Morgunblaðið - 19.01.1990, Blaðsíða 21
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1990
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Fyrirmæli
mannréttindanefiid-
arinnar
*
Islendingar eru aðilar að
mannréttindasáttmála
Evrópu og í 6. grein hans er
ijallað um rétt manna til að
leggja tiltekin mál fyrir óháð-
an og hlutlausan dómstól og
um meðferð þeirra mála. A
sínum tíma var Jón Kristins-
son á Akureyri sakaður um
tvö brot á umferðarlögum.
Eftir að sátt í því hafði verið
hafnað var málinu vísað til
rannsóknar fyrir dómi og fór
þá sami fulltrúi bæjarfógeta
með málið og hafði boðið Jóni
sátt og fulltrúinn dæmdi einn-
ig málið sem sakadómari.
Málinu var áfrýjað til Hæsta-
réttar, sem sýknaði Jón af
öðru brotinu, en dæmdi hann
sekan af hinu og ákvað honum
3.000 kr. sekt. Jón skaut
málinu til Mannréttindanefnd-
ar Evrópu, sem starfar á
grundvelli mannréttindasátt-
málans. Nefndin komst ein-
róma að þeirri niðurstöðu, að
um brot á 6. gr. sáttmálans
hefði verið að ræða, þar sem
sakadómur gæti ekki talist
hafa verið óvilhallur dómstóll
í skilningi greinarinnar. í
skýrslu sinni frá því mars
1989 bendir nefndin meðal
annars á, að í umræddu máli
hafi rannsóknarvald og dóms-
vald verið á sömu hendi. Síðan
gerðu ríkisstjóm íslands og
Jón Kristinsson með sér sátt
um að endurgreiða Jóni sekt
og sakarkostnað vegna máls-
ins.
Nú hefur Hæstiréttur tekið
til við að fella úrskurði í sam-
ræmi við þessa niðurstöðu í
máli Jóns Kristinssonar. Fyrir
rúmri viku felldi hann úr gildi
dóm og alla dómsmeðferð
sakadóms Árnessýslu í minni-
háttar sakamáli. Taldi Hæsti-
réttur að sýslumanninum í
Árnessýslu og fulltrúa hans
hafi borið að víkja sæti í mál-
inu, þar sem fulltrúinn hafi
bæði mælt fyrir um lögreglu-
rannsókn og kveðið upp dóm
í málinu. Með þessum dómi
Hæstaréttar var vegið að fyr-
irkomulagi sem gilti í 19 um-
dæmum og um síðustu helgi
gaf dómsmálaráðuneytið
síðan út bráðabirgðalög sem
miða að því að skapa þau
skil á milli rannsóknar og
dóms í sakamálum að skilyrð-
um mannréttindasáttmálans
sé fullnægt.
Með ijliðsjón af þeim skuld-
bindingum sem íslenska ríkið
gekkst undir með aðild að
mannréttindasáttmála Evr-
ópu í upphafi sjötta áratugar-
ins eru þessi viðbrögð Hæsta-
réttar eðlileg og hraðar
ákvarðanir dómsmálaráðu-
neytisins skynsamlegar. Með
þeim er komið í veg fyrir
óbærilega réttaróvissu á við-
kvæmu sviði. Þrátt fyrir
íhaldssemi og hægagang í
íslenska réttarkerfínu getur
það brugðist snarlega við,
þegar að því er sótt úr þess-
ari átt. Vekur raunar furðu
að ekki skuli fyrr hafa verið
greint á milli rannsóknar og
dóms í sakamálum alls staðar
á landinu.
Á tímum vaxandi samvinnu
milli þjóða er rétt að staldra
við einn þátt þessa máls sem
hefur gildi út fyrir lögfræðileg
álitaefni í þessu sérstaka til-
viki. Er hér átt við stöðu ís-
lands gagnvart svonefndum
yfirrikjastofnunum eða
ákvörðunum sem teknar eru
af fjölþjóðlegum nefndum,
ráðum eða dómstólum og hafa
bindandi áhrif hér, hvort sem
íslenskum stjórnvöldum eða
einstaklingum líkar það betur
eða verr. Eins og kunnugt er
höfum við hafnað hugmynd-
um um aðild að Evrópubanda-
laginu (EB) meðal annars á
þeirri forsendu að þar sé um
yfirríkjastofnun að ræða sem
gefi aðildarríkjunum bindandi
fyrirmæli um efnahagsmál.
Þegar um mannréttindamál
er að ræða, sem snerta helg-
ari rétt hvers og eins en hinn
fjárhagslega, tökum við mögl-
unarlaust við niðurstöðu
yfirrikjastofnunar og lögum
okkur að ákvörðunum hennar
í skyndi með bráðabirgðalög-
um.
Áhrif þess að Jón Kristins-
son vildi ekki una við niður-
stöðu íslenskra dómstóla í lítil-
vægu máli sínu eru þegar orð-
in mikil í dómskerfinu. Þau
kunna einnig að reynast af-
drifarík, þegar metin er staða
íslands í sífellt vaxandi sam-
vinnu Evrópuríkja.
tí21
Davíð Qddsson borgarsljóri kynnir fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir árið 1990:
Skilvirk stjórn skilar miklum fram-
kvæmdum samhliða lækkun útsvars
Davíð Oddsson borgarstjóri kynnir fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir fréttamönnum.
Morgunblaðið/J úlíus
Davíð Oddsson borgarstjóri
lagði fjárhagsáætlun Reykjavíkur
fyrir árið 1990 fram á borgar-
stjórnarfundi í gærkvöldi. Ræða
borgarstjóra var 165 blaðsíður og
birtist hér úr lokakafla hennar.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar er nú lögð fram til fyrri
umræðu hér í borgarstjórninni. All-
margir þættir munu breytast við
gerð áætlunarinnar milli umræðna,
ekki síst vegna þeirra áhrifa, sem
skattheimta ríkisins á sveitarfélögin
gegnum virðisaukaskatt óhjákvæmi-
lega hefur. Því miður hafa upplýs-
ingar fjármálaráðuneytisins um
skattbyrði virðisaukaskatts á sveit-
arfélög reynst algerlega rangar, en
fyrstu athuganir sveitarfélaganna
og fullyrðingar þeirra standast. Auð-
vjtað ætti þessi niðurstaða að þýða
að ríkisvaldið beindi skattinum í
þann farveg, að hann legðist ekki á
sveitarfélögin nema með þeim hætti,
sem boðað var í upphafi. Samskipti
við ríkisvaldið sýna hins vegar og
sanna að slíku er ekki að treysta.
Og verður því óhjákvæmilegt að taka
tillit til þessarar skattlagningar á
borgina á næsta fundi borgarstjórn-
ar, þegar fjárhagsáætlunin verður
afgreidd.
Þessi fjárhagsáætlun ber með sér
að Reykjavíkurborg hefur fjárhags-
lega mjög sterka stöðu og öfugt við
mörg önnur sveitarfélög hefur borg-
in ekki steypt sér í stórkostlegar
skuldir og því hafa afborganir og
greiðsla vaxta og verðbóta minni
áhrif á rekstur borgarinnar en ella.
Borgin hefur þó á undanförnum átta
árum staðið í meiri framkvæmdum
en nokkru sinni fyrr í sögu sinni,
sem orðið hefur til þess að borgin
breytir nú um svip, til batnaðar að
mati langflestra borgarbúa og borg-
in hefur getað tekið á móti um 14
þúsund nýjum íbúum á aðeins 7
árum, án þess að hafa þurft að
skerða þjonustuna við þá, sem fyrir
voru. Þvert á móti hefur tekist að
efla hana og auka, og jafnframt að
búa í haginn fyrir nýja íbúa með
nýjum borgarhverfum, þar sem þjón-
ustan hefur komið fyrr en dæmi eru
til um áður.
Mikil umskipti
Á þeim tæpu 8 árum, sem liðin
eru frá því að valdaskipti urðu á ný
í borgarstjóminni og núverandi
meirihluti tók við stjórn mála af
vinstri mönnum hafa mikil umskipti
orðið á þjónustu borgarinnar. Er því
nokkuð broslegt, er minnihluta-
flokkarnir reyna að stilla málum
þannig upp, að meirihluti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjóminni sé harðnj
eskjulegur og leggi einkum metnað
sinn og framkvæmdavilja og fjár-
muni borgaranna í að byggja hvers
konar lúxushúsnæði, en láti þarfir
borgaranna hins vegar sitja á hakan-
um. Þessum fullyrðingum er haldið
fram og þetta sungið, að vísu mis-
jafnlega falskt, ár og síð og alla
daga. En staðreyndirnar tala allt
öðru máli. Og sem betur fer þá blasa
staðreyndirnar við hvetjum manni.
Á þessum tíma hafa verið tekin
í notkun um 20 ný dagvistarheimili
um leið og mörg hinna eldri hafa
verið endurbætt, stækkuð og starfs-
fólkinu gert auðveldara með að sinna
störfum sínum. Er nú svo komið,
að engin höfuðborg á Norðurlöndun-
um, að Kaupmannahöfn einni und-
anskilinni, getur boðið foreldrum
fleiri dagvistarúrræði og jafn skjót-
virka þjónustu og Reykjavíkurborg
gerir og eru þó Norðurlöndin lengst
komin í þessum efnum allra landa í
veröldinni. Reykjavíkurborg er því í
hreinni forystusveit hvað úrræði fyr-
ir fjölskyldur um dagvistun snertir
ef litið er til alls hins vestræna heims.
Þetta kemur sjálfsagt mörgum á
óvart, þegar hafður er í huga allur
sá vandlætingarsöngur og barlómur,
sem minnihlutinn hefur haft uppi
einmitt í þessum málaflokki.
Uppbygging skólamannvirkja
hefur líka verið hröð og hafa verið
byggðir upp fjölmargir skólar á
þessum stutta tíma auk viðbygginga
við eldri skóla. Svo nefnd séu dæmi,
þá er nú verið að ljúka við byggingu
á nýjum glæsilegum skóla úti á Eiðs-
granda, en sá skóli er byggður fyrir
börn allt til 12 ára aldurs vegna ein-
dreginna óska foreldra á því svæði.
Nýr glæsilegur skóli hefur verið
byggður í gamla vesturbænum,
skóli, sem fær alhliða lof fyrir hönn-
un og fyrirkomulag allt, og hefur
aðstaða barna í gamla vesturbænum
gjörbreyst til batnaðar. Ný álma
hefur verið byggð við Hagaskólann
og léttbyggðar stofur tvær við gamla
Melaskólann. Er vissulega ánægju-
legt að með þessum hætti hefur tek-
ist að mæta vaxandi barnafjölda í
eldri hverfum, og um leið að ýta
undir enduruppbyggingu þeirra.
Byggður hefur verið upp nýr skóli
í Ártúnsholtshverfi og annar í Selás-
hverfi, tvær nýjar skólabyggingar
við Seljaskóla. Lokið hefur verið við
Hólabrekkuskóla með nýjum bygg-
ingum og ný glæsileg sundlaug ver-
ið byggð við Ölduselsskóla. Folda-
skóli í Grafarvogi hefur verið byggð-
ur frá grunni, en inn í Grafarvogs-
hverfið byijuðu menn að flytja fyrir
um 5 árum. Nú er hafist handa um
byggingu á nýjum skóla í Hamra-
hverfi, vestast í Grafarvogshverfum,
sem verður fullbúinn annað haust,
og um leið er byijað á stóru glæsi-
legu íþróttahúsi milli hverfa í Graf-
arvogi, þ.e.a.s. milli Foldahverfis og
Húsahverfis. Og nú í ár lýkur bygg-
ingu á glæsilegu íþróttahúsi við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti.
Allmargar heilsugæslustöðvar
hafa verið opnaðar í borginni á þessu
tímabili og nú eru tvær heilsugæslu-
stöðvar um það bil að opna. Að vísu
skortir á að ríkið standi við sinn
hluta í fjármögnun tækjakaupa,
þannig að dregist getur um nokkra
mánuði að önnur stöðin opni, þó hún
standi að öðru leyti fullbúin.
Málefni aldraðra
Ég held að segja megi að málefni
aldraðra hafi í raun tekið stökk-
breytingum á þessu tímabili. Þjón-
usta við þennan hóp hefur batnað
stórkostlega og ég tel að aldrei fyrr
hafi eins mikil breyting átt sér stað
í þessum málaflokki á jafn skömm-
um tíma, þó auðvitað megi segja að
enn sé allmargt ógert. Uppbyggingu
B-álmu Borgarspítalans hefur verið
haldið áfram, þó ríkið hafi dregið
lappirnar, og hafa nú verið opnaðar
þar þijár deildir fyrir aldraða, sem
veita mjög góða og mikilvæga þjón-
ustu. Reykjavíkurborg er þriðjun'gs-
aðili að hinu glæsilega hjúkrunar-
heimili Skjóli, og það er enginn vafi
á því að hinn öf lugi stuðningur borg-
arinnar var forsenda þess að í þá
byggingu var ráðist og henni lokið
jafn fljótt og raun ber vitni. Drop-
laugarstaðir voru opnaðir á þessu
tímabili, þó vissulega hefði verið
unnið að því máli áður. Nýtt heimili
hefur verið opnað í Seljahlíð í Breið-
holti, glæsilegt heimili með góðri
þjónustu. Borgin hefur byggt upp
þjónustukjarna við íbúðir aldraðra á
allmörgum stöðum í borginni og
þessir þjónustukjarnar nýtast öllum
íbúum í nærliggjandi hverfum.
Nefna má í þessu sambandi nýtt
húsnæði aldraðra við Bólstaðarhlíð,
nýtt húsnæði aldraðra og þjónustu-
miðstöð við Hús verslunarinnar í
Kringlunni, nýtt heimili aldraðra í
vesturbænum og nú síðast var opnað
glæsilegt heimili aldraðra á horni
Vesturgötu og Garðastrætis. Á öllum
þessum stöðum eru þjónustukjarnar
fyrir íbúa þessara húsa og nærliggj-
andi svæða, en þessir kjarnar gera
fólki kleift að fá margvíslega þjón-
ustu og stuðla að því að fólk geti
lengur séð um sig sjálft og búið í
eigin húsnæði. Jafnframt hafa þesar
starfsmiðstöðvar gert borginni kleift
að stórbæta og endurskipuleggja
þjónustu sína við aldraða, sem fram
mun fara frá þessum stöðvum og
starfsmiðstöðvum. Nú eru hafnar
framkvæmdir við enn eitt slíkt
mannvirkið, við Skúlagötu, á horni
Vitastígs og Skúlagötu og Lindar-
götu. Þar verður í rauninni um 15
hús að ræða, mikil hús og fögur á
besta stað í bænum, með tæplega
100 íbúðum og mikilli þjónustustarf-
semi, bæði með almennum þjónustu-
kjörnum og dagvistun fyrir aldraða.
FVumkvæði borgarinnar um sam-
starf við einkaaðila hefur orðið til
þess að á þessu tímabili hefur verið
veitt meiri fjármunum í borginni til
bygginga í þágu aldraðra en nokkru
sinni fyrr. Jafnframt hefur borgin
enn stutt þennan málaf Iokk á marg-
an hátt, m.a. með kaupum á húsi
undir dagvistun alzheimerssjúkl-
inga, sem Rauði krossinn rekur, og
eru áform hjá borginni um áfram-
hald á þeim stuðningi.
íþróttir og menning
Þróttmikið átak hefur verið gert
á sviði íþróttamála. Ég hef áður
nefnt tvö glæsileg íþróttahús í Breið-
holti, annars vegar í Seljahverfi og
hins vegar við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti, og nú er hið þriðja í bygg-
ingu í Grafarvogshverfunum. Miklar
endurbætur hafa verið gerðar á
sundlauginni í Laugardal, ný sund-
laug verið gerð við sundlaugina í
Breiðholti og í Ölduselsskóla og nú
er hafin hönnun á nýrri sundlaug í
Árbæjarhverfi. Gerður hefur verið
myndarlegur gervigrasvöllur í Laug-
ardal, sem gerir mönnum kleift að
stunda knattspyrnu a]lan ársins
hring. Þessi framkvæmd var mjög
umdeild, minnihlutinn hamaðist
gegn henni, en hún hefur reynst
afar þörf. Og nú í haust verður tekið
í notkun nýtt vélfryst skautasvell í
Laugardalnum. Á þessum tíma hafa
verið opnaðar nýjar félagsmiðstöðv-
ar, bæði í vesturbænum og eins í
hinu gamla veitingahúsi Broadway,
eða Glym, eins og það er kallað, auk
þess sem borgin hefur styrkt fijáls
félög til framkvæmda innan sinna
vébanda.
í menningarmálum hefur gríðar
mikið verið að gerast. Nýtt Borgar-
leikhús hefur verið vígt og tekið í
notkun, en 90% byggingarkostnaðar
þess féll til á þessum 8 árum. Á
þessu ári lýkur nýrri viðbyggingú
við Ásmundarsafn, sem mun styrkja
stöðu þess safns og ef la það til sýn-
ingarhalds. Og eitt merkasta hús
landsins, Viðeyjarstofa, • var hrein-
lega reist úr rústum, lyft úr hreinni
niðurlægingu. Árbæjarsafn hefur
verið eflt á þessu tímabili og staðið
fyrir merkilegum rannsóknum á
sviði fornleifa og er Reykjavík nú í
fararbroddi á því sviði.
Menningarmiðstöðin í Gerðubergi
var opnuð og hefur hún verið afar
vinsæll vettvangur margvíslegra
listviðburða. Þar hefur verið opnað
glæsilegt bókasafn Borgarbóka-
safnsins og annað útibú Borgar-
bókasafnsins verið opnað í vestur-
bænum. Og á þessu ári verður haf-
ist handa um hönnun og undirbúning
við endurgerð 'JCorpúlfsstaða í fram-
haldi af hinni stórfenglegu gjöf Err-
ós til Reykjavíkurborgar og Reyk-
víkinga sl. haust.
Orkufyrirtækin
Stofnanir borgarinnar, s.s. Hita-
veita, Rafmagnsveita, Vatnsveita og
Reykjavíkurhöfn, hafa allar á þessu
tímabili greitt að mestu niður þær
skuldir, sem þær höfðu áður verið
settar í, og ekki látið við það sitja
heldur um leið staðið fyrir miklum
framkvæmdum, sumum sem voru
orðnar mjög brýnar, en höfðu setið
lengi á hakanum. Þrátt fyrir þetta
hefur tekist að halda gjaldskrám
niðri, og er gjaldskrá Hitaveitunnar
nú aðeins 84% af því, sem hún var
að raunvirði til 1984, og Rafmagns-
veitan hefur haldið gjaldskrá sinni
svo í skorðum að raunverð raforku
til almennra nota hefur lækkað um
48% á þessu sama tímabili. Hitaveit-
an hefur staðið fyrir miklum fram-
kvæmdum og ber auðvitað Nesja-
vallavirkjun þar hæst. Þetta er ein
stærsta framkvæmd á öllu landinu
á þessu tímabili og athyglisvert er
að-þessi framkvæmd er unnin án
þess að til hennar sé tekið nokkurt
langtímalán, þannig að aðeins rúmu
ári eftir að þessi virkjun er fullbúin
verður hún skuldlaus, og er þessi
framkvæmdamáti nær óþekktur á
íslandi. Ákvörðun um byggingu
virkjunar að Nesjavöllum var tekin
fyrir nokkrum árum. Minnihluti
borgarstjórnar, vinstri flokkarnir,
höfðu ekki gæfu til þess að standa
þar að verki með okkur, heldur höm-
uðust á móti þessari virkjun og
sögðu að hún væri ekki tímabær,
rétt væri að fresta henni. Reyndar
er þetta orð, að verk sé ekki tíma-
bært, mjög algengt í orðaforða
vinstri flokkanna, nánast sú rök-
semd, sem oftast er notuð um marg-
ar þær framkvæmdir, sem við ráð-
umst í. Þeir segjast ekki vera á
móti framkvæmdinni í sjálfu sér, hún
eigi bara að koma einhvern tímann
seinna, helst eftir dúk og disk. Við
fundum það hins vegar núna fyrr í
vetur, að slíkt hefði verið hið mesta
óráð hvað Nesjavallavirkjun snertir.
Þegar frostakaflinn kom fyrr í vetur
var ljóst að Hitaveitan kæmist í þrot,
ef svo héldi fram sem horfði í nokkra
daga enn. Lækkað hafði í tönkunum
og véitan kynti alla sína olíukatla
og mátti ekki tæpara standa. Ef
vinstri menn hefðu ráðið ferðinni hér
í Reykjavík væru Hitaveitan og
Reykvíkingar komin í þrot í þessum
efnum.
Skilvirk stjórn
Engan af þessum þáttum nefna
andstæðingar okkar hér í borgar-
stjórninni. Þeir tuða eingöngu um
tvö mannvirki, annars vegar útsýnis-
húsið í Öskjuhlíð, sem menn hafa
ætlað sér að byggja nú í 40—50 ár,
en aldrei var rétti tíminn fýrr en
núna, og hins vegar ráðhús höfuð-
borgarinnar. Auðvitað hafa þessi tvö
mannvirki verið umdeild, en enginn
vafi er í mínum huga og minna fé-
laga hér í borgarstjórninni að báðar
eiga þessar byggingar eftir að verða
borginni og borgarbúum til stolts
og ánægju og mikils gagns. Ég á
ekki von á því, að ef einhverjir þess-
ara ágætu fulltrúa hér í minnihlutan-
um eiga eftir að skrifa sínar ævisög-
ur, að þeir muni minnast þess sér-
staklega, að þeir hafi hamast gegn
þessum tveimur mannvirkjum. Og
það er jafnframt staðreynd, sem
ekki verður mótmælt, að það hefur
í raun ekki bitnað á framkvæmda-
getu borgarinnar að öðru leyti að
standa í þessum mikilvægu fram-
kvæmdum. Þetta finnst mönnum
e.t.v. hljóma sérkennilega, en þá á
ég við, að á þeim sviðum, sem ég
hef áður rakið, hefur framkvæmda-
krafturinn óg framkvæmdagetan
síst verið minni en áður var og raun-
ar mun meiri.
Ég tel að ástæða þess, að borgin
hefur getað lagt í allar þessar miklu
framkvæmdir án þess að hækka
skatta sína og reyndar þvert á móti
tekist að lækka bæði útsvar og fast-
eignagjöld á íbúðarhúsnæði, sé í
rauninni einföld. Stjórn borgarinnar
hefur verið skilvirk, jafnvel andstæð-
ingarnir hljóta að viðurkenna það.
Kostað hefur verið kapps um að
auka hlut atvinnulífsins innan borg-
armarkanna bæði með skipulags-
ákvörðunum og lóðaúthlutunum og
draga þannig aukið fé inn í borgina
og virkja menn og fyrirtæki til átaka.
Borgin hefur gætt þess að falla ekki
í fen skuldasöfnunar og því hafa
greiðslur borgarinnar af fjármagns-
gjöldum verið minni en þekkist hjá
flestum öðrum sveitarfélögum. í
annan stað hefur borgin losað sig
við rekstur, sem var henni óarðbær,
án þess að sá rekstur legðist af í
borginni. Vil ég þar ekki síst nefna
sölu á Bæjarútgerðinni. En til að
menn átti sig á hagsmunum þess
fyrir borgina að láta verða af þeirri
sölu má segja, að á þessu tímabili
muni sú sala ein ásamt þeim niður-
greiðslum, sem sú sala sparar á 8
ára tímabili, borga byggingarkostn-
að ráðhússins. Minnihlutinn hamað-
ist gegn þeirri aðgerð að koma
Bæjarútgerðinni til einkaaðila.
Lögðu þeir sig mjög fram í þeim
efnum, jafnvel svo að undrum sætti.
Ef hins vegar hefði ekki verið í hana
ráðist hefðum við haft því minna
úr að spila, og menn sjá því í hendi
sér hvaða áhrif þetta hefur á hag
borgarinnar þegar fram í sækir.
Lægsta útsvarið
Borgin hefur nú lægsta útsvar,
sem þekkist í sveitarfélögum, þó að
borgarbúar verði vegna þeirra
reglna, sem í gildi eru, að greiða
hærra útsvar til innheimtumanna en
á er lagt, en fá síðan endurgreitt
með verðbótum. Á sama tíma horf-
um við upp á ríkisvaldið og stjóm
málefna þar og það er harla döpur
mynd, sem blasir við. Allir vita að
skattar hafa hækkað stórkostlega.
Svo aðeins eirin þáttur sé nefndur,
til að mynda staðgreiðsla skatta,
sem þó er óverulegur hluti af skatt-'
heimtu ríkisins, þá hefur skattbyrði
einstaklinganna hækkað um 10%
hvorki meira né minna á þremur
ámm. Ég vek athygli á því, að þeg-
ar ég nefni þessa tölu, er búið að
draga frá allar breytingar til hækk-
unar á barnabótum og öðrum slíkum
millifærslum. Þrátt fyrir þetta og
þrátt fyrir stórkostlega hækkun á
ýmsum öðmm sköttum, nánast
flestum öðmm sköttum, hvort sem
um er að ræða ekknaskatta, skatta
á bifreiðar eða aðra óbeina skatta,
s.s. virðisaukaskatt á sveitarfélögin
upp á 1 milljarð króna, þá er ríkis-
búskapurinn samt rekinn með mikl-
um halla og erlendum lántökum og
innlendum haldið áfram í stórum
stíl. Það er enginn vafi á því að fjög-
urra til fimm flokka ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar hefur
reynst afar illa og það er sáralítil
huggun að því a.m.k. fyrir mig og
ég held flesta aðra, þó forsætisráð-
herrann sjái ljós á himnum haust-
daga. Það hefur reyndar hingað til
verið lítil huggun þjóðinni, þó
Steingrímur Hermannsson sjái rautt
eða sjái glætu, hvort sem það er
fyrir meðalgöngu ónefndra galdra-
meistara eða annarra fjölmargra
ónefndra viðmælenda sinna.
Það er mjög mikilvægt fyrir Reyk-
víkinga og reyndar landið allt að
borginni sé farsællega stjórnað,
staða hennar sé sterk og um leið sé
þess gætt að skattpíningu sé haldið
niðri.
Tekjur borgarinnar o g fyrir-
tækja hennar um 19 milljarðar
f FJÁRHAGSAÆTLUN Reykjavíkurborgar vegna ársins 1990 eru nið-
urstöðutölur borgarsjóðs tæpir 11 milljarðar króna, en ef fyrirtæki
borgarinnar eru meðtalin nálægt 19 inilljörðum króna. Af tekjum borg-
arinnar vega útsvörin mest, eða sem nemur 5,3 milljörðum króna, en
útsvarsálagningarhlutfallið er óbreytt, 6,7%, sem er lægsti stuðull, sem
sveitarfélög styðjast við. Aðstöðugjöldin eru annar stærsti liðurinn eða
2 milljarðar rúmir og fasteignagjöldin, sem eru 1,6 miHjarðar króna,
eru þriðji stærsti liðurinn. Að sögn borgarsljóra byggir fjárhagsáætlun-
in á svipuðum verðlagsforsendum og fjárlagafrumvarp ríkissljórnarinn-
ar. Miðað er við að launahækkanir verði að meðaltali 15% en borgar-
sljóri tók fram að borgin mundi halda sig innan ramma þeirra kjara-
samninga sem kunna að nást.
A fundi Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra með fréttamönnum, þar sem
fjárhagsáætlun borgarinnar var
kynnt, kom auk þess fram að gert
er ráð fyrir að heildartekjur borgar-
sjóðs hækki um 11% milli áranna,
og meginskýringin á því að hækkun-
in er hlutfallslega lítil er, að nú miss-
ir borgin um hálfan milljarð í tekj-
um, sem hún hefði haft úr Jöfnunar-
sjóði miðað við fyrri reglur um
verkaskipti ríkis og sveitarfélaga.
2,4 milljarðar til félagsmála
í fréttatilkynningu borgarstjóra
kemur meðal annars fram:
„Langstærstu gjaldaliðir borgar-
innar eru á sviði félagsmála, eða um
2,4 milljarðar króna og ver borgin
miklu hærra hlutfalli af sínum tekj-
um til félagsmála en önnur sveitarfé-
Iög. Skýringin er sú, að félagsleg
þjónusta er öflugri hjá borginni en
hjá öðrum sveitarfélögum, auk þess
sem félagsleg vandamál eru eðli
málsins samkvæmt mest í mesta
þéttbýli landsins. Næststærsti liður-
inn er umferðarmálin með um 1,6
milljarða króna og ver borgin þrisvar
sinnum meira fé til vegafram-
kvæmda og viðhalds vega miðað við
hvern íbúa en önnur sveitarfélög,
sem mest leggja til, gera. Þriðji
stærsti liðurinn er skólamál um 1
milljarður króna. En sá liður, sem
hækkar mest, eru æskulýðs-, tóm-
stunda- og íþróttamál, sem hækka
um 26% milli ára, eru komin upp í
402 milljónir króna.
Ef litið er til framkvæmda er fyrst
að geta nýrra verkefna. Þannig er
varið um 500 milljónum til bygging-
ar skólamannvirkja en á sl. ári var
varið um 400 milljónum króna til
þess málaflokks. Lokið verður við
íþróttahús Fjölbrautaskólans í Breið-
holti og Hólabrekkuskóla á árinu og
varið til þess 78 milljónum króna,
lokið verður við þriðju skólabygg-
ingu Foldaskólans og eru þá allar
skólabyggingarnar þar búnar. Til
þeirra er varið um 110 milljónum
króna og 37,5 milljónum króna 'til
lóðargerðar við skólann, en lóðin er
mjög dýr. 114 milljónum króna verð-
ur varið til Grandaskóla og hafin
verður bygging nýs skóla, Hamra-
skóla, í Hamrahverfi í Grafarvogi,
og nýs íþróttahúss milli Húsahverfis
og Foldahverfis í sama hverfi. 10
milljónum króna verður varið til að
undirbúa framkvæmdir við Korp-
úlfsstaði m.a. í tilefni af gjöf Errós
til Reykvíkinga.
150 milljónirtíl
íþróttamannvirkja
Stofnkostnaður íþróttamann-
virkja hækkar mjög mikið. Til þess
málaflokks var varið 66 milljónum
króna á sl. ári, en nú er gert ráð
fýrir 150 milljónum króna á þessu
ári. Langstærsti liðurinn er þar vél-
fryst skautasvell, sem opnað verður
í haust. Unnið verður fyrir tæpar
50 milljónir króna að nýjum leik-
svæðum, hverfis- og sparkvöllum,
samtals um 11 talsins, í ýmsum
hverfum borgarinnar og að fegr-
unarverkefnum víða um borgina. Til
framkvæmda í Laugardal verður
varið tæpum 300 milljónum króna,
100 milljónum króna til skautasvells
í Laugardal eins og fyrr sagði og
síðan 170 milljónum til Borgargarðs-
ins, sem hefur verið í mótun í Laug-
ardalnum á þessu kjörtímabili eins
og lofað var við upphaf þess.
Tvær nýjar heilsugæslustöðvar
Tvær heilsugæslustöðvar verða
opnaðar á árinu, önnur uppi í Breið-
holti, við Hraunberg, og hin við Vest-
urgötu 7. Verður þá mjög langt kom-
ið byggingu og starfrækslu heilsu-
gæslustöðva í borginni, sem hafið
var mikið átak í fyrir fimm, sex
árum, því til viðbótar þessum tveim-
ur stöðvum er gert ráð fyrir því, að
heilsugæslustöð í Asparfelli verði
eftir opnun heilsugæslustöðvarinnar
við Hraunberg notuð sem heilsu-
gæslustöð fyrir Seljahverfi í Breið-
holti.
Framlag til byggingar dagvistar-
heimila hækkar verulega, eða úr 105
milljónum króna í 145 milljónir, á
milli ára og opnuð verða þijú ný
dagvistarheimili, leikskóli við Reka-
granda, leikskóli í Dyrhömrum í
Grafarvogi og nýtt dagheimili og
leikskóli í Selási i Árbæjarhverfi.
Jafnframt verður haldið áfram
breytingum og endurbótum á eldri
heimilum, sem hafa í för með sér
að hægt er að fjölga börnum á heim-
ilunum og eins bjóða lengri vistun,
eins konar millistig milli leikskóla
og dagvistar. Um 600 ný dagvistar-
rými hafa bæst við á sl. fjórum árum,
og er nú svo komið að engin höfuð-
borg á Norðurlöndum utan Kaup-
mannahafnar býður borgurum
sínum eins mikla þjónustu í dagvist-
armálum og Reykjavík gerir, og fólk
þarf að bíða hér skemur eftir slíkri
þjónustu en annars staðar á Norður-
löndum.
Um 400 milljónir til
stofiiana aldraðra
Tæpum 400 milljónum verður
varið til framkvæmda við nýjar
stofnanir á vegum aldraðra og er
nú að hefjast gríðarmikið verkefni
á homi Lindargötu, Vitastígs og
Skúlagötu, þar sem verða byggð
samtals um 15 hús á þremur árum,
þar sem verða tæplega 100 íbúðir
fyrir aldraða auk margvíslegrar
þjónustu fyrir þá íbúa og aðra íbúa
í þessum bæjarhluta. Þessi fram-
kvæmd mun kosta um 1.300 milljón-
ir. Jafnframt er gert ráð fyrir því
að hefja framkvæmdir fyrir 60 millj-
ónir við nýtt hjúkrunarheimili í Graf-
arvogi.“
I fréttatilkynningu borgarstjóra
kemur enn fremur fram, að áfram
verði varið fjármunum til bygginga,
sem hafa verið í vinnslu. Haldið verði
áfram framkvæmdum í Viðey, 50
milljónir króna gangi til Borgarleik-
hússins og 520 milljónum verði var-
ið til Ráðhúss borgarinnar. Eftir
framkvæmdir á þessu nýbyijaða ári
verði byggingin mjög langt komin
og verði léttari á borgarsjóði árið
1991. Framkvæmdir þar hafi gengið
mjög vel og tímaáætlanir og fjár-
hagsáætlanir staðist vel.
I lok fréttatilkynningarinnar seg-
ir: „Umhverfismál eru í fyrirrúmi í
þessari fjárhagsáætlun. Til gatna-
gerðar og umhverfismála verður
varið 2,5 milljörðum króna af fram-
kvæmdum borgarinnar. Vakin hefúr
verið athygli á framkvæmdum í
Laugardal. Miklar framkvæmdir eru
nú í gangi varðandi hreinsun á fjör-
um borgarinnar og haldið er áfram
öflugum framkvæmdum í gatna-
gerð, sem hafa leitt til þess að slys-
um á fólki í borginni, einkum börn-
um, hefur fækkað, þrátt fyrir mikla
aukningu umferðar í borginni. Ljóst
er að stórhýsi eins og Ráðhúsið og
Perla Hitaveitunnar í Öskjuhlíð eiga
eftir að setja mikinn svip á borgina
ásamt hinu nýja og aðgengilega úti-
vistarsvæði í Laugardal.
Um þessar mundir er verið að
gera breytingar á heimilishjálp, sem
verður framvegis hverfaskipt og
starfrækt undir heitinu félagsleg
heimaþjónusta fyrir aldraða, og það
eru hinir mörgu þjónustukjarnar,
sem hafa verið opnaðir og verða
opnaðir núna á næstu dögum og
mánuðum, sem gera borginni kleift
að standa með nýjum og betri hætti
að þessari félagslegu þjónustu."