Morgunblaðið - 04.02.1988, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
67
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
"MFR SKILST HRNN HRFI VERIÐ R0 VINNR STÖRKOSTLEGRN LISTR'CNRN SIGOR ElNS OG ÞRÐ HEITlR"
Að beita músíkölskum
fantabrögðum
Eftir að popp-, rokk- og bítlatón-
list hélt innreið sína á vængjum
hinnar undursamlegu og þróuðu
rafeindatækni nútímans hafa þær
furður gerzt að tæknin hefir smám
saman spunnið uppá sig og alls-
endis óvæntur ófognuður af tröll-
auknu rafmagnsgargi hefír siglt í
kjölfarið og hvolfst yfír allsendis
grandalausan almenning, þannig
að flestar dhnsskemmtanir, bæði
fyrir eldri og yngri, eru orðnar
„diskóteks“-samkomur með yfír-
þyrmandi hávaða, og fólk, sem
vill eitthvað annað, stendur ráð-
þrota og getur enga rönd við reist,
né farið eitthvað annað þar sem
ekki er ærandi hávaði.
Fyrr á dögum þegar fólk vildi
fara á „huggulegar" danssamkom-
ur með þægilegu tónhæðarstigi gat
það farið óhult og öruggt fyrir
þessum ófögnuði á almenna dans-
leiki, hitt kunningja og talað við
þá og skemmt sér við þægilega
dansmúsík og átt ánægjulegar
samræður við dansdömuna sína
um leið, því músfkinni var að öllum
jafnaði stillt í hóf svo þetta var
hægt. Yfír slíkum skemmtunum
var glæsibragur, sem ánægja
fylgdi allajafna.
Eftir hina á margan hátt dásam-
legu tæknibyltingu bregður aftur
svo við, að allflestar danshljóm-
sveitir' eru famar að útbúa sig
hátalara-„batteríum“ og míkró-
fónadrasli svo líkist helzt stór-
skotaliðsútbúnaði og þær nánast
„bombardera" mannskapinn með
svo geigvænlegum „músík“-dmn-
um, að venjulegt þrumuveður er
hreinn bamaleikur í þeim saman-
burði. Er glymjandinn almennt
slíkur, að ekki heyrist mannsins
mál — og jafnvel ekki þótt reynt
sé að hrópa eða jafnvel nánast
öskra í náungann — við.sama borð.
Og öll gamla rómantíkin er fok-
in út í veður og vind. Og ef einhver
talar um betri tíma áður fyrr, þá
hlustar enginn nú orðið á slíkt.
Þeir, sem vanist hafa þessum
gauragangi, virðast jafnvel telja
hina til þess hluta kynstofnsins,
sem sé orðinn afdankaður og sem
hafi úrkynjast. Það kynlega er að
jafnvel dansleikir eða samkundur,
sem ætla mætti að væm með virðu-
leikablæ vegna sérstakra að-
stæðna, hafa líka tekið svipmót
af þessum ósköpum og hafa breyzt
oft og tíðum í að vera nánast
skrípasamkomur sem auðkennast
af allskonar fettum og brettum og
fáránlegu látbragði, sem á að heita
dans — en er það engan veginn.
Virðulegir borgarar og dömur
sprikla og pata (tjútta) og fetta
sig og bretta svo allur fyrri glaesi-
bragur er horfínn út í buskann.
Og manni skilst að þetta flokkist
víst undir „fjör“ eða „stuð“ skv.
nútíma hugsunarhætti — það em
ærslin og hávaðinn sem gilda —
annað er bara gamaldags og ekki
móðins í hinni nýju tækni, samlag-
ast ekki „hippa“-menningunni.
Þetta gengur hinsvegar svo
fram af mér að ég get ekki lengur
orða bundist. Mér gremst að mað-
ur skuli þurfa að sæta þessari
meðferð og ekki fá rönd við reist.
Maður kaupir sig t.d. inn á fok-
dýrar árshátíðir í virðulegum
félögum svona einu sinni á árinu
og vonast eftir menningarsvip og
kúltúr á samkundunni. Og mikill
^hluti af háu verði fer víst í að
greiða hinum mögnuðu músík-
kempum, sem fást aímennt ekki á
neinum slikkprís. En hvað fær
maður? Jú, þeir eyðileggja
skemmtunina fyrir manni með háv-
aða. Þeir spiia greinilega ekki
fyrir „neytendur“, þeir virðast
bara spila fyrir sjálfa sig þessir
makalausu músíkgarpar, og gera
útaf við alla skemmtun með þess-
um yfirþyrmandi og ruddalega
hávaða. Allur „kúltúr“ er horfínn
út í hafsauga. Og endirinn á oft
góðri árshátfð með góðum ræðum
og ánægjulegu skemmtiefni verð-
ur skapraun og að fólk flýr burt
heim til sín af svona skemmtunum
og sér eftir bæði tímanum og pen-
ingunum, sem þetta kostaði og
heitir að fara aldrei aftur á svona
„platball“ með toppstilltum hátöl-
urum og dynjandi tröllaöskrum,
sem á að heita söngur. Þetta geng-
ur svo langt að jaðrar við fanta-
skap. Virðist sem hæfileg nafngift
á svona „fagmenn" sé ekki músík-
kantar heldur „músík-fantar“ því
svona nauðung getur vart flokkast
undir neitt annað en að fólk sé
haft undir með fantabrögðum. Með
þessu eru líka oft falleg lög gerð
að óskapnaði og svona gauragang-
ur er gjörsamlega óþarfur. Maður
skilur einfaldlega ekki tilganginn.
Ég vil hér mælast til þess að
þeir danshljómsveitarmenn, sem
selja þjónustu sína á almennum
skemmtunum, gleymi því ekki að
hlutverk þeirra er að vera til
ánægju og skemmtunar, og að
þeir hætti þeim hrapallega óvana
sem viðgengist hefír að ofseðja
viðskiptamenn sina og valda þeim
slíkri ógleði sem þeir oft gera nú.
Tilætlunin og það sem vonast er
eftir frá þeim er skemmtun og
ánægja og það ætti að vera full
ástæða til að menn hyggðu að at-
riði eins og vinsældum sínum og
sýndu þá tillitssemi og menningar-
viðleitni, sem við á.
Til áréttingar vil ég taka fram
að þessi skoðun er ekki mitt einka-
mál því ég veit um fjölda fólks sem
hefír þessa sömu hvimleiðu sögu
að segja og hefir eins og ég reynt
að koma til leiðar breytingum með
fortölum við hljómsveitarmenn, en
gjörsamlega án nokkurs árangurs
— og stundum fengið afundin svör
eða kannski verið bent á að háv-
aðamælirinn standi undir sprengi-
marki.
Er ekki mál að betrumbæta
menninguna og minnka gaura-
ganginn og gargið? Vonandi er að
meðlimir danshljómsveita sýni að
þeir séu ekki orðnir „heymarlaus-
ir“ gagnvart óskum neytenda með
eðlilegt hljómskyn — og sem oft
þurfa marga daga til að jafna sig
eftir misþyrmingamar af völdum
hins yfírgengilega rafmagnsgnýs
þessarar „hippa-menningar“.
Sveinn Ólafsson
BLÓMAFRJÓKORN OG FRÆVUR
Polbax er nýtt undra-
heilsuefni unnið úr blóma-
frjókornum og frævum
ásamt Baxtin Andoxunar-
efninu. Þetta er algjör
bylting í blómafrjókorna-
gerð og er að þakka 16
ára rannsóknum sænska
„Pollenkóngsins" Gösta
Carlssons.
í Polbaxi er að finna SOD efnakljúfa sem eru afar
nauðsynlegirvarnakerfi líkamans. Polbax-heilsu-
efnið er mest selda Pollenefnið á Norðurlöndum.
Polbax er góð leið til betri heilsu. Verð á (75) töfl-
um er aðeins kr. 390,-
Fæst í apotekinu, heilsubúðinni eða markaðinum.
Bio-Selen-umboðið, sími 76610.
P0|BAX
POLLEN & BAXTIN
Hvað segja
notendur Tollmeistarans?
„Aðgengilegt og auðvelt í notkun.“
Sigrún Jörundsdóttir, Bílanausti.
Tollmeistarinn,
\ Ármúlal7a,
sími 685223.
DAGVIST BARIVA.
BREIÐHOLT
Fálkaborg — Fálkabakka 9
Fálkaborg óskar að ráða eftirtalið starfsfólk:
Fóstru í heila og hálfa stöðu. Aðstoðarfólk fyr-
ir og eftir hádegi. Afleysingafólk. Starfsmann
til stuðnings börnum með sérþarfír.
Upplýsingar gefa Lilja og
Ingibjörg í sírna 78230.
HEIMAR — KLEPPSHOLT
Sunnuborg — Sólheimum 19
Sunnuborg vantar nú þegar fóstru í hálfa
stöðu eftir hádegi. Til greina kemur starfs-
maður með aðra uppeldismenntun eða
reynslu.
Upplýsingar gefur Arný Birna
í síma 3 63 85
VESTURBÆR
Hagakot — Fornhaga 8
Skóladagheimilið Hagakot óskar að ráða
fóstru nú þegar í heila stöðu.
Upplýsingar gefur Stei(iunn
í síma 2 92 70
Allar upplýsingar eru á viðkomandi heimil-
um og einnig hjá umsjónarfóstrum í skrifstofu
Dagvist barna. Sími 91-27277.