Helgarpósturinn - 07.01.1988, Page 37
a. Jóhanna Sigurðardóttir hótaði kannski ekki
beinlínis að fara úr ríkisstjórninni vegna slælegs
stuðnings hennar við húsnæðisfrumvarpið, en
það lá í loftinu.
b. Vigdís Finnbogadóttir hótaði ekki beinlínis
að mynda utanþingsstjórn undir forsæti Jó-
hannesar Nordal í stjórnarkreppunni eftir kosn-
ingarnar 1983, en það lá í loftinu.
c. Kona Steingríms, Edda Guðmundsdóttir,
hótaði ekki beinlínis að taka upp lifnaðarhætti
Gorbatsjov-hjónanna, en það lá í loftinu.
28.
,, Ég held ad þad hljóti ad vera augljóst mál, ad
þetta eru vonbrigöi fyrir alla vidkomandi, bœdi
fyrir Sambandid og vidkomandi einstaklinga,"
sagdi Guðjón B. Olafsson, forstjóri Sambands-
ins, á árinu. Hvert var tilefni vonbrigdanna?
a. Þrjátíu og þrír „einstaklingar" buðu í hluta-
bréf ríkisins í Útvegsbankanum á móti Sam-
bandinu.
b. Þrotabú Kaupfélags Svalbarðseyrar ákvað
að sækja að fyrrverandi stjórnarmönnum kaup-
félagsins vegna skulda er þeir höfðu gengið í
ábyrgð fyrir.
c. Sakadómur Reykjavíkur fann fjóra af starfs-
mönnum Sambandsins seka í svokölluðu „kaffi-
baunamáli".
29.
,,Þad má ekki gera neitt sem hefur í för med
sér ad breyta meginstefnunni," sagdi Alexander
Stefánsson seint í haust. Hvert var tilefni þessar-
or íhaldssömu yfirlýsingar?
a. Alþýðuflokkurinn lagði til breytingar á
landbúnaðarstefnunni, sem framsóknarmenn
hrundu að mestu.
b. Alþýðuflokkurinn lagði til breytingar á
kvótakerfinu, sem framsóknarmenn hrundu að
mestu.
c. Alþýðuflokkurinn lagði til breytingar í hús-
naeðismálum, sem framsóknarmenn hrundu að
mestu.
30.
„Þetta er audvitad slettirekuskapur fram í
störf Alþingis sem forseta Hœstaréttar koma
ekki við á þessu stigi málsins," sagði Steingrímur
J. Sigfásson þingmaður fyrri hluta ársins. Hver
var þessi slettirekuskapur Magnúsar Thorodd-
sen, forseta Hœstaréttar?
a. Hann svaraði Steingrími Hermannssyni
símleiðis um hvort Sturla Kristjánsson, brottvik-
inn fræðslustjóri, ætti rétt á því að krefjast þess
að mál hans yrði rannsakað fyrir dómi.
b. í skýrslu nefndar sem Hæstiréttur skipaði
|kom fram það áiit að óeðlilegt væri að þing-
jmenn sætu í bankaráðum.
c. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að í
Ifaun væru engir hámarksvextir í gildi hér-
iendis og okurlögin því marklaus.
31.
„Hann hefur í raun hlœgilega lítil völd, menn
ótta sig bara ekki á því og það bjargar honum,"
sagdi Davíð Oddsson borgarstjóri í haust. Hver
var heppinn að enginn áttaði sig á því hversu
blaegileg völd hann hafði?
a. Þorsteinn Pálsson, eftir að hann tók við
embætti forsælisráðherra, sem að dómi Davíðs
var afskaplega valdalítið embætti.
b. Margrét Harðardóttir, sem teiknaði ráðhús-
■ð ásamt eiginmanni sínum, sem Davíð taldi að
hefði töglin og hagldirnar, bæði á heimilinu og
á teiknistofunni.
c. Matthías Á. Mathiesen, eftir að hann varð
fáðherra samgöngumála, sem Davíð áleit lítinn
íbita fyrir þennan máttarstólpa flokksins á
l^eykjanesi.
i 32.
„Það er á mörkunum að hœgt sé að rœða
þetta við utanríkisráðherra, en ég var búinn að
lofa því heima að gera það," sagði Steingrímur
Hermannsson snemma vetrar eftir viðrœður við
Andreotti, utanríkisráðherra Italíu. Hvað var
Það sem var á mörkunum?
a. Að það væri enginn saltfiskur með haus.
b. Að Gorbatsjof og Raisa svæfu ekki saman.
c. Að Ólafur Ragnar Grímsson væri fluggáfað-
ur en hins vegar óþolandi egóisti.
33.
„Það er ekkert nýtt að það sé ágreiningur inn-
an lögfrœðinnar, þetta er hugvísindagrein og
þar eru tvisvar tveir ekki alltaf fjórirþ sagði
Magnás Thoroddsen, forseti Hœstaréttar, í nóv-
ember. Hvert var tilefni þessarar yfirlýsingar
Magnúsar um skringilega samlagningu lög-
frœðinnar?
a. Tilefnið var að Hæstiréttur taldi Hallvarð
Einvarðsson rikissaksóknara óhæfan til þess að
fara með ákæruvaldið í Hafskipsmálinu og Hall-
varði mislíkaði mjög.
b. Tilefnið var að mannréttindadómstóll
Evrópuráðsins féllst á að taka fyrir hvort það
samrýmdist mannréttindasamþykkt þess, að
sami maður rannsakaði, ákærði og dæmdi mál,
en Hæstiréttur hafði lagt blessun sína yfir það.
c. Tilefnið var að Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður gagnrýndi réttinn fyrir að
vera of vilhallur ríkisvaldinu á kostnað mann-
réttindaákvæða stjórnarskrárinnar.
34.
„Þarna voru miklu fleiri en við höfðum gert
okkur vonir um að myndu mœta. Og það merki-
lega var að þarna var fólk sem aldrei hefur sést
á útifundum," sagði Flosi Ólafsson seint á árinu.
Hver var þessi atburður sem dró til sinn fólk sem
aldrei sótti útifundi?
a. Fundur samtakanna „Tjörnin lifi", sem hald-
inn var til þess að mótmæla fyrirhugaðri bygg-
ingu ráðhúss við Tjörnina í Reykjavík.
b. Hátíðleg athöfn þar sem kveikt var á jólatré
sem íbúar Öslóborgar gáfu Reykvíkingum, en
athöfnin fór að þessu sinni fram í Laugardals-
höllinni vegna lélegrar mætingar undanfarin ár.
c. Rútudagurinn við Umferðarmiðstöðina, þar
sem rúta var hífð upp á þak byggingarinnar og
fólki boðið í ókeypis ferð með langferðabíl um
miðbæ Reykjavíkur.
35.
„Við œtluðum andstœðingunum í pólitík hér
aldrei eins illt og þeir sýnast núna hafa verið að
gera," sagði Einar Olgeirsson, fyrrverandi for-
maður Sósíalistaflokksins, í nóvember. Hvert
var tilefni þessara ummœla?
a. Listi yfir stuðningsmenn Ólafs Ragnars
Grímssonar sem dreift var á fundi þar sem full-
trúar Reykjavíkur á landsfund Alþýðubanda-
lagsins voru kosnir.
b. Frétt Ríkisútvarpsins af ummælum norsks
sagnfræðings um tengsl Stefáns Jóhanns Stef-
ánssonar við leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA.
c. Þingflokkur sjálfstæðismanna neyddi Al-
bert Guðmundsson til þess að segja af sér ráð-
herradómi.
36.
,,Ég hef gengið á allan þingflokk Alþýðu-
bandalagsins og óskað honum til hamingju og
fengið misjafnar undirtektir," sagði Ólafur Þ.
Þórðarson, þingmaður Framsóknar, í lok ársins.
Hvert var tilefni þessara hamingjuóska sem
fengu svona misjafnar undirtektir?
a. Steingrímur J. Sigfússon hafði ekki komið í
ræðustól í þinginu í tvo daga samfellt.
b. Alþýðubandalagið var orðið minnsti þing-
flokkurinn samkvæmt skoðanakönnunum.
c. Alþýðubandalagsmenn höfðu kosið Ólaf
Ragnar Grímsson formann flokksins.
37.
„Auðvitað kemur það fyrir í öllu þessu álagi
að menn skipti skapi og ég býst við að það hafi
komið fyrir fleiri í lífinu," sagði Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráðherra í jólamánuðinum.
Hvert var tilefni þessarar lífsspeki?
a. Formenn þingflokkanna og forsetar þings-
ins komu sér ekki saman um vinnutilhögun á
þinginu vegna alvariegs missættis.
b. Jóhanna Sigurðardóttir hafði neitað að
mæta á ríkisstjórnarfundi vegna þess hversu
slælega ríkisstjórnarflokkarnir styddu við bakið
á húsnæðisfrumvarpi hennar.
c. Formenn stjórnarflokkanna höfðu hnakk-
rifist þegar þeir reyndu að jafna ágreining í
stjórninni og koma saman á annan tug stjórnar-
frumvarpa tveimur vikum fyrir jólafrí þingsins.
38.
„Sumir segja að lífeyrissjóðirnir hafi brunnið
upp. Það er rangt. Peningarnir eru bara geymdir
í húseignum sjóðfélaga," sagði Jón Hallsson,
framkvcemdastjóri Lífeyrissjóðs verkfrœðinga, í
desember. Hvað meinti Jón?
a. Að þeir sem fengu lán til húsnæðiskaupa hjá
sjóðunum á tímum verðbólgu hefðu ekki greitt
nema lítinn hluta lánsins til baka.
b. Að þar sem ekkert væri notað af því fé sem
lífeyrissjóðirnir lánuðu til Húsnæðisstofnunar
hefði verið ákveðið að geyma peningana heima
hjá sjóðfélögum.
c. Að peningar lífeyrissjóðanna hefðu ekki
brunnið þegar kviknaði í hjá þeim. Hann hafi
verið búinn að flytja allan sjóðinn heim til sín.
39. ,
„Út af fyrir sig breytti rœða Þorsteins Pálsson-
ar engu um þróun þessa máls," sagði Halldór
Ásgrímsson í ársbyrjun. Hvaöa rœða Þorsteins
var það sem engu breytti?
a. Ræða sem hann hélt á fulltrúaráðsfundi
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, þar sem hann
fór þess á leit að Albert Guðmundsson héldi sæti
sínu á lista flokksins í borginni.
b. Ræða sem hann hélt á Alþingi, þar sem
hann mælti gegn lögum um að stöðva far-
mannadeiluna fáeinum klukkustundum eftir að
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
hafði mælt með frumvarpinu.
c. Stefnuræða forsætisráðherra. Framsóknar-
menn vissu sem var að þegar allt væri til lykta
leitt væri það þeirra stefna sem gilti.
40. ,
„Ég heflengi verið þeirrar skoðunar að ceðstu
embœttismenn yrðu kosnir eins og stjórnmála-
menn, þannig aö þeir hefðu þennan hita í hald-
inu," sagði Sverrir Hermannsson snemma á ár-
inu. Afhvaöa tilefni lýsti Sverrir þessari skoðun
sinni?
a. Hann hafði rekið Sturlu Kristjánsson úr
embætti fræðslustjóra Norðurlandskjördæmis
vestra.
b. Hann hafði verið kosinn eftirmaður Jónasar
Haralz sem bankastjóri Landsbankans af þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins.
c. Hann var neyddur til að segja af sér sem
framkvæmdastjóri Framkvæmdastofnunar
meðan hann gegndi ráðherrastarfi.
41.
„Auðvitað er þetta töff. Það er búið að vera
töfföllþau ársem ég hefveriö hér. Ég hefstund-
um sloppið með skrekkinn, stundum hefég tap-
að, en oft hef ég líka grœtt óhemju fé," sagði
Davíð Scheving Thorsteinsson á haustdögum.
Hvað var það sem var svona töff í þetta sinn?
a. Seta hans í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
vegna kreppunnar í flokknum eftir kosninga-
ósigurinn.
b. Seta hans í bankaráði Iðnaðarbankans
vegna versnandi eiginfjárstöðu.
c. Seta hans í stól framkvæmdastjóra Sólar hf.
vegna mistaka í framleiðslu og markaðssetn-
ingu Sól-gossins.
42.
,,Þingmenn segja af sér þingmennsku, hoppa
inn í Seðlabanka og sumir deyja á kjörtímabil-
inu" sagði Sígríður Dúna Kristmundsdóttir fyrri
hluta ársins. Hvert var tilefni þessara sorglegu
ummœla?
a. Sú ákvörðun Kvennalistans að þær konur
sem kosnar yrðu á þing í komandi kosningum
segðu af sér þingmennsku að hálfu kjörtímabil-
inu liðnu.
b. Sú ákvörðun sjálfstæðismanna að koma
fyrrverandi formanni sínum, Geir Hallgríms-
syni, fyrir í Seðlabankanum, eftir að hann hafði
verið tekinn af lífi í prófkjöri.
c. Álag á þingmönnum vegna kröfu stjórnar-
flokkanna að afgreiða fjölda mála fyrir þingslit
og upphlaup einstakra stjórnarliða.
HELGARPÓSTURINN 37