Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
Fréttir
13
I>v
Fjárhagsáætlun Húsavíkurbæjar:
Landsbyggðin þarf allt
annað en skattahækkun
- segir Reinhard Reynisson bæjarstjóri
DV, AKUREVRI:
„Eins og fyrir liggur í
því frumvarpi að fjárhags-
áætlun næsta árs sem hér
er lagt fram er ljóst að
Húsavíkurkaupstaður,
eins og flest sveitarfélög
landsins, og þá einkum
sveitarfélögin á lands-
byggðinni, á þann kost ein-
an að fullnýta allar þær
viðbótarheimildir sem
veittar verða til hækkunar
útsvars. Búseta á lands-
byggðinni þarf hins vegar
á allt öðrum aðgerðum að
halda en skattahækkunum
á tekjur launafólks. Nær
væri að löggjafinn tæki á þeirri mis-
munun sem íbúar landsbyggðarinn-
ar búa við á ýmsum
sviðum vegna áhrifa
skattlagningar rikis-
valdsins, sem í mörgum
tilfellum leggst þyngra á
þá en hina sem búa á
höfuðborgarsvæðinu"
sagði Reinhard Reynis-
son, bæjarstjóri á Húsa-
vík, í greinargerð sinni
þegar fjárhagsáætlun
Húsavikurbæjar var tek-
in til fyrri umræðu.
Heildartekjur bæjar-
sjóðs og bæjarfyrirtækja
eru áætlaðar 793,5 millj-
ónir króna en heildar-
rekstrargjöld 752,8 millj-
ónir. Til verklegra framkvæmda og
íjárfestinga hjá bæjarsjóði og bæjar-
Reinhard
Reynisson
Allan þennan áratug
hafa sveitarfélög á
landsbyggðinni þurft að
búa við hallarekstur.
fyrirtækjum er áætlað að verja 685,5
milljónum. Heildarlántökur eru
áætlaðarll87,8 milljónir og heildar-
afhorganir lána 123,2 milljónir,
þannig að nettólántaka bæjarsjóðs
og fyrirtækja hans á árinu er 64,6
milljónir samkvæmt áætluninni.
Langtímaskuldir eru áætlaðar 1,720
milljarður i árslok 2001, þar af 858
milljónir vegna orkuveitu. Til við-
bótar er gert ráð fyrir að lífeyris-
skuldbindingar nemi 625 milljónum.
Reinhard Reynisson bæjarstjóri
sagði að fjárhagsáætlunin beri um
margt merki þeirra aðstæðna sem
sveitarfélögin í landinu, og þá sér-
staklega sveitarfélögin á lands-
byggðinni, búa við. Allan þennan
áratug hafi þau þurft að búa við við-
varandi hallarekstur. -gk
DV-MYND INGÓ
Góðir félagar
Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson viröist kunna bærilega viö sig í hópi ungra framsóknarmanna.
Sameining Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks:
Olíklegt en skynsamlegt
- segir Hannes Hómsteinn Gissurarson sem ræðir málið á fundi SUF í kvöld
„Það eru svo miklir sameiningar-
tímar,“ sagði Hannes Hólmsteinn
Gissurarson sem ræddi sameiningu
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks á opnum fundi SUF í fyrra-
kvöld.
Samband ungra framsóknar-
manna stóð fyrir opnu húsi í húsa-
kynnum Framsóknarflokksins. Dr.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor við Háskóla íslands, var
gestur kvöldsins. Yfirskrift fundar-
ins er: Ætti að sameina Sjálfstæðis-
flokkinn og Framsóknarflokkinn?
„Rétt er að taka fram að hvorug-
um formanninum líst vel á þessa
hugmynd. Ég hef nú sett hana fram
áður og er þeirrar skoðunar að hér
ætti að vera stór og öflugur flokkur
sem tryggði festu í stjórnarfarið.
Hann væri sambærilegur við Kristi-
lega flokkinn í Bæjaralandi sem er
með 60% fylgi og stjórnar þar af
miklum skörungsskap. Slíkur borg-
aralegur, frjálslyndur flokkur sem
um leið virðir gömul verðmæti og
heilbrigða íhaldssemi er að mínum
dómi mjög æskilegur," sagði Hann-
es Hólmsteinn í samtali við DV.
- Sérðu fyrir þér að hægt sé að
samræma sjónarmið þessara
flokka?
„Ég held að það sem greinir
Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðis-
flokkinn að sé ekkert meira en
greindi að þá flokka sem sameinuð-
ust í Samfylkingunni. Auðvitað er
þar ágreiningur og menn með ólík-
ar skoðanir, en það er ekkert meira
bil á milli þessara flokka en t.d.
hægri arms Alþýðubandalagsins,
Alþýðuflokksins og Kvennalistans
sem sameinuðust í Samfylking-
unni.“
- Áttu von á að þetta verði að
veruleika?
„Ég tel það fremur ólíklegt, en ég
held að það sé skynsamlegt. Þá yrði
hér festa f stjórnarfari, líkt og í
Svisslandi og Bæjaralandi. Þannig
að þrætupokamenn eins og Össur
Skarphéðinsson gætu farið að sinna
einhverjum arðbærari störfum,"
segir Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son sem einnig ræddi á fundinum í
gamansömum tón um Jón Þorláks-
son og Jónas frá Hriflu sem hann
segir guðfeður islenska flokkakerf-
isins.
-HKr.
Fréttaritari DV í Húnaþingi á bandarískum kjörstað í gær:
Lítill almennur áhugi
DV. CHICAGO:________________________
Það var fróðlegt fyrir húnvetnsk-
an bónda að koma á kjörstað í út-
hverfi Chicago í Bandaríkjunum í
gær og fylgjast með kosningunum.
Þar virtust allir þekkja alla eins og
væri á íslandi enda voru aðeins 490
manns í kjördeildinni. Það sem kom
þó mikið á óvart var að í kjördeild-
inni var reiknað með metkosninga-
þátttöku eða um 90%.
Kjörgögn voru allt öðruvísi en á
íslandi. Kjörseðillinn var ekki stór
og kosið var með því að stinga með
prjóni í gegnum hann í afmarkaða
reiti. Alls gat hver kjósandi í þess-
ari kjördeild kosið um 18 mismun-
andi atriði, allt frá því að kjósa for-
seta Bandaríkjanna í það að segja
álit sitt á því sem við myndum telja
fremur ómerkilega hluti.
Til þess að auðvelda kosninguna
var kjörseðillinn settur í möppu og
með því að fletta henni var auðvelt
að stinga prjóninum á réttan stað í
hverri kosningu. Að kosningu lok-
inni voru kjörseðlar settir í tölvu
sem taldi hvernig atkvæði féllu í
hverri kosningu á mjög skammri
stundu.
Áhugi á kosningunum virðist þó
fremur lítill og ekki mikið um þær
talað manna á milli. Fréttir eru þó
uppfullar af þessu en áhugi almenn-
ings ekki eins og á íslandi.
-MÓ
Malarhöfða 2, 110 Reykjavík
Sími: 567-2000 - Fax: 567-2066
bilfang@bilfang.is
www.bilfang.is
BMW 750 IA (upptekin
vél), árg. 1992, ek. 170 þ.
km, ssk., grár.
Verð 1450 þús.,
staðgr. 880 þús.
Range Rover, árg. 1992-4,
5 gíra, ek. 118 þ. km, blár.
Verð 1250 þús.,
staðgr. 900 þús.
Volvo 850 GLT station,
árg. 1996, ek. 65 þ., 5 gíra,
grænn.
Verð 1600 þús.,
staðgr. 1300 þús.
VW Vento, árg. 1995,
ek. 102 þ. km, 5 gíra, blár.
Verð 760 þús.,
staðgr. 600 þús.
M. Benz 280 E, árg. 1993,
ek. 140 þ. km, ssk.
Verð 1650 þús.,
staðgr. 1250 þús.
Opel Senator, 3,0 I, V6,
árg. 1992, ek. 130 þ. km,
ssk., vínrauður.
Verð 750 þús.,
staðgr. 550 þús.
Opel Calibra 2,0 i, 16 v.,
árg. 1992, ek. 137 þ.. 5 gíra,
svartur.
Verð 780 þús.,
staðgr. 480 þús.
Ford Bronco II, árg. 1988,
ek. 115 þ. km, 5 gíra,
brúnn.Driflæsingar,
lækkuð hlutföll,
Verð 450 þús.,
staðgr. 330 þús.
Peugeot 605 SRI, 2,0 I,
árg. 1991, ek 232 þ. km,
ssk., drapplitur.
Verð 450 þús.,
staðgr. 250 þús.
Daihatsu Grand Move, 1,5
I, árg. 1998, ek. 40 þ. km,
5 gíra, grænn.
Verð 850 þús.,
staðgr. 720 þús.
Grand Cherokee LTD,
5,2 I, ssk., árg. 1996,
ek. 80 þ. km, reyklitur.
Verð 2500 þús.,
staðgr. 1950 þús.
BMW 735 IA (ný sjálfsk.),
árg. 1990, ek. 230 þ. km,
ssk., svartur.
Verð 750 þús.,
staðgr. 550 þús.
_ I 1EUROCARD
V/SA I | MasterCarú
Raðgreiðslur
Skuldabréf