Helgarpósturinn - 26.05.1988, Síða 6

Helgarpósturinn - 26.05.1988, Síða 6
Sverrir Hermannsson FRAMKVÆMDIN MIKIL VONBRIGÐI ,,Ætlunin með lögunum var ad gefa þeim sem uildu afla sér rétt- inda fœri á því án þess ad hrugga við aðstöðu þeirra og þá á ég ekki síður við skólastjórastödu en kennarastöðu," sagði Sverrir Her- mannsson t samtali við HP, en hann var menntamálaráðherra þegar Alþingisamþykkti lögin um lögverndun starfsheitis og starfs- réttinda kennara og skólastjóra í apríl 1986. Eins og í megingreininni er rak- ið voru uppi mikiar áhyggjur með- al margra þingmanna við af- greiðslu málsins um að kennarar með mikla reynslu að baki en án réttindanna yrðu hraktir burt úr stöðum sínum, sérstaklega í ljósi þess að víða gengi illa að manna þessi störf — og engan veginn tryggt að réttindakennarar væru í raun hæfari en réttindalausir kennarar með langa starfsreynslu. „Meðan þetta var í mínum höndum skiidi ég anda laganna á þennan veg. Mér var það mikil raun að sjá framkvæmdina, að gamlir og grónir afbragðskennar- ar, sem ekki höfðu fuli réttindi, gátu ekki fengið að halda kenn- aranafnbótinni áfram hvað þá meir. Þetta var mér raun að sjá og ég gerði mér ekki grein fyrir þessu. Ég tala nú ekki um að eftir að það mark var sett, að réttinda- lausir menn gætu aflað sér rétt- inda og fengju til þess allt að 5 ár, að það eigi í raun ekki að gefa þeim þetta tækifæri. Að sjálfsögðu ætlaðist ég til að staða siíkra manna yrði ekki auglýst á meðan og á þann háttinn var þetta rætt við mig. Ég leyni því ekki, hvað þetta til- tekna fordæmi varðar frá Súðavík, að ef það verður niðurstaða ríkis- lögmanns og ráðuneytisins að þetta nái ekki til skólastjóra þá verða það mikil vonbrigði fyrir þá sem voru að beita sér fyrir rétt- indamáium kennara. Ég leit svo á að það væri mjög mikilvægt og það var sótt mjög á um þetta, með- al annars gegn mikilii andstöðu í mínum flokki. Ef framkvæmdin á að vera þessi þá verða það mér mjög mikil vonbrigði," sagði Sverrir. ekki hafi notið þessara réttinda sem kveður á um í lögum, komist ekki að verkum sínum, vegna þess að um ófyrirsjáanlega framtíð þurfum við á’þeim að halda. Og þótt þetta sé þrengt með þessum hætti mun ég, m'eðan ég er í þessari stöðu minni, stuðla að og beita mér fyrir og ráða úrslitum um að engu verði breytt í því að við fáum notið þessara kenn- ara áfram." Því var samþykkt ákvæði til bráðabirgða í lögunum þar sem seg- ir meðal annars: ,,Þeir sem fyrir gildistöku þessara laga hafa stárfað sem settir kennar- ar sex ár eða lengur, en fullnægja ekki skilyrðum laganna til starfs- heitis og starfsréttinda, skulu eiga kost á því að ljúka námi á vegum Kennaraháskóla íslands eða Há- skóla íslands til að öðlast slík rétt- indi. Um tilhögun námsins skal setja ákvæði í reglugerð. Heimilt er að setja eða ráða þá, sem slíka starfs- reynslu hafa að baki, í kennslustarf til eins árs í senn en þó ekki til lengri tíma en fjögurra skólaára samtals frá gildistöku laga þessara." BRÁÐABIRGÐA- ÁKVÆÐIÐ SKILGREINT tJm tilgang þessa bráðabirgða- ákvæðis var sagt í greinargerð með frumvarpinu og um leið kveðið á um túlkun ákvæðisins, reyndar á nokkuð ófulinægjandi hátt: ,,í ákvæði til bráðabirgða er gert ráð fyrir að þeir sem starfað hafa við kennslu án kennsluréttinda um ákveðinn tíma skuli fá tækifæri til að afla þeirra án þess að staða þeirra breytist á meðan á námi stendur." Arið eftir var síðan sett reglugerð númer 457 þar sem í 10. grein segir ótvírætt: „Meðan settur kennari stundar þetta nám verður staða hans ekki auglýst. það gildir þó aðeins í fimm ár frá og með 1. janúar 1988.“ Deilan nú stendur um túlkun þess- ara ákvæða, þ.e. hvort aðeins er átt við kennarastarfið sem slíkt þegar sagt er ,,án þess að staða þeirra breytist á meðan á námi stendur" eða hvort átt er við stöðu viðkom- andi aðila almennt, sem hann gegn- ir. Hin þrönga túlkun ráðuneytisins nú gerir ráð fyrir að Helgi Hauksson megi halda kennarastörfum sínum áfram, en öðru máli gegni um skóla- stjórastöðuna. Hin víðari túlkun gengur út frá því að ekki megi hrófla við þeirri stöðu sem Helgi hefur gegnt í tvö ár, þ.e. skólastjórastöð- unni, frekar en kennslustöðunni. Eins og fram kemur í sérstöku við- taii við Sverri Hermannsson, menntamálaráðherrann fyrrver- andi, er það ótvíræð afstaða hans að hugsunin hér að baki við afgreiðslu Alþingis hafi verið hin víðari túlkun og að það væru honum mikii von- brigði ef ráðuneytið ætlaði sér að túlka lögin á annan hátt. ÖFGAR SAGÐI BIRGIR Um leið verður að álykta sem svo að Sverrir sé ekki par hrifinn af ákvörðunum flokksbróður síns í máli þessu, Birgis ísleifs Gunnars- sonar, núverandi menntamálaráð- herra, sem gerði hina þrengri túlk- un að sinni. Þegar lögin voru til um- ræðu á Alþingi vorið 1986 var ekki annað á Birgi að heyra en hann væri mótfallinn öfgum t lögverndun starfsheita, hann sagði 18. apríl 1986: „í fyrsta lagi hef ég vaxandi vantrú á þeirri öru þróun, sem hér er á landi, þar sem hver stéttin á fæt- ur annarri fær lögbundin sérréttindi til ákveðinna starfa. Ég held að þessi þróun sé að fara út í öfgar." Við þetta tækifæri var núverandi menntamáiaráðherra því á móti öfgum hvað sérréttindi varðar og mætti því ætla að hann væri á móti því að túlka áðurnefnt ákvæði þröngt, þ.e. að sérréttindin verði sem mest. Það hefur hann hins veg- ar kosið að gera með því að rita nafn sitt undir túlkun embættismanna sinna í menntamálaráðuneytinu. Það var ekki fyrr en eftir að mót- mæli við þessari túlkun bárust að ráðherra leitaði lögfræðilegs álits hjá ríkislögmanni um hvernig túlka bæri laga- og reglugerðarákvæðin. ODDVITAFRÚIN VILL AUGLÝSA Helgi Hauksson hefur verið skóla- stjóri barnaskólans á Súðavík í tvö ár, en á að baki sjö ára kennara- 6 HELGARPÓSTURINN reynslu. Enginn styr hefur. staðið um árangur hans í starfi, nema síður sé, því samkvæmt heimildum HP hefur skólanefnd skóians lýst yfir ánægju sinni með starfið að undan- förnu og bókað þetta á fundum sín- um. Það var hins vegar eftir að ósk köm frá Helgú'G. Guðjónsdóftur að skólanefndin ákvað að taka það fyr- ' ir á fundi sínum að auglýsa skyidi stöðuna lausa. Helga hefur nýlokið við kennaranám, en hún er eigin- kona hreppsnefndaroddvitans, Hálfdáns Kristjánssonar. Helgi taldi hins vegar ekki heimilt að auglýsa stöðuna lausa í ljósi þess að hann væri í réttindanámi og staða hans á meðan vernduð í lögum um starfs- réttindi og starfsheiti kennara og skólastjóra. Hann leitaði álits fræðslustjóra Vestfjarða, Péturs Bjarnasonar, sem aftur tók þetta mál upp á fundi ráðuneytismanna með fræðslustjórum 29. janúar í ár. A fundi skólanefndarinnar síðar sagðist Pétur hafa fengið það svar um túlkun á lagaákvæðunum frá Sigurði Helgasyni, deildarstjóra grunnskóladeildar, að litið væri svo á að viðkomandi réttindalausir kennarar væru ráðnir til 5 ára og að þetta gilti einnig um Helga í stöðu skólastjóra — og því þyrfti ekki að auglýsa stöðuna. Þessu greindi Pét- ur einnig skólanefndarmönnum frá. FORMAÐUR SKÓLA- NEFNDAR ÚTSKÝRIR I greinargerð vegna ákvörðunar skólanefndar Súðavíkur um að aug- lýsa skólastjórastöðuna segir nefnd- arformaðurinn, Dagrún Dagbjarts- dóttir, hinn 11. apríl: „1 febrúar sl. tjáði fræðslustjóri, Pétur Bjarnason, undirrituðum og öðrum skólanefndarmanni, Jónu Benediktsdsóttur, að ekki þyrfti að auglýsa stöðuna og vísaði þar til þess er fram hefði komið á fundi fræðslustjóra og ráðuneytismanna þann 29. janúar sl. Skömmu síðar hringir til mín Helga G. Guðjónsdóttir í Súðavík. Hún er að ljúka kennaranámi við Kennaraháskólann og lýsti hún yfir við mig áhuga á að sækja um stöðu skólastjóra hér, næsta skólaár, þar sem hún taldi að það bæri að aug- lýsa hana. Jafnframt kvaðst hún hafa vitneskju um að skólanefnd væri ekki sammála um málið. Hún tjáði mér að hún hefði rætt þetta við Sigurð Helgason, deildarstjóra grunnskóladeidar menntamála- ráðuneytisins, og ég fengi upphring- ingu frá honum fljótlega. Tveim dögum síðar hringir Sig- urður Helgason í mig og segir mér frá viðræðum sínum við Helgu Guð- jónsdóttur og niðurstaða hans var sú að það bæri að auglýsa stöðuna ef meirihluti skólanefndar væri því hlynntur. Nokkru síðar hafði ég samband við Sigurð og óskaði eftir skriflegu áliti hans eða ráðuneytis- ins um málið, sem ég fékk í postfax- bréfi þann 5. apríi sl. Þar segir orð- rétt: „Þrátt fyrir ákvæði 10. gr. regiugerðar nr. 457/1987 um nám kennara sem fullnægja ekki skilyrð- um laga nr. 48/1986 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhalds- skólakennara og skólastjóra er skólanefnd grunnskólans í Súðavík heimilt að auglýsa stöðu skólastjóra sé meirihluti sammála þeirri ákvörðun." 1 ljósi þessara atriða hélt síðan skólanefndin fund þar þann 6. apríl si. þar sem ásamt aðaimönnum í skólanefnd voru mættir fræðslu- stjóri, fulltrúi kennara og fulltrúi skólastjóra, þar sem hann vék af fundi meðan fjallað var um hvort staða hans yrði auglýst eður ei, en lagði fram bókun áður en hann vék. í Ijósi álits ráðuneytisins samþykkti skólanefndin samhljóða að staðan skyldi auglýst." DEILDARSTJÓRINN GEGN FRÆÐSLUSTJÓRA í samtali við HP sagði Dagrún að skólanefndin hefði ekki neitt út á Helga Hauksson að setja sem skóia- stjóra en markmiðið með því að láta auglýsa skóiastjórastöðuna væri að fá kennara með full réttindi í hana, en slíkur kennari væri til staðar á Súðavík. Varðandi túlkun reglu- gerðarinnar vísaði hún alfarið á menntamálaráðuneytið. Þvert gegn því sem fram kemur hjá fræðslustjóranum og staðfest er í greinargerð skólanefndarfor- mannsins neitaði Sigurður Helga- son, deildarstjóri grunnskóladeild- ar, því staðfastlega að á áðurnefnd- um fundi hefði þetta álit hans komið fram. „Það hefur verið okkar mat að þrátt fyrir orðalag reglugerðarinnar hafi aldrei staðið til að þetta fólk ætti að hafa meiri réttindi en kenn- arar með full réttindi, því þeirra stöður má augiýsa. Það var verið að tryggja þessu fólki réttindi, en ekki umframréttindi. Það er alls ekki rétt sem þú tilgreinir, að ráðuneytið hafi á fundinum með fræðslustjórunum ályktað að samkvæmt þessari grein þyrfti ekki að auglýsa þessa stöðu, það er misskilningur. Skólanefndin spurði hvort heimilt væri að auglýsa þes„a slöðu og við svöruðum því til að heimilt væri að auglýsa stöður sem réttindafólk situr í ef óskað væri eftir og á sömu íorsendum heimiluðum við auglýsingu í þessu tilfelli. Þessu var mótmælt af Helga Haukssyni og því var málinu vísað til ríkislögmanns, þar sem beðið var um álit á lögmæti þessarar auglýs- ingar. En 1. grein laganna er skýr, ekki má setja í stöðu skóiastjóra nema þá sem hafa réttindi. í þessu máli var það bókað í skólanefndinni að staðan væri auglýst til þess að freista þess að fá í stöðuna mann með full réttindi. Þetta er skýr af- staða og þarna er frumkvæðið og tilbúningur að önnur afstaða hafi komið fram hjá mér eða ráðuneyt- inu.“ HVER SKAL TÚLKA LÖGIN? Sigurður sótti fundargerð áður- nefnds fundar, þar sem segir eftir ritaranum að Pétur Bjarnason hafi tekið upp vandamál varðandi það, ef réttindalaus maður er í skóia- stjórastöðu, hver réttur hans væri samkvæmt 5 ára reglunni. Sigurður segir að Pétur hafi bent á þetta vandamái, „en þessu er hvergi svar- að í þessari ítarlegu fundargerð. Það er því út í bláinn að segja að þarna hafi ég svarað því til að hið samai gilti um kennara og skólastjóra”. Þarna standa því orð Sigurðar gegn tilgreindum orðum fræðslu- stjórans á Vestfjörðum eins og skólanefndarformaðurinn hefur bókað þau. Pétur Bjarnason fræðslustjóri er eríendis og ekki unnt að bera þetta misræmi undir hann á þessari stundu. Hins vegar bar Helgarpósturinn ummæli Sverris Hermannssonar, þess efnis að þessi túlkun ráðuneyt- isins væri ekki í samræmi við það sem til var ætlast við samþykkt lag- anna 1986, undir Sigurð og kannað- ist Sigurður við þessa túlkun Sverris á þeim tíma á Alþingi. „Þegar þetta var til umræðu á Alþingi voru dreifbýlisþingmenn uggandi yfir þessu, því hjá þeim höfðu verið réttindaiausir menn um árabii. Það er rétt að Sverrir lagði mikla áherslu á að með þessu bráða- birgðaákvæði væri verið að tryggja rétt þessa fólks þannig að það þyrfti ekki að óttast um sína stöðu. Síðar koma hins vegar upp vandamál vegna mótsagnarinnar um möguleg umframréttindi hinna réttindalausu og því er þessi afstaða tekin. Við stóðum frammi fyrir því að ákvæði laga stönguðust á. Ráðherra hefur hins vegar vísað þessu til ríkislög- manns vegna þess að það komu fram mótmæli," sagði Sigurður. KENNARASAMBANDIÐ FUNDAR Eftir því sem HP kemst næst mun Svanhildur Kaaber, formaður Kenn- arasambands íslands, hafa beitt sér sterklega fyrir því að umrædd staða yrði auglýst og þá um leið að svo- kölluð 5 ára regla í lögunum um starfsréttindi kennara yrði túlkuð þröngt, þannig að hún næði ekki til stöðu skólastjóra. Um ieið hefur hún beitt sér gegn réttindum félags- manns í KÍ en fyrir réttindum utan- félagsmanns, sem Helga er. Sam- kvæmt þessu virðist það ekki vera ætlun KÍ að gefa Helga tækifæri á að halda skólastjórastöðu sinni meðan hann aflar sér kennslurétt- inda. Heigi Hauksson hefur leitað til KI um stuðning og lagalega aðstoð ef á þyrfti að halda, án árangurs. í samtali við HP sagði Svanhildur að þetta mál yrði tekið upp á fundi stjórnar KÍ nú á föstudaginn, en það væri sín afstaða að auglýsa hefði átt stöðuna, eins og gert var. Það rök- studdi hún með því að bráðabirgða- ákvæðið í lögunum næði einungis til kennara á þeirri forsendu að starf skólastjóra væri það mikilvægt að ekki væri gert ráð fyrir því að rétt- indalausir menn gegndu því. Þess vegna væri einungis talað um kenn- ara í reglugerðinni varðandi undan- þágu. Hún vildi ekkert tjá sig um þá túlkun er fram kemur í orðum fyrr- verandi menntamálaráðherra, Sverris Hermannssonar, þess efnis að lagaákvæðin um verndun stöðu hinna réttindaiausu næðu einnig til stjórnunarstarfa, sagði einfaldlega að hún væri á ofangreindri skoðun. Hún neitaði því að hún hefði beitt sér fyrir því að staðan yrði auglýst en sagði að þegar hún hefði verið spurð um sína persónulegu skoðun hefði hún látið hana í ljós. Hún ítrek- aði að um persónulega afstöðu sína væri að ræða og að hún myndi að sjálfsögðu fylgja niðurstöðu KÍ. HVERJUM LÁ SVONA Á? Það sem mun helst vaka fyrir ráðuneytismönnum er að koma í veg fyrir að lögin verði túlkuð þann- ig að réttindalausir kennarar í rétt- indanámi öðlist meiri rétt en þeir kennarar sem hafa öðlast kennara- réttindin. í ijósi þessa hefur ráðu- neytið gripið til þess ráðs að túlka lögin og reglugerðina þröngt við stöðu kennara. Á hinn bóginn virð- ist ráðuneytið hafa ákvarðað þvert gegn þeim anda laganna sem fyrr- verandi ráðherra greinir hér frá og um leið tekið sér vald sem ekki var þess — að minnsta kosti blasir við að nær hefði verið að fá lögfræði- legt álit fyrst en taka síðan ákvörð- un um hvort viðkomandi stöðu ætti að auglýsa. Enda bíður skólanefnd- in á Súðavík eftir áliti ríkislögmanns og sjálfsagt líka eftir niðurstöðu fundar stjórnar kennarasambands- ins, því á þeim bæ liggur aðeins fyrir persónulegt mat formannsins.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.