Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984 23 Stjórnarmynd- un í ísrael: Mapam-samtökin gera Peres erfitt fyrir Jcrúsalem, Tel Aviv, 14. ágúst. AP. TILRAUN Shimon Peres, leiðtoga Vcrkamannaflokksins í fsrael, til að mynda starfhæfa ríkisstjórn f land- inu hefur enn engan árangur borið og hann sætir nú aukinni gagnrýni frá vinstri armi flokksins, sem auð- veldar honum ekki starfann. Yossi Beilan, talsmaður Verka- mannaflokksins, sagði í dag að Peres hefði átt viðræður við svonefndan Mapam-hóp innan. flokksins, en það eru samtök vinstrisinna sem sex af 44 þing- mönnum hans tilheyra. Mapam- hópurinn hefur látið í ljós áhyggj- ur yfir því að í hugsanlegri sam- stjórn með Likud-bandalaginu verði fallist á óhagstæða mála- Laun Jarúzelskis hækka um 95 % miðlun í deilu flokkanna um land- nám gyðinga á hernámssvæðum fsraela á vesturbakka Jórdanár. Yitzhak Shamir, forsætisráð- herra og leiðtogi Likud, hefur ekki viljað fallast á að Peres verði leið- togi þjóðstjórnar í fsrael og segist sjálfur eiga betri möguleika á því að afla slíkri stjórn stuðnings hinna 13 smáflokka, sem auk stóru flokkanna eiga fulltrúa á Knesset, þingi landsins, sem sett var í gær. Shimon Peres, leiðtogi Verkamannaflokksins f ísrael. Að baki honum er mynd af David Ben-Gurion, hinum mikilhæfa leiðtoga flokksins á fyrri árum. Varsjá, 13. igúst AP. WOJCIECH Jaruzelski, leið- togi Póllands, og aðrir helztu ráðamenn pólsku stjórnarinn- ar, hafa fengið nær 95% launa- hækkun. Skýrði blað stjórnar- innar, Rzeczpospolita, svo frá í dag, að þessar launahækkanir væru nauðsynlegar til þess að koma í veg fyrir „hraðfara verðrýrnun launa“ háttsettra embættismanna ríkisins. Blaðið sagði, að laun þessara manna „væru alls ekki úr hófi og fjarri þvf að vera hæstu laun, sem greidd væru í Póllandi. En sá, sem fær 50.000 zloty á mán- uði, hefur möguleika á því að lifa án þess að hafa fjárhags- áhyggjur frá degi tif dags.“ Verðbólga í Póllandi nam um 25% á síðasta ári samkvæmt upplýsingum stjórnvalda. ERLENT V-Þýzkaland: Flotaforingi handtek- inn vegna njósnagruns Noregur: 550.000 dollara skaðabótakrafa vegna skreiðarsendingar til Nígeríu Óslo, 14. ágúst. Frá Ju Erik Laure, SVISSNESKT fyrirtæki, scm flytur út skreið, hefur höfðað mál á hendur norsku skreiðarútflutningsnefndinni. Varðar málið skreiðarsendingu sem send var frá Noregi til Nígeríu rrétUritara Mbl. fyrir fjórum árum. Of mikið af fisk- hausum var í sendingunni og varan því ekki talin mannamatur. Skreiðarnefndin heldur því fram, að hún hafi þegar bætt svissneska fyrirtækinu þetta með verðlækkun á öðrum skreiðarsendingum. Sviss- lendingarnir telja þetta fráleitt og krefjast 515.000 dollara í skaðabæt- ur. Bonn, 13. ágúsL AP. WILHELM Reichenburg, fyrrver- andi flotaforingi í vestur-þýzka hern- um, hefur verið handtekinn vegna gruns um að hann hafi njósnað fyrir ríki í Austur-Evrópu, að því er tals- maður v-þýzka varnarmálaráðuneyt- isins staðfesti. Welt am Sonntag hafði skýrt frá því að Reichenburg hefði verið tekinn höndum þann 1. ágúst og mikið af leyniskjölum fundist í fórum hans. Eins og fyrr segir hefur verið staðfest að flotafor- inginn fyrrverandi hafi verið handtekinn, en nánari útlistun var ekki gerð. í frétt Welt am Sonntag sagði, að Reichenburg hefði haft aðgang að ýmsum mikilvægum plöggum og skjölum flotans og grunur léki á að hann hefði einnig komist yfir leyniskýrslur öryggis- þjónustu Vestur-Þýzkalands. Istanbúl: Ellefu látast í bifreiðaslysi IsUnhúl. 14. á«úsL AP. ELLEFU manns létu lífið og sjö aðrir slösuðust þegar flutninga- bifreið hvolfdi og rakst á lang- ferðabifreið í Eskisehir-héraði í Tyrklandi í morgun. Báðir bifreiðastjórarnir eru í hópi hinna látnu. ókaverslun Snæbjarnar er nú flutt á einn staö, í gjörbreytt og jmbetra húsnæöi aö Hafnarstræti 4. í hinni nýju verslun veröur inungis boöiö upp á enskar og íslenskar bækur, auk fjölbreytts úr- als kennslugagna á spóium og myndböndum. VERIÐ VELKOMIN í BÓKAVERSLUN SNÆBJARNAR AÐ HAFNARSTRÆTI 4. Bókaverslun snæbjarnar var stofnuö 1927. Það var yfirlýst stefna Snæbjarnar Jónssonar aö hafa einungis vandaöar bækur á boðstól- um, og mun hin nýja verslun starfa í anda stofnanda síns. í hver mánaðarlok veröur kynning á völdum bókum, sem boönar veröa á sérstöku kynningarverði. Sntrbjömlíónsscm&Qi.hf Hafnarstræti4, sími 14281

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.