Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984 5 Þórhallur Sœmundsson fyrrv. bœjarf. látinn ÞÓRHALLUR Sæmundsson fyrrver- andi bæjarfógeti á Akranesi er lát- inn 87 ára ad aldri. Þórhallur var fæddur í Stærra-Árskógi á Árskógs- strönd 1897 og voru foreldrar hans hjónin Sæmundur Tryggvi Sæ- mundsson skipstjóri og Sigríður Jó- hannesdóttir. Þórhallur lauk lagaprófi frá Háskóla íslands 1924 og stundaði málflutningsstörf ásamt útgerð og verslun fram til ársins 1932, að hann var settur lögreglustjóri á Akranesi. 1942 var Þórhallur skipaður bæjarfógeti í Akranes- kaupstað og því embætti gegndi hann allt til ársins 1967 að hann fékk lausn frá embætti. Þórhallur gegndi fjölmörgum ábyrgðarstörf- um fyrir Akraneskaupstað á starfsferli sínum. Hann var lengi formaður stjórnar Sjúkrasamlags Akraness, í hafnarnefnd Akraness i meira en 20 ár, í fræðsluráði Akraness og yfirkjörstjórn Vest- urlandskjördæmis frá 1959. Þór- hallur kvæntist eftirlifandi konu sinni, Elísabetu Guðmundsdóttur, 1925. Birgir Asgeirsson lögfrœöingur látinn BIRGIR Asgeirsson lögfræðingur lést í Landspítalanum í gærmorgun, eftir að hafa átt við þungbær veik- indi að stríða undanfarna mánuði. Birgir var 55 ára gamall er hann lést. Hann fæddist í Reykjavík 1929 og voru foreldrar hans Ásgeir Ásgeirs- son frá Fróðá og Karólína Sveins- dóttir. Birgir lauk lagaprófi frá Há- skóla íslands 1954. Hann gegndi fulltrúastörfum hjá ýmsum lög- fræðingum til ársins 1958, að hann gerðist fastur starfsmaður Reykjavíkurborgar. Hann var inn- heimtustjóri borgarinnar frá 1966 til 1972. Hann var lögfræðingur Neytendasamtakanna 1954 til 1969 og lögfræðingur Húseigenda- félags Reykjavíkur 1960 til 1961. Birgir rak eigið fyrirtæki frá 1. janúar 1973, Aðalfasteignasöluna og Aðalskipasöluna í Reykjavík. Eftirlifandi kona Birgis er Margrét Sigurjónsdóttir. Með vísan til tilkynningar Seðlabankans um vexti og verðtryggingu láns- og sparifjár frá 2. ágúst sl., hefur Alþýðubankinn ákveðið að frá og með 13. ágúst 1984 verði vaxtakjör bankans sem hér segir: Nafnvextir Nafnvextir Ársávöxtun INNLÁN: áður nú nú 1. Almennar sparisjóösbækur 15,0% 17,0% 17,0% 2. 3ja mán. sparireikn. m. uppsögn 17,0% 19,0% 19,9% 3. 12 mán. sparireikn. m. uppsögn 19,0% 23,5% 24,9% 4. 3ja mán. verðtr. reikningar 0,0% 2,0% 5. 6 mán. verðtr. reikningar 2,5% 4,5% 6. Innlánsskírteini m. 6 mán. uppsögn 21,0% 23,0% 24,3% 7. Stjörnureikningar 5,0% 5,0% 8. Ávísanareikningar 5,0% 15,0% 9 Hlaupareikningar 5,0% 7,0% 10. Innlendir gjaldeyrisreikningar: - innstæður í Bandarikjadollurum . 9,0% 9,5% - innstæður í Sterlingspundum ... 7,0% 9,5% - innstæður í Vestur-þýskum mörkum 4,0% 4,0% - innstæður í dönskum krónum ... 9,0% 9,5% ÚTLÁN: 1. Víxlar (forvextir) 18,5% 22,0% 2. Hlaupareikningslán 18,0% 22,0% 3. Skuldabréfalán 21,0% 24,5% 26,0% 4. Verðtryggð skuldabréfalán: - lánstími allt að 3 ár 4,0% 7,5% - lánstími minnst 3 ár 5,0% 9,0% 5. Endurseljanleg lán 18,0% 18,0% 19,25% 6. Dráttarvextir* 2,5% 2,75% 'Gildir frá 1. september nk. Ath. Vextir eru breytilegir- skv. ákvörðun bankaráðs Alþýðubankans hf., en vextir á eldri lánum breytast ekki. Við gerum vel við okkar fólk Alþyöubankinn hf. Um nánari kostiOROBIS, geturþúlesiðíitarlegumupplýsingabæklingi.semliggurframmiáOLÍS stöðum um allt land. rt1drkaA>tar ke/ - a''«ea kkrar AUGLYSINGAÞJÖNUSTAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.