Helgarpósturinn - 26.05.1988, Side 20
//
Einhver sagöi einhvern tíma
að penninn væri máttugri en
sverðið. Sjálfsagt hefur sú
fullyrðing átt við rök að styðjast
þá. Varla núna á tækniöld þar
sem menn kunna varla lengur að
halda á penna, hvað þá að skrifa
með honum. Nú til dags skrifar
fólk helst ekki nema á tölvur. í
þau fáu skipti sem draga þarf
fram penna er það til að skrifa
nafnið sitt undir Visa-úttektina
eða ávísunina.
Þetta eru auðvitaö ýkjur. Sem
betur fer eru ennþá til menn og
konur sem vanda skrift sína og
leggja áherslu á að eiga góöa
penna. Hér á landi eru margir
sem við vitum að hafa einstaka
rithönd og þeir aðilar eiga það
sameiginlegt að skrifa með
góðum pennum, flestir reyndar
með sjálfblekungum, hinir með
góðum kúlupennum. Hins vegar
var það öllu erfiðara mál aö fá
fólk til að segja „opinberlega" frá
pennunum sínum. Viðfangsefnið
„Penninn minn og ég" var við-
kvæmt. Menn voru ekki á því að
Ijóstra upp leyndardóminum við
pennann sinn líkt og Tómas
forðum daga er hann kvað
Ólafur Finnbogason hefur
starfad aö pennaviögeröum í
meira en 52 ár. Hann segir aö
enginn penni sé svo lélegur aö ,
hann leki og að ástarbréf eigi
aldrei aö skrifa meö kúlu-
penna. Hún er ekki amaleg
þjónustan sem pennakaup-
endur fá þegar baeöi Ólafúr og
Sigríður Árnadóttir, sem
Ólafur kallar „pennaspesial-
ista", eru við afgreiðsluna.
„kvæðið er um pennann, hann
páraði það sjálfur. Og stundgrn
er hann fullur og stundum er
hann hálfur".,.
„ÞÚ SKRIFAR EKKl
KÆRASTANUM MEÐ
KÚLUPENNA!"
Sá sem skrifar illa veit af því.
Hann veigrar sér við að skrifa og
íþans heimi er tölvan kærkomið
tjeki. Meöhénni getur hann
sjnnt sínum daglegu störfum án
þiess aö nokicur þekki leyndar-
mál han®. Tolvan er þarfaþing,
þángaö tjl kemur að sendibréf-
|^tþr&rrfjVarlai er hægt að skrifa
ástarbréf á tölvu? Hentugt að
vísu þegar fleiri en einn/ein eru i
spilinu. Hægt að prenta út í
fimm eintökum. Aþeins að
varast að nefna no|:kurt nafn í
bréfinu. Að vísu svolítið
ópersónulegt, en hvað gera
menn ekki? Það er óskemmtilegt
að fá bréf sem þarf aö fara með
út í apótek og biðja lyfjafræð-
inginn að lesa eins og frú ein
lenti í þegar hún fékk bréf frá
vini sínum í Bandaríkjunum.
Endaði meö að hún hringdi til
hans og bað hann að hætta að
skrifa, hún væri orðin svo fóta-
veik. Kannski hefði þessum
manni ekki einu sinni dugað að
eiga alvþru gullpenna úr því
undirstöðuna vantaði? Reyndar
segir alvanasti maðurinn í
pennabransanum, Ólafur Finn-
bogason hjá Pennanum: „Þú
skrifar ekki kærastanum með
kúlupenna," þannig að margir
möguleikar eru ekki fyrir hendi!
Ólafur starfrækti Pennaviögerð-
ina í mörg ár og hefur starfað á
tpessum vettvangi í rúmlega 52
ár og sjálfsagt þyí manna fróð-
astur um allt er varðar penna,
viðgerð þeirra, viðhald og gæði.
EIGA GULLDRENGIRNIR
GULLPENNANA?
En hverjir eru það sem eiga
gullpennana? Eru það eingöngu
„gulltjrengirnir", ungir menn
á framabraut? Ó nei, ekki aldeilis.
Hvorki þeir né ungu konurnar á
framabrautinni eru lengureinir
um að eiga vandaða og dýra
penna. Pennar þykja með betri
gjöfum senri hægt er að gefa,<
hvort heldur er fermingarbarh-
inu, nýstúdentinum eða
afmælisbarninu. Pennar eru
enda hlutur sem fólk sjaldnast I
kaupir sér til eigin nota, Fáum
mundi sjálfsagt detta i hug að
kaupa sér Mont Blanc-sjálfblek-
ung sem kostar yfir 15.000
krónur. Og hvað hafa þeir svo
sem framyfir kúlupennana? kann
einhver að spyrja. Sá sem spyr
ætti aldrei að eignast Mont
Blanc! Auðvitað þurfa menn ekki
að eyða yfir 15.000 krónum í
penna. Þeir geta alveg eins
keypt sér gullhúöaða Sheaffer-
penna, kúlupenna og blekpenna,
á aðeins 1,1.500 krónur. Eða farið
yfir i tískumerkin. Dregið upþ úr
veski sínu Yves Saint-Laurent-
penna í bláum, rauðum og gyllt-
um|it. Skipt um penna í miðju
nafíi og tekiö upp Cartier-
perfiann sem er með fjórum ,
simiúm þykkri gullhúð en aðrir
ar. Slíkir pennar kosta á
frá 7.000—12.000. Hinir
fndu tæplega 7.000.
ÍNAR EKKI
TÍSKUFYRIRBRiGÐi
Annars segir Sigríður Árna-
dóttir, pennasérfræðingur í
Pennanum við Hallarmúla, að
pennar séu síður en svo tísku-
fyrirbrígði. „Pennar er,u góð og
sígild gjöf." Hún sagði algengt að
fólk léti merkja penna og
dýrustu pennarnir væru nær
eingöngu keyptir til gjafar á
stórafmælum eða þegar um
merkisatburði væri að ræða, og
þá oftast sem gjöf frá mörgum.
Þau Sigríður og Ólafur sögðu að
góðir pennar þörfnuðust sjaldan
viðgerðar, en hins vegar bæri
við að fólk kynni ekki áð með-
höndla penna. Sem dæmi nefndi
Ólafur að sjálfblekungar mættu
aldrei liggja á hliðinni eða vísa
niður, til dæmis í jakkavasa, því á
þann hátt „andaði" penninn ekki
og gæti farið að leka. Hann
bætti við að þeir sem ekki kynnu
að meðhöndlj slíka penna ættu
auðvitað bara að skrifa með
kúlupennurrt!
En hvað með að geyma penna
í jakkavasa? Blekið út um allt.
„Það er énginn penni svo lélegur
að hann leki ef farið er rétt meö
hann," sagði Ólafur. „Blek á alltaf
að leka frá pennanum." Enn-
fremur benti hann á að svart
blek ætti aldrei að nota, því í því
væri mikið af steinefni sem
stíflaði pennana, og þeirri spum-
ingu var fljótsvarað af hans hálfu
hvers vegna svart blek væri þá
framleitt: „Fyrir læknana, til að
skrifa dánarvottorðin." Hann ■
sagði algengt að notað væri
„blue/black"-blek, það er blek
sem er blátt en skrifast svart.
DÝRIR PENNAR FYRIR
MIOLUNGSGÁFAÐA
Óneitanlega dettur manni í
hug að sá sem á dýran penna
hljóti að vera skipulagður og
gætinn persónuleiki. Maður sem
atdrei myndi gleyma pennanum
sínum einhvers staöar úti í bæ
eins og ungi maðurinn sem fékk
Lamy-pennann í stúdentsgjöf og
týndi honum á stúdentaballinu
sama kvöldið. Þegar við bárum
þetta undir ólaf svaraöi hann að
bragði að fólk sem eignaðist
dýra penna mætti ekki vera
„treggáfað. Það verður í það
minnsta að vera miðlungsgáfað!
Og kunna að fara með penna",
bætti hann við. „Hinir geta notað
„fancy"-pennana á 25 aura..."
Það er þó góðs viti að æ fleiri
virðast vera miðlungsgáfaðir í
þessu þjóðfélagi, þvi sala á
sjálfblekungum hefur aukist
gífurlega upp á síðkastið og
ennfremur virðast þeir á undan-
haldi sem kaupa gullpenna til að
nota sem stöðutákn. Ætli þetta
endi ekki bara á orðum
Napóleons sem sagði að í heim-
inum væru bara til tvö vopn,
sverðið og penninn. „Og að
lokum fer hið síðarnefnda alltaf
rneö sigur af hólmi."
20 HELGARPÓSTURINN