Morgunblaðið - 05.10.1963, Qupperneq 15
T Laugardagur 5. o!ct. 1963
MORGUNBLADIO
15
Guðrún Pétursdóttir
biskupsfrú, sjötug
GÆTI nokkur, sem þekkir frú
Guðrúnu Pétursdóttur, biskups-
frú, gizkað á, að hún væri orðin
sjötug? En svo mun þó vera, því
ekki hæfir að rengja það, sem rit
að er á bók. — Hún er fædd að
Hrólfsskála á Seltjarnarnesi hinn
5. okt. 1893 og ólst upp til full-
orðinsaldurs, í glaðværum syst-
kinahópi, hjá foreldrum sínum,
Pétri Sigurðssyni, útvegsbónda í
Hrólfsskála, og konu hans, Guð-
laugu Pálsdóttur. Standin því að
henni traustir stofnar og kyn-
bornir í báðar ættir.
Óhætt mun að fullyrða, að hið
fjölmenna æskuheimili' hennar
hafi á þeim árum staðið í
fremstu röð hvað snerti efnahag,
menningu og fagra heimilisháttu.
Hér á þessu myndarlega heimili
foreldra sinna nam hún á æsku-
aldri kvenlegar menntir, eins og
bezt gerðist á þeim tímum.
Árið 1917 giftist hún Sigur-
geiri Sigurðssyni, síðar biskupi,
sem þá skömmu áður, hafði verið
vígður prestur til ísafjarðar-
prestakalls í Norður-ísafjarðar-
prófastsdæmi.
Hinna ungu hjóna beið á ísa-
firði umfangsmikið og heillaríkt
etarf um rúmlega 20 ára skeið. —
t,Prófastsheimilið“ á ísafirði
varð fljótt rómað fyrir þá kosti,
er bezt skarta á hverju heimili.
—- Eins og að líkum lætur voru
þeir margir, sem erindi áttu við
prófastinn og leituðu róða hans
og aðstoðar í hinum margvísleg-
listu mólum. Og heimili þeirra
prófastshjónanna stóð öllum op-
ið, eins og útbreiddur faðmur,
það var líkast því, að það lægi
í þjóðbraut allra Norður-ísfirð-
inga.
Við. arinn þeirra hjóna mætti
öllum er að garði bar einstæð
alúð, hlýja og risna, sem veitt
var af örlæti og höfðingslund,
þrátt fyrir léleg launakjör og
fremur þröngan efnahag. En
hjartaauðurinn og hugarhlýjan
leystu hvern vanda, þar voru
innstæður sem aldrei þrutu.
Hér áttu Vestfjarðaprestarnir
og vinirnir margar ógleymanleg-
ar unaðsstundir við ljúfar og
gamansamar viðræður, hljómlist
og söng, því hér skipaði drottn-
ing listanna, sönglistin, öndvegi,
því bæði hjónin voru söngmennt-
uð í bezta lagi og frú Guðrún
hafði leikið á slaghörpu frá æsku
dögum.
Frá heimili þeirra á ísafirði
streymdi birta og ylur á vegu
þeirra, er mesta höfðu þörf
hjálpar og hlýju, enda nutu þau
hjónin þar svo almennra vin-
sælda að einstætt má telja. f>au
tryggðabönd, sem þá voru knýtt
við Norður-ísfirðinga hafa aldrei
brostið, þótt vík yrði milli vina.
— Árið 1939 fluttust þau hjónin
hingað til Reykjavíkur, er séra
Sigurgeir var kjörinn biskup. —
Hér beið frú Guðrúnar því enn
umfangsmeira og erilsamara hlut
verk á hinu stóra biskupsheim-
ili, sem opnaði faðm sinn fyrir
öllum prestum landsins og afar
fjölmennu vinaliði úr ýmsum átt
um. Mun það allra dómur, er til
þekktu, að frú Guðrún hafi leyst
hið erfiða húsmóðurhlutverk sitt
af hendi með þeirri rausn, mynd-
arbrag og virðugleik, sem bezt
verður á kosið. Hið fagra bisk-
upsheimili einkenndist frá fyrstu
tíð af alúð, glaðværð og bjart-
sýnni Guðstrú — og lotningu
fyrir því helga og háa. Þar lék
ávallt um mann hlýr og ljúfur
blær, sem yljaði hjartanu og
eyddi skuggum af vegi.
Þau hjónin eignuðust 4 gáfuð
og gjörvuleg börn, sem öll eru á
lífi. Eru það þau: Pétur, sóknar-
prestur á Akureyri, kvæntur Sól-
veigu Ásgeirsdóttur; Sigurður,
fulltrúi í Útvegsbankanum í
Reykjavík, kvæntur Pálínu Guð-
mundsdóttur; Svanhildur, sendi-
ráðsritari í Stokkhólmi, og Guð-
laug, gift Sigmundi Magnússyni,
lækni í Reykjavík.
í hinni þungu reynslu, þegar
frú Guðrún missti hinn mikil-
hæfa eiginmann sinn árið 1953,
stóð hún eins og hetja, sterk í
krafti trúar sinnar, borin uppi af
þreki sínu, skapfestu og still-
ingu. —
Ásamt listrænum gáfum var
henni í blóð borið glaðlyndi og
bjartsýni, sem ávallt hefur varp-
að birtu á vegu vina hennar, eins
og sólstafir, sem verma og lýsa.
Ástvinir hennar þekkja þó bezt
hve sterk hún er í elsku sinni,
umhyggju og fórnarlund.
Ég held að frú Guðrún hafi í
vöggugjöf hlotið í sál sína bjart-
an ljósgjafa, sem varpar geislum
og vermir þá sem návistar henn-
ar njóta. Þcir geislar hafa lýst
vinum hennar og yljað þeim eins
og vermisteinn á vori.
Frú Guðrún hefur ávallt verið
auðug af samúð, mildi og hugar-
hlýju, og það eru einmitt þessar
kenndir mannshjartans, sem
mýkja meinin, bræða klakann og
eyða hinum nöpru næðingum
lífsins.
Við hjónin sendum frú Guð-
rúnu einlægar árriaðaróskir og
þakkir á þessum tímamótum og
biðjum henni og ástvinum henn-
ar blessunar Guðs um öll ókomin
ár.
Þorsteinn Jóhannesson.
Vetrarstarfsemi
firðingafél. að hefjast
BREIÐFIRÐINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík er að hefja vetrar-
starfsemi sína og verður fyrsti
skemmtifundur þess á haustinu
n.k. miðvikudagskvöld í Breið-
firðingabúð.
Breiðfirðingafélagið er nieðal
elztu átthagafélaga borgarinnar
og verður 25 ára á þessu ári. Það
Kanpir Búlgnrín
bnndnrískt
hveiti?
New York, 30. sept. NTB
• ANNAÐ kommúniskt ríki
hefur látið í ljós áhuga á að
kaupa hveiti af Bandaríkjamönn
um. Utanríkisráðherra Búlgaríu,
Ivan Bashev ræddi stundarlangt
við Dean Rusk, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna í dag —
m.a. um það, hvort hugsanlegt
væri, að Búlgarar gætu keypt
hveiti af Bandaríkjamönnum.
• í síðustu viku fór utan-
ríkisráðherra Tékkóslóvakíu,
Vaclav David, hins sama á leit
við Rusk, en sem kunnugt er
standa um þessar mundir yfir
samningar um sölu verulegs
magns bandarískra kornbirgða
til Sovétríkjanna.
hefir unnið að ýmsum menning-
armálum Breiðfirðinga bæði
heima og heiman, safnað stórfé
til björgunarskútu, stofnað minn-
ingasjóð Breiðfirðinga, gefið út
tímaritið Breiðfirðing og nú síð-
ast gaf það mjög vandaðan pré-
dikunarstól í hina nývígðu Reyk-
hólakirkju. Ennfremur hyggst fé-
lagið gefa út nokkurskonar
menningarsögu byggðarlagsins
og hefir nú þegar verið rituð
fyrsta bókin í þeim bókaflokki,
en hún fjallar um atvinnuhætti
við Breiðafíörð sérstaklega í eyj-
unum. Hefir Bergsveinn Skúla
son fræðimaður frá Skáleyjum
skrifað hana. Formaður fjélags-
ins er nú Árelíus Níelsson, en
varaformaður Jóhannes Ólafsson.
GUSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Sími 1-11-71
Þórshamri við Templarasund
GUNNAR JÓNSSON
LÖGMAÐUR
Þinghoilsslraeli 8 — Sirm 18259
Innheimtumaður
óskast strax.
ísafoldarprentsmiðja hf.
K. F. U. M.
K. F. U. K.
VETRARSTARF
*
Vetrarstarf félaganna hefst á morgun, sunnudaginn
6. október.
Kl. 10,30 f.h. Sunnudagaskóli við Amtmannsstíg og
drengjadeild K. F: U. M., Langagerði 1.
Kl. 1,30 e.h. Drengjadeildirnar Amtmannsstíg,
Holtavegi og Kirkjuteig.
Kl. 3.00 e.h. Telpnadeild K. F. U. K. við Amtmanns-
stíg.
Kl. 8,30 e.h. Almenn samkoma í húsi félaganna við
Amtmannsstíg Sera Jónas Gíslason talar. —
Söngur og hljóðfærasláttur. Fórnarsamkoma.
Allir velkomnir.
Verkamenn
óskast í fasta vinnu nú þegar. —
Upplýsingar hjá verkstjóra.
Hf. Kol & Salt
PEllGEOT
Peugeot býður uppá:
~j< Traustleika
-K Sparneytni
■j< Öryggi
Pengeot er fullkomlega loft- vatns- og rykþéttur,
hefur rúmgóða farangursgeymslu, rafmagnsklukku,
vatnshitamæli, tvöfaldan míluhraðamæli, tvöfalda
rúðusprautu, öryggislæsingar á öllum hurðum.
— ★ —
Eigum einn af gerðinni 404 óráðstafaðan.
Ný sending væntanleg í október af gerðunum
Peugeot 404 station 5 manna, Peugeot 404 station
7 manna, ásamt Peugeot 404 og 403 fólksbifreiðum.
“ ★ —
Verð á fólksbifreiðum:
Peugeot 403 ca. kr. 164 þús.
Peugeot 404 ca. kr. 202 þús.
Allar upplýsingar veittar í símum
14462 og 18585.
/nnist Peugeot bifreiðunum
Peugeot-umboðið
Opnuð verður í dag verzlun að Bergstaða-
stræti 19, undir nafninu
HlálnÍRgarvúrur sf.
Verzlunin hefur á boðstólum allar tegund
ir málningarvara, svo sem:
Límbönd, kítti, pensla og spaða.
Gjörið svo vel og reynið viðskiptin.
GÓÐ BÍLASTÆÐI.
Hlálningarvörur st.
tíergstaðastrœti 19 — Sími 15161