Morgunblaðið - 23.03.1985, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1985
Biðröd við pylsurnar þar sem allir Tengu eins margar pylsur með
„öllu“ eins og þeir gítu í sig látið.
Og auðvitað varð tónlistin að vera í lagi.
ffclk í
fréttum
Tveir ungir sýna „break“ með miklum tilþrifum. Morgunbiaðii/RAX
Opitunarhátíð
í
Fífuseli
Mikil fjðlskyldu- og opnunarhátíð var haldin hjá íbúum í
Fífuseli 20—36 laugardaginn 16. mars er þeir tóku form-
lega í notkun bílskýlið sitt. Þar var boðið upp á pylsur og kók
eins og hver og einn gat í sig látið við mikinn fögnuð yngstu
kynslóðarinnar, að sögn Hafdísar Jónsteinsdóttur, eins af
íbúunum. Ungar, upprennandi ballerínur sýndu ballett, og
aðrir „breakdans" með miklum tilþrifum og innlifun. Um
kvöldið var slegið upp dansleik fyrir fullorðna fólkið á mjög
svo rúmgóðu dansgólfi.
Bréfberaleikhúsið Dúfan
„Grár
hvers-
dags-
leikinn"
Bréfberaleikhúsið Dúfan æf-
ir þessa dagana á fullu leik-
þátt sem nefnist „Grár hvers-
dagsleikinn". Meiningin er að
flytja þáttinn í Austurstræti
fyrir vegfarendur í tilefni 66
ára afmælis Póstmannafélags-
ins næstkomandi þriðjudag
klukkan 15. Það eru um 15
ungmenni sem vinna sem bréf-
berar á því svæði sem kallast
R-l, sem taka þátt í þessari
uppákomu. Leikhópurinn er til-
tölulega nýr af nálinni, var
stofnaður í febrúar sl., en þá
sýndi hann sitt fyrsta verk sem
kallaðist „Bréfberar hafa allt
til að bera“.
Leikhópurinn var stofnaður í
febrúar sl. og eru leikarar í þessu
stykki u.þ.b. 15 talsins.
Morgunbladið/Júlíus