Morgunblaðið - 05.05.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1982
31
Þar bjó Marta til æviloka — í tæp
30 ár ásamt Svönu dóttur sinni,
Arinbjörn lést árið 1957.
Tuttugu og þrjú fyrstu ár sín í
Reykjavík hafði Marta á hendi
framreiðslustörf í Mjólkursamsöl-
unni. Hún skilaði þar alla tíð fullu
dagsverki, þangað til 1975, þá
hætti hún.
Því iengra sem leið á ævi Mörtu,
því umfangsmeiri urðu störf
hennar í þágu afkomenda sinna:
barna og barnabarna. Móðurhlut-
verkið var gildasti þátturinn í eðli
hennar og innræti, og ég held
hann hafi náð langt út fyrir hóp
nánustu ættingja og venslafólks.
Fólkið á sjúkrahúsinu fyrir norð-
an, fólkið í Mjólkursamsölunni
fyrir sunnan bar til hennar
fölskvalaust vinarþel. Afkomend-
um sínum varð hún svo ómissandi
og hjartfólgin, að erfitt er fyrir þá
að skilja, hvurnig þeir eigi að
komast af án hennar nú, þegar
hún er skyndilega horfin af vett-
vangi þeirra. Mætti ég fyrir hönd
okkar allra bera fram dýpstu og
einlægustu þakkir til mömmu,
ömmu og ömmu löngu, eins og
yngsta fólkið í kringum hana
nefndi hana oft.
í dag fylgjum við Mörtu suður í
Fossvoginn, þar sem duft hennar
mun sameinast dufti Arinbjarnar.
Sjálf er hún ekki þar frekar en
hann, hún er horfin okkur út úr
sjóndeildarhringnum, sem ég
treysti mér ekki til að skilgreina.
Eitt veit ég þó: hún lét okkur eftir
endurminningu um frábæra
manneskju — um sterka, fórnfúsa
og undursamlega vakandi móður.
Guðmundur Daníelsson
Marta Ágústsdóttir fæddist 12.
nóvember 1896 að Tjörn á Vatns-
nesi í Vestur-Húnavatnssýslu, en
andaðist í Landakotsspítala
sumardaginn fyrsta, 22. apríl
1982.
Við Marta sáumst fyrst fyrir
rúmum þrettán árum, en áttum
síðan eftir að kynnast vegna
vensla sem stofnað var til. Marta
reyndist mér og mínum með þeim
hætti að ég tel það gæfu og lán að
hafa kynnst henni. Við leiðarskil
er því við hæfi að minnast hennar.
Fyrir átta árum kom Marta,
sem þá var að nálgast sjötugasta
og áttunda aldursárið, á heimili
mitt og dótturdóttur sinnar og
dvaldist þar síðan meira og minna
þar til hún fór á sjúkrahús fyrir
nokkrum vikum.
Marta var vel gerð, heilbrigð til
sálar og líkama, og margir þeir
kostir sem einkenna svo mjög
hennar kynslóð leyndu sér ekki.
Iðjusemi, skapfesta, góðvild,
ljúfmannleg framkoma og háttvísi
í hvívetna voru aðalsmerki henn-
ar. I huga mínum er hún í hópi
bestu heiðursmanna sem ég hefi
kynnst á iífsleið minni og ekki
þarf að lýsa því hversu ánægjulegt
er að eiga slíka konu að heimil-
ismanni.
En það voru fleiri en ég og kona
mín sem nutu þessa. Tvær litlar
telpur voru samvistum við lang-
ömmu sína öll þessi ár. Hún
reyndist þeim eins og ömmur
reynast bestar. Telpurnar voru
varla farnar að stíga fyrstu sporin
er hún vann hug þeirra allan og
um leið eignuðust þær þá ömmu
sem aldrei brást hvað sem á bját-
aði. Árla morguns var hlaupið inn
í ömmuherbergi, leikið við ömmu,
hlustað á sögur hennar eða dund-
að saman. Að kvöldi dags þótti
telpunum oft gott að fá að koma
uppí til ömmu og sofna þar. Ef
mikið var að snúast hjá miðkyn-
slóðinni á heimilinu, heyrði ég
ömmuna stundum segja við yngri
dótturina að önnur þeirra væri of
ung en hin of gömul, „veldur æska
þér en elli mér“. Hvað sem þeim
orðum leið virtist æskan og ellin
eiga góða samleið og njóta þess.
Marta fylgdist vel með atburðum
líðandi stundar, las blöð og bækur
og hlustaði mikið á útvarp. Mörg
kvöld áttum við ánægjulegar sam-
ræður. Hún rakti þá oft það sem
henni fannst markverðast af því
sem hún hafði heyrt eða lesið. Mér
fannst hún eiga gott með að
greina kjarnann frá hisminu og
þeim stundum sem fóru í slíkar
samræður fannst mér vel varið.
Marta hafði einnig gaman af að
fylgjast með ýmsu sem verið var
að fást við í dagsins önn utan
heimilisins, og léti hún álit sitt á
J>eim efnum í ljós var það gert með
fáum og hófsömum orðum og
fannst mér þá sannast hið forn-
kveðna að oft er gott það er gamlir
kveða.
Frásagnir Mörtu frá æskuslóð-
um hennar í Húnavatnssýslu voru
notalegar og ekki leyndi sér að þar
átti hún djúpar rætur, og jafnan
hafði hún lifandi áhuga á öllu þvi
sem snerti átthaga hennar. Einu
+
Eiginkona mín,
ÞÓRA STEINGRÍMSDÓTTIR,
Ásabyggö 13, Akureyri,
lést aö heimili okkar 1. maí. Jarðarförin fer fram frá Akureyrar-
kirkju fimmtudaginn 6. maí kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Páll Einarsson.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og útför
ÞÓROAR BENEDIKTSSONAR.
Sérstakar þakkir færum viö sambandsstjórn SÍBS.
Anna Benediktsson og börn.
sinni áttum við þess kost að aka
með Mörtu um Vatnsnesið og þá
sýndi hún okkur túnið í Krossa-
nesi. í upphafi þessarar aldar sat
hún barn langar vornætur og
gætti þessa túns. I Krossanesi
lærði hún ung að lesa og einn
starfi hennar var að lesa fornsög-
urnar upphátt fyrir aðra á heimil-
inu. Hefur slíkur lestur eflaust
reynst henni gott veganesti.
Á síðasta ári tók Marta þann
sjúkdóm sem dró hana til dauða.
Síðustu vikurnar var hart barist.
Sátu þá hennar nánustu við beð
hennar og viku þaðan hvorki að
nóttu né degi. Hjúkrunarfólk og
læknar Landakotsspítala veittu
henni alla þá hlýju og umönnun
sem unnt var að láta í té. í þessu
striði hélt Marta Ágústsdóttir
fullri rósemi og reisn þar til yfir
lauk. Hún æðraðist aldrei og eftir
að tregt var orðið tungu að hræra
brosti hún enn sínu fallega brosi.
Auk ytri fegurðar fannst mér
ávallt einhver innri fegurð og góð-
vild lýsa bros hennar og speglast í
augum hennar.
Við fráfall Mörtu Ájíústsdóttur
er mér og fjölskyldu minni virðing
og þakklæti efst í huga.
Biessuð sé minning hennar.
Sverrir Kristinsson
+
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
UNU SIGFÚSDÓTTUR,
Hávallagötu 7,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 6. maí kl. 15.00.
Ámundt Óakar Stgurósaon, Kristín Helga Hjálmarsdóttir,
Júlíana Siguröardótttr, PáH Sigurösson,
Sigriöur Siguróardóttir, Kristján Fr. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móöir, amma, dóttir, systir og tengdadóttir,
GUDLAUG KRISTJÁNS JÓHANNESDÓTTIR,
Hraunbaa 41,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 6. mai kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningarsjóö Landspit-
alans.
Már Ktrlsson,
Elín Jóhanna Másdóttir, Elín Kristjánsdóttir,
Stefanía María Másdóttir, Jóhannas Hannesson,
Guöný Viktoría Másdóttir, Hannes Jóhannesson,
Kristján Már, Svavar Jóhannesson,
Karl Ásgeirsson og aörir vandamenn.
Peugeot 504 pick-up er enginn
nýgræðingur — heldur þaul-
reyndur vinnuþjarkur með 1100
kg. burðargetu og sæti fyrir
þrjá.
Einstaklega góðir aksturseigin-
leikar.
VERD-kr.109,000!
HAFRAFELL
VAGNHOFÐA 7
85211 - 85505
gengisskr.4'5
DBE6IÐIDAG!
HAFFDRÆTTI
VI'SQIA JP”