Morgunblaðið - 01.02.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRUAR 1990
17
Ávallt hefur verið mjög samstaða
í bæjarstjórn Kópavogs um málefni
hafnarinnar. Sérstök hafnarnefnd,
skipuð 5 fulltrúum, hefur starfað
af miklum dugnaði og einhug að
framgangi og uppbyggingu hafnar-
innar. Þær framkvæmdir, sem þeg-
ar er lokið, hefur Kópavogskaup-
staður orðið að kosta alfarið af
veikum mætti, þar sem höfnin hef-
ur til þessa litla náð hlotið fyrir
augum fjárveitingavaldsins þrátt
fyrir góðan vilja þingmanna kjör-
dæmisins. Vonandi fer skilningur
Alþingis vaxandi á þessu mikla
hagsmunamáli okkar Kópavogsbúa,
sem raunar einnig næstu nágranna
okkar.
Það verður að viðurkennast, að
ástandi gatna og öllum frágangi
hafnarsvæðis Kópavogs er ábóta-
vant í dag. Þess vegna verður að
leggja á það höfuðáherslu að um-
hverfismálin verði tekin föstum tök-
um á hafnarsvæðinu, bæði hvað
varðar götur, lýsingu og frágang
lóða.
Til umhverfismála teljast auðvit-
að fráveitumál Kópavogs og ná-
grannabyggðanna. Mikið átak bíður
þessara sveitarfélaga í lausn meng-
unarvarna Skeijafjarðar og vog-
anna þar inn af. Eg tel að.þarna
sé verkefni sem Reykjavík, Kópa-
vogur og Garðabær verði að sam-
einast um að leysa af fullum ein-
hug. Þar getur enginn án annars
verið.
Ábyrgð okkar íbúa höfuðborgar-
svæðisins er mikil gagnvart því
mikla náttúrulífi, sem er að finna
á Skeijafirði og í Faxaflóa. Okkur
ber brýn skylda til að koma í veg
fyrir frekari mengun þessa svæðis
og að endurheimta hreina strand-
lengjuna, þar sem fólk áður stund-
aði sjóböð og gönguferðir sér til
ánægju og heilsubótar.
Sjórinn er undirstaða lífskjara
íslendinga að fornu og nýju. Þess
vegna hlýtur það að vera frum-
skylda hvers bæjarfélags að stuðla
að því, að þeir borgarar sem það
vilja geti sótt til sjávarins sína
lífsbjörg.
Framtíð Kópavogshafnar er því
mál sem jivern íbúa bæjarins skipt-
ir máli. Ég heiti því á Kópavogsbúa
að láta sig varða þróun hafnarinnar
og leggja uppbyggingu hennar lið
eftir megni. Það er að búa í haginn
fyrir framtíð Kópavogs.
Höfundur er einn af
bæjarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins íKópavogi.
A.HANSEN • VEITINGAHÚSIÐ í FIRÐINUM • A.HANSEN • RÓMAÐ FYRIR VEITINGAR
Veitingahúsið í Firðinum
... nœr en þig grunar!
febrúar og mars bjóðum
við spennandi máltíð á
aðeins 795 kr. Val eftir vild.
Forréttur
• Súpa dagsins.
• Reyktur lax með eggjahrœru.
Aðalréttur
• Omeletta með þremur
mismunandi fyllingum.
• Pasta Fortelini með
sveppum, skinku og fleski.
• Soðinn saltfiskur með
spínatsósu.
• Vínarsnitsel með
pönnusteiktum kartöflum.
Kaffi
HELGARTILBOÐ
• Reykþurrkuð gœsabringa
með Waldorfsalati.
• Kjötseyði „Julienne".
• Sítrónu sorbet.
• Turnbauti með sveppum
og bakaðri kartöflu.
• /s „Melba“.
Verð samtals 2.450 kr.
í dag er ekki meira mál að skella sér
suður í Fjörð í A.HANSEN úr miðbæ Reykjavíkur
en upp í Breiðholt eða Árbæ.
ALHLIÐA
VEITINGAHÚS
í rúmgóðum og vinalegum
veitingasal á neðri hæð
leggjum við metnað okkar í
lipra og þægilega þjónustu
á öllum veitingum. í nýjum
sérréttaseðli er að finna ótal
spennandi og girnilega rétti.
SÉR Á PARTI
Salirnir á efri hæðinni eru
tilvaldir fyrir smærri og
stærri kaffi- og matarfundi,
hádegisklíkur í leit að næði
og árshátíðir klúbba og félaga
AHANSEN
Vesturgötu 4 (gegnt Strandgötu) s. 651130
FAGMENNSKA í
FYRIRRÚMI
Nú þegar fermingarnar
nálgast, er rétt að hafa í
huga fjölbreytta veislu-
þjónustu okkar í húsinu
og utan þess.
í DAGSINS ÖNN
Það er heitt á könnunni
allan daginn og kakóið
okkar yljar ekki síður en
kaffið.
LÍF
OG FJÖR
„Pöbbinn" á efri hæðinni
er vinsæll samkomustaður
á hverju kvöldi. Frá
fimmtudagskvöldi til
sunnudagskvölds er
sprelllifandi tónlist og
stemningin ólýsanieg!
A.HANSEN • NOTALEGT UMHVERFI • A.HANSEN • ALHLIÐA VEITINGAHÚS • A.HANSEN
UTSALA - UTSALA
Alh aó 0% afslóttur
HAGKAUP
/4C£t c eiM&i