Helgarpósturinn - 07.01.1988, Page 17

Helgarpósturinn - 07.01.1988, Page 17
lFramkvæmdagleðin er mikil hjá meirihlutanum í Reykjavík, einkum þegar ráðhúsbyggingin er annars vegar. Nú síðast var rifið upp með rótum gamalt tré sem stóð þar sem ráðhúsið á að rísa. Það er svo sem ekki í frásögur færandi, nema vegna þess að þetta umrædda vina- lega tré var friðað og höfðu borg- aryfirvöld ekki fyrir því að sækja um leyfi til að rífa það upp. Spyrja menn sig nú að því hvort ekki sé tími til kominn að lýsa því formlega yfir, að almennar umgengnisreglur skuli ekki gilda þar sem fer flokkur sá er .Davíð Oddsson stýrir í Reykjavík. . . S_, _. á leið frá Vestmannaeyjum til ríkis- saksóknara. Framkvæmdastjóri verndaðs vinnustaðar í Eyjum, þar sem framleidd eru kerti, Bjarni Jónasson, hefur kært alls 12 ein- staklinga fyrir að reka óhróður gegn sér, meiðyrði og ofsóknir, sem end- aði með því að stjórn vinnustaðar- ins sagði Bjarna upp. Af hinum kærðu eru 5 stjórnarmenn, en auk þess meðal annars Arnór Péturs- son hjá Öryrkjabandalaginu. For- maður stjórnarinnar er Jón Kjart- ansson, formaður verkalýðsfélags- ins í Eyjum. Bjarni telur að um póli- tískar ofsóknir séu að ræða, en hann leiddi lista óháðs framboðs í síðustu sveitarstjórnarkosningum (hlaut 49 atkvæði). Bjarni segir stjórnina neita Rannsóknarlög- reglunni um skýrslu sem sé jákvæð í hans garð, en stjórnin segir skýrsl- una innihalda trúnaðarsamtöl við starfsmenn. Rannsóknarlögreglan hefur tekið skýrslu af Jóni Kjartans- syni, en hyggst fá hjá ríkissaksókn- ara nánari fyrirmæli um hvernig með þetta mál skuli farið, enda varla einu sinni ljóst hvort um opin- bert mál eða einkamál er að ræða. . . D ankastjórastólar hafa verið til umræðu upp á síðkastið, bæði í Landsbanka og Búnaðarbanka. Hefur einkum verið rætt um þá Tryggva Pálsson og Sverri Her- mannsson í Landsbanka, en Kjart- an Jóhannsson í Búnaðarbanka svo framarlega að þar losni stóll. FISHER Reykjavik sími 622555 SJÓHVARPSBðÐIH Heimildir HP herma að Kjartan sé ekki sá eini sem nefndur hefur verið í Búnaðarbanka og er talið eins víst að Sólon Sigurðsson aðstoðar- bankastjóri fái stól þegar einn slík- ur losnar. Hann hefur getið sér gott orð innan bankans og er talið líklegt að starfsmenn muni leggja áherslu á að hann hreppi hnossið þegar og ef af verður á næstunni. . . l nnlendi húsgagnaiðnaðurinn beið enn einn ósigurinn fyrir inn- flutningnum um daginn. Bruna- bótafélag Islands falaðist eftir til- boðum vegna endurnýjunar á tölvu- deild tryggingafélagsins og bárust 4 tilboð. Eina tilboðinu með erlend- um húsgögnum var tekið og verslað hjá Stálhúsgögnum fyrir rúma milljón. Um leið heyrum við þá skrítnu sögu af húsgagnamarkaðin- um hér að eitt fyrirtækjanna flytji húsgögn til Danmerkur, síðan aftur til landsins og áfram til Bandaríkj- anna. Þessi krókaleið sé hagkvæm- ari en að senda mublurnar beint vestur. . . Fræðingar landsins eru dugleg- ir og reikna tölur, finna meiri hag- kvæmni, ekki síst við nýtingu jarð- varmans. Nú hefur verið lögð til nýt- ing jarðgufu í fiskmjölsverksmiðjum landsins og sparaður gjaldeyrir vegna notkunar á 60—70 þúsund tonnum af svartolíu, um leið og þessum verksmiðjum yrði fækkað, en tvær stórar byggðar í staðinn við Húsavík og Grindavík. Alls 38 slíkar verksmiðjur eru um land allt og menn sammála um að þær séu allt of margar. En hvers mega sín hagkvæmnifræðingarnir þegar byggðastefnan er annars vegar. . . l miðju jólabókaflóðinu birtist skyndilega sérprentun úr riti Fram- tíðarkönnunar er nefnist ,,Fjár- hagur hins opinbera til ársins 2010." Þar kemur meðal annars í ljós að okkar blessaða „bákn“ er bara alls ekki svo viðamikið. Ef t.d. hlutfall opinberra starfsmanna af mannafl- anum væri eitthvað svipað hér og á hinum Norðurlöndunum væru hinir opinberu ekki í kringum 19.000 tals- ins — heldur 29 þúsund. Og ef tekjur ríkisins sem hlutfall af landsfram- leiðslu væru hér svipaðar og þar hljóðuðu fjárlögin ekki upp á ná- lægt 65 milljörðum króna, heldur upp á tæpiega 100 milljarða. . . BÍLALEIGA Útibú í kringum landið REYKJAVIK:.....91-31815/686915 AKUREYRI:.......96-21715/23515 BORGARNES:.............93-7618 BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489 HÚSAVÍK:.........%-41940/41594 EGILSSTAÐIR:...........97-1550 VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303 interRent Enn minni fyrirhöfn að greiða orkureiknínginn /gcgnit/n V/SAf Nú býður Rafmagnsveita Reykjavíkur þér nýja, mjög þægilega leið til að greiða orkureikninginn. Pú getur látið taka reglulega út af VISA-reikningnum þínum fyrir orkugjaldinu, án alls auka- kostnaðar. Þannig losnar þú við allar rukkanir, færð einungis sent uppgjör og greiðsluáætlun einu sinni á ári. Með þessari tilhögun, sem er nýjung í heiminum, sparar þú þér umstang og hugsanlega talsverða peninga því að það er dýrt rafmagnið sem þú dregur að borga. Jaínframt ertu laus við áhyggj- ur af ógreiddum reikningum og dráttar- vöxtum. Hafðu samband við Katrínu Sigur- jónsdóttur eða Guðrúnu Björgvinsdótt- ur í síma 68-62-22. Þú gefur upp núm- erið á VISA-kortinu þínu og málið er afgreitt! Láttu orkureikninginn hafa forgang - sjálfkrafa! RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR SUDURLANDSBRAUT34 SIMI686222 H ELGAR PÖSTURINN 17 ARGUS/SlA

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.