Morgunblaðið - 23.03.1985, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
69. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 23. MARZ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
AP/Simamynd
UNDIR MYND AF MARX
Kalevi Sorsa, forsætisráðherra Finna, var í gær staddur í Kreml og
gekk þá á fund Mikhails Gorbachevs, hins nýja leiðtoga Sovét-
manna. Ræddu þeir vitt og breitt um heimsmálin og þá ekki síst um
sambúð þjóðanna, Finna og Sovétmanna.
Yfirvofandi verkföll í Danmörku:
Víðtæk áhrif á
danskt þjóðlíf
22. mare AP.
DANIR eru farnir að búa sig undir
verkfollin, sem allt bendir til aö
hefjist aðfaranótt sunnudagsins. Þá
munu flest dagblöð hætta að koma
út, flugferðir leggjast af að mestu,
bensínflutningar stöðvast og mat-
vælaflutningar einnig að nokkru
leyti.
Samningaviðræður fóru út um
þúfur í gær en í dag benti ekkert
til að stjórn Schlúters hygðist
grípa inn í deiluna. Ef til verkfalls
kemur munu um 320 þúsund laun-
ar leggja niður störf.
thrif verkfallsins á þjóðlífið
munu verða mjög víðtæk. Utkoma
flestra dagblaða mun stöðvast,
erfitt verður að fá oliu til húshit-
unar og bensín á bílana ef vinnu-
stöðvunin stendur lengur en í
hálfan mánuð, og flug til og frá
landinu leggst niður strax á
sunnudag. Mjólkurstöðvum og
sláturhúsum verður lokað og
viðbúið er að nýtt grænmeti verði
ekki fáanlegt lengi eftir að verk-
fallið hefst. Auk þess ætla stærstu
brugghúsin í Danmörku, Carls-
berg og Tuborg, að sýna samstöðu
með vinnuveitendum með því að
setja verkbann á sína starfsmenn.
Launþegar krefjast 5—6%
kauphækkunar og styttingar
vinnuvikunnar um fimm stundir, i
35, en vinnuveitendur eru lítt
hrifnir af styttri vinnuviku og
bjóða minni launahækkun. Ríkis-
stjórnin vill ekki að kauphækkan-
irnar fari yfir 3%.
Sendimönnum
rænt í Beirút
Beirét, 22. mra. AP.
FRÖNSKUM sendiráðsmanni hefur
verið rænt í Beirút og tveggja ann-
arra er saknaö. Er óttast. að þeim
hafi einnig verið rænt ísraelskir
hermenn leituðu í dag að skærulið-
um í þorpi í Suður-Líbanon og féll
einn þorpsbúa þegar til átaka kom.
Að sögn sjónarvotta réðust þrír
íranir hóta að beita
eitur- og eftiavopnum
vopnaðir menn á Marcel Fontaine,
vararæðismann Frakka i Beirut,
og neyddu hann með sér burt í bíl.
Skömmu síðar hringdu ókunnir
menn til fréttastofa í borginni og
sögðu, að samtökin „Heilagt
stríð“, sem er hreyfing múham-
eðskra öfgamanna, hefðu staðið að
ráni ræðismannsins og hinna
mannanna tveggja. Þremur öðrum
mönnum hefur verið rænt í Beirút
síðustu níu daga, bandarískum
fréttamanni og tveimur Bretum.
ísraelskir hermenn réðust í dag
inn í þorpið Qlaile og smöluðu
saman öllum 300 ibúunum til að
kanna hvort nokkur skæruliði
væri á meðal þeirra. Kom þá til
átaka og féll einn þorpsbúanna.
Að sögn líbönsku lögreglunnar
hafa aðgerðir ísraela síðustu daga
kostað 30 manns lífið og 68 hafa
særst.
Bagdat, Manama, 22. awra AP.
ÍRASKAR herþotur réðust í dag
á nokkrar borgir í íran að sögn
talsmanna írakshers, sem einn-
ig greindu frá því, að skotið
hefði verið á mjög stórt skip í
Persaflóa, skammt frá Kharg-
eyju, olíuútskipunarhöfn Irana.
íranir hafa hótað að svara írök-
um í sömu mynt og beita jafnt
eitur- sem efnavopnum í stríð-
inu.
írakar kváðust i dag hafa gert
loftárásir á margar borgir og
bæi í tran og hafa tranir staðfest
það en segja, að lítið tjón hafi
orðið í þeim og írösku flugmenn-
irnir fljótlega forðað sér undan
ákafri loftvarnaskothríð. Rafs-
anjani, talsmaður íranska þings-
ins, sagði í dag, að fimmtu eld-
flauginni yrði brátt skotið á
Bagdað til að hefna loftárásanna
en þessar eldflaugar eru sovésk
smíð og líklegt talið, að þær séu
komnar frá Líbýu. Sagði Rafs-
anjani einnig, að innrásin í írak
11. mars sl. hefði aðeins verið
forsmekkurinn að því, sem koma
skyldi. tranir halda áfram að
saka traka um að beita eitur- og
efnavopnum í stríðinu og hafa
nú hótað að grípa sjálfir til
þeirra vopna ef Irakar hætta
ekki slíkum hernaði.
írakar kváðust i dag hafa ráð-
ist á mjög stórt skip rétt við
Kharg-eyju, olíuútskipunarhöfn
trana, og hæft það öruggiega.
Starfsmenn útgerðarfélaga við
Persaflóa höfðu þó enga vitn-
eskju um þessa árás þegar síðast
fréttist.
Svíþjóð:
Unga fólkið
stórminnkar
vínneyslu
Stokkkólmi. 22. mara. AP.
ÁFENGISDRYKKJA sænskra
ungmenna hefur minnkað um meira
en helming á síðustu fimm árum, að
því er fram kemur í niðurstöðum
könnunar, sem rannsóknarstofnun-
in SIFO hefur gert.
Magn þess áfengis, sem hvert
ungmenni drekkur að meðaltali á
ári, var 0,47 lítrar á síðasta ári, en
1,11 lítrar á árinu 1979.
Sérfræðingar SIFO segja að
margar ástæður liggi þessari
breytingu til grundvallar. Ungt
fólk hefji nú áfengisdrykkju síðar
en áður, drekki minni í hvert skipti
og æ fleiri hætti neyslu með öllu.
Könnunin, sem gerð var á tíma-
bilinu desember 1984 til febrúar
1985, tók til 1.400 ungmenna á aldr-
inum 12—24 ára.
Niðurstöður þessar vekja at-
hygli, þar sem mikil og vaxandi
áfengisdrykkja sænskra unglinga
hefur lengi verið talin alvarlegt
vandamál í Sviþjóð.