Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Blaðsíða 75
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
88
I>V
Tilvera
Finnski öskurkórinn Huutajat á Stjörnuhátíð menningarborgarinnar
• •
Oskruðu sig til heimsfrægðar
Öskurkórinn heimsækir
Reykjavík menningarborg og
kemur fram á einum tónleikum, í
porti Listasafns Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu.
Tónleikarnir verða miðvikudag-
inn 6. desember, á þjóðhátíðar-
degi Finna, og hefjast kl. 17.00.
Aðgangur er ókeypis á meðan
húsrúm leyfir.
Mieskuoro Huutajat, eða
Öskurkórinn, var stofnaður fyrir
13 árum í borginni Oulu í Norð-
ur-Finnlandi. Nokkrir ungir
finnskir karlmenn komu saman
til að stofna karlakór, ekki syngj-
andi, heldur kór sem öskraði,
hrópaði og gargaði mörg af ást-
sælustu lögum finnsks tónlistar-
arfs.
6. desember 1987 (á finnska
þjóðhátiðardaginn) kom Huutajat
fram í fyrsta sinn í heimalandinu
og þrátt fyrir að áheyrendur
væru sem þrumu lostnir í fyrstu
fékk kórinn frábæra dóma. Ári
síðar komst kórinn ofarlega á
finnska vinsældalistann með
fyrstu útgáfu sína en þær eru nú
orðnar fjórar talsins. Þetta var
upphafið að glæsilegum ferli, sem
leitt hefur finnska Öskurkórinn í
tónleikaferðir víða um Evrópu
þar sem hann hefur komið fram á
fjölmörgum tónleikum á ólíkum
stöðum - allt frá virtum tónleika-
sölum til stórmarkaða og járn-
brautarstöðva. Mieskuoro Huuta-
jat nýtur nú alþjóðlegrar viöur-
kenningar fyrir frumleika og
dirfsku í túlkun sinni.
Þjóðlög, barnagælur og
verkalyössöngvar
Við fyrstu sýn virðist Huutajat
eins og hver annar virðulegur
karlakór - en lengra nær samlík-
Oskraö af list
Mieskuoro Huutajat, eöa Öskurkórinn, var stofnaður fyrir 13 árum í borginni Oulu í norður-Finnlandi. Nokkrir ungir
finnskir karlmenn komu saman til að stofna kariakór, ekki syngjandi, heldur kór sem öskraði, hrópaði og gargaöi
mörg af ástsælustu lögum finnsks tónlistararfs.
ingin ekki. Markmið Öskurkórs-
ins er að búa til nýjan listrænan
tjáningarmáta sem er svo fjöl-
breyttur og ófyrirsjáanlegur að
erfitt hefur reynst að skilgreina
hann til hlítar. Á efnisskrá kórs-
ins eru mjög fjölbreytt lög, barna-
gælur, þjóðlög, verkalýðssöngvar,
tilvitnanir í finnska lagabálka
eða alþjóðlegar samþykktir. Hvað
mesta athygli hefur þó vakið túlk-
un þeirra á þjóðsöngvum ýmissa
landa.
Tónskáldið og stjórnandi kórs-
ins, Petri Sirviö, segir að þegar
rétta lagið sé fundð hefjist hann
handa við að sundurgreina það;
fyrst fer laglínan og textinn er að
öllu jöfnu styttur og lagaður. Það
sem eftir lifir er útsett í algjör-
lega nýtt form, sem byggist á fjöl-
breytilegum takti og margbreyti-
leik mannsraddarinnar og tungu-
málsins.
Jakkaföt og gúmmíbindi
Petri Sirviö segir öskurkórinn
þjóna margvíslegum markmiðum;
hann og fleiri hafi verið forvitnir
að vita hvað kæmi út úr því að
safna saman hópi 30 heiðvirðra
manna, klæða þá í dökk jakkafot,^^
setja svart gúmmíbindi um háls-
inn á þeim og láta þá öskra af öll-
um lífs og sálar kröftum einhver
af helgustu þjóðlögmn Finna. í ljós
hafi komið að það er einstaklega
gaman og jafnvel heilsusamlegt að
beita röddinni á þennan hátt og
smám saman hafi þróast nýtt tján-
ingarform sem bæði hræddi og
kætti áheyrendur í senn. Frumleg-
ar útsetningar Öskurkórsins á vel
þekktum lögum og þjóðsöngvum
vektu jafnframt upp spurningar
um eðli tónlistar, og það hvað telst
siðlegt og leyfilegt í sönglist.
Bókerbamagaman
Bókatíðindi 2000
komin út
Félag íslenskra
bókaútgefenda i
Þátttaka í happdrætti Krabbameinsfélagsins
er stuðningur við mikilvægt forvarnastarf
fJeittu stuxfnúi& - oertn nieff/
cte&em&er^
'Sb^mÖagsins,
MIÐI NR.
1 Volkswagen Bjalla
Verðmæti 1.800.000 kr.
1 Bifreið eða greiðsla upp í ibúð
Verðmæti 1.000.000 kr.
(iitnsvari),
540 1900 og
15E Úttekt hjá ferðaskrifstofu
eða verslun
Verðmæti 100.000 kr.
httpJiwwvw.
krabb.is/happ
18,6
^nilljorwr krona
m/ð*
DV-MYNDIR ÞÓRHALLUR ASMUNDSSON
Sterk ke&ja
Hér eru nokkrir hlekkir í sterkri keðju kennara og barna á Sauöárkróki í gær,
400 metra langri
DV. SAUÐÁRKRÓKI:
Jólamánuðurinn hóf innreið
sína á Sauðárkróki eins og jafnan
með því aö kveikt var á krossin-
um á Nöfunum, sem lýsir yfir bæ-
inn fram yfir hátíðirnar. Að þessu
sinni stóðu nemendur og starfslið
Árskóla fyrir friðarathöfn í sam-
vinnu við Sauðárkrókskirkju.
mannlegri keöju.
Mynduð var samfeUd keðja frá
kirkjunni og upp Kirkjustíginn í
Nöfunum að krossinum, um 400
metra leið.
Guðbjörg Jóhannesdóttir sókn-
arprestur tendraöi friðarljós við
kirkjuna og það var síðan látið
ganga frá manni til manns upp að
krossinum og ljósið tendrað á
Vmfojunaríringar,
frdbcert úrvat, sérsmíði, gott verð.
15% afsídttur d Cöngum Caugarfegi.
n * Sendum ípóstHjöfu.
uón íiipunosson
Laugavegi 5, sími 551 3383
Sauðkrækingar fögnuðu jólamánuði á hátíðlegan hátt:
400 metra samfelld friðar-
keðja frá kirkju að krossi
honum þegar friðarljósið var
komið alla leið. Nemendur og
kennarar kunnu greinilega vei að
meta þessa óvenjulegu byrjun á
skóladegi.
Enn er snjólaust á Sauðárkróki
og ekkert bólar á jólasnjónum, en
Dalbæingar eru þó búnir að lofa
honum og þeir njóta trausts Sauð-
krækinga eins og annarra lands-
manna. Hins vegar er kominn
nægur snjór í Tindastóli og þar er
búist við fjölda fólks á skíðum um
helgina, enda spáð mjög aðgerðar-
litlu veðri fram í miðja næstu
viku. -ÞÁ
>