Morgunblaðið - 17.12.1975, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.12.1975, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1975 | atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna | Rekstrartækni- fræðingur Ungur rekstrartæknifræðingur eða tækni- fræðingur með þekkingu á framleiðslu- stjórn óskast til starfa fyrir viðskiptavin, sem er ungt og vaxandi iðnfyrirtæki með 20 starfsmenn. Viðkomandi á að aðstoða framkvæmda- stjórann, vera staðgengill hans og bera ábyrgð á skipulagningu og stjórn fram- leiðslunnar. Krafist er samstarfshæfileika. Umsækjandi verður einnig að geta unnið sjálfstætt og taka sjálfstæða ákvarðanir. Umsóknir, sem skulu innihalda upp- lýsingar um menntun og fyrri störf, sendist til Hagvangs h.f. fyrir 23 des. Farið verður með umsóknir sem trúnaðar- mál. Hagvangur h.f. Rekstrar- og þjóðhagfræðiþjónustu K/apparstíg 26, Reykjavík. Opinber stofnun óskar eftir ritara frá 15 janúar n.k. að telja. Laun samkv. launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir með uppl. um starfsferil og menntun og meðmæli ef til eru, sendist á afgreiðslu blaðsins merkt „Ritari: 3463." Tryggingafélag óskar að ráða skrifstofumann til starfa. Æskilegt er að viðkomandi hafi Samvinnu- eða Verslunarskólapróf og gæti hafið störf sem fyrst. Umsókn um starfið skal senda til augl.d. Morgunblaðsins fyrir 23. des. '75 merkt: Trúnaðarmál. — 2212. Verkstjóri óskast að vöruafgreiðslu vorri. Laun samkvæmt 17. launaflokki ríkisstarfsmanna. Um- sóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist oss fyrir 23. þ.m. Skipaútgerð ríkisins Skrifstofustarf Stórt fyrirtæki óskar að ráða stúlku til símavörslu og léttra skrifstofustarfa. Umsóknir ásamt uppl. um aldur, mennt- un og fyrri störf sendist Mbl. fyrir 22. þ.m. merkt: Strax — 2204. | raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar _______________til sölu_____________ Spariskírteini Spariskírteini ríkissjóðs, 2 fl. 1966 og 1. fl. 1969, ca. 1 milljón að nafnverði í hvorum flokki, til sölu. Væntanlegir kaupendur hafi samband við undirritaða. Málflu tningsskrifs to fa Guðmundur Pétursson Axel Einarsson Aðalstræti 6 Sími 26200. STÁLTÆKI Auðbrekka 59 s. 42717. tilkynningar Orðsending frá Hitaveitu Reykjavíkur Vegna mikilla anna við tengingu húsa verður ekki hægt að afgreiða nýjar beiðnir um áhleypingu á hús frá 19. des. n.k. til áramóta. Hitaveita Reykjavíkur. Aðvörun til kaupgreiðenda frá bæjarfógetanum I Kópa- vogi. Kaupgreiðendur, sem taka skatta af starfsmönnum sinum búsettum i Kópavogi, eru hér með krafðir um tafarlaus skil innheimtufjárins. Jafnframt eru þeír aðvaraðir um, að málum þeirra, sem ekki hafa skilað innheimtufé, verður visað til sakadóms á næstu dögum. Bæjarfógetinn t Kópavogi. GMC TRUCKS Seljumídag: 1 974 Chevrolet Blazer Sheyenne V8 sjálfskiptur. vökvastýri. 1974 Scout lll V8 sjálfskiptur með vökvastýri. 1974 Morris Marina Cupe 1974 Vauxhall Viva De Luxe 1974 Saab 99 L 1974 Austin Mini 1973 Opel Rekord 1900 L sjálfskiptur 1 973 Chevrolet Nova beinskiptur með vökvastýri 1 973 Ford Cortina 1 600 L sjálfskiptur 1972 Chevrolet Nova 2ja dyra Rally 1972 Chevrolet Cheville 1971 Vauxhall Viva 1971 Chevrolet Blazer V8 sjálfskiptur með vökvastýri 1971 Toyota Crovn 6 cyl. sjálfskiptur 1971 Fiat 1 25 Berlina 1 970 Chevrolet Nova 2ja dyra sjálfskiptur með vökvastýri 1 970 Vauxhall Victor 1 600 1 970 Chevrolet Impala sjálfskiptur með vökvastýri 1 970 Toyota Corolla 1970 Vauxhall Viva 1 966 Chevrolet Biscayne 6 cyl. Samband Véladeild ÁRMÚLA 3 SÍMI 38900 Styrkur til háskólanáms í Hollandi Hollensk stjórnvöld bjóða fram styrk handa islendingi til háskólanáms i Hollandi námsárið 1976—77. Styrkurinn er einkum ætlaður stúdent sem kominn er nokkuð áleiðis i háskólanámi eða kandidat til framhaldsnáms. Nám við lista- háskóla eða tónlistarháskóla er styrkhæft til jafns við almennt háskólanám. Styrkfjárhæðin er 950 flórínur á mánuði i 9 mánuði og styrkþegi er undanþeginn greiðslu skólagjalda. Þá eru og veittar allt að 300 flórinur til kaupa á bókum eða öðrum námsgögnum og 300 flórinur til greiðslu nauðsynlegra út- gjalda i upphafi styrktimabilsins. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi gott vald á hollensku, ensku, frönsku eða þýsku. Umsóknir um styrki þessa, ásamt nauðsynlegum fylgigögn- um, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. janúar n.k. Umsókn um styrk til mynd- listarnáms fylgi Ijósmyndir af verkum umsækjanda, en segul- bandsupptaka, ef sótt er um styrk til tónlistarnáms. — Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 1 5. desember 1975. þakkir Ég þakka ykkur öllum, sem senduð mér gjafir, blóm og kveðjur á 80 ára afmæli mínu 9. þessa mánaðar og óska ykkur gleðilegra jóla og farsæls nýárs. Ó/afur Einarsson fyrrverandi héraðslæknir. fundir — mannfagnaöir Skipaafgreiðsla Suðurnesja s.f., Keflavík Aðalfundur Skipaafgreiðslu Suðurnesja s.f. verður haldinn, í Framsóknarhúsinu, Keflavík, laugardaginn 20. des. kl. 2 e.h. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. S tjórnin. Hóta að loka hliði Keflavikurfliigvaflar SEX útgeðarmenn á Suður- nesjum hafa ritað bandaríska aðmírálnum á Keflavfkurflug- velli bréf þar sem þeir krefjast þess að NATO stöðvi þegar árásir breíkra herskipa á íslenzk varð- skip. Fer bréfið hér á eftir: „Til yfirmanns Atlantshafsbandalags- ins á Keflavfkurflugvelli. Við starfandi menn við sjávar- útveg mótmælum árás herskipa NATO inn í íslenzka fiskveiði- landhelgi. Við krefjumst þess, að skip þessi verði kölluð út fyrir fiskveiðitakmörkin þegar í stað. Við höfum álitið að skip þessi væru okkur til verndar, en ekki til árásar á okkur. Við teljum að grundvöllur fyrir veru þessarar herstöðvar til að vernda okkur sé brostinn þegar Iierskip frá NATO koma hér til að ógna lífshagsmun- um okkar. Við viljum taka það fram, að þetta er í þriðja sinn, sem þessi sömu NATO herskip koma hingað f þeim tilgangi að ógna varskipum okkar við skyldu- störf sín. Stöðvi NATO ekki þessar árásir á gæzluskip okkar neyðumst við til þess að undirbúa lokun á hliðum herstöðvarinnar.“ Undir þetta rita: Garðar Magnússon, Höskuldarkoti, Ytri- Njarðvík, Eðvarð Júlíusson, Mánagötu 13, Grindavík. Gunn- laugur Karlsson, Hólabraut 7, Keflavfk, Jón Kr. Jónsson, Tjarnargötu 9, Sandgerði, Guðmundur Agústsson, Hlíðar- enda, Vogum, og Þorsteinn Jóhannesson, Reynistað, Garði. Gunnlaugur Karlsson í Kefla- vík sagði þegar Mbl. ræddi við hann í gær, að valinn hefði verið einn útgerðarmaður í hverju sjávarþorpi á Suðurnesjum til að undirrita bréfið. Fjöldi manna væri reiðubúinn að veita aðstoð við framkvæmd málsins ef með þyrfti. Otgerðarmenn á Suður- nesjum ættu mikinn fjölda báta til að loka höfnum og bílafjöldinn til að loka veginum væri rnikill.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.