Morgunblaðið - 01.11.1988, Side 33

Morgunblaðið - 01.11.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPn/AIVINNUIÍr ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988 33 Noregur Erfítt endurreisnarstarfeftir mestu bankakreppu í 60 ár ÁSTANDIÐ í norskum banka- málum er nú með þeim hætti, að ætla mætti, að kerfið allt væri að hrynja til grunna. Ekki síðan í kreppunni miklu fyrir 60 árum hafa bankarnir gengið í gegnum annað eins erfiðleikatímabil. í síðasta mánuði neyddust norski seðlabankinn og tryggingasjóður viðskiptabankanna til að grípa til aðgerða vegna gjaldþrots Sunn- mörsbankans, sem er meðalstór banki í Noregi, og var þar aðeins um að ræða síðasta áfallið af mörg- um. Hófst þessi raunasaga á síðasta ári en þá töpuðu bankamir miklu fé á lánastarfsemi og verðbréfavið- skiptum. Tapa 41 milljarði á árinu Það sýnir best hve ástandið er alvarlegt, að yfirvöld banka-, verð- bréfa-, trygginga- og gjaldeyris- mála spáðu því nú fyrir skömmu, að norska bankakerfið í heild myndi tapa 5,95 milljörðum norskra króna, rúmlega 41 milljarði Isl. kr., á þessu ári. Er það næstum helm- ingi meira tap en í fyrra þegar það var 3,1 milljarður nkr. eða rúmlega 21,7 milljarðar ísl. kr. Talsmenn norska seðlabankans segja, að Sunnmörsbankinn sé ein- angrað fyrirbæri en það stangast á við fyrri yfirlýsingar, sem að vísu voru dregnar til baka, um að erfið- leikarnir steðjuðu að bankakerfinu öllu og mætti því búast við fleiri gjaldþrotum. Alþjóðlegar stofnanir, sem vega og meta lánstraust einstakra ríkja, fögnuðu afskiptum norska seðla- bankans af málefnum Sunnmörs- bankans en annars hefur það álit, sem Norðmenn hafa notið á al- þjóðlegum Qármagnsmarkaði, held- ur minnkað síðan ríkisstjómin ákvað í fyrra að standa ekki við fjármálalegar skuldbindingar Kongsberg-vopnaverksmiðjanna en þær eru ríkisfyrirtæki. Raunar hef- ur lánstraustið verið á viðkvæmu stigi síðan 1986 þegar olíuverðið hrundi með alvarlegum afleiðingum fýrir allt efnahagslífíð. Afleiðingar olíuverðslækkunar- innar hrísluðust um allt bankakerf- ið, sem hafði lánað mikið til olíuiðn- aðarins, og síðan bætti hrunið á verðbréfamarkaðnum gráu ofan á svart á sama tíma og bankamir höfðu verið að stórauka verðbréfa- eign sína. Den norske Creditbank, DnC, fór verst út úr þessum svipt- ingum en síðan hefur verið gripið til róttækrar endurskipulagningar þar á bæ og miklar breytingar gerð- ar á allri yfirstjórninni. < Sprengdu sig á samkeppninni Snemma á þessum áratug var bankastarfsemin í Noregi gerð frjálslegri og varð það meðal ann- ars til að stórauka samkeppnina milli þeirra og ýta undir mikla út- lánaþenslu. Vegna skorts á innra eftirliti freistuðust þá margir bank- ar til að lána meira en góðu hófi gegndi. Þær aðhaldsaðgerðir, sem ríkisstjórnin hefur nú gripið til í efnahagsmálum, hafa komið illa niður á bönkunum og valdið því, að margir hafa orðið gjaldþrota. Rekstrarkostnaður norskra banka er mikill og þótt talsmenn neytenda mótmæli hástöfum er búist við, að þeir reyni að bæta sér hann upp með því að hækka þjón- ustugjöldin. Þá er verið að vinna að því að fækka starfsfólki veru- lega, jafnt í viðskiptabönkunum sem sparisjóðunum. Kristian Rambjör, nýr yfirmaður DnC, hófst handa við „hreingern- inguna" í ágúst síðastliðnum. Er hann oft kallaður „Rambo" manna á meðal og ekki að ófyrirsynju því að hann hefur orð sér fyrir að láta hendur standa fram úr ermum. Frá 1982 til 1985 hafði hann forystu fyrir endurskipulagningu Aker Norcem, einnar stærstu iðnaðar- samsteypu í Noregi, en það, sem hann ætlar að gera í málefnum DnC, er þetta: Losa bankann við eignir, sem ekki gefa af sér nægan arð. Það SAMNINGAR hafa verið gerðir við Stomo fyrirtækið um af- hendingu nýs bílsímakerfis tii reynslu. Pjögur af Norðurlöndun- um, Danmörk, Finnland, Noregur og Sviþjóð hafa náð forskoti i samkeppninni sem rikir í Evrópu um uppbyggingu á sameiginlegu bilsimakerfi næsta áratuginn. Yfirmenn símamála í löndunum §órum hafa nýlega skrifað undir samning við stærsta bílsíma fyrir- tæki Danmerkur, Stomo. Samning- urinn er talinn hljóða upp á um 100 milljónir ísl. króna. Bílsímakerfíð nýja er til reynslu og nefnist GSM kerfíð. GSM, sem er skamstöfun fyrir Groupe Speciale Mobile, gérir notandanum kleift að nota bílsíma sinn í öllum 17 Evrópul- öndum áem eru aðilar að CEPT, Póst og í Símamálastofnun Evrópu. Reiknað er með því að í nánustu framtíð ryðji GSM kerfið öðrum burt og þar á meðal NMT 900 kerf- inu norræna sem er útbreiddasta bílsímakerfi í Evrópu. Löndin fjögur ætla að vinna markvisst að framgangi málsins, en kerfið nýja byggir að sjálfsögðu á nýjustu tölvutækni, sem gömlu kerf- in gera ekki. Ekki er vitað enn hvort sam- þýðir í raun, að uppfylla skuli kröf- ur ríkisvaldsins um hlutfallið milli höfuðstóls og skuldbindinga bank- ans. Það er nú 6,5% og verður síðar að vera í samræmi við tilmæli Cook-nefndarinnar fyrir árið 1992. Lögð verður meiri áhersla á að greina sundur starfsemi bankans eftir viðskiptasviðum til að auka samkeppnisgetuna. Það á aftur að auka hagkvæmni og sparnað og er búist við, að starfsmönnum verði fækkað um 1.200. Lánveitingum bankans verður dreift meira en verið hefur til að minnka áhættuna. Á síðasta ári tapaði DnC rúmlega sjö milljörðum ísl. kr. og horfur eru á, að tapið verði heldur meira í ár. Bankinn er þó ekki einn á báti í þessum efnum því að búist er við, að tveir aðrir stórir viðskiptabank- ar, Christiania og Bergen Bank, tapi einnig verulega. Það er hins vegar ekki auðvelt að verða sér úti um nýtt íjármagn með hlutafjárút- boði eins og ástandið er nú á norska verðbréfamarkaðnum. Það mátti Bergen Bank reyna á dögunum þegar hann varð að hætta við hlut- aíjárútboð upp á rúma tvo milljarða ísl. kr. Erfiður tími framundan Hvað sparisjóðina varðar er búist við, að tekjur þeirra aukist nokkuð á þessu ári en þegar tekið hefur verið tillit til afskrifaðra lána er áætlað, að heildartapið verði á 14. milljarð ísl. kr. Á síðasta ári var það nokkuð á þann áttunda. Talið er víst, að tap verði á rekstri allra fimm stærstu sparisjóðanna. Norsku bankarnir eiga mikið og strangt endurreisnarstárf fyrir höndum og það mun ekki létta þeim róðurinn hve Qármagnsaukningin er erfið. Hætt er því við, að sumum þeirra reynist torsótt að uppfylla kröfur um höfuðstólshlutfallið. Efnahagsráðstafanir ríkisstjómar- innar og auknir skattar á hátekjur munu einnig bitna á bönkunum og aukið aðhald bankanna sjálfra að útlánum getur valdið efnahagslegri stöðnun. Allt leggst þetta á eitt og gerir bönkunum erfíðara fyrir að búa sig undir það örlagaríka ár 1992 þegar innri markaður Evrópubandalags- ins verður að veruleika með marg- víslegum afleiðingum fyrir efna- hagslífið, ekki síst í landi, sem enn stendur utan bandalagsins. Norðurlönd ná for- skoti íkapphlaupinu um bílsíma kerti Kaupmannahöfn. Frá Grimi Friðgeirssyni fréttaritara Morgunblaðsins. keppnin verði svo ýkja mikil, en vit- að er til þess að Bretar hafi áform í svipaða átt I bílsímamálum og Norðurlöndin fjögur. Sameiginlegur fundur aðildarþjóðanna 17 í CEPT, sem haldinn var í Kaupmannahöfn nýlega leiddi í ljós, að flestar þjóð- imar treysta algjörlega á framleið- endur og láta þá sjá um þróun mála. Norræna reynslukerfíð á fyrst og fremst að leiða í ljós hvort GSM kerfið uppfylli þær kröfur sem gerð- ar eru við raunverulega notkun. Kerfið verður sett upp 1. feb. 1989 í Ósló og nágrenni, en landslag þar er kreíjandi fyrir fjarskipti og ætti því að reyna á kerfið. Hluti kerfisins verður settur upp í Kaupmannahöfn þar sem ákveðnir hlutir verða reynd- ir. í Vestur-Evrópu eru 1,2 milljónir bílsíma í notkun og þar af 523.000 á Norðurlöndum. Af þessum tölum sést að fjöldi bílsíma á hverja 1000 íbúa á Norðurlöndum er talsvert meiri en í öðrum Evrópulöndum. Nýjustu tölur sýna að flestir eða 33 af 1000 íbúum hafa bílasíma í Noregi. ísland er þar rétt á eftir í öðru sæti, en Danmörk er t.d. með 17 af 1000. í Bretlandi 7 af 1000, Þýskaland og Frakkland hafa aðeins 1 bílsíma á hverja 1000 íbúa. MODEL MYND ertískusýningarskóli þar sem börn og unglingar laera: Flokkaskipting: 4-6 ára 7-9 ára 10-12 ára 13-14 ára 15-20 ára IMYND HVERFISGATA 46 SÍMI621088 I Framkomu Hreinlæti Fataval Göngu Tjáningu Vinna bug á feimni Að skilja feimni Aukið sjálfstraust og fleira og fleira. Stig 1. Byrjendur, sett upp sýning, tekið próf. Stig 2. Þyngra stig, snyrtisérfræðingur og hárgreiðslu- meistari. Stig 3. Lokastig, tískuljósmyndari vinnur með módelunum. Allir fara í myndbandsupptöku fyrir auglýsingar. Ný námskeið að byrja. Innritun alla daga í síma 657070 kl. 10-16. Þeir, sem eru að fara á 2. eða 3. stig, tilkynni sig strax. Síðast komust færri að en vildu. Afhending skírteina laugardaginn 5. nóv. kl. 13-16 á Hverfisgötu 46, Rvík. Stjómunarfélag íslands Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66 /II rfi t r t 62& Upplagt tækifæri til að bæta viðhorf, afköst og hagnað í fyrirtækinu Á tveimur hressandi dögum munt þú sjá hvernig starfs- fólk getur náð betri érangri í samskiptum sínum innan fyrirtækis og utan, hvernig það verður fljótara að aölag- ast breytingum og bæta þjónustu. Þátttakendum er bent á leiðir til þróunar persónuleika síns, sem væntanlega heldur svo áfranrv, löngu eftir lok námskeiðsins. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur verði hæfarí til að tak- ast á við flókin verkefni og veiti sem besta þjónustu. Áhrif á þátttakendur: • Þú sérð betur þlnar sterku og veiku hliðar. • Þú sérð betur samhengi lífsviðhorfs og árangurs. • Þú skilur betur mikilvægi raunverulegrar athygli. • Þú lærir að setja þér markmið í starfi og einkalífi. Ávinningur fyrirtækis: • Þjónusta fyrirtækisins batnar. • Samstarf innan fyrirtækis eykst. • Mikilvægi tímaþáttarins skilst betur. • Starfsmenn verða tillitssamari og þolinmóðari. Öðruvísi námskeið - öðruvísi aðferð Leiðbeinandi: Haukur Haraldsson, sölu- og markaösráðgjafi. Tími og staður: 7.-8. nóvember kl. 8.30-17.30 í Ánanaustum 15. Athugið! VR og starfsmenntunarsjóður BSRB styrkja félagsmenn | sína til þátttöku í námskeiðum SFÍ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.