Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987 3 M-hátíð á Isaf irði Frumsýning Þjóðleikhússins á í- lenzku verki meðal dagskráratriða Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra, efnir til menningarhátíðar á ísafirði i samvinnu við bæjarstjórn ísa- fjarðar dagana 3.-6. júní nk. Þessi M-hátíð á ísafirði verður með mjög líku sniði og M-hátíðin, sem efnt var til á Akureyri á liðnu sumri, segir í frétt frá menntamálaráðuneytinu. í fréttatilkynningu segir einnig: „Menntamálaráðherra hefur lýst því yfir, að tilgangur með M-hátíð- um sé að vekja athygli á varðveislu tungunnar og einnig að vekja at- hygli á þeim menningararfí sem byggðimar geyma. Þótti sýnt með M-hátíðinni á Akureyri í fyrra, að full þörf væri fyrir sérstakar menn- ingarhátíðir í byggðarlögum með stuðningi menntamálaráðuneytis- ins, enda komu þá fyrir almanna- sjónir menningarverðmæti, sem allof oft eru iátin liggja í láginni. Má í því sambandi minna á yfírlits- sýningu á málverkum frá akureysk- um heimilum, sem vakti mikla athygli. Auðvitað setur hver staður sinn svip á M-hátíð og svo verður um hátíðina á ísafírði, sem tengist Vestfjörðum öllum, eins og hátíðin á Akureyri tengdist Norðurlandi eystra. M-hátíðin á ísafírði hefst mið- vikudagskvöldið 3. júní með sýn- ingu Leikfélags Flateyrar á leikritinu „Orðabelgur" sem verður sýnt í sal grunnskólans á ísafírði. Daginn eftir, fimmtudag 4. júní, hefst sýning á málverkum úr Lista- safni Islands í frímúrarasalnum á ísafírði. Menntamálaráðherra mun flytja ávarp við það tækifæri ásamt bæjarstjóranum á ísafírði, Haraldi L. Haraldssyni. Þá syngur Guðrún Jónsdóttir nokkur lög. Sýningin verður opin frá kl. 20 til 22 og kl. 15—18 og kl. 20—22 um helgar til 15. júní. Þama verða sýnd verk eftir gamla og nýja meistara. Um kvöldið setur svo menntamálaráð- herra M-hátíðina formlega í félags- heimilinu í Hnífsdal, áður en frumsýning hefst á nýju íslensku leikríti Þjóðleikhúss, „Hvar er ham- arinn?" eftir Njörð P. Njarðvík. Tónlist við leikritið samdi Hjálmar H. Ragnarsson. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. Leikmynd og bún- ingar eru eftir Sigurjón Jóhannsson. Með hlutverk fara Erlingur Gísla- son, Lilja Þórisdóttir, Randver Þorláksson, Öm Ámason, Ólafur Öm Thoroddsen, Valgeir Skagfjörð, Eyþór Amalds, Kristrún Helga Bjömsdóttir og Herdís Jónsdóttir. Föstudaginn 5. júnf hefst dag- skrá kl. 18 í félagsheimilinu í Hnífsdal með sýningu fyrir ungl- inga og fullorðna á verki Njarðar P. Njarðvík, „Hvar er hamarinn?" Um kvöldið verður svo efnt til sam- HÁTÍÐ felldrar dagskrár í Alþýðuhúsinu á Ísafirði, en flutning annast félagar úr Litla leikklúbbnum. Tónlist er undir stjóm Jónasar Tómassonar. Stjóm dagskrárflutnings annast Oddur Bjömsson. Flutt verður efni úr skáldverkum eftir Vestfirðinga og vestfirsk tónlist. Má nefna upp- lestur úr „Söguköflum af sjálftim mér“ eftir Matthías Jochumsson, samlestur úr „Kristrúnu í Hamravík" eftir Guðmund G. Haga- lín, sögu eftir Fríðu Sigurðardóttur og leikþátt úr „Manni og konu“ eftir Jón Thoroddsen. Um kvöldið verður hátíðardansleikur í Sjálf- stæðishúsinu og hátíðardansleikur fyrir unglinga í félagsmiðstöðinni Sponsið. Laugardaginn 6. júní verður efnt til sérstakrar hátíðardagskrár S fé- lagsheimilinu í Hr.ífsdal kl. 14.00. Stjómandi dagskrár verður Þor- valdur Garðar Kristjánsson, forseti sameinaðs þings. Kristinn Jón Jóns- son, forseti bæjarstjómar á ísafirði, flytur ávarp, en síðan mun Sverrir Hermannsson flytja erindi um Jón Sigurðsson forseta og Vestfirðinga. Þá leikur Anna Áslaug Ragnars- dóttir einleik á píanó, Bjöm Teits- son, rektor, flytur erindi sem nefnist „Framtíð íslenskrar tungu". Eftir kaffíhlé, sem gert verður að lokinni ræðu rektors, flytur Sigfús Daða- son, skáld, erindi um Stein Steinar, skáld. Helgi Þorláksson, cand. mag., flytur erindi um Jón Indía- fara, en að því búnu les Guðmundur Ingi Kristjánsson, skáld á Kirkju- bóli, ljóð eftir sig. Hátíðinni lýkur með því að Sunnukórinn á ísafírði syngur undir stjóm Beata Joó. Fyrirhugað er að útvarpa beint frá hátíðarhöldunum, einkum dag- skrá á föstudag og laugardag. Er þess að vænta að Vestfírðingar fjöl- menni til M-hátíðar á Isafírði, einnig þeir sem á brott eru fluttir." Ferðafélag íslands: Umhverfi Esjunnar kannað á göngudegi FERÐAFÉLAG íslands efnir til sérstaks göngudags sunnudag- inn 31. maí nk. og er þetta níunda skiptið í ár sem slík ganga er farin. í þessari göngu verður umhverfi Esjunnar kannað og verður gengin hringferð fremst í Blikdalnum. Blikdalur gengur inn í Esju vestanverða og þegar þjóðvegurinn er ekinn sést inn í mynni hans. Lagt verður upp í gönguna frá bílastæði sunnan Artúnsár. Gengið verður eftir götuslóða spölkom inn dalinn eða þar til komið er inn fyr- ir brúnir gljúfurs Blikdalsár, sem heitir Ártúnsá þegar dalnum slepp- ir. Landið sem gengið er um er greiðfært og hækkun óveruleg frá upphafí göngu þar til snúið er við og hringnum lokað. Til baka er gengið frá útsýnisstað þar sem dal- urinn blasir við göngufólki og niður að gljúfrum Blikdaisár og síðan meðfram þeim að bflastæðinu þar’ sem gangan hófst. Það tekur um tvo og hálfan klukkutíma að ganga þennan hring og er ákjósanleg fyr- ir alla fjölskylduna. Brottför verður kl. 13.00 frá Umferðarmiðstöðinni, austanmeg- in. Þátttakendur geta einnig verið á eigin bflum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.