Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988 Máfurinn Leiklist Guðmundur Daníelsson Máfurinn. Leikrit í Qórum þáttum eftir Anton Tsjekov. Þýðandi: Pétur Thorsteinsson fyrrv. sendiherra. Leikstjóri: Eyvindur Erlendsson. Máfurinn var frumsýndur á Selfossi laugardaginn 29. október 1988. Ég tel nauðsynlegt að skýra frá því strax, að það var ritstjóm Morgunblaðsins, sem bað mig að skrifa eftirfarandi grein, þó að ég sé ekki þjálfaður leiklistargagn- rýnandi. Astæðan var sú, að leik- dómari blaðsins var forfallaður eða_ staddur erlendis. Án þess að vera viss um að ég væri hæfur til verksins, ákvað ég að verða við ósk ritstjómarinnar og sagði já. Ég veit það er áhættu- verk af minni hálfu, að setjast í dómarasæti yfir skáldverkum, þýðandanum, leikstjóranum og stórum hópi leikara sem lagt hef- ur fram krafta sína og hæfileika til að flytja okkur þetta rússneska frægðarverk óbjagað og af réttum skilningi, hingað komið frá Tag- anrog við Asovshaf, Pétursborg og Moskvu, gegnum 100 ára ijar- lægð tímans. Þar sem helstu leikrit Tsjek- hovs hafa verið færð upp á mörg- um íslenskum leiksviðum, geri ég ráð fyrir að flestir leikhúsgestir viti eins mikið eða meira en ég um þennan víðfræga og virta höf- und. Öngvu að síður mun ég láta sem ég sé að flytja nýjan fróðleik, þegar ég tíni til það helsta sem ég man um þetta skáld. Meðal slavneskra þjóða er fálk- inn tákngerfingur kjarks, hreysti, foðurlandsástar og sigurvissu. Máfurinn er annarrar náttúm, mér virðist hann í skáldskap vera andi einmanaleikans: „fer stakur már um miðja vetramótt," segir í ljóði Tómasar. Umhverfi hans eru víðáttur hafsins og vatnanna. í hafnarborginni Taganrog hefur Anton Tsjekhov sem ungur sveinn áreiðanlega séð hann á sveimi uppi yfír strönd og hafí. Hvert stefndi hann? Var hann áttavilltur eins og fuglinn í Ijóði Davíðs? — Hjá Tsjekhov táknaði máfurinn lífíð, frelsið, listina, en ungt ham- ingjusnautt skáld skaut fuglinn sér til skemmtunar og lét stoppa hann upp. Öngvum þarf því að koma niðurlag leikverksins á óvart. Anton Tsjekhov fæddist 17. janúar 1860 í bænúm Taganrog. Hann var þriðji í röð sex systk- ina. Faðir hans var smákaup- maður og varð gjaldþrota, þegar Tsjekhov varð sextán ára. Fjöl- skyldan fluttist þá til Moskvu og bjó þar fátæk næstu árin, en Tsjekhov varð eftir í Taganrog, lauk þar stúdentsprófí og vann jafnframt fyrir sér með einka- kennslu og ritstörfum fyrir skemmtirit og náði fljótt vinsæld- um sem smásagnahöfundur. Eftir stúdentsprófíð 1879 flutt- ist hann til fjölskyldu sinnar í Moskvu, hóf nám í læknisfræði, en hélt áfram að skemmta lesend- um með snjöllum smásögum, gamanþáttum og greinum og not- aði ritlaunin sér og Qölskyldu sinni til framfærslu. Nálægt þrítugsaldri, um 1890, færðist Tsjekhov mjög í aukana sem rithöfundur. Á þeim 14 árum sem hann átti eftir að lifa skrif- aði hann fjögur stór leikrit, sem öll óttu eftir að verða fræg um víða veröld og eru enn leikin á ótal leiksviðum um allár jarðir. Leikrit þessi eru: MSfurinn, Vanja frændí, Þíjár systur og Kirsu- betjagarðurinn. Arið 1895 skrifaði Tsjekhov Máfínn. Leikritið var frumsýnt 1896 í Alexandra leikhúsinu í Pétursborg. Sýningin kolféll og olli því bæði misklíð leikaranna með hlutverkaskipan, nýstárleiki verksins og sá hroki höfuðstaða- raðalsins, að allt sem kæmi utan af landsbyggðinni væri lítilvægt, hvað var Moskva annað en menn- ingarlítið sveitaþorp? Þijú ár liðu. Þá gerðist í Moskvu það sem nefna mætti menningarbyltingu og hafði heimssögulega þýðingu: Listaleik- hús Moskvuborgar var stofnað. Á fyrsta ári þess var Máfurinn frum- sýndur þar — og vann slíkan fá- dæma sigur, að hann hefur enst fram á þennan dag. Anton Tsjekhov kvæntist árið 1901 Olgu Knipper, en um svipað leyti kom í ljós, að hann var veik- ur af berklum. Þremur árum síðar voru dagar hans taldir, hann lést 44 ára að aldri. Máfurinn gerist á sveitasetri gamals og lasburða efnamanns, eignast barn með honum, missir það síðan ungt. En nú dregst hún að skáldunum tveimur, því sem sigrað hefur, en einkum því sem halloka fer. Svo virðist sem unga skáldið sjái um tíma í henni þá persónu, sem lyft geti gáfum hans og verkum upp á himin frægðar- innar. Hann hefur nú samið leik- rit og fær leyfi fólksins á sveita- setrinu, heimilisfólk og gesti, tii að útbúa svið og færa verkið upp. Tjaldið er dregið frá. Fyrst er sviðið autt, það er nótt og glæta tungls, sem veður skýjakrapa. Skyndilega birtist hvít kvenper- sóna á sviðinu, hefur upp hátí- ðlega framsögn, skýrir frá því, að þetta sé að liðnum 200 þúsund árum. Allt líf er löngu útdautt á jörðinni, andinn eða vofan segist vera alheimssálin, sameinuð sál allra sálna. Auðvitað svarar henni enginn, hún ein lifir og er mikið niðri fyrir, sönglar um stund þennan boðskap. En þetta gengur Þóra Grétarsdóttir yst til vinstri í hlutverki Írínu leikkonu, lengst til hægri, Gylfí Þ. Gíslason sem bróðir hennar, Pétur Sorin eigandi sveitasetursins. Péturs nokkurs Nikolaévitsj Sor- in. Hann á annað heimili í borg- inni stóru, þar sem hann hafði árum saman unnið á ráðuneytis- skrifstofu. Ráðsmaður, ráðs- mannskonan og nokkur vinnuhjú reka fyrir hann venjulegan búskap á stórbýlinu. Systir Péturs, miklu yngri að árum, Irína Nikolaévna Trépléva, er fræg leikkona í borg- inni, en heimsækir í tómstundum sínum sveitasetrið. Það gerir einn- ig sonur hennar, 28 ára gamall, Konstantín Gavrilovitsj Tréplev, sem þráir það mest að verða viður- kennt skáld, en á erfítt uppdrátt- ar, bæði hvað andagiftina varðar og peninga, því að móðir hans og móðurbróðir eru hvort öðru nískara, „prímadonnan" móðir hans vill jafnvel sem fæst hafa af honum að segja, því að aldur hans, 28 ár, gæti vakið eftirtekt elskhuga hennar og annarra á því, að sjálf sé hún farin að reskj- ast. Elskhugi leikkonunnar er miðaldra og frægt skáld, Boris Trigorin, sem einnig er gestur í sveitasælunni hjá bróður hennar og skemmtir sér milli ritstarfanna við sportveiði í vatninu mikla, sem ekki er steinsnar í burtu og til- heyrir sveitasetri Péturs. Hann nýtur mikillar aðdáunar, einkum kvenna. Stærsta og vandasamasta hlut- verkið í Máfinum er ung stúlka, dóttir ríks landeiganda í þessu héraði, Nína Mighailovna, sem þráir það mest að verða fræg leik- kona. En hún hefur lent í mis- heppnuðu ástarævintýri með ábyrgðarlausum kvennabósa og ekki til lengdar. Leikkonan fræga, móðir hans, á frumkvæði að því að hrópa niður þessa fáránlegu leiksýningu, þar sem hún er ekki „prímadonna". Læknirinn einn, miðaldra maður, Evgéní Dom, fellst ekki á að þetta brot úr leik- verki sé með öllu ómerkilegt, hér kunni merkilegur fískur að liggja undir steini. En sú skoðun hans fær engan hljómgrunn. Frumraun unga skáldsins og ungu leikkon- unnar fínna alls öngva náð fyrir augum og eyrum annarra, sem viðstaddir eru. Það er eftir þetta eitthvert sinn, sem Konstantin ungskáld skýtur máfinn með haglabyssu og ber hann dauðan í húsið og biður einn heimamanna að stoppa hann upp og láta hann sem stofuprýði standa uppi á skáp. Þar með virð- ist hann sjálfur deyða persónu- gerving hugarflugs og andlegs frelsis eigin sálar. Annars er þetta margræður skáldskapur og verður hver og einn að skilja svo sem hann hefur efni til. Lítum þá á hlut þátttakenda í þessari eftirminnilegu sýningu. Pétur Thorsteinsson fyrrverandi sendiherra í Moskvu og víðar þýddi verkið úr rússnesku. Þýð- ingin virðist gersamlega galla- laus, það er að segja, hún lætur afar vel í eyrum. Leikstjórinn, Eyvindur Erlends- son, er þrautþjálfaður í fagi sínu, auk þess sem hann lærði leik- stjóm í landi skáldsins, R.ússl- andi, og er skáld sjálfur, hann hefur stýrt §ölda leikverka bæði hér á landi og erlendis. Leikstjóm Helena Káradóttir í hlutverki Nínu Mighailovnu ungu leikkonunn- túlkun. Höfundurinn teflir henni gegn „prímadonnunni" og gefur henni afar mikla leikræna mögu- leika. Það ei; aðdáunarvert hversu langt Helena kemst í að nýta þá, svo ung sem hún er. Svipað tvístimi er ungskáldið og frægðarinnar óskasonur, rit- höfundurinn Boris Trigorin, sem áreynslulítið hreppir allt, sem metnaður hans krefst og hæfileik- ar hans gera honum mögulegt, það er jafnvel eins og hann upp- skeri meira en hann sáir. Þessi maður, Boris Trigorin, er leikinn af Sigurgeiri H. Friðþjófssyni. Ég man ekki til, að ég hafi fyrr séð hann á leiksviði, en hann sómdi sér þar vel og fór ágætlega með hlutverkið. Axel Magnússon leikur Evgéní Dom, miðaldra lækni. Axel þekk- ist ekki frá þrautþjálfuðum at- vinnuleikurum, hann er nákvæm- lega eins og hann á að vera, en hlutverkið er ekki mjög stórt, samt sem áður athyglisvert. Þá vil ég nefna tvær kunnar leikkonur, Ester Halldórsdóttur og Sigríði Karlsdóttur. Þær leika mæðgur, báðar vansælar mann- eskjur á sveitasetri Péturs Sorin. Ester leikur eiginkonu ráðs- mannsins, Pálínu Sjamarevu, og Sigríður leikur Maríu (Mösju) dóttur ráðsmannshjónanna. Fegin hefði Masja viljað eiga unga rit- höfundinn, sem ekki þýðist hana. Loksins refsar hún sjálfri sér og kennara sínum, Símoni Símoní- vitsj, með því að játast honum, þessum dapurlega meinleysingja. Báðar skila þær Ester og Sigríður hlutverkum sínum eins vel og á verður kosið, en hlutverkin virðast fremur auðveld. Af stærri hlutverkum er þá aðeins eitt ótalið, Ilja Sjarmaév ráðsmaður. Hann er hressilegur náungi, húsbóndahollur og oft bráðskemmtilegur í neyðarlegum vandamálaatriðum, þar sem rek- ast á þarfír búskaparins og kröfur gestanna úr borginni. Bjarkar Snorrason leikur ráðsmanninn af mátulegri röggsemi. Vinnumann, matreiðslumann og þjónustustúlku leika Pétur H. Valdimarsson, Valdimar I. Guð- mundsson og Guðlaug E. Ólafs- dóttir. Hlutverkin eru lítil og gefa ekki ástæðu til sérstakrar um- sagnar. Auk leikaranna vinna a.m.k. 15 manns við uppfærslu og sýn- ingar verksins. Leikið er í gamla Iðnskólanum við Árveg. Leik- myndina gerði leikstjórinn, Ey- vindur Erlendsson, aðstoðarmað- ur hans er Guðmunda Gunnars- dóttir, ljósamaður Kristbjöm Ól- afsson. Ánægja frumsýningargesta leyndi sér ekki. hans á Mafinum er frábær en að mínum dómi leiddi hann verkið of hægt í síðara hluta 4. þáttar, mér fannst ungskáldið vera of lengi að eyðileggja handrit sín. Þóra Grétarsdóttir er vafalaust í hópi bestu leikara landsins og fataðist auðvitað hvergi í hlut- verki írínu, rosknu leikkonunnar, sem haldin er alveg takmarka- lausri sjálfselsku, krefst þess að vera dýrkuð og dáð, er dómhörð og daðurgjöm. Unga skáldið misheppnaða, Konstantín, er leikið af Davíð Kristjánssyni. Þetta er afar van- dasamt hlutverk og líklega er Davíð nýliði í leiklistinni. Margt gerði hann vafalaust vel, rödd hans er skýr, en svipbreytingar eru of hóflegar og blæbrigði radd- arinnar voru að mínum dómi of lítil, maðurinn er að beijast fyrir lífí sínu, og týnir því raunar að lokum. Gylfi Þ. Gíslason leikur Pétur gamla sveitaseturseiganda, bros- lega persónu frá höfundarins hendi. Pétur var einnig broslegur í túlkun Gylfa og gervið nálgaðist grfn. v/ Þá kemur að því hlutverki Máfsins, sem líklega er vanda- samast af þeim öllum, ungu stúlk- unni Nínu Mighailovnu, sem leitar ástarinnar, frægðarinnar og frels- isins, en fínnur hvergi neitt nema vonbrigðin. Mjög ung leikkona, Helena Káradóttir, fer með hlut- verkið. Með góðri samvisku er hægt að gefa henni háa einkunn fyrir leik sinn, þó að vissulega sé hægt að hugsa sér áhrifameiri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.