Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Blaðsíða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Blaðsíða 66
-«i74 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 Viltu líta vel út í jólakjólnum? Nú bjóðum við mánaðarkort í Trimformi á aðeins kr. 5.900. TRIM/\FORM Munið sivinsælu GraSSSgSO gjatakortin. Qpið. mán _fim 8_22i fös 8_20> laug 10_14 Völusteinn 10 ára hvJ,in Sem hfur steg/a af»,'gegní afm*//stí(bo 3l-977stgr. Husqvarna Viking Sarah ©VÖLUSTEINN Völusteinn / Mörkinni I / l08Reykjavík Sími 588 9505 / www.volusteinn.is ÍSLANDSMEISTARAMOTIÐ í JCTJli R R n ■■ ■íp'-wv'. ; fflíSSWSITD j SKEtFAN 19, SÍMI: 568 1717 ARIÐi20m H Ásk-o I abjííó, laitgjArdMginG die.s.ember. ADOm^ Verslun með fæðubótarefni Foi kepp.m liefst kt. 13.00 og Úiifsliiit kl), 20.00. BASNATI Forsnki i H.isko labio. V/eró kr. 1.800,- nuðinn gildir b.eði a forkeppni o.g urslit. Vörukynningar í an.d.dyri. Hií.siö opiö allan daginn.. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Tilvera DV Heimsmeistaramót FIDE: Stórmeistaramót á framandi slóðum Eftir aö Kirsan Iljusjinov tók viö embætti forseta FIDE hefur skák- mótahald verið haldið á fjarlægum og ókunnum slóðum. Það er örugg- lega skemmtilegt fyrir atvinnuskák- menn að koma á nýjar slóðir en um leið eru nýjar aðstæður framandi, svo ekki sé talað um veðurfar. Það ku vera heitt á Indlandi en ekki hef ég heyrt skákblaðamenn á Netinu tala um slæmar aöstæður á skák- stað. Nú fer heimsmeistarakeppni FIDE fram í Nýju-Delhí og ýmsir halda þvi fram að vagga skáklistar- innar liggi í Indlandi. Kirsan getur verið diplomatískur ef hann leggur sig mikið fram. Lokaeinvígið verð- ur haldið í Teheran í íran, en aðrir halda því fram að vagga skáklistar- innar sé þar í Persíu. Persía hin foma var i bæði írak og íran og var ætlunin fyrir 2 árum að halda heimsmeistarakeppnina í Bagdad, en af einhverjum slungnum ástæð- um, sem verður ekki farið nánar út í hér, var keppnin flutt til Las Veg- as. Þar sigraði mjög óvænt Alexand- er Khalifman frá Leningrad, afsak- ið, Sánkti Pétursborg. Khalifman er mjög sterkur skákmaður en margir voru og eru stigahærri á FIDE-list- anum. Anand frá Indlandi er stiga- hæstur keppenda núna en ég reikna með því að hann verði ekki spámað- ur í sínu föðurlandi (þess ber að geta aö ég er ekki slyngur í reikn- ingi). Alexei Shirov er skeinuhætt- ur en einhvem veginn reikna ég ekki með honum heldur. Ég held að Alexander Grischuk eigi eftir að ná langt, hann tefldi hér á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu i fyrravet- ur og er ungur að árum, 17 eða 18 ára. Þeir Kasparov og Kramnik eru ekki með en var þó boðið. Judit Polg- ar er ekki með, né gamli refurinn Viktor Kortsnoj. Kortsnoj er að verða sjötugur og er líklega búinn að gefa upp vonina að verða nokkurn tíma heimsmeistari. Hannes Hlífar Stefánsson var sleginn út í 1. umferð, eftir að hcifa verið með unna stöðu gegn Bologan frá Moldavíu. Yngsti stórmeistari heims, Ponom- ariov, sem ég reiknaði með sem ein- um af þeim sem áttu sigurmögu- leika, var sleginn út af sterkasta skákmanni Víetnama, Thien Hai Dao. Þeir úr Asíu eru famir að vera ansi skeinuhættir. Lítum á sigur- skák Víetnamans, sem er mjög skemmtileg og spannar stórt litróf skáklistarinnar. Én drengurinn frá Úkraínu tefldi stíft til vinnings með svörtu í seinni skákinni, of stíft og fékk reisupassann. Hvítt: Thien Hai Dao (2555) Svart: Roman Ponomariov (2630) Kóngs-indversk vörn, Nýju-Delhi (1.2), 28.11.2000 l.d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. RÍ3 0-0. Næsti leikur mun vera runninn undan riíjum Bent Larsens. Þeir þekkja skáksöguna vel, stórmeistaramir hvaðanæva úr heiminum. En kóngs-indverska vömin er baráttubyrjun og hvar á að tefla indverskar varnir ef ekki á Indlandi 6. h3 e5 7. d5 Ra6 8. g4 Rc5 9. Dc2 a5 10. Be3 c6 11. g5 Rh5 12. 0-0-0 cxd5. Hér áður fyrr var nær undan- tekningarlaust leikið án umhugsun- Sævar Bjarnason skrifar um skék 0 Skákþátturinn ar af flestum 13. cxd5. En skákin þróast og menn em óhræddari við að fara ótroðnar slóðir. Eins og Bent. 13. Rxd5 b6 14. Rd2 Bb7 15. h4 Rf4. Skemmtileg peðsfóm sem hefur það að markmiöi að gera bisk- upinn á g7 virkan. En gömul sann- indi segja, ekki þiggja fómir and- stæðingsins þegar hann vill. 16. Kbl Hc8 17. Bxf4 exf4 18. Bh3 Re6 19. Db3 Bc6. Hann er brögðóttur, drengurinn. Ekki er hollt að éta peðið á b6 vegna Hb8. 20. h5 er hvassasti leikurinn en það er oft ágætt að halda í horfinu. 20. Rf3 Hb8 21. Bxe6 fxe6 22. Rc3 a4 23. Dc2 b5. Svartur hefur náð frumkvæðinu, en það er víst ekki nóg aö fá betra, það verður að vinna vel úr þvi! 24. Rd4 Bxd4 25. Hxd4 b4 26. Rb5 b3 27. Dd3 d5 28. exd5 exd5 29. Hdl! bxa2+ 30. Kxa2 Db6 31. Hd2 Hf7 32. Ra3 He7 33. cxd5. Sérkennileg staða, svartur leggur allt í sölumar fyrir mátsókn og hvítur verst. Stendur svartur enn aðeins betur? Nei, líklega ekki, og hér var sennilega best að leika 33. - Db3+ 34. Dxb3 axb3+ 35. Kbl dxc4 og jafntefli er líkleg niðurstaða. En þeir ungu eru hugrakkir. 33. - Hel. Hótar máti en nú kemur góður varnarleikur. Svartur getur ekki drepið sín eigin peð og hvitur drep- ur það þegar honum hentar. Aust- ræn speki eða venjuleg hagsýni? 34. b4! axb3+ 35. Kb2 Bd7 36. d6 Be6 37. d7 Hd8 38. Dc3 Bf7 39. Hd6 Db7 40. Df6 Db8. Vopnin hafa heldur betur snúist í höndum unga mannsins. Ótrúleg umskipti! 41. Hc6 Kf8 42. Hc8 Hxc8 43. dxc8D+ Ðxc8 44. Hd8+ Dxd8 45. Dxd8+ He8 46. Dd6+ Kg8 47. Dxf4 He2+ 48. Kc3 Ha2 49. Rc4 Hc2+ 50. Kxb3 Hxc4 51. Dxc4 KÍ8 52. Kc3 Bxc4 53. Kxc4 Ke7. Úrvinnsla hvíts er hámákvæm. Því miður, Ponomariov verður að bíða betra tækifæris til að láta ljós sitt skína. 54. Kd5 Kd7 55. Ke5 Ke7 56. f3 Kf7 57. Kd6 Kf8 58. Ke6 Ke8 59. Kf6 Kf8 60. f4 Kg8 61. Ke7 Kg7 62. h5 h6 63. gxh6+ Kxh6 64. hxg6 Kxg6 65. Ke6 Kg7 66. f5 Kf8 67. Kf6. 1-0. Annar snillingur sem enn hefur ekki fengið reisupassann er Alex- ander Morozevich. Hann kom til landsins á síðasta ári, minnir mig, í Evrópukeppni taflfélaga og tapaði fyrir Margeiri Péturssyni eins og frægt er. Og Gilberto Milos tapaði fyrir Hannesi Hlífari á ólympíu- skákmótinu í Istanbúl. Sannir ís- landsvinir?! Skák þeirra er sú fyrri úr 2. umferð. Hvitt: Alexander Morozevich (2756) Svart: Gilberto Milos (2633) Sikileyjarvöm, Nýju-Delhi (2.1), 30.11.2000 l.e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. c3 e6 4. d4 d5 5. e5 Db6 6. a3 Rh6 7. b4 cxd4 8. cxd4 Rf5. Svona tefli ég oft sjálfur með svörtu, venjulega er leikið hér 9. Bb2 En Móri hefur annað í huga. 9. Be3 g6. Undarlegur leikur sem veik- ir svörtu reitina og seinna meir kóngsstöðu svarts. Ég myndi leika öðru! 10. Bd3 Rxe3 11. fxe3 Bh6 12. Dd2 Bd7 13. Rc3 Re7. Þegar stöðurnar eru lokaðar eins og í þessu tilviki er óhætt að hræða svart með svona peðsframrás. Sem að auki er besti leikurinn. 14. g4! Bg7 15. 0-0 Hc8 16. a4! 0-0. Peða- árásir á báðum vængjum, ekki gengur 16. - Dxb4 17. Rb5! og hvítur er með vinningsstöðu. 17. Rb5 Bxb5 18. axb5 f6 19. exf6 HxfS 20. Kg2 HcfB 21. Dc2 Rc8 22. h4 Rd6 23. h5 Hc8. Hvað á svartur til bragðs að taka? Hvítur hefur yflr- spilað hann. Hann fómar peði til að reyna að blíðka goðin. 24. De2 Dd8 25. hxg6 hxg6 26. Hxa7 De7 27. Re5 Hxfl 28. Dxfl Bxe5 29. dxe5 Re4 30. Bxe4 dxe4. Hér á hvítur rothögg í fórum sín- um. 31. Df6 DxfB 32. exf6 Hc7 33. g5 Kf7 34. Kg3 e5 35. b6 Hd7 36. Kg4 Ke6 37. Ha8 Kd6 38. Hg8. 1-0.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.