Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Blaðsíða 74

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Blaðsíða 74
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 -E Tilvera DV lí f iö Jólasýning Árbæjarsafns Árbæjarsafn verður opið á morgun og næsta sunnudag frá kl. 13 til 17. Gestum gefst tæki- færi til að fylgjast með undir- búningi jólanna eins og hann var í gamla daga, flest hús safns- ins verða opin og mikið um að vera. í Dillonshúsi verður m.a. boðið upp á heitt súkkulaði, pönnukökur og heimagerðar ^Jólasmákökur. Klassík ■ TONLEIKAR TONSKOLA SIGUR- SVEINS I LANGHOLTSKIRKJU. 100 nemendur koma fram á tónleik- um Tónskóla Sigursveins í Lang- holtskirkju klukkan 14 í dag. A jól- unum er gleði og gaman er yfir- skrift tónleikanna. Flutt veröa jólalög frá ýmsum löndum. Sveitin ■ JOLASYNING I dag verða haldnar jólasýningar safnanna á Eyrar- bakka. í Sjóminjasafninu hefst Ijós- rmyndasýningin I landi... í Húsinu hefst jólasýning Byggðasafns Ár- nesinga.. Sýningarnar eru sam- starfsverkefni safnanna og opnar frá kl. 14-17. ■ AÐVENTUTÓNLEIKAR Á HEIMA- LANDI l dag verða aðventutónleikar á Heimalandi undir Eyjafjöllum. . Samkór Rangæinga, Kvennakórinn Ljósbrá og Karlakór Rangæinga halda sameiginlega söngskemmtun. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00. ■ AOVENTUTÓNLEIKAR í EGILS- BUÐ I NESKAUPSTAÐ Kór Fjarða- byggðar ásamt hljómsveit og ein- söngvurum kl. 16.00. Trúbadorarnir Jón Oddur og Jón Bjarni í Stúkunni frá 23.00-3.00. •^leikhús ■ ABIGAIL HELDUR PÁRTI Abigail heldur partí eftir Mike Leigh á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 19. ■ AUÐUN OG ÍSBJÖRNINN ís- lenski dansflokkurinn sýnir Auðun og ísbjörninn, dansverk fyrir börn, eftir Nönnu Ólafsdóttur á Litla sviði Borgarleikhússins í dag kl. 14. ■ DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT Draumur á Jónsmessunótt verður sýndur í kvöld kl. 20.00 á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Takmarkaður sýningafjöldi. ■ OFVIÐRIÐ Ofviöriö verður sýnt í Smiðjunní, nýju leikhúsi Nemenda- leikhússins, við Sölvhólsgötu 13 í ._kvöld kl. 20. Miðaverö 500 krónur. m ■ PRINSESSAN í HÖRPUNNI Leik- brúðuland sýnir Prinsessuna í hörp- unni í Tjarnarbíói í dag kl. 15. Nansenskólinn í Lillehammer vinnur að friðarátaki: Stefna saman þjóð- um gömlu Júgóslavíu - vilja gjarnan fá íslendinga í skólann DV, LILLEHAMMER:___________________ Nansenskólinn í Lillehammer er með merkilegt skólastarf í gangi, auk hefðbundins náms, þar sem fulltrúum þjóðarbrota gömlu Júgóslavíu er stefnt saman. Á þriggja mánaða námskeiðum er þjóðarbrotunum stefnt saman og nemendurnir hristir saman. Fólkið ræðir pólitísk málefni fram og aftur og harkalega er deilt. Tilgangurinn er sá að þeir eyði því hatri sem er rótgróið. Inge Eidsvág, lektor við Nansenskolen, sagði að framan af, þegar námskeiðin hófust, hefði ver- ið erfitt að ná fólkinu saman. „Það komu tímar þar sem maður var að gefast upp en nú sjáum við árangur starfs okkar því það fólk sem hefur verið á námskeiðunum hefur snúið aftur til síns heima og staðið fyrir stofnun sambærilegra hópa. Þetta er friðarstarf ofan í grasrótinni," segir Inge sem um ára- bil var skólameistari við Nansen- skólann. Einn nemendanna sem er frá Bosníu er nú er leiðbeinandi í heimalandi sínu. Hann segir námið hafa verið ómetanlegt og friðarstarf- ið skili sér. „Við sem hér höfum farið í gegn- um friðarnámið erum góðir vinir í dag. Þetta nám hefur fært okkur saman. Við skiljum hvert annað og höfum náð að brjóta niður múrana sem áður skildu okkur að. Ég hef farið til hluta gömlu Júgóslavíu, Elstur og yngstur Þessir tveir herramenn eru sinn af hvorri kynslóðinni í Nansenskólanum. Sá elsti sem stundað hefur nám viö skólann losar áttrætt en sá yngsti er 17 ára. Friöarvinna Hér eru saman komnir leiðbeinendur sem vinna að friði meðal þjóða gömlu Júgóslavíu. Allir hafa þeir lokið námskeiði við Nansenskólann. þangað sem ég hafði aldrei komið áður, svo sem Makedóníu. Þetta hef- ur eytt ákveðnum fordómum mín- um,“ segir nemandinn. „Við höfum kynnt okkur málin frá öllum hliðum með því að lesa blöðin í hverju landi fyrir sig og ræða málin frá öllum sjónarhorn- um,“ segir hann. Inge lektor segir að hið hefð- bundna nám í skólanum sé einnig mjög gefandi og nýtist fólki. “Nemendahópurinn er á öllum aldri og sá elsti sem stundað hefur nám við skólann er rúmlega áttræð- ur en þeir yngstu um 17 ára. Þetta er gott nám og ég skora á íslendinga að sækja um hjá okkur,“ segir Inge. -rt Inge Eidsvág: - gefandi nám. Hljómplötur Helgi Björnsson og Bergþór Pálsson - Strákarnir á Borginni: ★ ★ Sitt lítið af hvurju ■ SÝND VEIÐII kvöld kl. 20 veröur sýnt leikritið Sýnd veiði í lönó. Örfá sæti eru laus. ■ VITLEYSINGARNIR Vitleysing- arnir, nýtt leikrit eftir Olaf Hauk Sím- onarson, verður sýnt í Hafnarfjarðar- leikhúsinu í kvöld kl. 20.00. Órfá sæti laus. ■ Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI Aukasýn- ing í kvöld á leikritinu A sama tíma ;~3?ð ári í Loftkastalanum kl. 20. Kabarett ■ HRATT OG BITANDI Hátíöar og lokasýning á Hratt og bítandi, skemmtikvöldi fýrir sælkera, í Kaffi- leikhúsinu. Um er aö ræða fjögurra rétta máltíö með lystilegri listadag- skrá sem hefst kl. 19.30. -x^Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Það var einhver hugvitssamur viðskiptajöfur sem fékk þá Helga Björnsson og Bergþór Pálsson til þess að syngja saman í dagskrá sem heitir Strákarnir á Borginni. Þeir voru til í tuskið og það hafa kúnn- arnir líka verið því þetta hefur svín- virkað og gengið vikum saman fyr- ir fullu húsi, þríréttaðri máltíð og réttri stemningu á Borginni. Nú hefur þessari söngdagskrá verið rennt inn á geisladisk eða að minnsta kosti 11 lögum af henni. Þetta er hljóðritað í Sýrlandi og það eru þeir Kjartan Valdemarsson á slaghörpu, Matthías Hemstock á trommur og Valdimar Kolbeinn Sig- urjónsson á kontrabassa sem leika undir hjá strákunum og gera það óaðfinnanlega. Þetta mun vera tekið upp „læv“ eins og það er orðað á umslaginu sem þýðir að allt er tekið upp í einu. Þetta er sagt gert til þess að endur- skapa stemninguna á Borginni en þess verður samt ekki vart í hljómi plötunnar. Helgi Björnsson hefur sungið í fleiri ár en hann kærir sig um að muna og rödd hans er komin með þessa þreytulegu fágun sem minnir á leður, viskí og vindlareyk og fell- ur því einkar vel að mörgum lögum af þessari tegund léttrar tónlistar. Bergþór Pálsson er óperusöngv- ari sem á, öfugt við marga kollega sína, afar létt með að syngja alls konar tónlist sem á ekkert skylt við klassík því hann er mjög fjölhæfur. Það sem hann syngur á þessum diski gerir hann vel. Nú skyldi maður ætla að þá væri allt í lagi en svo er ekki. Þó einstök hráefni séu til staðar og í góðu lagi þá fmnst mér blandan ekki virka sem skyldi. Mér finnst raddir þeirra félaga betri hvor í sínu lagi en sam- an. Lagavalið er einkennilegur sam- tíningur héðan og þaðan eins og all- ir sem komu að verkefninu hatl fengið að velja sín óskalög. Skalinn liggur alveg frá lummum eins og Volare sem allir geta sungið með, gegnum Cole Porter yfir i íslenska slagara eins og Ó, borg mín borg eft- ir Hauk Morthens. Þetta er sennilega gert til að sæt- kenndir Borgargestir fmni allir eitt- hvað við sitt hæfi. Ég er sannfærð- ur um að þetta svínvirkar þar í glasaglaumi og skemmtilegheitum en heima í stofu vantar allan neista í þessa sundurlausu romsu. Páll Ásgeir Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.