Morgunblaðið - 05.10.1963, Qupperneq 5
( Laugardagur 5. okt. 1963
MORGUNBLADID
5
Félagshús í Flatey. Tveir gl uggar á búdinni sjást lengst til vinstri á myndinni.
Verzlun Hermanns Jónssonar 50 ára
VERZLUN llermanns S. Jóns
sonar í Flatey á Breiðafirði
varð fimmtíu ára nú á þessu
vori, og því ein af elztu verzl-
unum landsins. Hún er nú
helzta verzlunin í hinum
forna verzlunarstað og rekin
af dóttur stofnandans, frú
Jónínu Hermannsdóttur og
manni hennar, Friðriki Saló-
monssynL
★
Við höfum samband við
Jónínu Hermannsdóttur í til-
efni þessara tímamóta verzl-
unarinnar og gaf hún okkur
eftirfarandi upplýsingar:
— Borgarabréf föður míns,
Hermanns S. Jónssonar, var
gefið út 20. janúar 1913 og
verzlunin tók til starfa um
vorið í einu herbergi í húsi
hans, sem áður hafði verið
svefnherbergi. Fyrst í stað
var eingöngu verzlað með
álnavöru, hreinlætisvörur og
sælgæti. Um haustið var rif-
inn veggurinn á húsinu og
smíðað útskot og við það
stækkuðu húsakynni verzlun-
arinnar mjög.
Verzlunin var í vestri hluta
hússins, sem var byggt árið
1838 af Guðmundi Scheving
fyrir tengdason og dóttur
hans. Herdís Guðmundsdóttir
konu Brynjólfs Benediktsson-
ar og er langelzta húsið í Flat-
ey. Austri endi hússins var
byggður 10 árum síðar af
Brynjólfi Benediktsen og þar
segir í Vesturlendingum eftir
Lúðvík Kristjánsson, sem
þekkir ef til vill betur sögu
þessa húss en ég, að þar hafi
verið byggð stærsta og fínasta
stofa á öllu Vesturlandi. Þeg-
ar Brynjólfur byggði þann
enda var Guðmundur Schev-
ing dáinn, en ekkja hans, Jó-
hanna minnir mig hún héti,
dró þá upp úr kistu sinni
veggfóður, sem Jörundur
Hundadagakonungur gaf Guð
mundi fyrir gott fylgilag við
sig. Þetta veggfóður er nú
hulið, en einhvers staðar mun
vera til bót af því.
Þá má geta þess hér, að
verzlun hefur fylgt húsinu
frá upphafi. Fyrst var þar
Brynjólfur Benediktsen, síðan
Jón Guðmundsson, sem
keypti húsið af Herdísi Bene-
diktsen. Hann bjó í vestari
enda hússins en verzlaði í
hinum. Af honum kaupir Hér
mánn húsið og er sá' kaup-
Áður en Hermann S. Jónsson
stofnaði verzlun sína í Flatey
stundaöi hann sjó í hartnær
fjóra áratugi, lengst af sem
skipsljóri. Þessi mynd var
tekin af honum í sjóklæðum
á efri árum.
samningur til, gerður 5. októ-
ber 1892. Kaupverð hússins
var 16 hundruð krónur, en
austurendinn ekki afhentur
fyrr en ári síðar.
Þetta er nú saga hússins,
en verzlun föður míns byrj-
ar 1913. Hún var starfrækt af
honum og mér þar til árið
1943 að hann andaðist, 29. sept
ember. Eftir það starfaði ég
áfram við verzlunina, og fékk
endurnýjað verzlunarleyfið
til öryggis. þ.e.a.s leyfi til að
reka verzlunina áfram undir
sama nafni. Það var árið 1944.
Verzlunin hefur því starfað
óslitið í 50 ár.
Það má segja til gamans, að
í þetta hús kom fyrsti olíu-
lampinn í eyjunni. Var það
hjá frú Herdísi Benediktsen.
Þá þekktust ekki nema tóigar
kerti og lýsislampar. Þetta var
hengilampi með skermi —
eins og elztu lampar voru. Sú
saga er sögð, að í fyrsta skipti
er kveikt var á lampanum
var verið að lesa írafells-
Móra; konur voru við tó-
vinnu, rokkar voru þeyttir og
kambar urguðu. Þá fóru
vinnukonur að sofa hver af
annarri og var Móra kennt um
og sagt, að þarna væri hann
að sýna áhrif sín. Þá stendur
frúin upp að stumra yfir
vinnukonunum, sækja vatn og
þess háttar En í þann mund
kemur dragsúgur og hreint
loft og rísa þá vinnukonurnar
upp hver af annarri. Kolsýr-
ingur hafði myndast í stof-
unni og voru þetta afleiðingar
hans. Þessa sögu sagði faðir
minn mér, sem var fullorð-
inn piltur þegar hún gerð-
ist, og mundi þetta vel.
★
Jónína Hermannsdóttir hef-
ur rekið verzlunina síðan fað
ir hennar dó með góðri að-
stoð eiginmanns síns, Friðriks
Salómonssonar, sem til
skamms tíma rak bókaverzlun
í Flatey. Hin síðari ár hefur
starfssvið verzlunarinnar víkk
að að mun, einkum eftir að
Kaupfélag Flateyjar var leyst
upp árið 1954. Nú er verzlun
Hermanns S. Jónssonar helzta
verzlun í Flateyjarhreppi, en
hins vegar fækkar fólki stöð-
ugt á verzlunarsvæðinu og að
sjálfsögðu er það mjög til-
finnanlegt fyrir hina gömlu
værzlun.
'Áheit og gjafir
Áheit afhent Mbl. til Strandarkirkju
S. H. 100, H. H. 100, G. G. 10, V.
K9 30, G. E. K. 200, Ásta Kristins
60, E. B. 250, F. B. J. 10, V. E. 100,
N. N. 10, S. 200, F. O. 50, J. E. 100,
N N 100, R. Þ. 100, A. O. 1000, J. K.
100, M Br. 100, M. G.300, B. S. 50,
K. G 100, Á. S. 500, Kristín og María
100, í. R. 100, Margrét Aðalsteinsdótt-
ir 100, H. H. G. 100, G. R. 100, G S.
25, A. B. 100, R J. 50, B. K. 120, S. Ó.
200, S. J. S. 220, S. G. 10, B. B. 120,
í>. S. G. 100, V. P. 125, N. N. 150,
N. N. 100, A. G. 200, Frá þakklátum
300, G. Ó. 200, Margrét 100, K. S. 100,
J. G. G. 1000, K E. 10, N. N. 300, K R.
100, A Ó Grindavík 200, N N 180, Ó-
neíndur 25, V. V. 50, A. G. 7384 50,
Frá ónefndum 25, E. G. 200, Sker-
íirðingur 100, B. G. 100, S. S. 100,
A. W. 200, N. N. 100, G. J. 100, K. J.
100, Ingveldur 50, E. S. K. 1000, B. T.
2000, S. G. 40, Frá ónefndum 1000,
Kr. 300, H. og G. 100, Áslaug 125,
B. S. 50, E. E. 100, J. S. 200, B. 50,
H. H. 110, Ónefndur 150, K. D. 100,
O. J. 50, Svava 100, Þakklát kona 100,
V. S. 100.
Föstudaginn 20. sept. sl. heimsóttu
þrjár konur úr Rebekkustúkunni
Bergþóru Blindraskólann, Bjarkarg. 8.
Af hentu þær form. Blindravinafélags
íslands, Þorsteini Bjarnasyni, höfðing-
lega gjöf til skólans. Er það stórt
knattlíkan upphleypt. Hnötturinn er
gerður í Englandi og mjög vandaður.
Mun hann koma að góðum notum
við landafræðikennslu og áreiðanlega
munu margir fleiri en nemendur fara
höndum um hann sér til fróðleiks og
skemmtunar.
Blindravinafélag íslands þakkar
þeim Rebekkusystrum innilega þessa
nytsömu og veglegu gjöf.
Ennfremur þakkar félagið þeim fyr-
ir aðrar gjafir, vináttu og góðan skiln
ing á vandamálum biinda fólksins,
sem komið hefur fram á margan hátt
í 25 ára starfi be* ’'°lferðar-
málum blindra.
Sængur
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar Eigum dún- og fið-
urheld ver. Dun- og gæsa-
dúnsængur og koddar tyr-
irliggjandi.
Dún- og fiðurhreinsunin
Vatnsstíg 3 — Sími 14968
Bílamálun - Gljábrennsla
Fljót afgreiðsla— Vönduð
vinna. Merkúr hf.. Hverfis-
götu 103. — Sími 11275.
Keflavík
1 herb. og eldhús til leigu.
Upplýsingar á Vesturg. 36.
Reglusamur maður óskar
eftir atvinnu: dyravörzlu,
vinnulaunaútreikningi eða
verðútreikningi. Heima-
vinna kemur til greina. —
Tilb. merkt: „Reglusamur
— 3897“ sendist Mbl. fyrir
8. október.
Miðstöðvarketill
óska eftir að kaupa notað-
an miðstöðvarketil með
öllu tilheyrandi. Uppl. í
síma 35972 eftir kl. 1.
Hjólsög — Bandsög
Til sölu hjólsög — til leigu
bandsög.
Hraunbraut 16, Kópavogi.
Rafsuðuvél
Ónotaður Mez transari til
sölu. Hagstætt verð. Uppl.
í síma 23117.
Kona óskast
til að sjá um kaffiveitingar
fyrir lítið félagsheimili. —
Sími 12764.
íbúð óskast
2—3 herbergja íbúð óskast
til leigu, má vera í Rvík,
Kópavogi eða Hafnarfirði.
Upplýsingar 1 síma 14296.
Píanó — Pels
Notað píanó og mjög
fallegur pels til sölu. —
Hagstætt verð.
Sími 33250.
íbúðir til sölu
Til sölu eru íbúðir við Hjarðarhaga, Kleppsveg og
Sólheima, 3ja, 4ra og 5 herb. — Félagsmenn, sem
nota vilja forkaupsrétt sinn, hafi samband við skrif
stofu félagsins að Hagamel 18, strax.
B. S. F. prentara.
Þakjárn Þakjárn
7 til 12 feta fyrirliggjandi.
J.B. PÉTURSSON
BLIKKSMIÐJA • STAlTUNNUGtRÐ
JÁRNVORUVERZLUN
Ægisgötu 4. — Sími 15-300.
Dansskóli Eddu Scheving
&
fi
'4
Kennsla hefst mánudag-
inn 7. október. —
Afhending skírteina fer
■ fram í dag:
! tj
Uf’
Söfnin
ÁRBÆJARSAFN er lokað. Heim-
sóknir 1 safnið má tilkynna í síma
18000. Leiðsögumaður tekinn í Skúla-
túnl 2.
MINJASAFN REYKJ A VÍKURBORG-
AR Skúatúni 2, opið daglega frá kl
2—4 e.h. nema mánudaga.
ÞJÓÐMINJ ASAFNIÐ er opið á
þnðjudögum, laugardögum og sunnu-
dögum kl. 13.30—16.
HSTASAFN ISLANDS ei opið á
pnðjudögum, fimmtudogurn. laugar-
dögum og sunnudögum fi.1. 13.30—16.
Tæknibókasafn IMSÍ er opið alla |
virka daga kl. 13—19 nema laugar-
daga kl. 13—15.
ÁSGRÍMSSAFN, Bergsíaðastræti 74, |
er opið sunnudaga, pnðjutíaga og
fimmtudaga kl. 1.30—4.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR
er opið á sunnudöguncr miðviku-
dögum kl. 1:30—3:30.
Kópavogur
í félagsheimili Kópavogs
í dag frá kl. 4—7 e.h.
Reykjavik
KR-húsinu við Kaplaskjóls
veg í dag frá kl. 1—3 e.h.
Innritun í síma 23-500 daglega frá
kl. 1—5 eftir hádegi.
Unglingstelpa
óskast til sendilerða á skrifstofu vora.