Morgunblaðið - 23.03.1985, Side 50

Morgunblaðið - 23.03.1985, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1985 Biðröd við pylsurnar þar sem allir Tengu eins margar pylsur með „öllu“ eins og þeir gítu í sig látið. Og auðvitað varð tónlistin að vera í lagi. ffclk í fréttum Tveir ungir sýna „break“ með miklum tilþrifum. Morgunbiaðii/RAX Opitunarhátíð í Fífuseli Mikil fjðlskyldu- og opnunarhátíð var haldin hjá íbúum í Fífuseli 20—36 laugardaginn 16. mars er þeir tóku form- lega í notkun bílskýlið sitt. Þar var boðið upp á pylsur og kók eins og hver og einn gat í sig látið við mikinn fögnuð yngstu kynslóðarinnar, að sögn Hafdísar Jónsteinsdóttur, eins af íbúunum. Ungar, upprennandi ballerínur sýndu ballett, og aðrir „breakdans" með miklum tilþrifum og innlifun. Um kvöldið var slegið upp dansleik fyrir fullorðna fólkið á mjög svo rúmgóðu dansgólfi. Bréfberaleikhúsið Dúfan „Grár hvers- dags- leikinn" Bréfberaleikhúsið Dúfan æf- ir þessa dagana á fullu leik- þátt sem nefnist „Grár hvers- dagsleikinn". Meiningin er að flytja þáttinn í Austurstræti fyrir vegfarendur í tilefni 66 ára afmælis Póstmannafélags- ins næstkomandi þriðjudag klukkan 15. Það eru um 15 ungmenni sem vinna sem bréf- berar á því svæði sem kallast R-l, sem taka þátt í þessari uppákomu. Leikhópurinn er til- tölulega nýr af nálinni, var stofnaður í febrúar sl., en þá sýndi hann sitt fyrsta verk sem kallaðist „Bréfberar hafa allt til að bera“. Leikhópurinn var stofnaður í febrúar sl. og eru leikarar í þessu stykki u.þ.b. 15 talsins. Morgunbladið/Júlíus

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.