Morgunblaðið - 02.10.1988, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 02.10.1988, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988 t Móðir mín og tengdamóöir, INGIBJÖRG VILBORG BENJAMÍNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Reykjavík 30. september. Benedikt Jasonarson, Margrót Hróbjartsdóttir. t Eiginmaður minn, JÓNAS BÖÐVARSSON, Háteigsvegi 32, lést i Landspítalanum 30. september. Hulda Haraldsdóttir. t Móðir mín, LOVÍSA MAGNÚSDÓTTIR, Ennisbraut 23, Ólafsvík, lést 30. september í Fransiskuspíta Stykkishólmi. Fyrir hönd systkina minna, Sœvar Þórjónsson. t Systir okkar, INGIBJÖRG BETÚELSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. október kl. 13.30. Systklnin. -> TÖLVUTÆKNI Tilgangur námskeiðsins er að gefa nemendum kost á að mennta sig með tilliti til þarfa atvinnulífsins á sem skemmst- um tíma. Tölvutœkninámið er œtlað þeim sem hafa áhuga á að starfa sem forritarar eða hafa yfirumsjón með tölvukerf- um fyrirtækja. Námið er alls 256 klukkustundir og skíptist í 8 áfanga. Hverj- um áfanga lýkur með prófi og kemur einkunn fram á loka- skírteini. Hægt er að velja um dagnám sem tekur 3 mánuði eða kvöldskóla sem tekur rúma 4 mánuði. Dagskrá: ★ Almenn tölvufræði. ★ Notendahugbúnaður. ★ Stýrikerfi. ★ Kerfisgreining og kerfishönnun. ★ Hagnýt stærðfræði. ★ Gagnasafnsfræði. ___ ★ Tölvufjarskipti. __ ★ Forritun. Námið hefst 12. október. Innritun og nánari upplýsingar í síma 687590. Tölvufræðslan Borgartúni 28 Baldvina J. Brynjólfs- dóttir - Minning Fædd 13. janúar 1930 Dáin 24. september 1988 Mágkona mín Baldvina Brynj- ólfsdóttir varð bráðkvödd á heimili sínu 24. september sl. Fréttin kom eins og reiðarslag yfir fjölskyldu og vini. Ég kynntist henni fyrst fyrir rúmum þijátíu árum þegar ég kvæntist Þorgerði systur hennar. Hún bjó þá á Akranesi ásamt eigin- manni sínum og Lindu dóttur þeirra, lítil hnáta hoppaði þar um gólf. Þar var gott að koma, hlýhug- ur og gestrisni. Baldvina fæddist 13. janúar 1930 á Siglufirði, dóttir hjónanna Guð- rúnar Vilmundardóttur, sem varð níræð í sumar og dvelur á Hrafn- istu, og Brynjólfs Jóhannssonar verkstjóra, sem lést árið 1962. Dætur þeirra hjóna voru þijár: Þor- gerður, Baldvina og Sigríður. Badda eins og hún var jafnan kölluð ólst upp á Siglufirði en gift- ist ung Hreggviði Sigríkssyni frá Akranesi. Þau bjuggu þar lengi en síðari árin í Njörvasundi í Reykjavík. Þau slitu samvistum. Hreggviður lést 31. ágúst síðastlið- inn. Einkadóttirin, Guðrún Linda tónlistarkennari gift Sævari Hall- grímssyni bifvélavirkja og eiga þau þijú mannvænleg börn, Inga Þór, Hallgrím og Guðrúnu Baldvinu. Badda var vönduð kona sem öllum vildi gott gera, hlý og trygglynd. Hún reyndist móður sinni einstak- lega vel og heimsótti hana nær daglega á Hrafnistu, Guðrún hefur því misst mikið, en við sem þekkjum hana vitum hve sterk hún er og að þakklæti fyrir alla umhyggjuna er henni efst í huga. Náið og innilegt samband var alla tíð milli Böddu og Lindu dóttur hennar. Það er þung raun fyrir Lindu að sjá á bak foreldrum sínum með mánaðarmillibili. Þá er gott að eiga traustan maka, dugmikil börn og góða vini. Við söknum Böddu og þökkum henni af alhug alla góðvildina og tryggðina. Hörður Jónsson Hver fugl skal þreyta flugið móti sól að fótskör guðs, að lambsins dýrðarstól og setjast loks á silfurbláa tjöm og syngja fyrir lítil englaböm. D. Stefánsson Þó oft sé erfitt að gefa minningun- um mál langar mig með nokkrum orðum að minnast vinkonu minnar og frænku Böddu. Baldvina J. Brynjólfsdóttir fædd- ist á Siglufirði 13. janúar 1930, hún var önnur dóttir hjónanna Guðrúnar Vilmundardóttir og Brynjólfs Jó- hannssonar, Þorgerður er eldri en Sigríður yngri. Við Badda fæddumst og ólumst upp saman á Grandanum og núna síðast á föstudagskvöldið 23. sept. vorum við flissandi yfir ijúkandi slát- urkeppunum að minnast æskuár- anna á Grandanum þegar við í sam- einingu vorum að læðast inn til afa og stelast til að drekka kaffi, bryðja kandís og kremkex. Öll okkar æsku- ár lágu leiðir okkar saman um Grandann, Eyrina og bryggjumar þar sem við byijuðum ungar að salta síldina og stóðum hlið við hlið við síldarkassana. Saman lögðum við ungar land undir fót og fórum suður til að freista gæfunnar. Við leigðum sam- an, unnum saman og skemmtum okkur saman, Badda með gítarinn því hún spilaði mikið og söng og hafði svo fallega söngrödd að mér laglausri var oft sagt að þegja. A VERZLUNARRÁÐ (SLANDS Morgunverðarfundur í Átthagasal Hótel Sögu miðvikudaginn 5. október 1988 kl. 8.00-9.30. HVAÐ ER FRAMUNDAN i ATVINNULÍFINU? Næst verðbólgan niður? Heldur gengið? Hver verður framvindan á vinnumarkaðnum? Fjallað verður um þessi efni og almennt um stöðu atvinnulífsins. Framsögumenn: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins, Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Fólags íslenskra iðnrekenda, og Friðrík Pálsson, forstjórí SH. Fundurinn er opinn, en óskað er eftir skráningu þátttak- enda ísíma 83088 fyrir kl. 16 á þríðjudag. Fundargjald (morgunverður) kr. 400, greiðist vlð inngang. Báðar stofnuðum við heimili, Badda giftist Hreggviði Sigrikssyni sem nýlega er látinn, þau eignuðust eina dóttir, Guðrúnu Lindu, gifta Sævari Hallgrímssyni. Eftir nokkurra ára búskap hér í borg fluttust þau upp á Akranes og þó heimsóknum okkar hvorrar til annarrar hafi fækkað á þessum árum hélst þráðurinn sem aftur var tekinn upp eftir að þau hjón fluttu hingað til Reykjavíkur 1968 og ef við vorum fjarri hvor annarri flugu bréfin og kortin milli landa því frá mörgu þurfti að segja og vinátta okkar varð jafnvel traustari með árunum því núna síðustu vikur og mánuði hefur varla liðið dagur án þess að við töluðumst við og á fimmtudaginn þegar ég hringdi og sagði: Komdu nú í slátur á morgun, var svarið: Já, ástar þökk, ég kem beint úr vinnunni. Voru það því nokkur undur þó ég áttaði mig ekki þegar Linda hringdi í mig daginn eftir og sagði að mamma sín væri dáin. Badda sem í gærkvöldi var hjá mér hress og kát, dáin í dag. Nei, það var eitt- hvað sem ég þurfti að afneita og eigingimin náði tökum á mér, í hvem átti ég þá að hringja á morgun og rabba við um þetta allt sem enginn skilur? En þó ég sakni Böddu og eigi eftir að sakna um ókomin ár em það svo margir aðrir sem eiga um sárt að binda og þess vegna votta ég Lindu, Sævari, bömum þeirra, systr- unum tveim, bamabömum og aldr- aðri móður mína dýpstu samúð. Frá móður minni, Jóhönnu Vilmundar- dóttur, fylgir innileg kveðja með þakklæti fyrir margar ánægjustund- ir á liðnum ámm. En þó komin sé sú kveðjustund sem aldrei snýr til baka, mun mynd af þinni léttu lund enginn frá mér taka. Ragna Höfóar til .fólks í öllum starfsgreinum! KAUPÞING HF Húsi verslunarinnar, sími 686988 E iningabréf Kaupþings - örugg og áhyggjulaus. Eigendur Einingabréfa hafa notið u.þ.b. 13% vaxta umfram verðbólgu nú síðustu mánuði. Einingabréf eru fáanleg á verðgildi alltfrá 1.000 kr. Einingabréf Kaupþings - framtíðaröryggi í fjármálum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.