Morgunblaðið - 08.07.1965, Síða 6
6
MORCUNBLADIÐ
Fimmtudagur 8. júlí 1965
Sextugur i gær:
Alfreð Gíslason, bæ jarf ógeti
í DAG, 7. júlí, á Alfreð Gísla-
son bæjarfógeti í Keflavík 60
ára afmBeli. Á nútíma mæli-
kvarða þykja það engin sérstök
tíðindi að ná þeim aldri, en þó
verður því ekki á móti mælt að
það fer að líða á starfstíma em-
bættismanna, þegar þeim áfanga
er náð
Alfreð er borinn og barnfædd-
ur Reykvíkingur, sonur merkis-
hjónanna Gísla Þorbjarnarson-
ar fasteignasala og konu hans
Jóhönnu Þorsteinsdóttur frá
Brú.
Alfreð Gíslason fór menntaveg
inn, sem kallað er, stundaði nám
við Menntaskólann í Reykjavík
og lauk þaðan stúdentsprófi og
síðar lagaprófi frá Háskóla ís-
lands. Að námi loknu stundaði
hann lögfræðistörf í Reykjavík
og víðar, unz hann árið 1937 var
skipaður lögreglustjóri í Kefla-
vík. Var hann fyrsti ■ lögreglu-
stjórinn hér í Keflavík og því
?á, sem mótaði það starf og má
fullyrða, að með tilkomu hans
í það embætti breyttist bæjar-
bragur mjög til hins betra. Jafn-
framt lögreglustjóraembættinu
hafði hann á hendi oddvitastörf,
sem hann leysti þannig, að bæði
þeir, sem til hans leituðu og
bæjarfélagið máttu vel við una.
Þegar Keflavík öðlaðist bæjar-
réttindi varð Alfreð bæjarfógeti
og hefur verið síðan, að nokkr-
um mánuðum undanteknum er
hann var bæjarstjóri.
Bæjartogetaembættið hefur
Alfreð rækt við vaxandi vinsæld
ir þanmg að góðgjarnir menn
telja að á betra verði vart kös-
ið og munu slík embætti sízt
betur rækt og það í jafn ört vax-
andi bæ og Keflavík hefur verið
í hans embættistíð:
Sjálfstæðismaður er Alfreð í
húð og hár og hefur setið leng-
ur í hrepps- og bæjaxstjómum
en nokkur r.ústarfandi sjálfstæð
ismaður hér í bæ. Þar er hann
traustur og tillögugóður og vill
í hvívetna yöxt og viðgang Kefla
víkur, Hefur það komið bezt
fram í afstöðu hans til malbik-
unar gatna, íþrótta- og æskulýðs-
mála og yfirleitt í öllu því, sem
til menniugar og þrifa má telj-
ast. Forsetí bæjarstjórnar er
hann og hefi_r verið lengur en
nokkur annar hér í bæ.
Þingmaður Reykjanesskjör-
dæmis var hann eitt kjörtíma-
bil, en gaf ekki kost á sér aftur,
taldi sig of hlaðinn störfum
heima fyrir. Á þingi beitti hann
sér meðal annars fyrir nýja
Keflavíkuri'eginum, athugun á
hitaveifu fyrir Reykjanes o.fl.,
sem hann taldi kjördæminu til
heilla.
Alfreð á sæti í Landshafnar-
nefnd Keflavíkur og Njarðvíkur
og í Flugráði, svo nokkuð sé tal-
ið.
Ég, sem þessar línur rita og
hef haft mikil og góð kynni af
Alfreð Gíslasyni og hans dug-
miklu konu, Vigdísi Jakobsdótt-
ur, tel það hafi verið mikið happ
fyrir Keflavík, að þau fluttust
hingað. Menningarmál eins og
stofnun og starfsræksla tónlistar
skóla hafa verið mikil áhugamál
þeirra beggja, og þá ekki síst
frúarinnar, sem hefur verið for-
maður hans lengst af
Heimili þeirra hjóna er viður-
kennt fyrir prýði og rausn og
þökkum við hjónin og böm okk-
ar þeim og börnum þeirra Gísla
Jakob og Önnu Jóhönnu allar
ánægjustundir, sem við höfum
notið meðal þeirra.
Að síðustu óskum við þeim
gæfu og gengis á ókomnum ár-
um og vonum að þau hafi það
gott á afmæli húsbóndans, sem
haldið er einhvers staðar utan
landsteinanna.
Þorgr. St. Eyjólfsson
X1
EINN af forystumönnum Sjálf-
stæðismanna á Suðurnesjum,
Alfreð Gíslason, bæjarfógeti og
forseti bæjarstjómar Keflavíkur,
varð sextugur í gær.
Allt frá því að Alfreð fluttist
til Keflavíkur, skipaður lögreglu
stjóri og síðar bæjarfógeti, hefur
hann verið einn í forystu fólks-
ins í sínu byggðarlagi og notið
mikils trausts. Hann hafði skipað
sér undir merki Sjálfstæðisstefn
unnar og er til Keflavíkur kom,
tók hann í öndverðu mik-
inn þátt í starfi Sjqlfstæðisflokks
ins og hefur verið valinn þar til
forystu og falið fjölda trúnaðar-
starfa fyrir byggðarlag sitt, á
vegum flokksins. Hann er nú for
seti bæjarstjórnar Keflavíkur.
Við kjördæmabreytinguna 1959
var hann kjörinn á þing frá
Reykjaneskjördæmi og skipaði
sér þá í forystusveit Sjálfstæðis-
manna í hinu nýja kjördæmi.
Alfreð óskaði hins vegar ekki
eftir langri setu á Alþingi og
skoraðist undan endurkjöri 1963.
Enda þótt Alfreð hafi horfið
úr sölum Alþingis er hann enn
í fullu starfi á vettvangi stjórn-
málanna í sínu byggðarlagi. Enn
fremur á hann m.a. sæti, kosinn
af Alþingi, — í stjóm Landshafn
ar Keflavíkur—Njarðvíkur og í
flugráði.
Það er von mín, um leið og
ég færi Alfreð og konu hans,
Vigdísi Jakobsdóttur, beztu kveðj
ur í tilefni af þessum merkisdegi
að SjálfstæðisfloklÁir-
inn megi enn um langan tíma
njóta þeirra hjóna til stuðnings
við góðan málstað.
Matthías Á. Mathiesen.
Þar eð greinin mislagðist hjá
blaðinu birtist hún ekki í gær á
afmæli Alfreðs. Eru aðilar beðn-
ir afsókunar á þessum leiðu mis-
tökum hjá blaðinu.
Erhctrd ræðir
Berltnarmáiið
Bonn, 6. júlí. — NTB.
LUDWIG Erhard, kanzlari V-
Þýzkalands veitti í dag áheyrn
sendiherrum Banidaríkjanna,
Frakklands og Englands, og var
þar rætt Berlinarmálið.
I fyrxl viku flugu austur-þýzk
ar þyrlur yfir V-Berlín, í órétti,
að því er Vesturveldin telja, þar
sem þau eru þeirrar skoðunar,
að einungis flugvélar hernáms-
veldanna fjögurra hafi til þess
heimild að fljúga yfir Berlín. —
Einnig hefur verið erfitt um sam
göngur á skurðum og ám til V-
Berlínar, vegna þeirrar kröfu
austur-þýzkra yfirvalda, að til
slíkra ferða þurfi skilríki gefin
út af þeim, í stað hinna venju-
legu skilríkja fjórveldanna.
Erhard mæltist til þess þegar
24. júni, að sameiginleg ráð yrðu
tekin til að spoma við „truflun-
um“ austanmanna. I gær lét
hinn nýi utanríkisráðherra Aust
ur-Þjóðverja, Otto Winzer, svo
um mælt, að vel mætti vera að
Austur-Þjóðverjar sendu herflug
vélar inn yfir Berlín, ef Vestur-
Þjóðverjar viðurkenndu ekki, að
V-Berlín sé ekki hluti V-Þýzka-
lands, heldur stjórnmálaleg
heild.
Skók
UM þessar mundir fer fram í
BLED í Júgóslavíu skákkeppni
í öðrum riðli áskorendamótsins í
skák. í hinum riðlinum er
keppni þegar lokið. Þar tefldu
þeir saman Spassky og Keres,
og sigraði sá fyrmefndi með
6—4. Annarsvegar tefldu saman
Geller og Smisloff og sigraði
Geller með 5%—2%. Síðan
tefldu þeir Spassky og Geller
til úrslita og í þeirri viðureign
sigraði Spassky. I Bled tefla
saman Tal og Fortisdh og Ivkov
og Larsen.
Eftir 5 skákir er staðan þessi:
Tal hefur hlotið 3]/2—2Vz vinn-
ingi Portisch, en Bent Larsen
hefur 4 gegn 1 vinningi Ivkovs.
Eftir er að tefla fimm skákir til
viðbótar og þarf Larsen einung-
is 1% vinning til þess að sigra
Júgóslafneska stórmeistarann
Boris Ivkov. Sigurvegaramir í
þessum einvígjum tefla síðan í
september um það hvor fær að
tefla við Spassky, en viðureign-
in við hann á að vera 12. skáka
eirivígi, sem skera á úr um það
hver fær að tefla við heimsmeist
arann Petrosjan.
Sennilega lenda þeir Larsen
og Tal í úrslitum í Bled og tel
ég það vel farið, þar sem ég
álít Larsen einá manninn í þess-
um riðli, sem eigi verulega
möguleika gegn snillingnum frá
Ríga.
— IR.Jóh.
Akranesi, 6. júlí.
HIN landsfræga hljómsveit
Dúmbó-sextettinn og Steini
leggja í dag af stað í hljómleika-
för umhverfis landið að undan-
skildum Vestfjörðum í þetta
sinn. Taka þeir fyrst „kóssinn**
til Akureyrar og hefja hljóm-
leikaförina í Hótel KEA og Sjálf
sfæðishúsinu. Síðan gera þeir
útrásir til beggja handa á strand
lengjunni og enda inn til dala.
Þetta er eldfjallaland og þeir
þyrftu að fá meiri gos í túlkua
sína. — Oddur.
• Dýiahald
í miðjum borgum
Maður, sem nefnir sig „Öld-
ung“, kom með bréf til Vel-
vakanda eftir hádegið í gær.
3réfið er svohljóðandi:
„Herra Velvakandi!
Langt er nú síðan ég hefi
skrifað bréf, en nú fæ ég ekki
orða bundizt vegna ummæla
yðar og konu einnar í Smá-
íbúðahverfinu, sem birtust í
Morgunblaðinu í dag. Aðalefni
bréfsins og svars yðar er um
hunda og ketti í borginni. Und-
ir lokin minnist þér á það, að
óeðluegt sé að halda ýmsa
fugla. endur og gæsir, ásamt
kindum inni í miðri borg. Und-
ir þessi orð vil ég svo sannar-
lega taka. Ekki veit ég, hvort
þér hafið orðið fyrir sörnu
raun og ég, það er að búa í
nábýli við skítuga og gargandi
fugla, en ef þér eigið heima
við Kaplaskjólsveg eða í næsta
nágrenni, fer ekki hjá því, að
þér kannist við þessa viður-
styggð. Fuglaihaldið dregur að
sér rottur og flugur í ótrúlega
miklum mæli. Ég hefi átt
heima á fjórum stöðum sam-
tals í Reykjavík, en hvergi,
fyrr en nú í elli minni, hefi
ég búið við slíkt mótlæti, sem
hér vestur frá, að geta ekki
opnað stofuglugga, ná þess að
fá hundrað flugur inn, eða
kjallaraglugga, án þess að fá
rottur inn. Ástandið þótti ekki
gott inni í Blesugróf, en það
var þó sannkölluð paradís á
móts við þessi ósköp. S\ o er
heldur ekkert gaman að vakna
á morgnana eldsnemma við
glymjandi gæsagarg. Hvernig
er þetta, eru ekki einhver lög
eða reglugerðir, sem banna
þennan fjanda? Ég ætla, að svo
sé, og því er þá ekki lögunum
framfylgt? Allir eiga að .heita
jafnir fyrir lögunum, jafnvel
þótt gamlir sómamenn og land
eigendur kunni að eiga í hlut.
— Öldungur“.
• Kjaftæði við strætis-
vagnabílstjóra
„Förukona" skrifar:
„Kæri Velvakandi:
Nú má ég til með að kvabba
svolítið á þér, enda sé ég, að
fólk sendir þér línu um hvers
kyns kvörtunarefni. Vona ég,
að þú birtir þessar fáu línur
mínar við tækifæri. Svo að ég
segi þér frá mínum högum. þá
vinn ég á tveimur vinnustöðv-
um talsvert langt í burtu frá
mínu heimili, svo að ég þarf
að ferðast minnst fjórum sinn-
um og oftast fimm sinnum í
strætisvagni á hverjum degi.
Nú kemur orsökin fyrir þessu
tilskrifi: Ég er nefnilega bíl-
hrædd. Ekki vantreysti ég bif-
reiðarstjórunum, en illa er mér
samt við að láta farþegum lið-
ast að „halda þeim uppi á
snakki“, enda er það strang-
lega bannað með auglýsingu,
og hlýtur einhver ástæða að
vera til hennar. Vissir far-
þegar virðast hafa gaman af
því að tala við bílstjórana og
þótt ökumennirnir viti mæta-
vel, að það er bannað, eiga
þeir kannske erfitt með að
vanvirða málglaða manninn
með því að þegja og svara
honum ekki. Flestir sýnast mér
þessi kjaftasnakkar hrútleiðin-
legir menn í útliti, enda sé ég
ekki betur, en bílstjórarnir
svari þeim hið allra minnsta
og þykist helzt reyna að heyra
ekki í þeim, sem sjálfsagt er,
fyrst þeim er ekki kastað út
við fyrsta tækifæri. Margsinn-
is hef ég séð bílstjóra í erfið-
leikum við að sjá um spegla,
hvort fólk er gengið út um dyr
aftar í vagninum, vegna þess
að breið bök munnræpuhjass-
anna skyggja á útsýni. Bílstjór
arnir eru yfirleitt kurteisir
menn, og þvi eiga þeir ef til
vill bágt með að varpa dón-
unum á dyr. En það eiga þeir
skilyrðislaust að gera.
Ég borga mínar fjórar krón-
ur til þess að bílstjórinn aki
mér á áfangastað. Ég á heimt-
ingu á því, að fyrir mitt gjald,
— fyrir mína goldna peninga
— sé mér skilað ólimlestri
þangað, sem ég hef ætlað mér
og keypt farartæki til, og hana
nú! Ég sagði áðan, að þessir
kjaftagleiðu karlar væru leið-
inlegir; það skiptir vitanlega
ekki máli, hvort þeir eru gam-
ansamir eða þrautleiðinlegir
við bílstjórann, en meðan þeir
geta truflað hftnn við akstur,
á ekki að þola þá, heldur
henda þeim beint út. Hitt er
svo annað mál, að oftast ver-
kenni ég bifreiðarstjórunum
að þurfa að hlusta á heimsku-
vaðalinn úr þeim.
— Förukona“.
Velvakandi þaxkar þessi tvð
bréf og birtir þau vitanlega,
því að allir eiga leiðréttingu
mála sinna, þóil nokkuð fast
sé kveðið á í þeim báðum, eink
um undir lokin.
Nýtt símanúmer:
38820
BRÆÐURNIR ORMSSON h.f.
Vesturgötu 3. — Lágmúla 9.
I