Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 Frettir Gjaldþrot NASCO ehf.: Enn eitt stjörnuhrapið - skaust upp á himininn á miklum hraöa en fataðist flugið og brotlenti DV-MYND HKR Samviskusamt starfsfólk rækjuvinnslu NASCO í Bolungarvík Starfsfólk, bæjaryfirvöld og íbúar vestra bíöa nú á milli vonar og ótta um þaö hvort nýjir eigendur komi fótum undir verksmiöjuna á nýjan leik. Fyrirtækið NASCO ehf., sem nú hefur verið lýst gjaldþrota, var stofað í október 1996 eftir að fyrirtæki með sama nafni komst í þrot. Egill Guðni Jónsson var skráð- ur stjórnarformaður hins nýja NASCO-fyrirtækis sem í upphafi var sölufyrirtæki á sjávarafurð- um. NASCO keypti sig inn í rekstur Rækjuvinnslunnar Bakka hf. í Bolungarvík er keyptur var 60% hlutur í fyrirtækinu af Þor- birni hf. i Grindavík. Þá var NASCO komið með umtalsverð veiðileyfi á Flæmingjagrunni og- fékk Bakki iðnaðarrækju þaðan. Var þvi kominn góður skriður á fyrirtækið sem nú var að komast i hóp sannkallaðra „spútnik“-fyr- irtækja hérlendis. Ýmsir sáu í Agli álíka galdramann í fyrir- tækjarekstri og Katli Helgasyni, herforingja Rauða hersins svo- kallaða á Vestfjörðum. Ekki var dans Ketils þó á eintómum rósum og reyndist veldi hann vera glæsileg spilaborg um frystihúsa- rekstur sem hrundi síðan með látum. Sá munur er þó á brotlend- ingu fyrirtækis Egils að þar voru komnir til meirihlutavalda þekkt- ir og öflugir fjárfestar þegar ósköpin dundu yfir. Katli tókst hins vegar að spila í bönkum og fjármálastofnunum út á innan- tóm orð um stór-fjárfesta frá New York. Hörður Kristjánsson blaðamaður Eignast meirihluta í rækjuverksmiðju í júní 1999 tóku forsvarsmenn NASCO ehf. enn upp veskið og keyptu 39,76% hlutafjár í Bakka hf. í Bolungarvík af Þorbirni hf. Með þessum kaupum átti NASCO ehf. 100% hlut í Bakka hf. Var þá unnið að stækkun á verksmiðj- unni úr 3 pillunarvélum í 6. Gert var ráð fyrir að auka vikuleg af- köst 220 tonn. Skipt var um nafn á fyrirtækinu og hét verksmiðjan nú NASCO Bolungarvík hf., þar sem Egill var skráður stjórnarfor- maður. Fjögurra milljaröa velta Velta NASCO ehf. árið 1999 var um fjórir milljarðar króna en helsta starfsemi NASCO var út- gerð og þjónusta við 12-15 rækju- veiðitogara á Flæmingjagrunni og í Barentshafi, rekstur rækju- verksmiðju Bakka hf. í Bolungar- vík, rekstur söludeildar sjávaraf- urða, rekstur umboðsskrífstofu í Kanada, Englandi og Danmörku og eignarhald dóttur- og hlut- deildarfélaga í Eistlandi, Litháen og Rússlandi sem höfðu yfir veiðiheimildum að ráða í viðkom- andi löndum. Alvörufjárfestar íslenskur viðskiptaheimur virt- ist á þessum tíma ekki i nokkrum vafa um ágæti NASCO sem kom- ið var á fljúgandi ferð. Á fyrsta mánuði ársins 2000 var gengið frá kaupum Skagstrendings hf. og Burðaráss hf. á nær 25% hlut í NASCO ehf. Jafnframt var samið um kauprétt á 26% til viðbótar síðar á árinu, eða samtals 51%. Hlutur Skagstrendings í kaupun- um var þá um 15% og Burðaráss um 10%. „Með kaupunum er stefnt að því að efla samstarfið enn frekar," sagði þá í tilkynn- ingu frá Burðarási og Skagstrend- ingi. Mikil kvótayfirráð á Flæmska hattinum NASCO réð þegar hér var kom- ið sögu yfir stórum hluta þess kvóta sem gefinn er út á Flæm- ingjagrunni eða svokölluðum Flæmska hatti við Kanada. Fyrir- tækið kom að útgerð hátt í 20 tog- ara og sá um rekstur þeirra án þess að eiga þó beinlínis öll skip- in. í maí á þessu ári var greint frá því að NASCO gerði út á annan tug skipa frá Kanada og hafði þá náð yfirráðum yfir stærstum hluta rækjukvótans þar. NASCO rak þá einnig útgerðarfélög í Lett- landi, Litháen, Eistlandi og Rúss- landi auk rækjuverksmiðju í Kanada. I þessum sama mánuði jók Skagstrendingur enn hlut sinn í NASCO var þá kominn með 37% hlut i fyrirtækinu og orðinn stærstur eigenda. Saman voru Skagstrendingur og Burða- rás þá komnir með meirihluta í fyrirtækinu, en i janúar keypti Burðarás hf. 24,4% hlut i NASCO. Þá var samið um kauprétt á 26% til viðbótar sem nýju eigendurnir nýttu sér ásamt kaupum á 10% hlut fyrri eigenda. Fljótt skipast veður Þar sem NASCO stundaði út- gerð fjölda skipa hafði ört hækk- andi eldsneytisverð mikil áhrif á reksturinn. Á haustdögum var ljóst að dæmið var hreint ekki eins glæsilegt og menn ætluðu og virkilega farið að hrikta í undir- stöðum. f nóvember var svo komið að félagið gat ekki staðið í skilum við skuldheimtumenn sína. Stjórn NASCO ehf. ákvað því að óska eftir gjaldþrotaskiptum á búi félagsins. Ástæður þessa voru sagðar þær helstar að mikið tap hefur verið á rekstri félagsins undanfarin misseri, sem skýrist aðallega af silækkandi afurða- verði og hækkun á útgerðar- kostnaði. Fram kom í tilkynningu frá fé- laginu að í upphafi árs var rækju- verð mjög lágt og talið að það hefði náð lágmarki. Á árinu hefði afurðaverðið lækkað enn frekar, auk þess sem stærðarsamsetning aflans hefði verið óhagstæö. Út- gerðarkostnaður hækkaði veru- lega á árinu og vó tvöföldun olíu- verðs þar þyngst. Meginstarfsemi félagsins á ís- landi var rekstur rækjuvinnslu í Bolungarvík sem til stóð að selja nýjum eigendum í vikunni, AG- fjárfestingu ehf., en þar eru Agn- ar Ebenesersson, framkvæmda- stjóri verksmiðjunnar í Bolungar- vik, og Guðmundur Kr. Eydal, sölustjóri NASCO. Nær 400 milljónir í vaskinn Bókfært verð eignarhluta Skag- strendings hf. í NASCO ehf. var 236 milljónir króna. í árshluta- uppgjöri félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins voru 100 milljónir króna gjaldfærðar vegna eignar- hlutans. Burðarás fjárfesti fyrr á þessu ári í hlutabréfum NASCO fyrir að andvirði 157,6 milljónir, sem er 24,4% eignarhlutur. Lík- lega er þetta allt tapað fé. Kaupin í biðstöðu Ráðgert var að kaupin á rækju- verksmiðjunni yrðu gengin í gegn í gær. Stærstu kröfuhafarnir, Byggðastofnun og Sparisjóður Bol- ungarvíkur, munu hins vegar ekki hafa verið tilbúnir að bakka upp kaup AG-fjárfestingar á fyrirtækinu að svo stöddu. Að sögn Guðmundur Kr. Eydal er þetta stærra mál en svo að það verði hrist fram úr erminni með svo skömmum fyrirvara. Hann segist ekki líta svo á að búið sé að loka á þá dyrum og frekari fregna sé því að vænta eftir helgina. Verksmiðjan er með trygga sölu- samninga og trúlega mun það skipta sköpum fyrir atvinnulifið í Bolung- arvik að þessi rekstur haldi áfram, en um 60-70 manns hafa starfað hjá fyrirtækinu. Athygli hefur vakið að rækju- verksmiðja NASCO í Bolungarvík keypti sáralítið af sínu hráefni frá skipum NASCO. Samkvæmt heim- ildum DV var m.a. kennt um óvönd- uðum vinnubrögðum i meðhöndlun rækjunnar um borð í sumum skipa fyrirtækisins. NASCO-menn sjálfir treystu sér því ekki til að vinna úr því hráefni. Velta rækjuverksmiðj- unnar það sem af er ári er um 1.100 milljónir króna, þrátt fyrir að fram- leiðsla hafi legið niðri í tvo mánuði framan af árinu. Menn hafa velt því fyrir sér hvort hrun NASCO hafi áhrif á viðskipti með hlutabréf í íslenskum sjávarút- vegsfyrirtækjum. Enn sem komið er virðist slíkt ekki vera raunin en þess ber þó að geta að markaðurinn hefur verið í lægð og vart er að bú- ast við niðurstöðu fyrr en hann fer að taka við sér aftur. Kunnugir telja að vissulega skipti þetta máli fyrir eigendur en hjá fyrirtæki eins og Burðarási sé þetta aðeins eitt egg í körfu fyrirtækis sem sé með eignar- hald á fjölda annarra fyrirtækja í ís- lenskum sjávarútvegi. Grein sem stórt spumingarmerki er þó sett við af fjárfestum um þessar mundir. Volvo S40 T-4 skr. '98,ekinn 58 þús. km, leöur, r.aKstur lúga, álfelgur, allt raídr. sturstölva, og m. fl. Sjón er sögu ríkari. Verð kr. 2.390.000,- áhvílandi kr. 1.200.000,- EVRÓPA BILASALA tákn um traust Faxafen 8 / Sfmi 581 1560 / Fax 581 1566 www.evropa.is Opib alla helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.