Morgunblaðið - 23.03.1985, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1985
23
fyrirtæki í eigu ríkisins yrðu seld
og hlutabréf ríkisins f ákveðnum
fyrirtækjum einnig. Ég undirbjó
slíka sölu, ég auglýsti fyrirtækin
og ég fékk tilboð í þau. En þá tók
ríkisstjórnin þá ákvörðun að hver
fagráðherra skyldi sjá um sölu
þeirra fyrirtækja sem heyrðu und-
ir hans ráðuneyti, ef honum sýnd-
ist svo.“
Vil ekki gefa það
sem mér hefur verið
trúað fyrir
— Hvað með þau fyrirtæki sem
heyra beint undir fjármálaráð-
herra, Flugleiðir og Eimskip?
Ekki hefur hlutur ríkisins í þeim
enn verið seldur, enda segja gagn-
rýnendur þínir að með sölu á þeim
missir þú völd, sem þú ógjarnan
viljir missa. Hverju svarar þú
slikum fullyrðingum?
„Það er vegna þess að ég vil ekki
gefa það sem mér hefur verið trú-
að fyrir. Ég vil selja hlut ríkisins á
réttu verði, og þess vegna hefur
farið fram mat á þeim hlutabréfa-
eignum sem ég fer með, en það eru
hlutabréf ríkisins í Rafha, Eim-
skip og Flugleiðum. Þau hafa nú
verið metin, og eru til sölu, en á
réttu mati. Ég fékk tilboð í þau,
sem voru aðeins um nafnverð.
Ríkið á um 6% hlut i Eimskip og
6% eru verulega áhrifaríkur þátt-
ur i aðalfundum, þannig að 5
milljóna króna verð, fyrir þau ítök
sem 6% eignarhluti í Eimskip gef-
ur, er minna en gjafverð. Það er
ekki einu sinni verðið á einni hæð
i Eimskipafélagshúsinu, hvað þá
rneira."
— Það sem þú sagðir nú, er það
ekki einmitt staðfesting á því að
þú sem fjármálaráðherra hefur
völd og ítök inn í þessi fyrirtæki, á
meðan ákveðinn hluti þeirra er i
eigu ríkisins — völd og itök sem
þú missir sjálfkrafa, þegar hluta-
bréfin hafa verið seld, og vilt af
þeim sökum ekki sleppa þessum
ítökum?
„Það er alls ekki rétt. Ég hef
boðið þau til sölu, og þau eru til
sölu. En á meðan að ég er fjár-
málaráðherra tek ég við öllu því
starfi sem honum tilheyrir. Ég vel
ekki og hafna eftir geðþótta. Ég
vil gjarnan losna við þessi bréf, en
ég sætti mig einungis við það
matsverð sem nú liggur fyrir frá
hlutlausum aðilum, Fjárfestingar-
félagi íslands, því það/Cr raun-
verulega rétt verð.“
Einhver sjálfseyd-
ingarhvöt í Sjálf-
stæðisflokknum
— Vísar þú þá þeirri gagnrýni á
bug, að einkaframtaksmaðurinn
Albert sé að breytast í forstokkað-
an kerfiskarl?
„Ég hef ekki einu sinni heyrt þá
gagnrýni fyrr. En til eru þeir aðil-
ar innan Sjálfstæðisflokksins, sem
ekki átta sig á því, að stjórnmál
eru valdabarátta, og það er yfir-
leitt fyrsta gagnrýnin sem við
heyrum, sem erum komnir til
áhrifa, það er gagnrýni innan frá.
Gagnrýni frá flokksbræðrum
okkar. Það er einhver sjálfseyð-
ingarhvöt i Sjálfstæðisflokknum,
sem er dæmigerð fyrir það hvað
sjálfstæðismenn taka mest og
hæst undir gagnrýni á sína menn.
Að sjálfsögðu nefni ég engin nöfn,
en mér finnst það vera sterk vís-
bending um sjálfseyðingarhvötina
sem ég nefndi hér áðan, að
flokksmenn geta ekki verið
ánægðir og barist sem ein flokks
heild, þegar Sjálfstæðisflokkurinn
er með hreinan meirihluta I
Reykjavík og á 6 ráðherra af 10 í
ríkisstjórn."
— Ertu með þessu að segja að
innanflokksmein Sjálfstæðis-
flokksins sé það að of margir
sjálfstæðismenn liti á sig sem
sjálfkjörna leiðtoga flokksins?
„Það getur vel verið að þar liggi
hundurinn einmitt grafinn. Þó vil
ég ekkert um það fullyrða. Hitt er
alveg ljóst, að það eru að mínu
mati fullmargir í Sjálfstæðis-
flokknum sem lita á sig sem
sjálfsagt ráðherraefni flokksins."
— Þú hefur fengið orð í eyra
fyrir skattapólitik þina, er hún
réttlát?
„Það sýnir sig við úttekt, að
skattahlutfallið er lægra núna en
það hefur verið þau 10 ár, sem út-
tektin nær til.“
Viðurkennd staðreynd
að hér er stolið
undan skatti
— Hvað með auglýsingaherferð
ráðuneytisins, þar sem nánast er
hrópað „þjófur, þjófur", — er
svona lagað samboðið fjármála-
ráðherra?
„Það er samþykkt af Alþingi að
það skuli gera ráðstafanir til þess
að innheimta söluskatt og skatta
almennt, vegna þess að tölfræði-
legar upplýsingar sýna að það eru
talsverð undanbrögð frá þvi að
skattar innheimtist að fullu. Þeg-
ar svo háttar til, er talað um að
stolið sé undan skatti. Menn ein-
faldlega viðurkenna það sem stað-
reynd í okkar þjóðfélagi, að hér er
stolið undan skatti. Þar af leið-
andi kemur það fólki ekkert á
óvart, þegar ráðuneytið er að taka
vara við slíkum þjófnaði, þar sem
verknaðurinn er þjófnaður í aug-
um fólksins. Það er furðulegt að
til skuli vera menn sem sjá ástæðu
til þess að verja það að dregið sé
undan skatti — stórfurðulegt að
mínu mati.
Hitt er svo annað mál, að þær
auglýsingar sem mest hafa verið
gagnrýndar eru gerðar hér af
ungu fólki, með framtíðarsýn. Ég
„Ég er og verð
fyrirgreiðslu-
pólitíkus“
„Ég er ábyrgur
og enginn annar"
vil gefa þessu fólki tækifæri til
þess að starfa á þann hátt, sem
það heldur að beri árangur, en
vera ekki alltaf að stjórna. Þetta
er ungt fólk, með nýjar og ferskar
hugmyndir, sem fékk að vinna í
friði fyrir mér.“
Ég er einn ábyrgur
— Ertu þar með að frýja þig
ábyrgð af þessum auglýsingum
ráðuneytisins?
„Alls ekki. Ég er ábyrgur, og
enginn annar. Allt, sem þetta
unga fólk vann, Iagði það fyrir
mig, og ég samþykkti. Ég einfald-
lega gaf þessu unga fólki frjálsari
hendur en margur annar hefði
þorað að gera, enda iðrast ég
einskis í þeim efnum. Það þarf
ekki annað en líta á árangurinn af
starfi þessa unga fólks, svo menn
megi sannfærast. Ég nefni sem
dæmi um árangur, auglýsingarnar
um ríkisskuldabréf. Aður en við
byrjuðum að auglýsa á þann hátt
sem við gerum, þá náðum við að
halda í 30% af því fjármagni sem
streymdi út úr ríkissjóði, I endur-
greiðslur af þessum ríkisskulda-
bréfum, en í dag höldum við eftir
74%, þannig að auglýsingamar
hafa borið stórkostlegan árangur
— mun betri en ég þorði að vona.“
— Enn um skattapólitík þína,
Albert. Á sama tíma og hrópað er
„þjófur, þjófur" á hinn almenna
skattborgara, gerist það að þeim
sem eiga hlut í fyrirtækjum, eða
kaupa hlut í fyrirtæki, eru boðnar
skattaívilnanir — getur þetta tal-
ist forsvaranlegt?
„Spyrja þeir sem eru að. gagn-
rýna mig fyrir að vera ekki lengur
málsvari einkaframtaksins, held-
ur ríkisforsjárinnar? Það sem hef-
ur ráðið ákvörðuninni um þessar
skattaívilnanir er að það er verið
að treysta atvinnureksturinn i
landinu og auka atvinnutækifær-
in. Því hefur almenningi verið gef-
inn kostur á að leggja sparifé i
hlutabréfakaup og fengið
skattfrádrátt út á það, sem svarar
25 þúsund krónum á einstakling,
eða 50 þúsund krónum á hjón.“
— En þarf nokkur á skatta-
ívilnunum að halda, sem hefur
efni á því að eiga hlut í fyrirtæki?
Verður að gefa
fólki tækifæri til
þess að eyða minna
„Hann hefði kannski ekki efni á
því, ef hann fengi ekki skattaíviln-
anir. Þessir peningar færu þá
hugsanlega beint í skattana. Það
verður að gefa fólki tækifæri til
þess að eyða minna, en eignast
hlut I fyrirtækjum og verða þar
með beinir þátttakendur í at-
vinnuuppbyggingunni í þjóðfélag-
inu og þar með í uppbyggingu
velmegunar þjóðfélagsins. Slíkt er
að sjálfsögðu til þess að styrkja
einkareksturinn og draga úr ríkis-
rekstri."
— Hefur þá að þínu mati vel
tekist að minnka ríkishítina í tíð
þessarar ríkisstjórnar?
„Já, það hefur tekist mjög vel.
Við fyrstu fjárlagagerð mína var
dregið úr eyðslu, launagreiðslum
og framkvæmdum þannig að fjár-
lögin voru skorin niður um einn
milljarð, og við endurskoðun fjár-
laganna í maí 1984 voru fjárlögin
skorin niður um annan milljarð.
Þar að auki kom árið 1984 jákvætt
út við uppgjör, þannig að 600
milljón krónum minna var tekið í
erlendum lánum en ráðgert hafði
verið í maf. Þessi niðurskurður,
hvort sem er I framkvæmdum,
mannahaldi eða rekstri er auðvit-
að alltaf umdeildur, en fjármála-
ráðherrar verða að vera harðir af
sér, bæði gagnvart almenningi,
stofnunum og ráðuneytum. Fólk
verður hins vegar að gera sér
grein fyrir því að það er ekki hægt
að gera allt á einu kjörtímabili.
Það verður að líta til þess að vand-
inn er uppsafnaður frá mörgum
ríkisstjórnum og því getur tekið
mörg ár að vinda ofan af keflinu."
— Áttu von á því að þessi ríkis-
stjórn sitji út kjörtímabilið?
„Ég sé engan bilbug á þessari
ríkisstjórn. Eg verð að valda þeim
sem eru á móti henni, hvar sem
þeir eru í flokki, vonbrigðum í
þeim efnum.
Hef alltaf
verid umdeildur
— Albert, ef við snúum okkur
frá stjórnmálamanninum Albert
að manninum Albert, af hverju
ertu alltaf svona umdeild per-
sóna?
„Ég hef verið umdeildur frá því
ég man eftir mér, eða allt að því.
Ég var umdeildur sem unglingur,
frá því ég var 10 eða 11 ára. Ég var
umdeildur íþróttamaður hér
heima og erlendis var ég umdeild-
ur, þá sem hæst launaði atvinnu-
maðurinn í knattspyrnu í veröld-
inni um langan tíma, og síðan ég
kom til baka, þá hef ég verið um-
deildur stjórnmálamaður, kannski
umdeildastur af öllum á þessu
tímabili. Þetta heldur stöðugt
áfram, en það er árangurinn sem
talar fyrir sig. Þar sem ég hef
komið nálægt, þar hefur árangur
skilað sér. Það er sama á hvaða
svið þú lítur, á feril minn frá því
ég var keppnismaður, frá því ég
var leiðtogi í íþróttahreyfingunni.
Það standa eftir byggingar sem ég
hef staðið að, það standa eftir
samtök sem ég hef stofnað. Þú
getur bara litið til þess hvernig
Hafnarfjörður lifnaði við þegar ég
var þar, eða hvernig Akranes
byggðist upp íþróttalega þegar ég
var þar, hvernig byggingar hafa
þotið upp, þar sem ég hef lagt
hönd á plóginn, t.d. hjá Knatt-
spyrnusambandinu, að nú ekki sé
talað um höfuðstöðvar Sjálfstæð-
isflokksins, Valhöll, og hvernig
staðið var að þjónustu við aldraða
og fatlaða hjá Reykjavíkurborg,
þegar ég hafði meiri afskipti af
borgarmálum en ég hef í dag. Ég
segi einfaldlega, þrátt fyrir það
hversu umdeildur ég er — ég læt
verkin tala fyrir mig. Ef ég ætti að
fara eftir því hvort eitthvað sem
ég geri er umdeilt eða ekki, þá
væri persónan Albert ekki til.“
— Hefur það ekki nein áhrif á
þig að vera svona umdeildur?
„Það hefur engin áhrif á mig.
Það er eins og verið sé að tala um
allt annan mann.“
— Telur þú að það hafi háð þér,
að þú kemur úr Samvinnuskólan-
um, og hefur þar af leiðandi
kannski ekki átt góða samleið með
þeim sem af mörgum hafa verið
nefndir „lögfræðingaklíka“ Sjálf-
stæðisflokksins?
„Nei, ég tel þetta alrangt. Mér
hefur alltaf liðið vel þar sem ég
hef verið og alls ekki síður innan
um vini mína sem eru lögfræð-
ingar. í íþróttum eru ekki allir há-
skólamenn og ég er alinn upp í
íþróttahreyfingunni. Þessi
manngreiningur er ekki til staðar
þar, enda skiptir hann engu máli.
Þetta hefur því ekki háð mér að
einu eða neinu leyti, enda verða
menn að átta sig á því að menntun
er eitt og að vera víðlesinn er ann-
að. Ég held að menntunin sem
menn fá á langri lífsleið, í gegnum
fjölbreytt störf og dvöl á ólíkum
stöðum, sé miklu betri en nokkur
háskóli. Þeir, sem éru I þessum
lífsins skóla alla sína tíð, eru
áreiðanlega ekki verr menntaðir
en þeir sem eiga að byrja að vakna
til vinnu á fertugsaldri, þótt auð-
vitað viðurkenni ég að nám er
vinna."
— Albert, ertu hégómlegur í
eðli þínu? Sækistu eftir metorðum
og viðurkenningum?
„Nei, það held ég ekki. En viður-
kenningin hún kemur bara með
vel unnu starfi."
— Finnst þér gaman að fá orð-
ur?
„Það hefur engin áhrif á mig.“
— Hefur þú fengið margar orð-
ur?
„Já, ég hef fengið margar orður.
Ég var fyrsti maðurinn sem fékk
orður frá franska ríkinu fyrir
íþróttir, og þær hafa orðið þrjár
taisins. Ég hef fengið orðu frá ít-
alska ríkinu líka, en það er fyrir
mín störf, en ekki vegna þess að
þeir hafi gefið mér orðu, bara til
þess að gefa mér orðu. Þetta eru
bara viðurkenningar fyrir vel
unnin störf, og verða að skoðast í
því ljósi. Til þess að sýna þér
hversu lítil áhrif svona lagað hef-
ur á mig, þá get ég sagt þér að ég
hef ekki geymt einn einasta verð-
launapening sem ég hef unnið á
mínum keppnisferli. Ég hef aldrei
haldið þeim til haga.“
Er að lesa Yes Minister
— Er eitthvað til í því að þú
lesir mjög lítið?
„Nei, ég les mikið á nóttunni."
— Hvað lestu?
„Ég er að lesa Yes Minister
núna í augnablikinu, sem allir
þekkja frá hinum vinsælu sjón-
varpsþáttum og hef mikið gaman
af. Mér til mikillar furðu er allt
satt, sem þarna stendur, því þetta
er allt eftir dagbók ráðherrans og
ráðuneytisstjórans. Ég vissi það
ekki fyrr en mér var gefin bókin.“
— Ein að lokum Albert — hvað
er framundan hjá þér að loknu
þessu kjörtímabili?
„Ég held áfram að taka þátt i
stjórnmálum á meðan fólkið
treystir mér og á meðan ég held að
ég geti orðið að liði.“
Viðtal/ Agnes Bragadóttir
Myndir/ ÓI.K.M.
Sérhönnuö
tölvuhúsgögn
Facit tolvuhusgognm eru serstaklega
honnud meö þægilega vinnuaðstoöu
i huga, þ«u: skiptir ekki mtklu þott
viðkomandi sé hávaxinn eða lágvax-
inn, allt er stillanlegt þannig að það
falli sem best að serkrofum hvers og
Raflagnir þvælast ekki fyrir þvi allt er
innfellt og þvt aöeins ein lina frá
hverju borði.
GÍSLI J. JOHNSEN ITlll
TOLVUBUNAÐUR SF - SKRIFSTOFUBUNAOUR SF
SMiDJUVEGi 8 PO BOX 39’ 202 KOPAVOGl SiM' 'jm
SUNNUHLÍÐ. AKUREVRI SlMl 96-25004
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!