Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988 Alþj óðaráðsteftia: Strangari reglur gegn lyfjanotkun meðal fþróttamanna Borlange, Svíþjóð. Reuter. SÉRFRÆÐINGAR á sviði læknavísinda komu i gær saman á ráð- stefnu svonefnds lyQahóps íþróttaráðs Evrópu í Borlange í Svíþjóð °g hyggjast þeir leita leiða til að kveða niður lyfjamisnotkun iþrótta- manna sem nýög hefur verið til umræðu eftir Ólympiuleikana í Seoul. Þá var kanadíska spretthlauparanum Ben Johnson vísað á brott og honum gert að skila gullverðlaunum sinum er upp hafði komist um ólöglega lyfjatöku hans. Reuter ísraelskir hermenn á jarðýtu ryðja burt tijám á þeim stað þar sem fiunm bensínsprengjum var kastað inn i langferðabifreið á sunnudag. Ung móðir og þijú böm hennar týndu lífil í árásinni. Gert er ráð fyrir að lyfjahópurinn samþykki strangari reglur gegn lyfjamisnotkun en áður hafa þekkst. „íþróttir eru tákn alls þess sem er gott og heiðarlegt í mannlegri viðleitni. Lyfi'amisnotkun er and- stæð þessum eiginleikum og því verður að kveða hana í kútinn. Þessa orrustu verðum við að vinna," sagði sir Arthur Gold, forseti ráð- stefnunnar. Sem stendur er aðeins leitað skipulega að lyfjum í þvagi þeirra Palestínumenn verða móður og þremur börnum að bana: Tilræðið talið vatn á myllu hægriflokkanna Jerúsalem. Reuter. ÞÚSUNDIR ísraela syrgðu í gær ísraelska konu og þijú böm hennar, sem týndu lífi þegar bensínsprengju var kastað inn í lang- ferðabifreið á Vesturbakkanum á sunnudagskvöld. Talsmenn Verkamannaflokksins, sem samkvæmt skoðanakönnunum, sem gerðar voru á sunnudag, nýtur álika mikils fylgis og Likudflokkur- inn, sögðust óttast að slíkar árásir gætu leitt til þess að óákveðn- ir kjósendur myndu flykkjast um Likudflokkinn í kosningunum í dag. Likudflokkurinn hefur heitið þvi að bæla óeirðirnar á her- numdu svæðunum niður. Palestínumenn sátu um lang- ferðabifreiðina skammt norðan við bæinn Jericho á Vesturbakkanum, neyddu bflstjórann til að hægja ferðina og köstuðu fimm bensín- sprengjum í bifreiðina. Eldur kom upp í bifreiðinni og 26 ára gömul móðir, Rachel Weiss, fórst ásamt þremur bömum sínum, 10 mánaða til 3 og hálfs árs gömlum. Eigin- maður konunnar stökk út úr bif- reiðinni og bauðst til að hjálpa henni út en hún þáði það ekki, sagðist vilja vemda bömin sín. Fimm til viðbótar siösuðust i árás- inni, þar af einn alvarlega. Yitzhak Rabin, varnarmálaráð- herra ísraels, skýrði frá því í gær að ísraelski herinn hefði handtekið tugi Palestínumanna í Jericho og tveir hefðu þegar viðurkennt að hafa tekið þátt í árásinni. Her- menn eyðilögðu einnig þijú hús í bænum, sem voru í eigu Palestínu- manna sem gmnaðir em um aðild að árásinni. Þúsundir ísraela gengu frá heimili foreldra Weiss til kirkju- garðsins þar sem hún var jarð- sett. Verkamannaflokkurinn af- lýsti síðasta kosningafundi sínum vegna árásarinnar. Yitzhak Shamir, forsætisráð- herra ísraels, hét því að Palestínu- mönnum í grennd við Jericho yrði hegnt fyrir árásina. Yitzhak Rabin vamarmálaráðherra sagði í út- varpi hersins að árásin á lang- ferðabifreiðina gæfi ekki til kynna að óeirðimar á hemumdu svæðun- um hefðu tekið nýja stefnu, heldur hefðu árásarmennimir beitt að- ferðum sem oft hefðu sést áður á svæðunum. Hægrisinnar hvöttu til þess ■ að palestínskum óeirðaseggjum yrði þegar í stað vísað úr landi. „Við ásökum alla þá í heiminum sem hafa stutt Frelsissamtök Palestínumanna," sagði Geula Cohen, félagi í hægri- sinnaða Tehiyaflokknum við útför Weiss. „Hendur heimsbyggðarinn- ar eru ekki hreinar af þeim blóðs- úthellingum sem færði okkur hing- að til að syrgja," bætti hann við. Tíu ísraelar og 314 Palestínu- menn hafa týnt lífí síðan óeirðim- ar á hemumdu svæðunum hófust. Framtíð hemumdu svæðanna og intifada, uppreisn Palestínumanna á hemumdu svæðunum, hafa verið helstu kosningamálin. Likudflokk- urinn, undir forystu Shamirs for- sætisráðherra, er mótfallinn því að ísraelski herinn yfirgefí hluta hemumdu svæðanna til að hægt verði að komast að samkomulagi um frið en er hlynntur því að Pale- stínumenn á svæðunum hljóti tak- markaða sjálfstjóm. Verkamanna- flokkurinn vill að boðað verði til kosninga á hemumdu svæðunum þar sem kosið verði um fulltrúa íbúanna á alþjóðlega ráðsteftiu um frið á Mið-Austurlöndum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hann er einnig hlynntur því að ísraelsher yfirgefi hluta svæðanna til að hægt verði að semja um frið. Fréttaskýrendur telja að næsta ömggt að árásin á sunnudag muni auka fylgi hægriflokkanna. „Þetta er besta gjöfin sem hægri öfga- flokkamir geta fengið á kosninga- deginum," sagði Amnon Rubin- stein, fyrrum ráðherra. Leiðtogar Likudflokksins hétu því á síðasta kosningafundi flokksins á sunnu- dag að endi yrði bundinn á upp- reisn Palestínumanna bæri flokk- urinn sigur úr býtum í kosningun- um í dag. íþróttamanna sem vinna til verð- launa á stórmótum og geta menn því óhræddir tekið lyf meðan þeir stunda æfingar. Markmiðið með ráðstefnunni er að ná samkomulagi um reglur varðandi fyrirvaralausar kannanir hvenær sem er. Tíu íþróttamenn voru dæmdir úr leik á Olympíuleikunum í Seoul. Um þá sagði Sir Arthur: „Aðeins þeir sem voru kærulaus- ir og höfðu lélega ráðgjafa voru teknir. Fjölmargir aðrir hættu að nota ólögleg lyf nógu snemma fyrir leikana til að ekki yrði hægt að greina lyfin." Sennilegt er að gerð- ar verði tillögur um samræmingu á refsiákvæðum fyrir lyfjamisnotkun, skipulegar kannanir I æfingabúðum og markvissari samvinnu milli lækna í aðildarríkjum íþróttaráðs- ins sem 35 ríki eiga aðild að. Á ráðstefnunni I Svíþjóð eru áheyrn- arfulltrúar frá Afríkuríkjum, Ásíu og Norður-Ameríku. „Hver veit nema mál Bens Jghnsons hafi f reynd verið hið mesta happ og verði til þess að eitthvað verði nú gert í málunum," sagði einn fulltrúanna á ráðsteftiunni. Coventry: A „Afengis- laust svæði“ Coventry. Reuter. í MIÐBORG Coventry á Englandi hefúr verið komið á „áfengis- lausu svæði“, sem felst í því, að áfengisneysla utan dyra er bönn- uð. Ef út af er brotið varðar það rúmlega 8.000 kr. sekt. Coventry er fyrsta breska borgin, sem fær leyfí þingsins til að banna áfengisneyslu undir berum himni. Tekur bannið til 100 stræta í mið- borginni og verður þar komið fyrir skiltum með yfirstrikaðri bjórkollu. Það, sem vakir fyrir borgarfeðrun- um með banninu, er að koma f veg fyrir uppivöðslusemi drukkinna unglinga. Bandaríkin: Reuter Tilræðismaður fyrir rétt Kartal Demirag, sem reyndi að ráða forsætisráðherra Tyrk- lands, Turgut Ozal, af dögum á flokksþingi 18. júni, kom i gær fyrir rétt i Ankara, höfiiðborg Tyrklands. Tilræðismaðurinn á 20 ára fangelsisdóm yfir höfði sér. Dukakis sækir í sig veðrið Washington. Reuter. MICHAEL Dukakis, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins i Bandaríkjunum, virðist hafa bætt stöðu sína nokkuð undanfama daga. Skoðanakannanir sýna að visu að George Bush, frambjóðandi repúblikana, hefiir mikla yfirburði yfir keppinaut sinn og er munur- inn á bilinu 7 til 10 af hundraði á landsvísu. Hins vegar hefúr dreg- ið saman með frambjóðendunum í Qölmennustu rikjunum sem hafa flesta kjörmenn og einnig hefúr borið mun meira á Dukakis en Bush í Qölmiðlum. Það vakti mikla athygli er Duk- akis sagðist í sjónvarpsviðtali í gær fylgja fijálslyndisstefnu „f anda þeirra Franklins Roosevelts, Harrys Trumans og Johns Kennedys." Hugtakið fijálslyndur (liberal) hef- ur á síðari árum oft verið notað um vinstrisinna í Bandaríkjunum en Dukakis sagðist ekki ætla að leyfa repúblikönum að misnota það. Repúblikanar hafa mjög hamrað á því að Dukakis sé vinstrisinnaður, vilji hækka skatta og draga úr vam- arbúnaði landsins. Dukakis sagðist vera íhaldssamur hvað snerti ríkis- fjármál og sakaði repúblikana um ábyrgðarleysi í þeim efnum. Eitt af mestu vandamálum bandarískra stjómmála er gífurlegur fjárlaga- halli sem farið hefur ört vaxandi á stjómarárum Reagan-stjómarinn- ar. Dukakis sagði að Reaganstjómin hefði látið undir höfuð leggjast að ákveða hvort Midgetman-kjama- flaugar eða MX-flaugar yrðu stofn- inn í langdrægum kjamorkuvopna- búnaði landsins. Bush hefur svarað því til að Dukakis hafí verið andvíg- ur öllum nýjum vopnum og stutt þá stefnu að „frysta" tölu kjama- vopna sem hefði komið í veg fyrir alla þróun á þessu sviði. George Bush hafði ráðgert að taka sér hvíld á sunnudag en þess í stað brá hann sér skyndilega til PennSylvaníu, sem er eitt af §öl- mennustu ríkjunum, og ræddi þar við kjósendur. Dukakis hefur hvatt Bush til að mæta sér í sjónvarpsein- vígi rétt fyrir kjördag sem er 8. nóvember. Bush hefur neitað og sagt kjósendur hafa fengið nóg af slíku; frambjóðendurnir hafa þegar mæst í tveim slíkum einvígjum. Allmörg dagblöð hafa þegar tek- ið afstöðu til frambjóðendanna. Stórblaðið New York Times styður Dukakis og segir aðalástæðuna vera stefnu hans í ríkisíjármálum en þar verði næsti forseti að lyfta Grettistaki. Vaxandi ijárlagahalla i tíð Reaganstjómarinnar muni síðar verða lýst sem „ægilegri synd ... og hrikalegu ábyrgðarleysi.“ Detro- it News styður hins vegar Bush og segir nauðsynlegt að stefnu Reag- ans forseta verði fylgt áfram. Hins vegar segir blaðið Bush hafa gert mistök er hann valdi Dan Quayle sem varaforsetaefni sitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.