirlýs- ingu Spánarstjórnar að þeir yrðu að rýma flugstöðina í Torrejón. Sósíalistaflokkurinn undir for- ustu González vann frægan sigur í þingkosningum 1982 og endurtók hann 1986. Meginmarkmið stjórn- ar sósíalista í utanríkismálum var að tryggja Spáni aðild að Evrópu- bandalaginu. Þegar það mál var farsællega í höfn sneri González sér að því að koma afstöðunni til Atlantshafsbandalagsins í fast horf. Síðasta hægri stjórn í Madrid gekk frá aðild Spánar að banda- laginu, gegn atkvæðum þing- manna sósíalista. í flokknum voru skiptar skoðanir um málið. Sumir vildu aðild að NATÓ með sérstöðu varðandi undirgefni spánsks her- afla undir sameiginlega herstjórn, svipaða þeirri sem de Gaulle tók Frökkum. Aðrir í flokknum vildu halda landinu utan hernaðar- bandalaga. Gonzáiez fékk því ráðið, að efnt var til þjóðaratkvæðis um aðild að NATÓ árið 1966. Með skírskotun tii langþráðrar aðildar að Evrópu- bandalaginu fékk hann talið meirihluta flokks síns á, að í sam- ræmi við það yrði Spánn að sýna samstöðu í öryggis- og varnarmál- um með öðrum Vestur-Evrópu- ríkjum. Og til að slá því föstu að evrópsk samstaða væri leiðarljós Spánar í þessu efni hét González því að beita sér fyrir verulegum niðurskurði bandarískra her- stöðva á Spáni, féllust kjósendur á aðild að Atlantshafsbandalaginu án sjálfkrafa undirgefni spánsks herafla undir sameiginlegu her- stjórnina, þar sem bandarískur hershöfðingi hefur frá öndverðu verið æðsti yfirboðari. González reyndist sem fyrr sannspár um afstöðu landa sinna. Flokksbræðrum hans, sem halda vildu Spáni áfram utan hernaðar- bandalaga, varð lítil ágengt. Og ekki varð hægri flokkunum kápan úr því klæðinu að skora á kjósend- ur að sitja heima, þótt sjálfir væru þeir frumkvöðlar aðildarinnar að NATÓ. Skilmálarnir sem ríkis- stjórnin lagði fyrir þjóðina fengu mikinn meirihluta atkvæða. Ljóst er af því sem síðan hefur gerst, að Bandaríkjastjórn, og sér í lagi bandarísk heryfirvöld, tóku González og spánsku sósíalista- stjórnina ekki alvarlega. Er það ekki í fyrsta skipti, sem bandarísk fáfræði um umheiminn og sögu- stöðu mála Spánar megin er Reg- inald Bartholomew, sendiherra í Madrid. Hann hefur fyrir sitt leyti lagt áherslu á það eftir að Gonzál- es tilkynnti uppsögn herstöðvar- samningsins 10. desember að Bandaríkjastjórn rasi ekki um ráð fram. Bandarískir fréttamenn, sem lýsa þessari afstöðu sendi- herrans, skýra jafnframt frá því að legar forsendur með öðrum þjóð- um verða þarlendum stjórnvöld- um að fótakefli. Bandarísku herstöðvarnar á Spáni komu til árið 1953, með samningi Eisenhowers forseta við Francisco Franco einræðisherra. Sá samningur varð til að rjúfa þá einangrun sem Franco-Spánn hafði sætt á alþjóðavettvangi frá lokum síðari heimsstyrjaldar, þeg- ar veldi nasista og fasista var fallið í öðrum löndum Evrópu. Með þessum samningi, og þeim banda- ríska stuðningi sem fylgdi, fram- lengdi Franco veldi sitt. Og þegar hann var allur og lýðræðisþróun hófst á Spáni undir leiðsögn ungs og óreynds konungs reyndi þáver- andi Bandaríkjastjórn með Henry Kissinger í fararbroddi hvað hún gat til að lengja lífdaga spánska fasismans. Vantrú Kissingers á lýðræðinu, jafnt á Spáni og í Portúgal, varð sér eftirminnilega til skammar. í Washington vill enginn muna eftir þessu né öðru sem á undan er gengið, ekki einu sinni að það voru Bandaríkin sem hrifsuðu af spánska heimsveldinu síðustu tætlurnar af lendum þess handan hafa, Puerto Rico, Kúbu og Filipps- eyjar, í lok fyrri aldar. En á Spáni gleyma menn ekki jafn auðveld- lega. Forsendan fyrir að Felipe Gonz- ález tókst að vinna þjóðarat- kvæðagreiðsluna um aðild Spánar að NATÓ var, að honum tókst að láta hana snúast um samstöðu með Vestur-Evrópu og að losa jafn- framt hernaðartengslin sem Franco hafði bundið beint við Bandaríkin. Forsætisráðherra Spánar er því pólitísk lífsnauðsyn að sýna svart á hvítu, að í þessu efni standi hann við orð sín gagn- vart þjóðinni, sem veitt hefur honum svo frábært fyigi. Eini Bandaríkjamaður í áhrifa- stöðu sem virðist skilja þessa embættismenn í Pentagon, land- varnaráðuneyti Bandaríkjanna, vilji skella hurðum svo um munar. Leggi þeir til að Bandaríkjamenn yfirgefi allar herstöðvar sínar á Spáni, fái þeir ekki að hafa sína hentisemi í Torrejón, og hefji þar að auki pólitíska og efnahagslega hefndarherferð gegn stjórn Felipe González. Halda þeir því fram að nú sé þörf á að sýna fram á, að það kosti ríkið nokkuð að vísa Banda- ríkjaher á dyr úr herstöð sem harin vill halda. í Torrejón hafast við 4.500 bandarískir flugliðar. En í tólf öðr- um herstöðvum á Spáni eru 8.000 manns úr öllum greinum banda- ríska heraflans. Þýðingarmest er flotastöðin í Rota, en flugstöðvar eru nærri Zaragoza og Sevilia og fjarskiptastöðvar á níu stöðum öðrum. Sagt er að tekið sé fram í orðsendingu Spánarstjórnar, að hún sé fús að endurnýja samning- ana um allar þessar stöðvar nema Torrejón. Síðasta tilboð bandarísku samn- ingamannanna var að fækka flug- vélum í Torrejón um þriðjung, úr 72 í 48. En það fullnægir á engan hátt Spánverjum. Fyrir stjórninni í Madrid vakir að losna í eitt skipti fyrir öll við stóra, bandaríska herstöð í hlaðvarpa höfuðborgar- innar. Hún er ekki aðeins ögrun við spánska þjóðerniskennd, held- ur má að auki leiða rök að því að Torrejón hljóti að vera ofarlega á skotmarkalista í kjarnorkustyrj- öld. Hlutverk 401. skammfleygu árásarsveitarinnar í ófriði er nefni- lega að halda til stöðvar á Ítalíu og Tyrkiandi, lesta kjarnorkusprengj- ur sem þar eru geymdar og ráðast með þeim á skotmörk um Sovét- ríkin sunnanverð. Ákvörðun Spánarstjórnar setur því allt NATÓ í klípu. Hver vill vista 401. sveit- ina, þegar hún fer alfarin frá Spáni fyrir mitt ár 1991? HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.