Morgunblaðið - 05.05.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ1982
39
Góðir sigrar
hjá Lens
og Laval
LENS og Laval, 1. deildar liðin
fronsku, sem þeir Teitur Þórð-
arson og Karl Þórðarson leika
með, gerðu það gott í gser-
kvöldi. Lens sigraði Lillé 3—0
og er þar með úr fallhættu, en
um tíma í vetur virtist liðið
dæmt til aö falla niður. Þá sigr-
aði Laval lið Strasbourg 4—2
og berst enn fyrir UEFA-s*ti.
St. Etienne og Monaco
unnu bæði leiki sína í gær-
kvöldi og er staöan 4>ví sem
næst óbreytt, Monaco hefur
eins stigs forystu. Hins vegar
tapaði Bordeaux rétt einu
sinni.
Vésteinn sterkur
í kringlukasti
Vésteinn Hafsteinsson frjáls-
íþróttamaður úr HSK náði sín-
um næstbezta árangri í
kringlukasti er hann sigraði í
þeirri grein á móti í Tuscaloosa
um helgina, kastaði 58,14
metra, en hann kastaði 58,20
metra í fyrra. Vésteinn hefur
nastað hvað eftir annað um 56
metra að undan&irnu, en virð-
ist nú að sækja í sig veðrið.
Með þessu afreki hefur hann
náð lágmarki til þátttöku á
bandaríska háskólameistara-
mótinu i byrjun júní, en þar
mun hann m.a. mæta Óskari
iakobssyni ÍR, sem keppir fyrir
Texas-háskóla.
Á sama móti bætti Guð-
mundur Sigurðsson UMSE
sig um 1,5 sekúndur í 800
metra hlaupi, hljóp á 1:53,89
mínútum. Guðmundur átti
bezt áður 1:55,4, en hann
hljóp á 1:55,3 innanhúss í vet-
ur. Guðmundur varð sjöundi í
hlaupinu, skólabróðir hans
sigraði á 1:47,1 mtn.
Þær Þórdís Gísladóttir ÍR
og Sigríður Kjartansdóttir
HSK, sem einnig stunda nám
í Tuscaloosa, kepptu fyrir
skóla sinn á móti í Knoxville
í Tennessee. Þórdís sigraði í
hástökki, en var þó vel frá
sínu bezta, stökk 1,75 metra.
Sigríður var einnig talsvert
frá sínu bezta, hljóp 400
metra á 57,84 sekúndum.
Ei r b i yi ■ '1 a ðl ir a 4 C [ [ 1 a fa s ai m 1-
ia n d V ð al tvin IV í l 1 V n iev in iri la i“
- Landsliðshópurinn í knattspyrnu fer aö taka á sig mynd
„ÉG ER að byrja að hafa samband
við atvinnumcnnina erlendis vegna
fyrirhugaðra landslcikja gegn Eng-
landi á Laugardalsvellinum 2. júní
og gegn Möltu í Evrópukeppninni
ytra 5. júní. Suma þeirra hef ég náð
i, en aðra ekki,“ sagði Jóhannes
Atlason, landsliðsþjálfari 'l knatt-
spyrnu, í samtali við Morgunblaðið í
gær, en nú er farið að styttast veru-
lega í landsleiki sumarsins.
„Ég hef náð í Pétur Pétursson,
Karl Þórðarson, Magnús Bergs,
Janus Guðlaugsson og Atla Eð-
valdsson. Pétur gat litlu svarað,
mál hans eru óljós, en skýrast
kannski á næstunni. Spurningar-
merki hvílir yfir Janusi, þar sem
hann á við meiðsli að stríða. Hann
er á batavegi, en er ekki farinn að
æfa eða leika á ný. Það skýrist
næsta hálfa mánuðinn hvort hann
Sigurvegararnir, f.v. Hákon Guðmundsson, Friðrik Ólafsson, Sigurður Sig-
urðsson, Magnús Jónsson, Einar L. Þórisson og Hermann Magnússon.
Magnús og Friðrik
sigruðu á Hellu
EITT af fyrstu opnu golfmótum
„sumarsins" fór fram í vetrarveðri á
Hellu um helgina. Þar var haldið
mót í tilefni af 30 ára afmæli
golfklúbbs Hellu. Þátttaka var góð
og mesta furða hversu vel mönnum
tókst upp í vctrarbálinu.
Með forgjöf sigraði Magnús
Jónsson GS á 66 höggum. Sigurður
Sigurðsson GS varð annar á 68
höggum, eða jafn mörgum og Ein-
ar L. Þórisson GR, en Sigurður
vann í bráðabana. Fjórði var
Hannes Eyvindsson GR á 70 högg-
uin og fimmti félagi hans úr GR,
Óskar Sæmundsson, á 71 höggi.
Jón Haukur Guðlaugsson úr NK
varð svo sjötti á 74 höggum.
I keppni með forgjöf sigraði
Friðrik Ólafsson GS á 75—16.
Pálmi Samúelsson GK var annar á
83—23 og Jón Svan Sigurðsson
varð þriðji á 85—23.
Hokkýskautar urðu Islands
meistarar í blaki öldunga
HOKKÝSKAUTAR urðu um helgina
íslandsmeistarar í karlaflokki öld-
unga í blaki er íslandsmótið fór
fram á Akureyri. Það var annað
tveggja liða frá Skautafélagi Akur-
eyrar sem kallaði sig þessu frumlega
nafni en þess má geta að hitt var
Hjólaskautar. Hokkýskautarnir
tryggðu sér sigur á mótinu með sigri
á HK í hörku skemmtilegum og tví-
sýnum leik. Alls tóku átta lið þátt í
karlaflokki á mótinu en i kvenna-
flokki fjögur og þar sigraöi einnig lið
frá Akureyri, Eik 1.
föróttir
Einokun TBR með ólíkindum
A-LIi) TBR sigraði örugglega í
deildarkeppninni í badminton sem
háð var um síðustu helgi. Voru yf-
irburðirnir miklir. Sigursveit fé-
lagsins skipuðu þau Kristín Magn-
úsdóttir, Kristín Berglind, Þor-
steinn Páll Hamgsson, Ilaraldur
Kornelíusson, Sigfús Ægir Árna-
son, Broddi Kristjánsson og Þór-
dís Edvald.
Segja má að einokun TBR hafi
aldrei verið meiri en nú. Fyrir
keppnina átti félagið 3 af 6 liðum
1. deildar og um helgina gerðist
það síðan, að D-lið félagsins
sigraði í 2. deild og færist upp til
hinna liðanna þriggja í 1. deild.
Það var B-lið KR sem féll í 2.
deild. TBR á því fjögur lið í 1.
deild, fjögur af sex!
getur verið með, en ef út í það fer
er hann ekki bundinn- af félagi
sínu um það leyti sem landsleik-
irnir standa yfir. Karl og Magnús
eru báðir tilbúnir í slaginn, það
heldur ekkert í þá og það sama
gildir að öllum líkindum einnig
um Atla og félaga hans hjá Dúss-
eldorf, Pétur Ormslev. Þó gætu
þeir verið bundnir, þ.e.a.s. ef
Dússeldorf hafnar í þriðja neðsta
sætinu í deildinni. Þá þarf liðið að
leika aukaleiki gegn þriðja efsta
iiðinu í 2. deildinni um sætið í 1.
deild. Þeir aukaleikir eru víst á
dagskrá á óheppilegum tíma fyrir
okkur."
Jóhannes hélt áfram: „Ég mun
ræða við Arnór Guðjohnsen, Lár-
us Guðmundsson, Ásgeir Sigur-
vinsson, Teit Þórðarson, Sævar
Jónsson og Ragnar Margeirsson á
næstu dögum, en þess má geta, að
Lokeren og Waterschei, félög Arn-
órs og Lárusar, hafa skrifað okkur
og gefið vilyrði sín fyrir því að
strákarnir fáist lausir."
Þetta er stór hópur leikmanna
sem Jóhannes hyggst ræða við,
Mbl. spurði hann hvort landsliðið
yrði í sumar eingöngu byggt upp á
atvinnumönnunum. „Um það er
ekkert hægt að segja, hér áður
fyrr var málið að ná þeim heim,
nú er málið að velja úr hópnum,
því hann er orðinn svo stór. En ég
hygg að það sé þýðingarmikið
fyrir okkur að fá þá sem flesta í
þessa vorleiki, því keppnistímabil-
inu er að ljúka á meginlandinu um
þessar mundir og þessir menn eru
í toppæfingu, þar sem þeir sem
heima leika eru það varla svo
snemma sumars.“ — gg.
9 holu golfvöllur
á Korpúlfsstaðatúni
„ÞETTA er búið að vera í undir-
búningi frá áramótum, en veru-
legur skriður hefur ekki komist á
málið fyrr en síðustu vikurnar. f
síðusói viku samþykkti síðan borg-
in að heimila okkur að koma upp 9
holu golfvelli á drjúgum hluta
Korpúlfsstaðatúnsins. Gengið
verður frá reglugerð um svæðið á
næstunni og þegar vorar betur
rnunum við h^fja þær framkvæmd-
ir sem nauðsynlegar eru* sagði
Guðmundur Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs Reykja-
víkur í samtali við Mbl., en um
nokkurt skeið hafa kylfingar notað
túnið óspart. Guðmundur bætti
við:
„Landslag er ekki stórkostlegt
þarna og völlurinn því ekki sam-
bærilegur sem slíkur við Graf-
arholtsvöllinn, en marflatt er
þarna ekki og því eru ýmsir
möguleikar. En þarna verður
léttur og þægilegur völlur sem
mun henta sérstaklega vel fyrir
byrjendur og eins þá sem hafa
nauman tima, en vilja klára 9
holur." — gg.
Tíu mörk í Southampton
TtU mörk voru skoruð í 1. deildar
leik Southampton og Coventry í
Southampton í gærkvöldi. Jafntefli,
5—5, eftir að Coventry hafði leitt
2—1 i hálflcik. Steve Whitton og
Mark Hately skoruðu í fyrri hálfleik
gegn marki Kevin Keegans. Keith
Cassels jafnaði síðan fyrir South-
ampton, en þeir Hately og Whitton
komu Coventry þá í 4—3. Þrjú mörk
á skömmum tima frá þeim Alan
Ball, Keith Cassels og Kevin Keegan
færðu Southampton forystuna, en
Hately jafnaði síðan fyrir Coventry
rétt fyrir leikslok. Úrslit leikja urðu
sem hér segir:
Birmingham — Arsenal 0-1
Brighton — Wolves 2-0
Everton — Leeds 1-0
Southampton — Coventry 5-5
West Ham — Sunderland 1-1
2.deild:
Barnsley — Leicester 0-2
Bolton — Derby 3-2
Cambridge — Blackburn 1-0
Oldharn — Charlton 1-0
Rotherham — Sheffield W. 2—2
Shrewsbury — C. Palace 1—0
Watford — Wrexham 2—0
Mick Robinson og Mick Holli-
field (sjm.) skoruðu mörk Bright-
on og Graeme Sharpe sá um sigur-
mark Everton gegn Leeds. Er
staða Wolves og Leeds nú afar
ljót. Sunderland spyrnti sér enn
fjær fallsvæðinu með jafnteflinu
gegn West Ham. Colin West skor-
aði fyrir Sunderland, en Ray
Stewart jafnaði úr víti. Chrys
White skoraði sigurmark Arsenal
gegn Birmingham.
I 2. deild tryggði Watford sér
sæti í 1. deild í fyrsta skiptið í
sögu sinni með sigrinum gegn
Wrexham. Ross Jenkins skoraði
bæði mörkin. Leicester á enn
möguleika eftir sigurinn gegn
Barnsley. Peter Welsh og Gerry
Lineker skoruðu mörkin, en
Barnsley-leikmennirnir Ian Evans
og Alan Birch voru báðir reknir af
leikvelþ.
Jón á 8:14 í fyrsta hlaupi
„ÉG VONAÐIST eftir betri árangri, en
þegar á motstað kom dvínuðu þær von-
ir, því ekki var nema 5—6 stiga hiti og
sterkur vindur. Það er svo skemmst frá
því að segja að ég leiddi allt hlaupið,
en þegar þrjú hundruð metrar voru í
mark geystist skólafélagi minn fram úr
mér og sigraði, þannig að ég hafnaði í
öðru sæti,“ sagði Jón Diðriksson
hlaupari úr UMSB í samtali við Morg-
unblaðið. Jón hljóp sitt fyrsta brautar-
hlaup um helgina, keppti í 3.000 metra
hlaupi á frjálsíþróttamóti í borginni
Aalen við Stuttgart, og hljóp á 8:14
mínútum. Skólafélagi hans og lands-
liðsmaður, Mark Nellesen, vann á 8:10
mínútum. Jón sigraði marga ágæta
hlaupara í Aalen.
„Æfingarnar ganga vel hjá mér og
ég á von á að baúa mig í sumar. Mér
fannst ég sterkur í hlaupinu og vonast
til að ba'ta íslandsmetið við betri að-
stæður," sagði Jón. Hann á nietið í
3.000 metra hlaupi og er það 8:09,2
mínútur, sett 1979 í \-Þvv.kalandi.
Yfirburðir
Framara
EINN leikur var háður á Reykjavíl
urmótinu í knattspyrnu í ga-rkvöld
mættust þá Fram og Ármann. Vor
yfirburðir Fram í lciknum miklir o
vann liðið með sex mörkum geg