Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987 Flexello VAGNHJÓL Nylon-gúmmí pumpuð Allar stærðir Pttulsen Suðurlandsbraut 10. S. 686499. JPtSífjpM^ í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖOINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI Hraðfrystihús Keflavíkur: Hlutafé aukið um 85 milljónir króna Bæjarsjóður leggur fram 20 milljónir HLUTAFE í Hraðfrystihúsi Keflavíkur hefur verið aukið um 85 milljónir og samningar hafa tekist við Landsbankann um skuldbreytingar á vanskilum fyr- irtækisins. Að sögn Guðfinns Sigurvinssonar formanns bæjar- stjórnar í Keflavík er þetta skref í átt til endurreisnar sjávarút- vegsins á Suðurnesjum. Hraðfrystihúsið hefur átt í mikl- um rekstrarerfiðleikum undanfarið. Húsið hefur gert út tvo togara sem hafa haft um 600 tonna minni þorskkvóta en sambærilegir togarar annarsstaðar á landinu, að sögn Guðfmns Sigurvinssonar. Nú hefur bæjarsjóður Keflavíkur gerst hlut- hafi í fyrirtækinu með 20 milljóna króna framlagi, Sambandið hefur jafnframt aukið sitt hlutafé í fyrir- tækinu um 60 milljónir og Kaup- félag Suðurnesja um 5 milljónir króna. Samið hefur verið við Lands- bankann um skuldbreytingu lána sem þar voru komin í vanskil. Guðfinnur sagði að framlag bæj- arsjóðs væri hugsað sem neyðarúr- ræði og hugmyndin er að þegar rekstur fyrirtækisins fer að ganga betur geti það keypt hlut bæjarins aftur. „En bæjarfélagið var tilneytt til að grípa þama í taumana því annars hefði fyrirtækinu verið lokað og togaramir farið út á land og aldrei komið aftur,“ sagði Guð- finnur. Bæjarstjórn Keflavíkur hefur undanfarið látið fyrirtækið Ráðgarð vinna skýrslu um ástand sjávarút- vegs í Keflavík og á Suðumesjum og í skýrslunni kemur fram að þótt kvótakerfið hafí átt fullan rétt á sér og aukið heildarverðmæti sjáv- arafla landsmanna hafí gallar þess og mismunun milli byggðarlaga komið harkalega niður á sjávarút- vegi í Keflavík vegna lélegarar afkomu árin fyrir setningu kvóta- kerfísins. Núverandi aðstæður í útgerð séu þannig að nær útilokað sé fyrir unga sjómenn að eignast bát yfír 10 brúttólestir að stærð því hömlur, lélegur kvóti og yfir- verð báta sé sjómönnum ofviða. Guðfínnur sagði að þessi úttekt hefði verið gert bæjarstjóminni til styrktar við að endurreisa sjávarút- veginn á Suðumesjum. Bæjar- stjómin ætlar nú að halda fund með skýrsluhöfundum og ræða leið- ir til úrbóta. Þar væri hinsvegar þröngur stakkur skorinn; ef menn ætluðu að ná í aflann yrðu þeir að kaupa skip og þau væru á 50-100% hærra verði en eðlilegt gæti talist því kvótinn væri reiknaður til verð- mæta. Því væri eina úrræðið hjá mörgum að kaupa báta undir 10 tonnum og lifa í voninni um að geta einhvemtímann stækkað við sig. Þessar ungu stúlkur færðu Hjálparsjóð Rauða Kross íslands að gjöf 1200 krónur sem þær höfðu safnað. Þær heita Áslaug Þor- björg Guðjónsdóttir, Inga Rósa Sigurðardóttir, Kristín Hrönn Guðmundsdóttir og Anna Lilja Pétursdóttir. Búrefurinn getur orðið hættulegur lambfé á túnum - segir Sigurður Aðalsteinsson, refaskytta á Rangárvöllum „ÆTLI maður byrji ekki á því að fylgjast með búrefnum," sagði Sigurður Aðalsteinsson refa- skytta og verksjóri hjá Land- græðslunni i Gunnarsholti. Grenjatiminn hefst í kringum Mikil aukning í flugflotanum TUTTUGU og fimm nýjar flug- vélar hafa verið skráðar hér á landi frá áramótum, en á næstu vikum eru um 20 vélar væntan- legar til viðbótar. Á síðasta ári voru skráð 30 ný loftför. Vélam- ar sem keyptar hafa verið að undanförnu eru nær allar einka- flugvélar. Bjöm Bjömsson hjá loftferðaeft- irlitinu sagði að hér væri um mikla uppsveiflu að ræða og ætti góðæri eflaust þátt í henni. „Síðast var slík aukning í nýskráningum árið 1980. Þetta gengur oftast f bylgjum og það er augsýnilega ein að rísa núna. Ætli staða dollarans leiki ekki veig- amikið hlutverk," sagði Bjöm. Fróðleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! Hér er að mestu um hreina við- bót við flugflotann að ræða. Aðeins fímm vélar hafa verið afskráðar á sama tímabili. Um síðustu áramót vom skráð 230 loftför á landinu að svifflugvélum meðtöldum. Útvegsbankinn í Vestmannaeyjum: Samstarfsvilji minn er fyrir hendi - segir Vilhjálmur Bjarnason útibússtjóri „ÉG hafnaði í fyrstu endurráðn- ingu en snérist hugur,“ sagði Vilhjálmur Bjarnason útibústjóri Útvegsbankans í Vestmannaeyj- um en staða hans hefur verið auglýst laus til umsóknar. „Nýi bankastjórinn telur að við getum ekki unnið saman og vill ekki láta reyna á það. Telur að það reki sig hvað á annars horn,“ sagði Vilhjálmur. „Þannig að samstarfs- vilji minn er fyrir hendi en það er ekki óskað eftir því. Nýi bankastjór- inn á samkvæmt samþykki bankans að gera tillögu um ráðningu útibús- stjóra og mun hann ekki gera tillögu um ráðningu mína. Þetta er því mál bankastjóra og bankaráðs en ekki mitt iengur.“ Vilhjálmur, sem þegar hefur látið af störfum, sagði að enginn frestur hafi verið veittur til ákvörðunar um endurráðningu. Svarið hafi nánast átt að vera tilbúið þegar bankastjór- inn hringdi. mánaðamótin maí—júní en Sig- urður er þegar byijaður að svipast um og telur að einn eða tveir búrefir séu á sveimi á Rang- árvöllunum. „Maður athugar varpstöðvar til þess að sjá hvort hann hefur komið þar, annars hef ég hann grunaðan um að vera niður með Rangá," sagði Sigurður, sem hefur verið refaskytta í 30 ár. Búrefi kallar hann þá sem sloppið hafa út af refabúunum. Einn slíkur var skot- inn í Þórólfsfelli inn í Fljótshlíð í fyrra. Sigurður sagði að búrefímir höguðu sér allt öðruvísi en villti refurinn. Sá villti fer til dæmis ekki í gegnum girðingar en það gerir aftur búrefurinn og hann fer jafn- vel inn í hús eftir fæðu. Vegna þess hve óhræddur búrefurinn er við hús og menn gæti hann orðið skeinuhættur lambfé heima á tún- um, fari hann að veiða sértil matar. Sigurður náði 17 refum í fyrra sem er með minnsta móti. Hann fer um svæði sem nær frá Múlakvísl að Ytri-Rangá. Á árum áður gerði refurinn mikinn usla á Rangárvöll- um en ekki núna. Það var algengt áður að refaskyttur fyndu 20 lambshræ á greni. Sigurður notar sumarfríið í grenjaleitina. „Þetta er mikil úti- vera og gaman að ferðast um fjöllin og heiðarnar. Svo er gaman að eiga við refínn, þetta er skemmtilegt dýr.“ Sig. Jóns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.