Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.01.1988, Qupperneq 20

Helgarpósturinn - 07.01.1988, Qupperneq 20
að hjálpa mér. Ég er ekkert fyrir samvinnu. Mér lætur best að vinna einn. Ef maður er með annan með sér í verki þarf sífellt að vera að bera saman bækur og eyða ómældum tíma í samræmingu. Það þoli ég ekki." — Áttu fáa vini? „Nei, góða. Ég rugla ekki saman vinnu og vináttu, passa mig á því. Það er eyðilegging á vini að gera hann að viðskiptavini sínum og þess vegna hef ég gætt mín sérstaklega á því að vera ekki að væia í fjölmörg- um vinum mínum í byggingabrans- anum um að koma í viðskipti til mín.“ — En samt, er ekkert fráhrind- andi fyrir vini aö madur göslist svona áfram eins og þú virdist gera, einn, grobbinn og kjaftstór? ,,Já, mér hefur nú einmitt oft ver- ið legið á hálsi fyrir að vera grobb- inn, sem er vitaskuld eðlilegt að fólk haldi þegar ég læt romsuna ganga út úr mér. En fráhrindandi... veistu, ég held að vinátta snúist einmitt um það að taka mann i eins og maður er. Og það sýnast mér vinir mínir gera. Þeir vita hvernig ég er. Og vita að mér verður ekki breytt." SITT HVAÐ FRAMKVÆMDAMENN OG LÖGFRÆÐINGAR — Kýstu Sjálfstœöisflokkinn? „Já." — Fínn flokkur? „Já, en Guð minn almáttugur, þingflokkurinn: Þar eru ekki fram- kvæmdamenn. Mann setur hljóðan að heyra fréttir af því að menn séu sífellt að tefja mál sem allir vita að hafa þingmeirihluta og munu ná fram að ganga. Það er mjög skrítið vinnulag. En ég veit nú ekki, talandi um framkvæmdamenn, hvað breyttist ef þeim yrði skipt inn fyrir lögfræð- ingana þarna á þingi. Ég er ekkert viss um að þeir rækjust eins, því þetta er allt önnur stétt." — Hvernig er stétt bygginga- manna? „Þetta er barbarismi alveg gegn- umsneytt..." — Hvernig þá, glóandi hatur og svívirdingar? „Nei. Ég á frekar við að það er hársbreidd á milli bullandi niður- gangs og rífandi uppsveiflu. Og menn ruglast hreinlega eins og ástandið er og fer — úr föstum vöxt- um í 80 prósent verðbólgu yfir í verðtryggingu og jafnvei affalla- reiknuð kaup eins og þau gerast á eyrinni í dag. Þeir sem héldu til dæmis áfram í verðbólguhugsana- hættinum fóru beinustu leið niður, á meðan aðrir lyftust í hæðir. Það er ekki nóg að vinna með höndunum, það verður líka að vinna með höfð- inu. Og hversu mikið þú gerir skiptir ekki máli, heldur hvað þú hefur út úr því. Gamla viðmiðunin hvað menn hafi marga menn í vinnu er bara brosleg..." — Og sofa svona menn á nótt- unni? „llla." — En láta sig hafa 'da? „Já blessaður vertu, þetta er lyf." BYGGINGALEYFIÐ í REYKJAVÍK Hvernig leið þér í fyrra eftir að hafa misst byggingaleyfið í Reykja- vík? „Það var svona viss hreinsun." — Þú útbjóst fleiri tbúöir í gömlu húsi en þú máttir samkvœmt reglu- gerö. Grœögi náttúrlega? „Bara framtakssemi í mikilli verð- bólgu. Það er metnaður minn að geta skilað mínu verki vel á réttum tíma og ég sá að þarna gat ég það ef ég fjölgaði íbúðum. Þetta var mikla upphlaupið, heimatilbúið hjá sjálfum bygginga- fulltrúanum. Það elti hann hvert ólánsmálið á þessum tíma; skjálfta- málið, alkalískemmdirnar og skort- ur á steypueftirliti. Það vantaði bara eitthvað til að skyggja á þetta allt- saman og þess vegna var þetta tæki- færi notað að krækja í mig akkúrat um þetta leyti. Síðan er maður not- aður, vitanlega, sem symból og mönnum sagt að geri þeir ekki hitt og geri þeir ekki þetta fari fyrir þeim eins og Óla litla." — En kanntu eitthvaö illa viö aö fara eftir reglugeröum? „Neinei, neinei. Ég teygði mig eins og ég gat í aumu kerfi, setti glugga í norður eins og alla langaði sem í íbúðunum hugðust búa. Bygg- ingareglugerðin er úrelt og gamal- dags og tekur ekkert mið af þörfum fólks í dag, eða tísku, því nú er ein- mitt tíska um mestan part heims að breyta gömlu húsnæði, gömlu grófu húsnæði, í íbúðir." ÖGRUNIN OG FULLVISAN — Þetta aö breyta húsum eöa byggja. Er ekki mikil fultnœgja því samfara aö sjá eftir sig hús um allan bœ? Aka um á sunnudögum og sjá hvaö maöur er í rauninni í skapandi vinnu? „Jú, þetta gefur mér alveg gífur- lega mikið. Ekki endilega þetta eins og þú lýsir því að aka um á sunnu- dögum og sjá fyrri verk, því til þess hef ég einfaldlega ekki tíma. Og að góna tímunum saman á fullmótað verk er ekkert sérstakt í mínum huga. Það er sjálf sköpunin sem hríf- ur mig, það að verkið sé að taka á sig mynd, rísa. Svo um leið og eitt verkefnið er búið er ég strax orðinn óþreyjufullur að komast í annað. Og svo er það ögrunin; að klára verk og henda strax öllum peningunum fyr- ir það í annað, það er ögrunin, en ég hef svo aftur fullvissuna um að geta það. Og þá er farið í það." DAGBÓKIN HENNAR DÚLLII Kæra dagbók. Það gekk svo mikið á hér á heimil- inu á gamlárskvöld að það var nú ekkert venjulegt. (Eins gott að „Lóa lenska" — íslenskukennarinn minn — sér ekki þessa setningu með þremur á-um!) Reyndar var það nú ekki beint hérna á heimilinu, því við vorum öll boðin til ömmu á Eini- melnum. Fríða föðursystir er nefni- lega þar með krakkana eftir að kall- inn fór frá henni með au-pair-stelp- unni og amma vildi að við kæmum til þess að gera þetta soldið hressi- legra hjá þeim. Það var sko aldeilis glæta hjá henni, maður. Annars hefði þetta svo sem getað verið OK, ef pabbi og Fríða hefðu verið útsof- in... Æ, ég verð að útskýra þetta: Það var nefnilega þannig, að milli jóla og nýárs fór Fríða frænka í partý. Þar hitti hún einhvern gaur, sem henni þótti alveg ógeðslega spennandi „týpa" (don’t ask me — ég veit ekki hvað hún meinar með þessu)! Þetta er víst alveg vonlaus gæi, sem er búinn að sofa hjá hálfri þjóðinni og allt saman, en hún bara varð gjörsamiega vitlaus í hann og stakk af úr partýinu með honum. (Mamma segir, að Fríða föðursystir sé vonlaus í kallamálum. Hún fellur víst eingöngu fyrir mönnum, sem ekkert er stólandi á!) Sem sagt... Fríða svaf hjá þessum kalli og hélt að hann væri orðinn gasalega skot- inn í sér, en svo heyrði hún auðvitað ekki bofs meira í vininum þó hún bókstaflega stæði vakt við símann. Aumingja amma greyið fékk ekki einu sinni að kjafta við vinkonur sín- ar nema í nokkrar sekúndur, því þá var Fríða farin að ókyrrast. Nóttina fyrir gamlársdag hringdi svo síminn hjá okkur og á hinum endanum var afskaplega full Fríða, sem sagðist vera að kveðja. Hún ætlaði sko að skreppa niður á Ægi- síðu og ganga snyrtilega í sjóinn af því að karlmenn væru upp til hópa aumingjar og bullur (berist fram eins og fullur)! Pabbi pældi ekki neitt í neinu og sagði bara biess, en þegar mamma heyrði hvað Fríða hafði sagt sendi hún hann strax út á Einimel. Þar þurfti hann að hanga yfir systur sinni alla nóttina og mér finnst nú ekki mikið þó hann hafi fengið sér eitt eða tvö koníaksglös til að halda sér vakandi. Svo gat mamma farið að skamma hann, ræfilinn. Hún, sem rak hann upp úr hlýju rúminu! A gamlársdagsmorgun þurfti pabbi að redda alls konar hlutum í bankanum og kaupa rakettur fyrir Adda bróður, en eftir hádegi var hann boðinn í einhverja veislu. Þess vegna gat hann ekkert lagt sig og ekki Fríða heldur, því tvíburarnir voru vaknaðir þegar pabbi fór frá henni. Enda voru þau líka algjör skandall hjá ömmu um kvöldið... Pabbi braut tvö kristalsglös fyrir miðnætti og brenndi sig fjórum sinnum, þegar hann var að meika „flugeldasýningu aldarinnar". (Guð hvað við krakkarnir skömmuðumst okkar, þegar hann hringdi á dyra- bjöllunum í næstudiúsum til að láta alla horfa „sjóið".) Það sauð svo fyrst almennilega upp úr eftir að hann sagði að mamma skildi sig ekki. Hún brjálaðist, rauk heim og er ekki enn farin að tala við hann. Við urð- um hins vegar að hjálpa ömmu að svæfa tvíburana, af því að Fríða frænka var týnd. Stebba systir fann hana svo sofandi í baðkerinu seinna um nóttina. Guð hvað ég er fegin að gamlárs- kvöld er bara einu sinni á ári! Dúlla. Rétt svör við fréttagetraun 1. c. 15. b. 29. c. 2. c. 16. a. 30. a. 3. b. 17. b. 31. a. 4. c. 18. a. 32. a. 5. b. 19. b. 33. c. 6. c. 20. c. 34. a. 7. c. 21. c. 35. b. 8. c. 22. a. 36. c. 9. c. 23. b. 37. c. 10. c. 24. a. 38. a. 11. a. 25. c. 39. b. 12. b. 26. b. 40. a. 13. c. 27. b. 41. c. 14. c. 28. c. 42. a. , ÁHEITASÖFNUN KRYSUVIKURSAMTAKANNA A ÁTAK TIL HJÁLPAR RÆKTUM UPP O G GRÆÐUM SÁRIN KÝSUVÍKURSAMTÖKIN - Þverholti 20-105 Reykjavík - sími 623550 20 HELGARPÓSTURINN FISHER BORGARTÚNI 16 REYKJAVÍK. SÍMI 622555 SJÓNVARPSBÚDIN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.