Morgunblaðið - 02.10.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.10.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988 MÁLMHÚS MÖGULEIKARNIR ERU MARGIR í MÁLMHÚSUM FRÁ MÁLMIÐJUNNI H.F. Málmhús eru létt stálgrindarhús boltuð saman á byggingarstað. Allir stálbitar eru sérmótaðir og galvaníseraðir. Upplýsingar hjá söluaðilum og framleiðanda: Málmiðjan hf. sími: 680640 Blikksmiðjan Funi sf. sími 78733 Málmiðjan hf., Ármúla 19, 108 Reykjavík, sími 680640, Telefax 680575 R YMINGARSALA Á ALLSKONAR HÚSGÖGNUM HEFSTÍFYRRAMÁUO, MÁNUDAG T.d.: Svefnherbergishúsgögn m/fataskápum og öllu. Boröstofuhúsgögn, modem og gamaldags. Leðursófasett svört, sófasett m/áklæði. Sófaborð, stakirstólaro.fl. o.fl. Sumt óaðfinnanlegt, annað laskað. Altt frá góðum afslætti niðurí gjafverð. húsgögn Ármúla 44, vesturendi benger SPORTSWEAR Sölustaðir: Alsport hf, Reykjavík Sportbúð Kópavogs Sporthlaðan, ísafirði Búðin, Blönduósi Sýn, Sauðárkróki Rafbær, Siglufirði Norma, Ólafsfirði Kotra, Dalvík Sporthúsið, Akureyri Garðarshólmi, Húsavík Aldan, Seyðisfirði Hákon Sófusson, Eskifirði Nesbær, Neskaupstað Hverfisgötu 105, s. 91-23444. Tillága að alheims menningarhátíð Það er fagnaðarefni að 24. Ólympíuleik- arnir skulu nú vera haldnir hór í Kóreu við góðan orðstír. Guð blessi Kóreu. Öll sameinumst við um að bera fram góðar óskir af þessu tilefni. Ekki hefur mannkyninu tekist að ryðja úr vegi þeirri hindrun sem þjóðarremb- ingur, ólík trúarbrögð og kynþáttamis- munun er í samskiptum fólks. Þess vegna er mannkynið í sárum eftir alls- konar baráttu og stríðsátök. Maðurinn lítur á lífið frá tveim sjónarmiðum, hinu andlega og hinu veraldlega. Ólymptu- leikarnir nú á dögum sem hafa íþrótta- keppni að aðaltilgangi eru hátíðarsam- koma sem á að stuðla að eindrægni í samskiptum þjóða á hinu veraldlegu sviði, en við verðum líka að vinna að innra samræmi, með þvi að byggja upp hinar andlegu og sálrænu hliðar lífsins. Ég legg tii að haldin verði alþjóðahá- tíðarsamkoma helguð menningunni. Nú stendur mannkynið frammi fyrir því verki að takast á við þau öfl sem eyði- leggja andlega menningu og nú þarf að byggja upp nýja menningu friðarins, þar sem Guð, maðurinn og náttúran vinna saman. Þessi hátíðarsamkoma menningarinnar ætti að stuðla að þessu marki með því að saman söfnuð- ust þeir sem fremstir eru í flokki á sviði lista, vísinda, fjölmiðlunar, trúarbragða og efnahags- og stjórnmála, að ógleymdum íþróttamönnum og æsku- lýðsleiðtogum. Þannig mundi hátíðar- samkoma menningarinnar tengja sam- an menningarsamskipti og íþrótta- keppni. í fjörutíu ár hef ég staðið fyrir hreyfingu sem hefur unnið á ýmsum sviðum og vfða um heim að því að hefja sig yfir samkeppni milli þjóða, kenningarkerfa og kynþátta - við höfum haldið margar fræðilegar ráðstefnur undir forustu al- kunnra lærdómsmanna til þess að ræða algildin og það samræmi sem liggur til grundvallar margra þekkingar- sviða. Háskólanemendur og unglingar hafa unnið að framgangi heilbrigðs verðmætamats ungmenna. Einnig hafa verið haldnir fundir trúar- leiðtoga til þess að hvetja til viðræðna og vinna að því að sætta sjónarmið hinna ýmsu trúarbragða og stefna að heimsfriði. Heimsmót fjölmiðla hefur beitt sér fyrir aö auka ábyrgöarkennd fjölmiðlanna. Alþjóða Hjálpar- og vin- áttustofnunin hefur unnið að hjálpar- starfi í þróunarlöndunum. Æðstaráðs- þing heimsfriðar, ráðstefnur fyrir leið- toga á sviði alheimsfjármála og al- þjóðasamtök listamanna vinna einnig að þessum tilraunum okkar, sem ná til alls heimsins. Friðarhátíð þar sem 300.000 manns af öllum kynþáttum söfnuðust saman var haldin í Washington D.C. 18. sept- ember 1976. Yfirlýsing „um að byggja upp nýja heimsmenningu" var sam- þykkt í Seoul 18. desember 1983 á fundi þar sem fulltrúar frá Heimsfriðar- menntastofnun háskólakennara frá 72 löndum tóku þátt. í samræmi við anda þessara funda og í tilefni af hinum sögulega atburði, þegar 24. Ólympíu- leikurinn er haidinn í Seoul, tek ég höndum saman við fulltrúa 120 landa, og geri það að tillögu minni, að haldin , verði alheimsmenningarhátíð. Ég legg til að þessi samkoma standi í tvær vik- ur og sú fyrsta hefjist í Seoul 18. sept- ember 1990. Síöan verði þéssar sam- komur haldnar þriðja hvert ár. Æskufólk dagsins í dag mun skapa menningu framtíðarinnar. Þetta skal vera menning hjartans, sem byggist á kærleika og gefur allri þjóðmenningu tækifæri til að blómgast. Til þess að stuðla að þessari menningarhugsjón, vil ég stefna að því að gera þessa al- heimsmenningarhátíð að þeim viðburði sem vegsamar bræðralag alls mann- kynsins og vinnur að þvi að skapa fyrir- myndarfjölskyldu. Sú fyrirmynd, að mannkynið sé ein fjölskylda sem bygg- ist á fölskvalausum kærleika, hafin yfir kynþátta- og litamismun, leiðir beint að því að óskin um heimsfrið rætist. Karlar og konur sem aðhyllast þessa hugsjón munu fá tækifæri til þess að taka þátt í alþjóðlegum hjónavígslum í nafni Guðs og sýna þar með fylgi sitt við þann málstað, sem vill vinna aö órjúfanlegum fjölskylduböndum og því sem hefur ævarandi slðferðisgildi. Með því að lifa lífi sínu samkvæmt æðstu siðferðiskröfum munu þessi hjón verða fyrirmynd að siðgæði og verða leið sem sýnir hvernig fyrirmyndarfjölskyldur, samfélög og þjóðir myndast. Ég vænti þess að allir vilji stuðla að alheimsmenningarhátíð, sem skal vera tákn um vilja Guðs og draum mann- kynsins. íbúar Kóreu verða einnig að skilja það ætlunarverk sem almættið krefst af þeim nú og gerast leiðandi afl við að koma í framkvæmd samein- ingu allra landa og hemsfriði. Sun Myung Moon Stofnandi Alheimsmenningarhátíðar. Seoul, Kóreu, 27. september 1988. Undirbúningsnefnd 120 landa að Alheimsmenningarhátíð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.