Helgarpósturinn - 07.01.1988, Blaðsíða 39
FRETTAPOSTUR
Óspektir og slys um hátíðirnar
Nýliðin jólahátíð var víða róstusöm, sérstaklega þó í
Reykjavík og næsta nágrenni. Á annan i jólum var mikið um
ölvun og slagsmál i höfuðborginni og það sama gilti um ára-
mótin: Gegndarlaus ölvun fram að hádegi á nýjársdag.
Kannski verður jólahátíðarinnar nú þó fremur minnst fyrir
þá slysaöldu sem reið yfir. Mörg og alvarleg slys urðu á
gamlárskvöld og urðu a.m.k. 3 einstaklingar fyrir alvarleg-
um augnslysum af völdum sk. tívóljbomha, sem í kjölfarið
fóru á bannlista fyrir þrettándann. Á Þorláksmessu urðu 31
árs gamall maður og 16 ára stúlka úti við Klettsháls í
A-Barðastrandarsýslu. Daginn fyrir gamlársdag beið 33ja
ára gömul kona bana í umferðarslysi á Holtavörðuheiði. Á
nýjársdag beið maður á sjötugsaldri bana er eldur kom upp
í húsi hans á Kópaskeri. 3ja janúar beið 68 ára gamall mað-
ur bana í umferðarslysi á Suðurlandsbraut. Undanfarnar
vikur hefur staðið yfir árangurslaus leit að tveimur karl-
mönnum. Alls munu 54 íslendingar hafa látist af slysförum
1987, sem blessunarlega er þó 21 færra en árið áður. Af þess-
um 54 fórust 26 í umferðarslysi.
Deilur og næturfundir á jólaþingi
Miklar annir hafa verið á þingi undanfarið og þingað dag
og nótt milli jóla og nýjárs — í fyrsta sinn um alllangt skeið.
Stjórnarliðar þurftu nauðsynlega að koma nokkrum mikil-
vægum frumvörpum í höfn við tregar undirtektir stjórnar-
andstæðinga og sumra stjórnarliða. Sérstaklega hefur verið
mikið deilt um fiskveiðikvótann og tókst ekki að afgreiða
hann fyrir áramót og er hann enn óafgreiddur. Sérstaklega
þykir andstæðingum frumvarpsins vegið að smábátaeig-
endum og talinn meirihluti fyrir því að breyta útkomu
þeirra í væntanlegum lögum. Ekki var síður deilt um sölu-
skattsfrumvarpið (matarskattinn sérstaklega), sem loks
varð að lögum eftir áramótin, óþægilega á eftir áætlun.
Margar vörur eiga að hækka en aðrar að lækka og sagt að
áhrifin á framfærsluna eigi að vera óveruleg. Ný húsnæðis-
stjórnarlög hafa tekið gildi með hertum reglum um for-
gangshópa. Þeir sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn njóta
forgangs umfram þá sem eiga fleiri en eina íbúð fyrir eða
eiga skuldlitla íbúð yfir 180 fermetrum utan bílskúrs. Hins
vegar var fallið frá hugmyndum um mismunandi vexti. Út-
gáfa lánsloforða ætti að hefjast að nýju um næstu mánaða-
mót, en mörg þúsund manns bíða i ofvæni.
Pólitískir bankastjórar undir?
Eftir að Stefán Hilmarsson, bankastjóri Búnaðarbank-
ans, hætti við að hætta hefur orðið alvarleg röskun á sam-
komulagi stjórnarflokkannna þriggja um pólitískar banka-
stjóraskipanir. Stefán átti að hætta og skyldi Kjartan Jó-
hannsson, Alþýðuflokki, taka sæti hans. Jónas Haralz
hættir í Landsbankanum og skyldi Sverrir Hermannsson
fylla upp í þá eyðu. Loks stendur til að Valur Arnþórsson
taki brátt við sæti Helga Bergs i Landsbankanum. En þegar
Stefán stóð ekki upp fyrir Kjartani kom upp hnútur í banka-
ráði Landsbankans. Nú vill fulltrúi krata þar að Tryggvi
Pálsson, forstöðumaður fjármálasviðs bankans, fái stólinn
og honum eru sammála annar fulltrúi Sjálfstæðisflokks,
Árni Vilhjálmsson, og fulltrúi Alþýðubandalags, Lúðvik
Jósefsson. Formaður ráðsins, Pétur Sigurðsson, Sjálfstæð-
isflokki, og Kristinn Finnbogason, Framsóknarflokki, eru
meðmæltir Sverri og frestaði Pétur ákvörðun í málinu með-
an reynt yrði að ná samkomulagi á bak við tjöldin. Mál þessi
hafa valdið nokkrum úlfaþyt meðal stjórnarflokkanna,
enda rótgróin samtrygging í hættu.
Af Hafskips- og okurmálum
í skiptarétti Reykjavikur hefur verið úrskurðað að hafna
beri kröfum Ragnars Kjartanssonar um greiðslu á 125 þús-
unda dollara viðbótarlaunagreiðslu úr þrotabúi Hafskips. Á
hinn bóginn voru staðfestar og viðurkenndar kröfur þrota-
búsins á hendur Ragnari, upp á nokkrar milljónir króna. Af
okurmálinu sem kennt er við Hermann Björgvinsson er það
að frétta, að við endurupptöku Sakadóms Reykjavíkur á
máli Sigurðar Þormar sýknaði Helgi Jónsson Sigurð vegna
þess að málið taldist fyrnt þegar það loksins var tekið fyrir
á ný. Hins vegar hafði Sigurður fyrr unnið endurkröfumál
á hendur Hermanni, sem samkvæmt því á að greiða Sigurði
27 milljónir króna, gjaldþrota maðurinn...
Fréttapunktar
• Nýliðið ár telst hið hlýjasta á íslandi siðan 1964. Þar af
telst desembermánuður sá hlýjasti síðan 1933.
• 1. janúar hófst staðgreiðsla skatta á íslandi.
• Jóhannes Nordal hefur fyrir sitt leyti borið til baka þrá-
látan orðróm um 7—H% gengisfellingu í janúar. íslenska
krónan rýrnaði um rúm 17% á nýliðnu ári. Verðbólga tald-
ist um 25% á árinu, en var um 13% árið 1986. Verslunarráð
íslands spáir rúmlega 30% verðbólgu á nýja árinu, miðað
við 27—28% almennar launahækkanir og einhverja gengis-
fellingu og gengissig.
• Lögregluvörður er nú um hvalskipin í Reykjavíkurhöfn.
Það er í tilefni þess að Paul Watson í Sea Shepherd-samtök-
unum hefur boðað komu sína til landsins i þessum mánuði
til að vekja athygli manna á hvalfriðunarmálum. Ef hann
kemur á hann á hættu að verða hnepptur í varðhald í tengsl-
um við þann atburð er hvalskipum var sökkt hér á landi og
spellvirki unnin í stöðinni í Hvalfirði — auk þess sem hann
greiddi á sínum tíma fyrir olíu hér á landi með innstæðu-
lausri ávísun.
• Neyðarástand er yfirvofandi í dagvistarmálum á Akur-
eyri. í lok þessarar viku taka gildi uppsagnir allra fóstra í
bænum og engin lausn í sjónmáli.
• Birgir Sigurðsson, leikritaskáld og þýðandi, hlaut um ára-
mótin viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins —
250 þúsund. krónur.
• Þröstur Ólafsson varð nú í vikunni Evrópumeistari ungl-
inga 16 ára og yngri í skák. Guðfríður Grétarsdóttir varð
fjórða í kvennaflokki.
Viltu breyta til
með hækkandi sól?
Viltu læra um
Ferðaþjónustu • Fiskeldi • Loðdýrarækt • Skógrækt
Kanínurækt eða gömlu góðu hefðbundnu kvikfjárræktina?
Tbekifærið gefst núna, því bændaskólinn á Hvanneyri tekur við
nemendum á vorönn að þessu sinni!
Bændaskólinn á Hvanneyri er nútíma skóli, þar sem færustu
búvísindamenn fylgjast með öllum nýjungum í landbúnaði
og miðla þeim til nemenda, sem vilja takast á við heillandi
verkefni. Þar er frábær aðstaða á heimavist.
Auk hefðbundinnar búnaðarfræðslu eru 12 valfóg:
Alifugla-og svínarækt • Ferðaþjónusta • Fiskeldi
Hrossarækt • Kartöílu-og grænmetisrækt • Loðdýrarækt
Nautgriparækt • Rekstrarhagfræði • Sauðljárrækt
Skógrækt • Vélfræði • Vinnuvélar og verktækni.
Viltu taka þátt í nýsköpun
íslensks landbúnaðar?
Búfræðinám tekur 2 ár (4 annir) en fólk með stúdentspróf
eða hliðstæða menntun getur lokið því á einu ári.
Helstu inntökuskilyrði eru að umsækjendur hafi lokið almennu
grunnskólaprófi með lágmarkseinkunn til inngöngu í framhalds-
skóla, og að þeir hafi öðlast nokkra reynslu í landbúnaðarstörfum.
Skrifleg beiðni um inngöngu ásamt prófskírteinum þarf að berast
skólanum eigi síðar en 15. janúar.
Nánari upplýsingar í síma 93-70000 og 93-71500.
BÆNDASKÓLINN
HVANNEYRI
b
HELGARPÓSTURINN 39