Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984 21 Gera framsætin bílbeltin ótrygg? Detroit, 14. ágúst AP. FORD-bifreiðaverksmiðjurnar segj- ast munu innkalla 361.900 bfla af árgerðunum 1981—1984 með fram- sætum, sem ekki er unnt að halla. Stafar þetta af hættu á bflbelta- meiðslum í árekstrum á framenda bflanna. Innköllun þessi á m.a. að Fékk kafbát í vörpuna London, 14. ágúst AP. BREZKUR togari fékk í dag kaf- bát í vörpuna og dró kafbáturinn hann aftur á bak eina þrjá kfló- metra, áður en áhöfn togarans tókst að skera á vörpuna, svo að togarinn varð laus. Jim Allaway, talsmaður brezka flotans, skýrði svo frá, að þetta hefði gerzt á Ermars- undi, nánar tiltekið 16 km suð- austur af Berry Head á suður- strönd Englands. Kohn Green, skipstjóri á togaranum, sem heitir Joanna C., hafði strax samband við brezku strand- gæzluna, er skip hans stöðvað- ist og síðan dregið aftur á bak drjúgan spöl. Einn úr áhöfninni, Leslie le Page, 30 ára að aldri, lét hafa eftir sér: „Þetta er skelfilegt. Við vissum, að við höfðum feng- ið eitthvað í vörpuna, sem við vissum alls ekki hvað var.“ Allaway sagði, að ekki væri vitað, hverrar þjóðar kafbátur- inn væri, en nú stæði yfir um- fangsmikil rannsókn með að- stoð brezka flotans. ná til Escort-bifreiða, fjögurra dyra Lynx Sedan-bifreiða og skut-bifreiða (Station) af árgerðunum 1981—1983. Sætabeltin í bílum með fram- sætum, sem ekki er unnt að halla, geta komizt í snertingu við plast- bönd á hliðum framsætanna við árekstur, þegar ekið er hratt, segir í tilkynningunni frá Ford. Þetta gæti haft í för með sér, að beltin slitnuðu. Ætlun Ford-verk- smiðjanna er nú að gera ráðstaf- anir, sem eiga að koma í veg fyrir, að þetta geti skeð. Símamynd AP Lögreglusveit ekur inn á flugvöllinn í Los Angeles örstuttu eftir að fregnir bárust um sprengju í farangursvagni tyrkneskra iþróttamanna þar. Tímasprengja á flugvellmum í Los Angeles: Hryðjuverkasveit Armena kom sprengjunni fyrir Los Angeles, París, 14. ágúst AP. MAÐUR, sem kvaðst vera félagi í Asala, samttíkum armenskra hryöjuverkamanna, hringdi í dag á skrifstofu AP-fréttastof- unnar í París og sagði að sam- tökin bæru ábyrgð á sprengju þeirri, sem fannst í gær innan um farangur tyrkneskra íþrótta- manna í flutningabifreið þeirra á flugvellinum í Los Angeles. Armenskir öfgamenn höfðu hót- að því fyrir leikana að gera Tyrkj- unum lífið leitt og höfðu því mikl- ar öryggisráðstafanir verið gerðar til að vernda þá. Maðurinn, sem hafði samband við AP, sagði að Asala ætlaði að halda áfram „réttlátri baráttu sinni gegn fasistastjórn Tyrklands og bandarískum heimsvaldasinn- um“. Samtökin vilja að tyrknesk yfirvöld viðurkenni ábyrgð sína á dauða hálfrar annarrar milljónar Armena í fyrri heimsstyrjöldinni. Þau berjast auk þess fyrir sjálf- stæði Armeníu. Allt fór á annan end- ann á flugvellinum Lon Angeles, 14. ágúst Frá Þórarni Kagnarssyni, blaóamanni Morgunblaósins. ÞAÐ FÓR allt á annan endann á fhigvellinum hér í Los Angeles í gær þegar skarpur lögregluforingi kom auga á tímasprengju i rútu þeirri sem ók farangri tyrkneska Ólympíuliðsins á flugvöllinn. Af öryggisástæðum höfðu íþróttamennirnir 52 fariö í öðrum bfl en mikil gæsla hefur verið í kringum íþróttamenn ísrael og Tyrklands, meiri en hjá öðrum er leikana sóttu. Lögregluforingjanum tókst með miklu snarræði að hlaupa með tímasprengjuna úr rútunni yfir á autt svæði og skipaði síðan fólki á svæðinu burt um leið og hann bað um aðstoð. Þegar voru gerðar miklar ör- yggisráðstafanir á flugvellinum, þremur stórum afgreiðslustöð- um var lokað og sex þúsund far- þegum sem voru til staðar var ekið burt. Stórt svæði var girt af og öll öryggisgæsla var hert og hundruð lögreglumanna og ör- yggisvarða streymdu til flugvall- arins. Sérlegir sprengjusérfræð- ingar lögreglunnar voru kallaðir á vettvang og gerðu þeir tíma- sprengjuna óvirka. Þetta er fyrsta og eina alvarlega atriðið sem komið hefur upp í sambandi við ólympíuleikana og það gerð- ist 24 klst. eftir að leikunum var slitið. Mjög mikil seinkun varð á flugi frá Los Angeles í gær vegna þessa atburðar, og þurftu hópar íþróttafólks og annarra sem voru á heimleið frá leikun- um að bíða i allt að sólarhring þar til það gat haldið ferð sinni áfram. Ekki er allt íþróttafólk enn farið úr óiympíuþorpinu og þar var öryggisgæsla einnig hert mjög verulega. Mannfjöldaráðstefna SÞ: Tillaga um samþykkt um herteknu svæðin Patti Davis með foreldrum sínum, Ronald Reagan forseta og Nancy konu hans. Dóttir Reagans í það heilaga PATTI Davis, 31 árs gömul dóttir Reagans Bandaríkja- forseta, sem er leikkona, gengur í hjónaband á morg- un, þriðjudag. Mannsefni hennar heitir Paul Grilley og er 25 ára gamall leið- beinandi á jóga- námskeiðum. Um 130 manns hefur verið boðið í brúðkaupið, sem fram fer í Los Angeles, og verður veislan haldin í Bel-Air-hótel- inu þar, en sjálf hjónavígslan verður undir beru lofti. Full- trúar fjölmiðla fá ekki að vera viðstaddir. Meiíkóborg, 14. ágúsL AP. TILLAGA, scm Arabarikin báru fram, þar sem fordæmt var landnám gyðinga f skjóli hervalds á herteknu svæðunum og lýst yfir að það væri ólöglegt og ámælisvert af hálfu fsraels, var sam- þykkt á mannfjöldaráðstefnu Samein- uðu þjóðanna. Bandaríski fulltrúinn, Alan Keys, sagði, að hann mundi aftur greiða atkvæði á móti tillögunni, þegar hún kæmi til endanlegrar atkvæða- greiöslu, sennilega f dag, þriðjudag. Það tókst hvorki að ná samkomu- lagi um þetta mál í vikuiöngum samningaviðræðum né í umræðum á ráðstefnunni og varð það mesta mis- klíðarefnið þar. Ráðstefnan var framlengd um einn dag, svo að fulltrúum hinna 149 þjóða gæfist færi á að komast yfir að afgreiða öll þingskjöiin. Af tillögum ráðstefnunnar, 85 að tölu, var fyrrnefnd tillaga hin eina, sem ekki náðist samkomuiag um, og varð því að ganga tii atkvæða um hana. Var tillagan samþykkt með 83 atkvæðum gegn tveimur, en 15 full- trúar voru fjarverandi, þegar at- kvæðagreiðslan fór fram. í tillögunni er vitnað til ákvæðis í Genfarsáttmálanum, þar sem segir, að ríki megi ekki flytja eigin þegna til svæða sem það hafi hernumið. Þar segir ennfremur, að landnám á herteknum svæðum, í skjóli her- valds, sé bæði „ólöglegt og fordæm- anlegt samkvæmt sáttmálanum". James Buckley, formaður banda- rísku sendinefndarinnar, kvað þetta mál „aigjörlega óviðkomandi efni ráöstefnunnar, mannfjölda í heimin- um“. Viðskiptajöfnuður Norðmanna hagstæður Osló, 14. igúst. AP. Viðskiptajöfnuður Noregs var hag- stæður um 4.890 millj. n.kr. í júli og er það 45% hærri fjárhæð en í sama mán- uði f fyrra, en þá var viöskipta- jöfnuðurinn hagstæður um 3.360 millj. n.kr. Á þessu ári er viðskiptajöfnuður- inn orðinn hagstæður um 25.600 millj. n.kr. og er þannig 39% hag- stæðari en á sama timabiii 1 fyrra. Útflutningur i júli nam 11.350 millj. n.kr. en innflutningur 6.460 millj. n.kr. Það er fyrst og fremst vinnsla olíu og gass, sem stuðlar svo mjög að hagstæðum viðskiptajöfnuði Norð- manna. Að frátöldum útfiutningi á olíu og gasi, þá hefði innflutningur þeirra numið 18,9 milijörðum n.kr. fram yfir útflutning á fyrstu 7 mán- uðum þessa árs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.