Morgunblaðið - 05.05.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1982
7
Utankjörstaöakosning
Utankjörstaöaskrifstofa Sjálfstæöisflokksins,
Valhöll, Háaleitisbraut 1,
símar 86735 — 86847 — 86747.
Upplýsingar um kjörskrá o.fl.
Sjálfstæöisfólk! Vinsamlegast látiö skrifstofuna vita
um alla kjósendur, sem ekki veröa heima á kjördegi.
Utankjörstaöakosning fer fram aö Fríkirkjuvegi 11
alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22.
Sunnudaga kl. 14—18.
Komnir aftur
Þaö nýjasta í tréklossum er
FLEX-O-LET
tréklossinn meö beygjanleg-
um sóla, stæröir nr. 35—46.
Fer sigurför um allan heim.
15 gerðir, margir litir.
Póstsendum.
GEíSÍPr
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
ms?
(SzösŒk
\ ísmanna um lswK
' unútsyaraMld
manns '
v'nnunaá
— "a a arinu
ÚTSVARS-
HÆKKUNIN
l>ær -kipulair.shiiirmyndir sem nú á
aú ki yra í gegn eru gjörsamlega
óraunha*far og óframbærilegar
Enjíar nýjar iðnaðar-
Jóðir á kjörtímabilinu
i
órar/’
Yýrkfaiiij
„Þegar ævintýrun-
um lýkur stendur
eftir nakinn raun-
veruleikinn. Um
hann á að kjósa og
ekkert annað “
(Siguf|ón Polursson lorseti borgarsl|6rnar i Þ|Oðvil|anum 17 n
Borgarbókasafn
Borgarleikhús
Félagsmiðstöðvar
Alþýðubandalagiö reynir gjarnan aö
eyrnamerkja sér menninguna og kjara-
baráttuna, þegar kosningar fara í hönd.
Hinsvegar veröa þessi sýndarmál flokks-
ins tíðast úti í þeirri framkvæmdadeyðu,
sem nefnist kjörtimabil, þegar Alþýöu-
bandalagiö á í hlut. í kosningabæklingi,
sem ungir sjálfstæðismenn gefa út og
borinn er í hús þessa dagana, er m.a.
minnt á eftirfarandi: 1) Borgarleikhús,
sem byrjaö var á í tíö sjálfstæðismanna,
en síöan hefur lítt þokast áfram. 2) Lof-
orö Alþýðubandalagsins um „félags-
miðstöö í hverju borgarhverfi", sem gjör-
samlega var svikið. 3) „Byggingu borg-
arbókasafns, sem skal vera menning-
armiðstöð borgarbúa“, en lítiö hefur fariö
fyrir framkvæmdum viö.
Hækjulið
Alþýðubanda-
lagsins
Oddvitar Alþýrtuflokks
og Kram.sóknarflokks
keppa-st nú við aö sverja
Aljiýöubandalaginu og
áframhaldandi borgar-
stjórnarforystu þess trúnaö
og hollustu í málgögnum
sínum. Má ekki á milli
greina, hver er ákafari í
þjónustu undir Alþýöu-
bandalagiö, Siguröur K.
Uuömundsson eöa Krist-
ján Benediktsson. Kkki
ætti aö fara framhjá nein-
um Keykvíkingi, aö stuön-
ingur við Alþýöuflokk og
Framsóknarflokk i kom-
andi borgarstjórnarkosn-
ingum er í raun stuðningur
við áframhaldandi borgar-
stjórnarforystu kommún-
ista. 1‘essir þrír valkostir
kjósenda leiöa allir að
sama marki: áframhald-
andi forystu Alþýðubanda-
lagsins í borgarmálum á
næsta kjörtimabili. Nauð-
synlegt er, aö menn geri
sér glögga grein fyrir þess-
ari viöblasandi staðreynd.
I>á er ennfremur Ijóst,
aö „kvennaframboöið“
höfðar einkum til vinstra
fólks, ef marka má orð
Cuörúnar Helgadóttur,
borgarfulltrúa, á áróðurs-
fundi meö íslenzkum
námsmönnum í Lundi i
Svíþjóö, enda segir hún
forystufólk þar kunnuglegt
í herbúöum Alþýöubanda-
lagsins. Borgarstjórnar-
kosningarnar veröa því
sýnilega einvígi á milli
Sjálfstæ*ðisf1okksins ann-
ars vegar og Alþýðubanda-
lags (item ha'kjuframboöa)
hins vegar.
Framsókn
og fasteigna-
skattar
f kosningabæklingi
ungra sjálfstæöismanna,
sem hér hefur verið vitnaö
til, er minnt á eftirfarandi
klausu í Timanum fyrir síð-
ustu borgarstjórnarkosn-
ingar (18/5 1978):
„Fasteignaskattur af
húsnæöi, sem svarar til
einnar hæfilegrar íbúöar á
fjölskyldu veröi ekki gerö-
ur aö frekari tekjulind
borgarinnar en nú er.“
I>egar Framsóknarflokk
urinn komst siðan í háseta-
hlutverk hjá borgarmála-
forystu Alþýöubandalags-
ins, eftir kosningar 1978,
var þaö eitt af fyrstu verk-
um hins nýja meirihluta aö
fella niöur þann 20':; af-
slátt á fasteignagjöidum
sem gilti í valdatíö sjálf-
sta'öismanna. Nú hefur
Framsóknarflokkurinn
enn og aftur gripiö til
þeirra gömlu loforöa, sem
hann hefur svikiö stanz-
laust allt líöandi kjörtíma-
bil.
Vinstri menn lofuóu
jafnframt að fella nióur
fasteignagjöld af íhúóum
aldraóra. í þeim efnum
hefur þó ekkert gerzt um-
fram þaó sem áóur var.
Reykvíkingar
tala of mik-
ið i síma!
Kvokölluö skrcfatalning,
sem „réttlætt" var meö
jöfnuói í simakostnaði,
mun vart duga til að rísa
undir kostnaói við eigin
stofn- og rekstrarkostnaö.
Hún lækkar því ekki síma-
kostnaó strjálbýlisfólks,
heldur hefur „jöfnuóur-
inn“ komið fram í því aó
stórhækka símakostnaö
Keykvíkinga.
Guðrún Helgadóttir
sagði i ra*öu á borgar-
stjórnarfundi, er skrefa-
talningin var þar rædd, aó
erfitt væri aó segja til um,
hvort símagjöld myndu
hækka eöa lækka meö til
komu skrefatalningar! I>á
sagði hún ennfremur, aó
einkasímtöl í Keykjavík
væru óhóflega mikil, fólk
ætti að spara símann sinn.
Fólk í Keykjavík talaði of
mikió í síma. Alþýóubanda-
lagið myndi ekki kaupa sér
vinsældir meö því að vera
á móti skrefatalningunni.
Hér er drepió á mál, sem
er gott sýnishorn af hags-
munavörzlu borgarfulltrúa
Alþýöubandalagsins í þágu
Keykvíkinga. Keykvíkingar
eru ekki of góðir til aö tala
minna en borga mcira.
Ilinsvegar heimtar Alþýðu-
bandalagiö góöan afslátt af
eigin kosningasíma og
sparar sennilega ekki
símahringingar í „háttvirta
kjósendur" né faguryröi í
þeirra garó siðustu vikur
og daga fyrir borgarstjórn-
arkosningar.
Ö6M5TELLH)
HANDVERK í SÉRFLOKKI
Nýja stellið frá Glit
í silkimjúkum pastellit,
sem alls staðar er heimilisprýði.
MATAR-&
KAFFISTELL
Margir aukahlutir geta fylgt.
Tryggt að hægt er að auka við stellið
og fá inn í hluti sem brotna.
Greiðslukjör:
500.- kr. út og 500 á mánuði
HÖFOABAKKA 9.
SÍMI 85411.