Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984 r Þannig lítur hin nýja filmulausa myndavél frá Canon út. Filmulaus mynda- vél á markaðinn SÍÐAN Sony-fyrirtækið skýrði fyrst frá áformum sfnum um filmulausa myndavél, sem gefið var heitið „Mavica“, hefur ríkt mikil launung um þessi áform. Ætlunin er að vélin taki Ijósmyndir á plötu, sem svo verði sett inn í myndbandsUeki, þannig að unnt verði að sjá myndina á sjónvarpsskermi. Er talið, að þessi sameining myndbands og myndavél- ar eigi eftir að skapa ævintýralega möguleika. hefur fyrirtækið sett á markað- inn myndavél fyrir myndbðnd og Með þessum hætti verður t.d. unnt að skoða eigin ljósmyndir án þess að láta framkalla þær. Allt sem gera þarf er að setja segulplötu með myndinni inni í myndbandstækið og svo er unnt að njóta myndarinnar í sterkum litum f sjónvarpinu. En auðvitað eru enn fyrir hendi mörg erfið, tæknileg vandamál, sem eftir er að leysa og það er örugglega ástæðan fyrir því, að svo lítið berst út frá Sony-fyrirtækinu um þessa nýju myndavél. Canon-fyrirtækið aftur á móti hefur þegar sett á markaðinn myndavél sem það fyrirtæki seg- ir, að verða muni myndavél framtíðarinnar. 1 tengslum við Ólympíuleikana { Los Angeles ber hið nýja tæki heitið Still Vid- eo System D-413. Tæki þetta tek- ur eins og Mavica myndina upp í litum á segulplötu. Síðan er strax unnt að sjá myndina á sjón- varpsskermi með sérstökum út- búnaði. Jafnframt er hægt að senda þessa mynd á símalfnu til mót- takara, sem væri t.d. staðsettur á ritstjórn hjá dagblaði, er sfðan gæti svo hagnýtt sér myndina. Canon hyggst nefnilega í fyrstu hagnýta sér ljósmyndamarkað blaðanna með þessum hætti, en það er jafnframt ljóst, að þetta nýja tæki á eftir að vekja mikla athygli á meðal áhugaljósmynd- ara. Reagan Bandaríkjaforseti sætir gagnrýni: Hafði árás á Sovét- ríkin í flimtingum liM IhmIm íá mtntai AP Loe Angeles, 14. ágúst AP. WALTER Mondale, forsetaefni bandarískra demókrata, er í hópi þeirra fjölmörgu, sem gagnrýnt hafa Ronald Reagan, Banda- ríkjaforseta, fyrir að hafa sprengjuárás á Sovétríkin í flimt- ingum. „Bandaríkjamenn. Mér er það ánægja, að geta skýrt ykkur frá því að í dag hef ég staðfest ákvörð- un, sem leiða mun til endaloka Sovétríkjanna. Við byrjum að varpa sprengjum eftir fimm mín- útur.“ Þessi ummæli lét Reagan forseti falla í gamni þegar hann var að prófa hvort hljóðnemi væri f lagi nokkrum mínútum áður en hann flutti reglulegt laugardags- ávarp sitt fyrir útvarp frá forsetabústaðnum í Santa Barb- ara um síðustu helgi. Ummælin heyrðust ekki í útvarpinu, en ein- hvern veginn hafa þau náðst á segulband og sjónvarpsstöðvarnar CBS og NBC útvörpuðu þeim í kvöldfréttatímum sínum á mánu- dagskvöld. Talsmenn forsetans hafa ekkert Grænlendingar með í handbolta Taka þátt í Norður- landamótinu í haust KaupmAnnahöfn, 14. ágúst Frá frétUriUra MorjjunblaAsins, Nite Jörgen Bruun. GRÆNLENDINGAR verða í fyrsta sinn þátttakendur í Norðurlanda- mótinu í handbolta nú í haust. Mótið verður að þessu sinni haldið í Finnlandi í lok október ov senda Vitað er að starfsmenn forset- ans eru nú að reyna að grafast fyrir um það hvernig unnt var að koma ummælum hans á framfæri og er ætlunin að hindra að atvik af þessu tagi endurtaki sig. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti. viljað um þetta efni segja, en ónafngreindur heimildarmaður f Hvíta húsinu staðfesti að Reagan hefði látið hin tilvitnuðu orð falla, en þau hefðu verið gamanmáí manns, „sem hefur ánægju af því að skopast". Grænlendingar karlaflokk til keppninnar. Áður en mótið hefst, fer grænlenzka liðið til tveggja vikna æfingadvalar í Danmörku. Grænlenzka blaðið Sermitsiak kemst svo að orði, að nú geti Grænlendingar tekið við af Fær- eyingum sem botnliðið f þessum mótum. Til þessa hafa Færey- ingar oft tapað þar illa eða með 15 marka mun eða meiru. Isklump- ur féll af himni Moskm, 13. ájpteL AP. ANATOLY Kozhukov var á gangi í sumarbúðum í grennd við Volgufljót, er hann var nærri orðinn fyrir undarlegum ís- klumpi, sem féll af himnum ofan. Skýrði sovézka fréttastof- an TASS frá þessu í dag. Kozhukov, sem er starfs- maður í sumarbúðunum, heyrði skyndilega undarlegan hvin fyrir ofan sig og tókst með naumindum að stökkva til hliðar, áður en klumpurinn lenti á honum. Þegar hann leit til himins, var þar ekki ský- hnoðra að sjá og sól skein þar í heiði. En f tveggja skrefa fjarlægð frá honum lá stærð- ar isklumpur f sandinum. Kozhukov tók þennan undar- lega hlut með sér og kom hon- um fyrir f isskáp, áður en hann kallaði hóp vísinda- manna á vettvang frá Moskvu til þess að rannsaka hann. Síðan var flogið með þenn- an skrítna loftstein til Moskvu, þar sem stjörnufræð- ingar, geimvisindamenn og eðlisfræðingar munu hafa hann til athugunar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.