Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 Fréttir I>V Fjölmiðlakönnun Gallups fyrir Samband íslenskra auglýsingastofa og helstu fjölmiöla: DV á flugi Lesendum DV hefur fjölgað veru- lega á undanfijmum mánuðum, sam- kvæmt niðurstöðu nýjustu fjölmiðla- könnunar Gallups. Mest aukning er á mánudögum, funmtudögum og á lestri Helgarblaðs DV. DV Fókus styrkir einnig stööu sína og er staða hans mjög sterk meðal yngri lesenda. Helgarblaðið og Fókus gefa bestan aðgang aö ungu fólki á íslandi í dag. Þá er gríðarleg aukning á fjölda þeirra sem lesa DV-Sport. Þú ert að lesa vinsælasta laugardagsblaðið - hjá fslendingum sem eru 35 ára og yngri Samkvæmt nýjum niðurstöðum úr ít- arlegri fjölmiðlakönnun Gallups nýtur Helgarblað DV mikilla vinsælda. Lestur DV í heild eykst um 2,2% milli ára og er meðallestur blaðsins nú 49,6%. Helgarblaðið nýtur sérstaklega mik- iila vinsælda meðal yngri aldurshópa en í aldurshópnum 12-34 ára lesa 51,1% Helgarblað DV. Sé þetta borið saman við laugardagsútgáfu Morgunblaðsins er samanburðurinn DV í hag þar sem 47% lesa laugardagsblað Mbl. Helgarblað DV hefur töluverða yfir- burði yfir sunnudagsblað Morgunblaðs- ins meðal lesenda undir tvítugu og milli 25-35 ára. Spurt var í könnuninni hvort lesend- ur læsu blaðið oftar en einu sinni, þ.e. kæmu að því aftur og aftur. í þeim sam- anburði fékk Helgarblað DV 46% en Mbl. 40,6%. Þetta staðfestir að Helgar- blað DV býður upp á fjölbreytt leseftii sem lesendum fellur vel í geð. Þátttakendur í könnuninni voru einnig spurðir hvað þær læsu helst í Helgarblaði DV. Þar kom í ljós að vin- sælasta lesefni blaðsins er opnuviðtalið en 83,1% lesenda sögðust lesa það. tn © 5CM Lestur Helgarblaðs DV - til samanburðar við laugardagsblað Mbl. 51,1 50 % I PM r»^a 50 45 40 35 30 25 20 15 10 5 % F j ölmiðlakönnun 2000 Lesa blaðið oftar en einu sinni 46,0 TCrai pu Breyting Fjölmiðlakö-- - í prósentustigum 3 2,7 J 2 4 ± % -1 -2 -1,7 Jlfi )*k*á Á fleygiferð • Þeim fjölgar verulega sem lesa DV-Sport á mánudögum en 66% lesenda DV lesa DV-Sport eða hlutfallslega mun fleiri en lesa íþróttir í Morgunblaðinu á þriðjudögum. • DV hefur töluverða yfirburði yf- ir Morgunblaðið á fimmtu-dög- um á meðal þeirra sem eru á aldrinum 20-24 ára. • Á laugardögum hefur DV mikla yfirburði yfir Morgunblaðið meðal landsbyggðarfólks en lið- lega 52% lesa DV en aðeins tæp 42% Morgunblaðið. DV hefur vinninginn yflr Morgun-blaðiö úti á landi í meðallestri yflr heila viku. • Nær 60% lesenda DV lesa Menn- ingarsíðu blaðsins á mánudög- um. • Tæp 69% lesenda lesa Tilveru- síður DV. • Liðlega 57% lesenda DV lesa fréttir og umfjöllun um neyt- endamál. Athyglisvert! • Um 53% íslendinga undir þrítugu lesa DV Fókus, vikurit sem fylgir DV á föstudögum. • 46% lesenda DV lesa Helgarblað DV oftar en einu sinni. • Prentmiðlar eru besti vettvangur til að koma á framfæri upplýsingum um vöru og þjónustu, samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup. • Yfir 72% lesenda DV lesa DV-Heim sem fylgir blaðinu á þriðjudögum. • Yfir 63% íslendinga undir tvítugu lesa Fókus • Meðallestur DV hefur apkist um 2,7 prósentustig á sama tíma og meðal- lestur Morgimblaðsins minnkar. • Lestm- DV á mánudögum hefur aukist um 6,1% og á fimmtudögum um 9,1%. Smáauglýsingar eru vinsælar Fjölmiölakön2"^ - hlutfall þeirra sem lesa smáauglýsingar DV* Mánudagur Þriðjudagur MUMIuidagur Flmmtudagur Fostudagur Laugardagur Smáuglýsingar DV sækja a: Smáar og sterkar Smáauglýsingar DV eru eitt vin: sælasta blaðaefni landsmanna, hvort heldur er meðal karla eða kvenna, höfuðborgarbúa eða lands- byggðarbúa. Alla daga vikunnar lesa yfir 62% lesenda DV smáaug- lýsingar blaðsins sem sýnir betur en flest annað styrkleika þeirra. DV hefur alla tíö lagt verulega áherslu á þjónustu við auglýsendur og smáauglýsingar eru stór hluti þeirrar þjónustu. Á hverjum degi birtast allt aö eitt þúsund smáaug- lýsingar í DV. Tæplega 170 flokkar eru í smáauglýsingum, allt frá bíl- um til sumarhúsa, fá veiði til hljóm- tækja, frá bamagæslu til húsgagna, frá ökukennslu til hestamennsku. SmáauglýsingadeUd DV er opin alla virka daga frá ki. 9 tU 22 og á sunnudögum frá 16 til 22. Smáaug- lýsingar DV eru einnig á Vísi.is, þar sem hægt er að leita eftir vöru eða þjónustu. -rt Fókus stærsti miðillinn: Ungt fólk vel- ur Fókus Lestur Fókuss og föstudagsblaða Mbl. - í aldurshópnum 12-25 ára % 10 20 30 40 50 60 Vikuritið Fókus, sem fylgir DV á fóstu- dögum, er mest lesna blaöiö á íslandi í ald- urshópnum 12-25 ára, samkvæmt nýrri fjöl- miðlakönnun GaUups sem birt var á flmmtu- dag. Alls sögðust 58,0% aðspurðra lesa blaðið en 53,8% sögð- ust lesa föstudagsblað Morgunblaösins sem kom næst í röðinni. Þetta sést betur á meðfylgjandi grafi. HeildarhlutfaU þeirra sem lesa Fókus var 40% aðspuröra í könnuninni sem er hækkun frá síð- ustu könnun i vor. í aldurshópnum 12-25 ára kom það berlega í ljós aö Fókus er sterkasti prentmiðUlinn á íslandi með 58% lestur, fóstudagsblaö Morgunblaðsins kemur þar á eftir og svo sunnudagsblað Morgunblaös- ins með 50,7% lestur. 49% aö- spurðra sögðust lesa fimmtudags- blað Morgunblaðsins og 45,9% lesa Helgarblað DV. Fókus kemur einnig mjög vel út í aldurshópnum 12-35 ára, með 50,67% lestur. Lelðarvíslrinn Lífiö Fókus hefur nú verið gefinn út í rúm tvö ár og hefur greinUega stimplað sig vel inn hjá landsmönn- um eins og tölumar gefa tU kynna. AUs lesa 52,9% landsmanna á aldr- inum 12-29 ára blaðiö og 76,5% les- enda DV á aldrinum 12-34 ára, en af lesendum DV lesa 66,9% Fókus. Af þeim sem lesa Fókus lesa 69% Llfið eftir vinnu. Virðist sem Lífið hafi skapað sér sterkan sess sem leiðar- vísir um skemmtana- og menning- arlífið. Fókus ber einnig höfuö og heröar yfir aðra miðla þegar litið er tU ald- urshópsins 12-25 ára meö 41% lest- ur. Bráðavaktin er vinsælasti sjón- varpssþátturinn, en 33,11% að- spurðra horfðu einhvem tímann á hann í könmmarvikunni. Djúpa laugin á SkjáEinum er vinsælasti is- lenski þátturinn í aldurshópnum með 15,6% áhorf, íslensk kjötsúpa er með 12% og Ok í Sjónvarpinu er með 8,6% áhorf, eUítið meira en SUikon á SkjáEinum sem er með 7,6% áhorf. -hdm Sandkorn ________ 9m U msjórth Hörður Kristjánsson netfang: 8andkom@ff.is Atgervisflótti Mikið hefúr verið talað um yfirvof- andi brotthvarf Matthiasar Jo- hannessens af Morgunblaðinu um áramótin en þá verður skáldið að setjast í helgan stein fyrir aldurs sakir. Hitt hefur ekki verið haft í há- mæli að golfáhugamaðurinn og arki- tektúrfikUlinn Gísli Sigurðsson les- bókarritstjóri verður líka sjötugur og hættir um áramótin. Gísli hefur stýrt Lesbókinni lengur en elstu menn muna og skrifað margan lang- hundinn um golf, bUa og byggingar- list. Þegar hann og Matti hverfa báð- ir um sömu áramótin er þetta eins og atgervisflótti af Mogganum. En á móti kemur að meðalaldur starfs- manna snarlækkar við brotthvarf þeirra. Lesendumir eldast áfram... Dýr soðning Meint morð á I dýrustu lúðum í heimssögunnar er í [ uppnámi. Sex pUt- um sem duttu í það I og varð það á að ráfa síðan vel við skál inn í aðstöðu Hafrannsókna- stofnunar í Grindavík, sáu þar flatfiska synd- andi í kari. „Við héldum að þetta væri bara venjuleg lúöa,“ sagði einn þeirra fyrir rétti. Þeim er nú gefið að sök að hafa myrt fimm lúður með köldu blóði. (Ekki voru þær með heitu blóði, svo mikið er víst.) Lúður sem metnar era á 15 mUljónir króna. Ein lúða fannst á bUastæði og var að sögn sett sem sönnunargagn í frysti Hafrannsóknastofnunar. Fyrir réttin- um kom hins vegar fram að starfs- menn stofnunarinnar vora búnir að éta sönnunargagnið. Sem sagt ekkert lík - ekkert morð. Gárangar telja víst að starfsmenn Hafró verði nú rakkaðir fyrir dýrasta málsverð í heimi... Flott á Hrauninu Sagt er að mikU ásókn sé nú í að komast á bak við lás og slá á Litia- Hrauni. Ýmis gæði munu fylgja ver- ■ unni þar. Ef ekk- I ert skemmtilegt er ■ í sjónvarpinu má fá að kíkja í eftir- litsmyndavélar fangavarða og fylgj- ast náið með heimUislífi Ibúa í ná- grenninu. Þessu tU viðbótar hefúr sjaldan þótt skortur á vímugjöfum af ýmsum toga, fóngum tU óblandinnar ánægju. Nú hefur verið upplýst um enn einn kostinn við fangavistina. Næst á dagskrá munu vera heim- sendingar á kvenfólki fyrir strákana. Skartgripaþjófurinn Dinu Florin og e-töflusmyglarinn Femandi Andrade hafa riðið á vaðið og auglýst eftir kvenfólki í einkamáladálki smáaug- lýsinga DV. Gárungar búast við hóp- feröum á næstunni austur á Eyrar- bakka... Góðir Akureyringar Hjón frá Akureyri gerðu sér glaðan dag í Uug- ferð tU Dublin. Nokkuð við skál fengu þau sér „smók“ eins og gengur, við miður góðar undirtektir áhafnarinnar. Mun hjónunum hafa ftmdist fjandi hart að fá ekki einu sinni frið á klósettinu. Fór svo að á erlendum UugveUi voru hjónakomin leidd frá borði i fylgd þungvopnaðra öryggisvarða. Gárang- ar velta því fyrir sér hvort þetta sé nokkuð sama fólkið og fyrir nokkrum áram fór i verslunarferð tU írlands að kaupa jólagjafir. Fundu þau þar forláta konfekt á útsölu og keyptu því birgðir fyrir aUa fjölskylduna. Þegar heim kom var hins vegar upplýst að konfektið góða var ætiað hundum en ekki mannfólki...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.