Morgunblaðið - 05.05.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1982
Kjarnasýrur í loftsteinsbrotum
l'híM-nix, Arizona. Al*.
KJARNASÝRUR, hornsteinar eggja-
hvitunnar, hafa fundist i brotum úr
lofLsteini sem féll til jarðar í Ástralíu.
I*essar upplýsingar koma fram i
skýrslu, sem hópur vísindamanna
hefur birt, og segja þeir, að kjarna-
sýrurnar séu samsvarandi þeim, sem
algengastar eru í lifandi verum.
Tveir vísindamannanna, Barth-
olomew Nagy og Michael Engel,
segja í skýrslunni, sem birtist í
breska ritinu Nature, að þeir vilji
ekkert fullyrða um líf á öðrum
hnöttum en kunnur stjarnfræðing-
ur, dr. Eugene Shoemaker, segir,
að þessi fundur bendi vissuiega til,
að „upphafsefni lifsins á jörðinni
hafi borist með loftsteinum“.
Við rannsóknirnar kom í ljós, að
kjarnasýrurnar voru „örvhentar"
eins og enskumælandi menn kalla
það. Þá er átt við, að þær beina
skautuöu Ijósi til vinstri á sama
hátt og kjarnasýrur í lifandi ver-
um gera. Kjarnasýrur hafa fyrr
fundist í loftsteinum en þær hafa
allar verið „rétthentar" og beint
skautuðu Ijósi til hægri.
ÞEIR SELJA LEE COOPER FÖTIN.
VL. BJARG Akranesi
VL. GRUND Grundarfirði
VL. HÓLMSKJÖR Stykkishólmi
VL. INGA Hellissandi
KF. BORGFIRÐINGA Borgarnesi
KF. HVAMMSFJARÐAR Búðardal
VL. ÓSK Akranesi
VL. VÍK Ólafsvík
VL. ARA JÓNSSONAR Patreksfirði
VL. EINARS OG KRISTJÁNS ísafirði
VL. EINARS GUÐFINNSSONAR
Bolungarvík
VL. JONS S. BJARNASONAR
Bíldudal
VL. LJÓNIÐ isafirði
KF. DÝRFIRÐINGA Þingeyri
KF. STEINGRÍMSFJARÐAR Hólmavik
VL. GUÐRUNAR RÖGNVALDSD.
Siglufirði
KF. HÚNVETNINGA Blönduósi
KF. ÞINGEYINGA Husavík
KF. N-ÞINGEYINGA Kópaskeri
KF. N-ÞINGEYINGA Ásbyrgi
KF. LANGNESINGA Þórshöfn
VL. SIGURÐAR PÁMASONAR
Hvammstanga
VL. SOGN Dalvík
VL. SPARTA Sauðárkróki
VÖRUHÚS K.E.A. Akureyrí
VL.ELÍSAR GUÐNASONAREskifirði
KF. HÉRAÐSBÚA Egilsstöðum
KF. VOPNFIRÐINGA Vopnafirði
KF. FRAM Neskaupstað
KF. FÁSKRÚÐSFJARÐAR
Fáskrúðsfirði
KF. STÖÐFIRÐINGA Breiðdalsvík
KF. A-SKAFTFELLINGA
Höfn, Hornafirði
KF. HÉRAÐSBÚA Seyðisfirði
KF. HÉRAÐSBÚA Borgarf. Eystra
VL. ALDAN Sandgerði
VL. EIK Hafnarfirði
VL. PALAS Grindavík
VL. FREYJA Kópavogi
VL. SMÁRABORG Kópavogi
KF. ÁRNESINGA Selfossi
KF. RANGÆINGA Hvolsvelli
KF. SKAFTFELLINGA Vík í Mýrdal
VL. FRIDRIKS FRIÐRIKSSONAR
Þykkvabæ
VL. STEINA OG STJÁNA
Vestmannaeyjum
VL. TRAFFIC Keflavik
VL. ADAM Laugavegi 47
VL. ELFUR Laugavegi 38
VL. FALDUR Austurveri
v/Háaleitisbr.
VL. HERRAHÚSIÐ Bankastræti 7
VL. HERRAHÚSIÐ Aðalstræti 4
VL. STRÆTIÐ Hafnarstræti
VL. VINNUFATABÚÐIN Hverfisgötu 26
VL. VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76
VL. TINNI Drafnarfelli
„Hershöfðingi!
Eg veit um fleiri breskar eyjar!“
Breytingar á
stjórn Kína
Tokyo, 4. mai. Ar.
MEIRIHÁTTAK brcvtingar voru gerðar á ríkisstjórn Kína í dag, þriðjudag, og
stöður 11 varaforsætisráðherra af 13 m.a.lagðar niður að sögn kínversku
fréttastofunnar.
Einu varaforsætisráðherrarnir, sem halda stöðum sínum, eru Wan Li og Yao
Yilin. Flestir hinna fyrrverandi varaforsætisráðherra sitja þó áfram í ríkis-
stjórninni, þeirra á meðal Huang Hua utanríkisráðherra, Geng Biao landvarna-
ráðherra, Zhang Jingfu efnahagsráðherra og Chen Muhau utanríkisviðskipta-
ráðherra.
Breytingunni var spáð í margar
vikur. Hún er annað skrefið í meiri-
háttar baráttu flokksins fyrir því
að einfalda skrifstofubákn ríkisins
og byrjað er á æðstu embættum.
Milliþinganefnd fyrirskipaði 8.
marz sameiningu 12 ráðuneyta og
ríkisráða í sex nýjar, miðstýrðar
ríkisstofnanir. Það var liður í til-
raunum til að umbylta efnahags-
kerfinu.
í öðrum þætti breytinganna var
13 öðrum ráðuneytum og ríkis-
nefndum fækkað í sjö. Ein ný nefnd
var sett á laggirnar, þannig að alls
hefur 52 ráðuneytum og ráðum ver-
ið fækkað í 41.
Níu þeirra 11 manna, sem voru
sviptir stöðum varaforsætisráð-
herra, voru skipaðir í nýmyndaða
nefnd 10 ríkisráðgjafa. Starfi
ráðgjafanna er ekki lýst, en sam-
kvæmt fyrri yfirlýsingum kín-
verskra leiðtoga verður það líklega
ráðgefandi.
Yao Yilin, sem hélt stöðu sinni
sem varaforsætisráðherra, verður
áfram ríkisskipulagsráðherra og
Zhao Zhiyang verður áfram forsæt-
isráðherra.
Sovétríkin:
Norrænar konur
fara „friðarferð“
Moskvu, 4. maí. Al\
ALLT að 250 Noróurlandabúum hef-
ur verið leyft að fara i „friðarferð" til
Sovétrikjanna í júlí nk. og halda mót-
mælafundi gegn kjarnorkuvopnum í
fimm borgum þar eystra, að því er
sovéskir embættismenn skýrðu frá í
dag.
I síðasta mánuði fór hreyfingin
„Barátta kvenna fyrir friði" fram á
það við sovésk yfirvöld, að hún
fengi að mótmæla kjarnorkuvopn-
um á sovésku yfirráðasvæði og
þetta í fyrsta sinn sem Rússar
leyfa slíkar aðgerðir. Að sögn emb-
ættismanna hefur fimmtíu konum
frá fimm Norðurlöndum, Noregi,
Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og
Islandi, verið leyft að koma til
landsins með lest og efna til funda
í nokkrum borgum. Ekkert var þó
tekið fram um hve langt konunum
leyfðist að ganga, t.d. hvað varðaði
slagorð og mótmælaspjöld.
Konurnar áætla að vera 17.—19.
júlí í Leningrad, 21. júlí í Kalinin
og 22.-26. í Moskvu. Að lokum
verður farið til Smolensk og Minsk
áður en haldið verður til Helsinki.
Intourist-ferðaskrifstofan rússn-
eksa sér um skipulagningu ferðar-
innar.
Norður-írland:
Lögreglumaður
skotinn til bana
i»ndond<‘rry, NorAur-frlandi. 4. maí. AIV
TVEIR grímuklæddir menn myrtu í
dag ungan lögreglumann í London-
derry á Norður-frlandi og særðu lífs-
hættulega lögreglukonu. Mennirnir,
sem lögreglan segir að hafi verið
IKA-menn, gerðu lögreglunni fyrirsát
í verslunarhverfi borgarinnar.
Morðið í dag var framið deginum
áður en eitt ár er liðið frá dauða
Bobby Sands, IRA-skæruliðans,
sem varð fyrstur níu félaga sinna
til að deyja hungurdauða í Maze-
fangelsinu í Belfast. Lögreglan
óttast, að ný alda hermdarverka sé
nú að skella yfir en síðustu 13 árin
hefur a.m.k. 2201 maður látið lífið í
ofbeldisverkunum, þar af 29 á
þessu ári.
Að sögn lögreglunnar biðu morð-
ingjarnir eftir lögregluþjónunum í
sendibifreið og skutu á þá af sjálf-
virkum byssum af stuttu færi.