Helgarpósturinn - 26.05.1988, Page 30
ÍÞRÓTTIR
EFTIR ÞÓRMUND BERGSSON
AÐ NOTA EÐA NOTA EKKI...
— mottuna, þaö er spurningin — Skaust til Seoul!!!
í síðustu viku fjallaði ég nokkuð
um þá óheppni knattspyrnuliðanna
í Reykjavík að þurfa að hefja
keppnistímabilið á gervigrasvell-
inum í Laugardal. Taldi ég gervi-
mottuna slæman kost en fyllilega
boðlegan tveimur höfuðborgarlið-
um sem haft hafa tækifæri í allan
vetur til að æfa á mottunni og
þekkja því gjörla hvernig hún virkar
á knöttinn. Það er aftur á móti
hreint út sagt óheiðarlegt að draga
liö inn á mottuna sem ekki hafa haft
tækifæri til að æfa á henni. Þetta
segi ég alveg burtséð frá því hvort
aðkomuliðið spilar betur á mott-
unni en heimaliðið eða hefur knatt-
spyrnulega yfirburði sem ekki
verða kveðnir í kútinn með því að
spila á mottunni. Eins og ég sagði
finnst mér það einfaldlega óheiðar-
legt að draga lið inn á mottuna sem
vita ekki hvernig hún virkar, vegna
þess að í heimabæjum þessara liða
er ekki gervigras. Nú segja senni-
lega einhverjir að þetta sé sambæri-
legt við það að draga lið inn á malar-
völl um mitt sumar. Þessu vísa ég á
bug vegna þess að öll lið hafa mögu-
leika til að æfa á malarvelli og
reyndar gera flest lið það í nokkra
mánuði yfir vetrar- og vortímann.
Þetta setur lið næstum því jafnfætis
hvert öðru. Auðvitað skiptir það
máli ef lið spilar og æfir allt sumarið
á grasi en lendir síðan í einum
malarleik undir lok keppnistíma-
bilsins. Hins vegar hafa liðin góðan
tíma til að undirbúa slíkt, vegna
þess að leikurinn er fyrirfram áætl-
aður á ákveðnum tíma. Um gervi-
mottuna gildir öðru máli, því þó lið
viti fyrirfram að þau eigi að spila á
mottunni hafa þau fæst tæki-
færi til að æfa á henni fyrir viðkom-
andi leik — þetta skiptir meginmáli.
Nú er það svo að heyrst hafa þær
raddir sem vilja banna að leikir í
1. deild og hugsanlega einnig í 2.
deild fari fram á möl. Sömu menn
segja að mótið eigi einfaldlega að
byrja seinna á vorin og ef vellir séu
ekki nothæfir þá verði einfaldlega
að fresta leikjum eða láta liðin
skipta á heimaleikjum. Gott og vel,
þetta er hugsanlega framkvæman-
legt. Mér segir þó svo hugur að það
komi til með að skapast verulegir
erfiðleikar vegna frestaðra leikja ef
t.d. um leiðinlegt (veðurfarslega
séð) vor er að ræða. Þá væri ekki
áhlaupaverk að vera í mótanefnd.
Vellir eru víðast hvar ansi þéttsetnir
hvað varðar keppnir og þá á ég ekki
einungis við knattspyrnuleiki held-
ur einnig frjálsíþróttamót og annað
sem til fellur. Þetta myndi valda
verulegum erfiðleikum. Það er hins
vegar ekki vitlaus hugmynd að láta
mótið almennt byrja mun seinna á
vorin (sumrin). Slíkt myndi vissu-
lega auka verulega líkurnar á því að
leikir færu fram á venjulegu grasi og
að lið stæðu sem jafnast að vígi.
Þetta myndi væntanlega einnig
þýða það að mótið færðist lengra
fram á haustið, en það ætti að vera
í lagi „veðurlega" séð svona flest ár.
Við það að flytja mótið lengra fram
á haust myndi einnig vinnast það að
þau lið sem spila í Evrópukeppnum
væru í góðri leikæfingu jafnvel þeg-
ar þau kæmust í aðra umferð Evr-
ópumótanna — sem gæti gerst á
fimm ára fresti. Mér sýnist a.m.k.
nauðsynlegt að endurskoða tíma-
setningu mótsins með þetta aflt í
huga.
ÁNÆGJULEG TÍÐINDI
Þau ánægjulegu tíðindi hafa verið
að berast til landsins að undanförnu
að það fólk sem við bindum mestar
vonir við fyrir ÓL í Seoul sé að gera
það gott. Einar Vilhjálmsson náði
um daginn lengsta kasti á árinu í
spjótkasti (þetta met hefur reyndar
verið bætt núna) og íris Grönfeldt
setur Islandsmet í spjótkasti öðru
hverju þessa dagana. Þá hefur
Alfreð Gíslason verið að sýna stór-
leiki með Essen í þýsku deildinni og
í Evrópukeppninni og Kristján Ara-
son varð Þýskalandsmeistari með
sínu liði auk þess sem hann gerði
samning við stórliðið Teca á Spáni.
víst að hann fari til Seoul en með
árangri sínum á mótinu náði hann ÓL-
lágmarki og þykir mér nokkuð víst
að því verði skotið að ÓL-nefndinni
að rétt væri að Carl skytist til Seoul
og plammaði í mark. Hann ætti
sennilega fullt eins heima þar eins
og t.d. sigiingamenn.
MEISTARAHEPPNI?
Nú er tæplega tveimur umferðum
og útsjónarsemi. Klapp, klapp,
klapp. Talandi um hrós og unga
drengi þá ætla ég að vona að dramb
verði Rúnari ekki að falli. Hann á
svo sannarlega framtíðina fyrir sér,
en ef hann hvikar frá réttri stefnu
gæti hann hæglega lent utan við
knattspyrnuveginn. Við höfum um
það nokkur dæmi. Haldi Rúnar
höfði utan vallar sem innan er allt í
lagi.
lt»*U
BlBll
Þetta lofar allt góðu og vonandi að
þetta fólk standi sig vel á ÓL ásamt
öðrum íslendingum. Einasta spurn-
ingin sem vaknar hjá mér, og hún
kann að hljóma kjánalega, er hvort
spjótkastararnir okkar séu á toppn-
um á vitlausum tíma?? Nú geri eg
reyndar ráð fyrir því að bæöi Einar
og Iris viti hvað þau eru að gera og
vissulega kunna afrek þeirra nú að
vera skipulögð sem „fyrri toppur" á
árinu eða eitthvað i þá áttina. Það
hefur hins vegar komið á daginn oft-
ar en einu sinni hjá mörgum af
afreksmönnum okkar að einstakl-
ingarnir og liðin reyndar líka
„toppa" á vitlausum tíma — ef hægt
er að tala um vitlausan tíma. Eg
held reyndar sjálfur að nú sé næst-
um búið að komast fyrir þennan
vanda. Bogdan hefur t.d. séð um
hann hjá landsliðinu í handknattleik
og ég er viss um að margra ára þjálf-
un og reynsla manna eins og Einars
aetti að skila honum í toppformi á
ÓL en ekki nú í byrjun sumars.
Nú, sá skemmtilegi atburður varð
á móti hjá skammbyssuskotmönn-
um um síðustu helgi að Carl Eiríks
skaut sér til Seoull! Reyndar er ekki
lokið á íslandsmótinu í knattspyrnu
og Frammarar tróna ósigraðir á
toppnum. Mótið hefur farið af stað
án teljandi láta og verður að segjast
eins og er að einu óvæntu úrslitin í
mínum bókum eru sigur KA á Vík-
ingum í Reykjavík. Frammarar
koma út með ótrúlega góða nýtingu
í þessum tveimur leikjum. Mark í
hvorum tveggja leiknum á síðustu
mínútu og sex stig í pokann gefa
vissulega tilefni til að ætla að meist-
araheppnin sé með Fram og að þeir
uppskeri eins og flestir spáðu (ekki
ég) titil í haust. KR-ingar hefðu án
efa getað verið með sex stig einnig ef
kæruleysi í viðureigninni við Vík-
inga hefði ekki orðið þeim að falli.
Þrátt fyrir að Ágúst Már léki mið-
herja eins og hann hefði aldrei gert
annað vantaði KR-inga sárgrætilega
Pétur Pétursson — þann markaref.
KR-ingar hafa þó sýnt eitthvað það
skemmtilegasta í mótinu til þessa,
en það er Rúnar Kristinsson. Þó það
sé oft til ama að vera að hrósa ung-
um strákum, vegna þess hve illa það
stígur þeim til höfuðs, get ég ekki
stillt mig um að gefa honum gott
klapp fyrir skemmtilega boltatækni
Leiftursmenn eru enn ósigraðir í
mótinu rétt eins og stóru liðin. Þeir
hafa hins vegar ekki skorað mark
ennþá en ekki fengið á sig mark
heldur. Tveir heimaleikir í röð
hjálpa upp á sakirnar og meira en
það. Eg er viss um að þessi byrjun
gefur Leifturs-mönnum byr undir
alla vængi og hver veit nema þeir
komi rækilega á óvart í sumar.
í 2. deild hirða Fylkismenn stig í
Garðinum og stefna í það „spútnik'-
lið sem ég spáði. FH vinnur
hins vegar þrátt fyrir að hafa ekki
endilega spilað betur. Þeir eru
komnir þangað sem þeir
verða — á toppinn. Selfyssingar
lentu í óheiðarleikanum sem ég
nefndi í upphafi og gátu litla björg
sér veitt gegn ÍR. Þessi lið verða
sennilega á róli um miðja deild er
upp er staðið, svo hugsanlega skipt-
ir svona mottuleikur ekki öllu.
Þá er bara að vona að markahrók-
ar allra liða sameinist um að gera
þetta íslandsmót að skemmtilegu
markamóti til að Jón og séra Jón í
stúkunni hafi gaman af hlutunum
og láti peninga renna til skemmti-
kraftanna.
30 HELGARPÓSTURINN