Helgarpósturinn - 07.01.1988, Qupperneq 35
FRÉTTAGETRAUN HELGARPÓSTSINS
Hér að neðan eru fjörutíu og tvær spurningar
byggðar á ummælum fólks á árinu sem var að
líða. Lesendum eru gefin þrjú svör við hverri
spurningu. Aðeins eitt þeirra er rétt. Lausnir á
getrauninni er að finna á blaðsíðu 20 í blaðinu.
1.
„Þad er óvœntur heiöur aö verda þessarar
viöurkenningar aönjótandi," sagöi Ólafur Ragn-
ar Grímsson snemma á árinu. Hver var þessi
óvœnta viöurkenning?
a. Hann fékk annað sætið á lista Alþýðu-
bandalagsins á Reykjanesi.
b. Hann var tilnefndur Herra Samúel af hátt á
annað þúsund konum sem tóku þátt í skoðana-
könnun blaðsins.
c. Honum var tilkynnt að samtökin „Parlia-
mentarians Global Action", sem hann er formað-
ur fyrir, fengju indiru Gandhi-verðlaunin.
2.
„Ég hefáhyggjur af því aö þingiö veröi sér til
skammar ef þaö samþykkir þetta," sagöi Árni
Gunnarsson í október. Hver var þessi skömm
sem Árni vildi foröa þinginu frá?
a. Að Salóme Þorkelsdóttir eða Ragnhildur
Helgadóttir yrðu forsetar þingsins í stað Þor-
valds Garðars Kristjánssonar.
b. Að byggt yrði nýtt hús undir starfsemi Al-
þingis þar sem meðal annars yrði „sauna" og
heilsuræktaraðstaða fyrir þingmenn.
c. Að samþykkt yrðu lög sem heimiluðu slát-
urhúsinu á Bíldudal að slátra, þrátt fyrir bann
yfirdýralæknis.
3.
„Ég vil ekki nefna þennan mann á nafn,"
sagöi Guörún Jónsdóttir, félagsráögjafi og fyrr-
verandi borgarfulltrúi Kvennaframboösins, í
mars. Hvaö haföi þessi maöur gert sem geröi
nafn hans svo eldfimt?
a. Hann hafði með brögðum reynt að troða sér
á lista Kvennalistans á Vestfjörðum.
b. Hann hafði káfað á kvenkyns borgarfulltrú-
um á borgarstjórnarfundum.
c. Hann hafði smyglað embættisbifreið sinni
undir liðinn „ýmis tæki til véladeildar" á fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar.
4.
„Ég óttast aö Sjálfstœöisflokkurinn sé aö
kyrkja Ríkisútvarpiö undir forystu menntamála-
ráöherra og formanns útvarpsráös," sagöi Ingvi
Hrafn Jónsson, fréttastjóri sjónvarpsins, síöast-
liöiö vor. Hvert var tilefniö?
a. Hann hafði verið gagnrýndur fyrir viðtal
sem hann tók við Albert Guðmundsson eftir að
sá síðarnefndi var neyddur til að segjma af sér
ráðherradómi.
b. Hann hafði verið gagnrýndur fyrir að hafa
ekki horft á frétt sjónvarpsins af svokölluðu
„Svefneyjamáli" áður en hún var sýnd.
c. Hann var sjálfur að gagnrýna þann aðbúnað
sem Ríkisútvarpinu er búinn af stjórnvöldum
svo og ofríki útvarpsráðs.
5.
„Guö hefur gefiö mér sterk bein. Ég spyr sjálf-
an mig, hvenœr láta þau undan?" sagöi Albert
Guömundsson í mars. Hvers vegna þakkaöi
Albert Guöi fyrir sín sterku bein?
a. Hann hafði slegið Einar Ólafsson, ljósmynd-
ara Þjóðviljans, á kjaftinn án þess að skaðaðst
sjálfur.
b. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hafði kraf-
ist afsagnar hans úr ráðherrastól.
c. Hann var kosinn formaður Borgaraflokks-
ins stuttu eftir að þingflokkur hans hafði tilnefnt
hann þingflokksformann.
6. v
„Mér viröist sem Þjóöverjar séu búnir aö setja
hvalinn á lista meö kaktusum, krókódílum og
ýmsu þess háttar," sagöi Kristján Loftsson, for-
stjóri Hvals hf„ í apríl. Hvert var tilefni þessara
ummœla?
a. Þjóðverjum snerist hugur á fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins og greiddu algeru veiðibanni
atkvæði sitt.
b. Vegna mistaka við gerð tollskrár í Þýska-
landi hafði hvalkjöt verið skráð með „k-i“ í upp-
hafi orðsins og því verið sett á rangan stað í
skránni.
c. Hvalkjöt var kyrrsett í fríhöfn í Hamborg,
þar sem innflutningur á dýrum í útrýmingar-
hættu er bannaður í Þýskalandi.
7.
„Þessir menn halda aö þeir séu ennþá í
Reykjavík. En þeir fá aö vita aö þaö þarf aö
beita öörum brögöum til þess aö komast á þing
fyrir landsbyggöina," sagöi Ólafur Ragnarsson,
sveitarstjóri á Djúpavogi, snemrrta vors. Hvert
var tilefni þessara ummœla?
a. Sverrir Hermannsson lýsti því yfir að sér
þætti þessi kosningabarátta einkar leiðinleg og
hafði sig lítið í frammi á kosningafundum.
b. Borgaraflokkurinn setti Ingvar Níelsson
verkfræðing efstan á lista sinn, en Ingvar var þá
tiltölulega nýkominn til landsins eftir langdvalir
erlendis.
c. Guðmundur Einarsson, frambjóðandi Al-
þýðuflokksins, sagði að ástandið á Djúpavogi
væri loksins að lagast eftir að menn fóru að
vinna þar allt árið.
8.
„Hún er mild og mannúöleg," sagöi Albert
Guömundsson stuttu fyrir páska. Hverri var
hann aö lýsa?
a. Helenu, dóttur sinni, sem kom heim frá
Tulsa í Bandaríkjunum til þess að stjórna kosn-
ingabaráttu Borgaraflokksins.
b. Guðrúnu Jónsdóttur, fyrrverandi borgarfull-
trúa Kvennalistans, sem hafði þá nýverið kvart-
að undan káfi karlmanna á borgarfundum.
c. Stefnu Borgaraflokksins.
9.
„Er ekki til krydd sem heitir allrahanda?"
Þorsteinn Pálsson svaraöi spurningu meö þess-
ari spurningu fyrir síöustu kosningar. Hvaö átti
hún aö skýra?
a. Til hvaða ráða hann hygðist grípa til að
hressa upp á ímynd Sjálfstæðisflokksins.
b. Samsetningu fyigismanna Borgaraflokks-
ins.
c. Stefnu Sjálfstæðisflokksins varðandi frjálsa
útflutningsverslun.
10.
„Þaö má Guö vita hvaö oröiö hefur afþessum
atkvœöum," sagöi Rúnar Guöjónsson, sýslu-
maöur í Borgarnesi, í vor. Hvaiöa atkvœöi var
Rúnar aö tala um?
a. Atkvæðin sem Framsókn tapaði í kjördæm-
inu og urðu til þess að Davíð Alexandersson féll
af þingi.
b. Atkvæði sem týndust í Borgarnesi og fund-
ust síðar í fangageymslum lögreglunnar fimm
dögum eftir kosningar.
c. Atkvæði Ásmundar og Þrastar á Varma-
landsfundi miðstjórnar Alþýðubandalgsins um
að skipa nefnd til þess að kanna ástæður fylgis-
taps flokksins í kosningunum.
II.
„Ég geri ekkert i þessu máli. Ekki handtak,"
sagöi Sverrir Hermannsson á fyrri helmingi árs-
ins. Hvaöa mál var þaö sem Sverrir ætlaöi ekki
aö snerta?
a. Langvarandi verkfall kennara við fram-
haldsskólana, sem um tíma virtist ætla að koma
í veg fyrir að nemendur gætu tekið vorpróf frá
skólunum.
b. Kosningabarátta Sjálfstæðisflokksins. Hann
vissi sem var að hann þurfti ekki að leggja sig
fram. Egill Jónsson var fyrir neðan hann á list-
anum og Egill kemst alltaf inn.
HELGARPÓSTURINN 35