Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988 TÖLVUSKÓLI GJJ Námskeið í 60 klst. TÖL VUÞJÁLFUN fyrir byrjendur 7.-25. nóv., kl. 8.30-12.30 Skráning og upplýsingar í síma 641222 GÍSLI J. JOHNSEN n 1 Nýbýlavegi 16, Kópavogi Sími 641222 SIEMENS Kæliskápur á kostaverði! KS 2648 • 144x60x60 sm (hxbxd). • 189 I kælirými. • 67 I fjögurra stjörnu frystihólf. Verð: 39.900 kr. SMiTH & NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 „Hér er eina ósnortna Qaran á Reykjavíkursvæðinu." — Séð frá Laugamesi til Viðeyjar og Esjunnar. ,v...hann tók snjó af þaki bifreiðarinnar og lgassaði“ í tilefhi áttræðisaftnælis Signrjóns Ólafssonar myndhöggvara eftir Gunnlaug Baldursson „Borges, argentínski höfundur- inn frá Buenos Aires, kom til ís- lands ... Ég fór með hann til Sigur- jóns Ólafssonar, okkar snjalla myndhöggvara. Borges fór sínum brothættu fingrum um kraftmikil listaverkin eftir Siguijón, með öðru auganu sá hann nóg til þess að vita að það var sjórinn fyrir utan gluggann snjórinn í fjörunni rann saman við hann. Þegar við komum út var Borges svo snortinn eftir þessa heimsókn að hann tók snjó af þaki bifreiðarinnar og kjassaði. Ur bókinni „Piskur í sjó, fugl úr beini“_ eftir Thor Vilhjálmsson, bls. 158. Ég minntist þessarar frásagn- ar Thors Vilhjálmssonar í sumar sem leið, þegar ég sýndi vinum mínum, þýskum læknishjónum, Laugamestangann, þar sem högg- myndir Sigutjóns Ólafssonar standa, stórbrotnar í alíslensku umhverfí og fann hversu afar sterk- um tökum þessi síðdegisstund tók gestina. Læknishjónunum varð Stjórnunarfélag isiands TÖLVUSKOLI Ánanaustum 15 Simi: 6210 66 mm (QIÆSY/M) OGIDDV Athugið! VR og starfs- menntunarsjóður BSRB styrkja fé- lagsmenn sína til þátttöku í nám- skeiðum SFÍ. Þú verður þinn eigin „kerfisfræðingur“ á IBM System/36 Getur notað gagnasöfnin, gert fyr- irspurnir og útbúið prentlista, svo nokkuð sé nefnt. IDDU (Interactive Data Definition Utility) er skrásetningin sem þú notar í Svara/36. Leiðbelnandl: Ragna Sigurðardóttlr Guðjohnsen. Tíml og staður: 7.-9. nóvomber kl. 8.30-12.30 í Ánanaustum 15. þessi stund og innlitið í Listasafn Sigurjóns Ólafssonar síðar um kvöldið ógleymanleg og einn af hápunktum íslandsferðarinnar. Kom þar allt saman: Höggmyndim- ar, útsýnið af Laugamesinu með Snæfellsjökul við sjónarrönd, öldu- hljómurinn, fuglamir í Norðurkots- vörinni, ótrúleg rómantík, líkt og við værum stödd á miðri síðustu öld og vantaði til þess í rauninni einungis, að við hefðum hitt þama Heinrich sjálfan Heine til að stað- festa tímasetninguna. Hefði Heine í staðinn fyrir Ítalíu- flakk sitt komið við í Laugamesinu hefði hann samþykkt með sínu næma auga að hér væm ekki síður en í Lucca sérstakir staðhættir sem í heild verða að perlu og sérhver okkar getur enn í dag sannfært sig um að perlan er enn til staðar, af því að hér: — er eina ósnortna íjaran á Reykjavíkursvæðinu — stórkostlegt og einstakt útsýni — náttúran óspillt og tær — fuglalíf — sögulegar minjar og höggmyndir Siguijóns Ólafsson- ar. Við getum þjargað perlunni yfir í næsta árþúsund ef við stöndum gegn ýmsum furðulegum hugmynd- um sem komið hafa fram hin síðari ár um: — stækkun Töllvörugeymslunnar — smábátahöfn fyrir 900 báta — þungaflutningaveg um þvert Laugames — ýmsar aðrar uppbyggingar- hugmyndir. Tímabundnir hagsmunir vissra aðila verða auðvitað að víkja fyrir þeim þáttum, sem meira gildi hafa fyrir framtíðina; á miðju svæði upp- bygginga og framkvæmda hefur haldist, sennilega mest af tilviljun, opið svæði sem hefur gæði og Laugamesið hefur allt önnur gæði en þessi ömurlegu „grænu svæði“ í Reykjavík, sem dreiðf eru um alla borg (og gera hana geipilega stóra að flatarmáli og þar með dýra í rekstri). Kostirnir sem í Laugarnes- inu eru að fínna eru fyrst og fremst sú staðreynd að hér er ekki um ræktaða vin að ræða, heldur hluta af náttúrunni. Fyrir utan þá stað- reynd að hér er hægt að komast í tengsl við sjó og náttúruöfl og það eitt nægir til að staðurinn hafi mik- ið gildi mætti auðvitað athuga hvemig hægt væri að auka þær gersemar sem fyrir hendi eru. Það sem hinn aldraði rithöfundur Borges fann þegar hann kom hér á árunum var að auka má stór- brotna náttúruna enn og víkka sjón- deildarhring manneskjunnar ef skapandi verk mannsins eru sett á réttan hátt í landslagið. Sennilega hefur Sigutjón ekki valið Laugarnesið til búsetu af til- viljun. Athugunarvert væri að setja hér upp „höggmyndagarð". í Evr- ópu eru til nokkur dæmi um slíkt, þó staðhættir séu auðvitað alltaf mismunandi og því ekki beint sam- bærilegir. Þekktir og vinsælir garð- ar af þessu tagi eru t.d. Sonsbeck og Kröller-muller við borgina Arn- heim í Hollandi. Þá má og nefna Middelheim í Antwerpen, Belgiu. Vitanlega þarf að fjarlægja órækt- ina en ekki með því að setja í stað- inn niður tijárækt! Jafnframt þyrfti að koma betur til skila samhenginu við Viðey (raunar er þegar búið að eyðileggja allt eðlilegt samband með Sundahöfninni). A staðnum er svokallaður „Köllunarklettur", sem minnir á að sterkt samband var við Viðey. En. þar sem nú fer fram hugmyndasamkeppni um notkun útivistarsvæða í Viðey væri mikil- vægt að Laugarnes gleymdist ekki, þar sem enginn efi er á, að á milli þessara útivistarsvæða er samhengi og þau reyndar nánari en margur gerir sér grein fyrir. Höfundur er arkitekt. Flróðleikur og - skemmtun fyrirháa semlága!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.