Morgunblaðið - 23.03.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1985
51
„Best að hætta á toppnum"
segir Egill Þorsteins
Karl Þorsteins skákmaður er
kunnur þeim er fylgjast
með f skákheiminum, en hitt
vita færri að hann á bróður, sem
einnig er liðtækur við skákina,
eða svo virtist að minnsta kosti
þegar hann tefldi á skákmóti á
Akranesi fyrir nokkru. Þar
tefldu nokkrir af færustu skák-
mönnum landsins og vann Egill
þá alla.
„Ég hef lítið teflt frá þvf ég
var 15 ára, en þá tók ég þátt f
taflmótum og tefldi hjá Taflfé-
laginu," segir Egill. „Tafl-
mennskan er þannig að hún á
ekki samleið með skólanámi og
hef ég því snúið mér að öðrum
fþróttum, en ég stunda nám í
hyggingaverkfræði við Háskóla
íslands."
„Þú ert ekki að hugsa um að
snúa þér að taflmennskunni eft-
ir skákmótið á Akranesi?“
„Nei, ætli það sé ekki best að
hætta á toppnum," segir Egill og
brosir. „Þetta var einstök heppni
á þessu móti og naut ég þess að
enginn þekkti mig sem skák-
mann.“
„En þú Karl, ertu stöðugt að
tefla og kynna þér skák?
„Það er allur gangur á því,
fyrir skákmót fer mikill tími í
undirbúning, annars vinn ég
meira í skorpum. En tafl-
mennska er skemmtileg, hún
verður að ástríðu og maður get-
ur ekki hugsað um neitt annað.“
„Nú veit ég ekkert um skák, en
það hefur stundum hvarflað að
mér hvort ekki væri hægt að
koma aftan að þessum skáksnill-
ingum og leika einhvern óvænt-
an leik, sem komið gæti þeim úr
jafnvægi?
„Nei, þannig er ekki skák, eng-
inn leikur kemur á óvart. Það
eru margir sem halda að þetta sé
hægt, en þó skák sé sálarstríð þá
þekkja menn oftast andstæðinga
sína á skákmótum og vita hvers
er að vænta af þeim.“
„Teflið þið mikið hér heima
bræðurnir?“
„Það er svona upp og ofan, en
þegar við teflum þá eru það
stuttar 5 mín. skákir. Því er
hinsvegar ekki að neita að þetta
verður allt annað líf að hafa
„þjálfarann" svona heima,“ segir
Karl, „og auðvitað þigg ég af
honum góð ráð.“
Bræðurnir Karl og Egill Þorsteins taka eina 5 mfnútna skák.
„WHAM“-bræður fórn
arlömb slúðurmeistara
George Michael, sá þeirra
Wham-félaga sem meira ber
á að öllu jöfnu, er heldur óhress
með eitt og annað sem sagt er um
hann og Andrew Ridgeley bæði
þessa dagana og einnig áður en
þeir slógu svo rækilega f gegn í
tónlist sinni. Ýmsir hafa nefnilega
orðið til þess að brigsla þeim um
kynvillu. Hvers vegna? Jú, kven-
þjóðin sýpur hveljur af hrifningu
yfir þeim, sem samt sjást þeir
varla nokkrum tfma f fylgd
kvenna, þess oftar saman.
George segir um þetta: „Þetta er
auðvitað eins og hvert annað hjal
öfundarfólks sem þrffst á því að
koma gróusögum á kreik og gleðst
f hjarta sfnu ef þvi tekst vel upp.
Hvílík hjörtu það. Hið sanna er,
að við Andrew erum vissulega
miklir vinir, við höfum þekkst síð-
an við vorum 12 ára gamlir.
Ástæðan fyrir því að við erum
ekki með dömur upp á arminn dag
hvern er sú að við erum vandfýsn-
ir og erum ekki með stúlkum bara
upp á grín. Við erum ekki lausir í
rásinni. Og þess vegna fara ein-
hverjir hálfvitar að tala um kyn-
villu! Hvílíkt og annað eins,“ segir
George mæðulega. Félagi hans,
Andrew Ridgeley, jánkar öllu
saman, en hann er þó talinn held-
ur léttlyndari en George.
Þeir félagarnir hittust fyrst 12
ára gamlir í Bushey Meeds-skól-
anum fyrir norðan Lundúnaborg.
George kom inn í kennslustofuna
nýfluttur í hverfið og Andrew,
sem var gosinn f bekknum, sagði
umsvifalaust: „Hæ“. Þeir smullu
saman eins og bræður og hafa ver-
ið óaðskiljanlegir að kalla siðan.
Þeir eru nú 21 árs gamlir...
George Michael
Komið með í
afmælisgöngu
Útivistar
ÚTIVIST
10 Á R A
Hiö síunga feröafélag, Útivist, er 10 ára og af því
tilefni er öllum sem vilja boöiö í afmælisgöngu á
morgun, sunnudaginn 24. mars. Mæting og brott-
för frá BSÍ, bensínsölu kl. 14.00. Þátttakendur fá
afhenta afmælisferðabók o.fl. Ekkert þátttöku-
gjald.
Gönguleiöir sem koma mörgum á óvart: Öskjuhlíö
— Nauthólsvík — Fossvogsdalur — Elliðaárdalur.
Fríar rútuferöir kl. 17.00 frá Elliöaárstöö. Hægt aö
sameinast göngunni viö heita lækinn kl. 14.30 og í
Skógræktarstööinni Fossvogi kl. 15.30. Létt
ganga fyrir unga sem aldna.
Komiö meö og kynnist Útivistargöngu og
skemmtilegum útivistarsvæöum.
SJÁUMST
ISUZU
TROOPER
isuzu TROOPER
- lúxusvagn í bæjarakstri, ósvikið hörkutól á
fjallvegunum og allt þar á milli. Þetta er einstakur
bíll, búinn þægindum fólksbílanna, krafti og styrk
jeppanna og farþegarými fyrir allt að 9 manns án
þess að nokkurs staðar þrengi að!
isuzu TROOPER
á fáa sína líka!
Kynntu þér verð og greiðslukjör f
-viðtökum flestar gerðir notaðra
bíla upp í og það bjóða fáir betur
í góðum greiðslukjörum.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300