Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 39
mr uní rs 5nir>AmiTMMrí niGAjavnioaoM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987 Njósnir ísraela í Bandaríkjunum: Biðst ekki afsökun- ar og iðrast einskis - segir Shimon Peres utanríkisráðherra Tel Aviv, Reuter. SHIMON Peres, utanríkisráð- herra ísraels, kvaðst einskis iðrast er hann var í gær spurður um nósnir ísraela í Bandaríkjun- um. Leyniþjónustunefnd ísraels- þings skilaði á þriðjudag skýrslu Noregur: • • Olvaður lög- reglustjóri undir stýri Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins. LÖGREGLUSTJÓRINN í bænum Solvær í Norður- Noregi hefur verið leystur frá störfum sökum ölvunarakst- urs. Lögreglustjórinn tók þátt í veislu mikilli þann 17. maf ásamt öðrum bæjarbúum. Morg- uninn eftir hélt hann að venju til skyldustarfa sinna á lögreglu- stöðinni. Fjöldi manns hringdi hins vegar í ríkissaksóknara Norður-Noregs og var það al- mennt álitið að lögreglustjórinn væri tæpast fær um að stjóma ökutæki. Grunur bæjarbúa reyndist á rökum reistur því áfengismagn í blóði lögreglu- stjórans reyndist yfir leyfilegum mörkum. um njósnir Bandaríkjamannsins Jonathans Pollard og sagði í henni að Peres bæri ábyrgð á hneykslinu umfram aðra emb- ættismenn. „Ég tel mig hafa gert skyldu mína. Ég sé enga ástæðu til þess að biðjast afsökunar og iðrast einskis," sagði Peres í útvarpsvið- tali í gær. Aðspurður kvaðst Peres ekki geta séð að ísraelskir embætt- ismenn hefðu gerst sekir um glæpsamlegt athæfi en ef svo væri myndin þjóðin kveða upp sinn dóm. í skýrslu nefndarinnar um njósn- ir Pollards, sem kom trúnaðarskjöl- um á framfæri við ísraelska embættismenn á árunum 1984 og 1985, eru þeir Peres utanríkisráð- herra , Yitzhak Rabin vamarmála- ráðherra og Moshe Arens, fyirum vamarmálaráðherra, sagðir bera ábyrgð á njósnahneykslinu sem spillti stórlega fyrir sambúð ísraela og Bandaríkjamanna. Abba Eban, fyrrum utanríkisráðherra, var formaður nefndarinnar. Var nafn Peres einkum nefnt í þessu sam- hengi en nefnd, sem ríkisstjómin skipaði og annaðist einnig rannsókn málsins, komst að þeirri niðurstöðu að ríkisstjómin öll bæri ábyrgð á njósnum Pollards. Nefndimar tvær kváðust báðar telja að ráðamönnum hefði ekki verið kunnugt um njósn- ir Pollards en sérstök deild innan vamarmálaráðuneytisins, sem nú hefur verið lögð niður, var sögð hafa fengið hann til starfans. Deild þessi, sem nefndist Lekem, laut >- ■ Reuter Abba Eban, formaður rannsókn- amefndar ísraelsþings, kynnir fréttamönnum niðurstöður nefndarinnar. stjóm leyniþjónustumannsins Rafi Eitan. Voru ísraelsku embættis- mennimir gagnrýndir fyrir að hafa ekki haft stjóm á starfsemi Lekem. Nefndarmenn mæltu ekki með lög- sókn á hendur ráðamönnum en sögðu að þing og þjóð ættu að kveða upp sinn dóm. Pollard, sem er bandarískur gyð- ingur, var fundinn sekur um njósnir og dæmdur til lífstíðar fangelsis- vistar. Kona hans var sögð samsek og dæmd í fimm ára fangelsi. Bandarískir embættismenn hafa enn ekki tjáð sig opinberlega um niðurstöður ísraelsku rannsóknar- nefndanna. ■ ■I 1 ERLENT, Bob Hawke boð- artil kosninga á Astralíu Canberra, Sydney, Ástraliu, Reuter. BOB Hawke, forsætisráðherra Ástralíu, tilkynnti í gær að efnt yrði til kosninga 11. júlí, rúmum átta mánuðum áður en kjörtíma- bilinu lýkur. Sagði ráðherrann að gripið hefði verið til þessa ráðs til að stjóm hans gæti lokið við að endurreisa efnahag Ástr- ala. Hawke lýsti yfir því á þinginu að þinglausnir í fulltrúadeildinni yrðu 5. júní. Hann sagði að Sir Ninian Stephen landsstjóri hefði gefið formlegt samþykki fyrir kosn- ingunum. Stephen er fulltrúi Elísa- betar Bretadrottningar, sem einnig drottnar yfir Ástralíu. Nauðsynlegt var að slíta þingi vegna þess að stjómarandstaðan hefur stöðvað frumvarp um að inn- leiða ný nafnskírteini, sem nota átti í baráttunni gegn skattsvikum og svindli í velferðarkerinu, að því er Hawke sagði. Hann bætti við að Verkamanna- flokkurinn gæti tryggt það jafn- vægi sem væri nauðsynlegt til að efnahagsbati næðist og gera mætti endurbætur, ef hann fengi umboð kjósenda til að stjóma landinu að nýju- „Leyfið okkur að ljúka verkinu," sagði Hawke og fögnuðu þingmenn Verkamannaflokksins ákaft. Verkamannaflokkurinn vann 82 af 148 sætum í fulltrúadeildinni í kosningunum 1984 og 34 sæti í öldungadeildinni. 28 þingmenn Frjálslynda fiokksins sitja í öld- ungadeildinni, fímm þingmenn Þjóðarflokksins, sjö jafnaðarmenn og minnihlutaflokkar eiga tvo menn. Nafnskírteinafrumvarpið strandaði í öldungadeildinni. John Valder, leiðtogi fijálsiyndra og stjórnarandstöðunnar, kvaðst undrandi á að Hawke, sem áður hafði sagst ætla að sitja út kjör- tímabilið, skyldi ætla að efna til kosninga áður en fjárlög verða af- greidd í ágúst. „Hann tekur mikla áhættu og á erfiða baráttu fyrir höndum," sagði Valder. „Aðeins tækifærissinni myndi boða til kosn- inga nú.“ Hawke sagði á blaðamannafundi að hann hefði ákveðið að efna til kosninga vegna þess að stjómar- andstaðan hefði reynt að torvelda stjóminni að stuðla að efnahags- bata Ástralíu. I apríl slitnaði upp úr samstarfi hægri flokkanna, sem staðið hafði í 40 ár, og ríkir því upplausn í her- búðum stjómarandstöðunnar. Klofningur kom upp milli Þjóðar- flokksins, sem sækir fylgi sitt til sveita, og fijálslyndra, sem eiga sitt undir þéttbýlinu, vegna þrýst- ings frá Joh Bjelke-Petersen, forsætisráðherra Queensland. Hann vildi breyta valdakerfinu innan flokkanna. Samkvæmt nýlegum skoðana- könnunum hefur Verkamanna- flokkurinn talsvert forskot á stjómarandstöðuna. Lágmúla 5, sími 681555 Gfobus? Þeir veröa síöan á bifreiöaverkstæöi Gunnars Jóhannssonar, Óseyri 6, Akureyri um helgina. Að sjálfsögðu er opið í sýningar- salnum í Lágmúla. Opið laugardag frá kl. 13-17. KOMDU OG SJÁÐU CITROÉN - ÞÚ HÆTTIR EKKI FYRR! CITROÉNIBORGARNESI Nú gefst Borgnesingum kostur á aö sannreyna gæöi nýju Citroén bílanna. Citroén AX, skemmtilegasti smábíll- inn á markaðnum og riddari götunnar, Citroén BX gera stans í Bílasölu Vest- urlands frá kl.18-22 á föstudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.