Morgunblaðið - 01.02.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1990
21
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hans van den Broek, utanríkisráðherra Hollands, og eiginkona hans
er þau gengu á fund Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, í
gærmorgun.
Utanríkisráðherra
Hollands ræðir
við forseta Islands
HEIMSÓKN Hans van den Breok, utanríkisráðherra Hollands, hing-
að til lands lauk í gær og skoðaði hann varnarstöðina í Keflavik
áður en hann hélt af landi brott. Hollendingar halda uppi eftirliti
með ferðum sovéskra kafbáta frá Keflavík og kom fram á blaða-
mannafundi utanríkisráðherrans á þriðjudag að engin áform væru
uppi um að kalla hollensku flugsveitina heim.
í gærmorgun gekk Hans van den
Broek á fund forseta íslands,
Vigdísar Finnbogadóttur, og síðar
um daginn átti hann viðræður við
Steingrím Hermannsson forsætis-
ráðherra.
Á þriðjudag átti van den Broek
fund með Jóni Baldvin Hannibals-
syni utanríkisráðherra og ræddu
þeir stöðu afvopnunarmála og þró-
unina í á sviði öryggismála í Evr-
ópu. Fram kom í máli holleska ut-
anríkisráðherrans að hann hefði
fullan skilning á þeirri áherslu sem
íslendingar leggja á að hafnar verði
viðræður um afvopnun á og í höfun-
um. Kvaðst hann hins vegar telja
að ekki væri tímabært að hefja
slíkar viðræður við Sovétmenn og
aðildarríki Varsjárbandalagsins
fyrr en lokið væri viðræðum sem
nú standa yfir í Vínarborg um nið-
urskurð á sviði hins hefðbundna
herafla allt frá Atlantshafi til Úral-
fjalla.
Ungversk sendinefíid:
íslendingar taki þátt í al-
þjóðasýningu í Búdapest
Sýningarsvæðið um 80.000 fermetrar og valin verður
sérstök „heiðursþjóð“ meðal 40 þátttökuþjóða
Morgunblaðið/Þorkell
Ungverska sendinefndin, f.v. Istvan Boros, Judit Györfi og Zsolt
Monszpart.
UNDANFARNA daga hefur verið
stödd hér á landi þriggja manna
sendinefnd frá Ungverjalandi til
að kynna stóra, alþjóðlega vöru-
og menningarsýningu sem haldin
verður í Búdapest í september nk.
Sýningin er haldin árlega og í
hvert sinn er kjörin ein sérstök
„heiðursþjóð" sem fær mun meiri
athygli en aðrir þátttakendur. í
nefndinni voru þau Judit Györfi
og Istvan Boros, bæði meðal
stjórnenda fyrirtækisins Hungex-
po er fæst við viðskipti og kynn-
ingarstarf erlendis, og Zsolt Monz-
part, viðskiptafulltrúi við ung-
verska sendiráðið í Stokkhólmi.
„Við höfum rætt við forráðamenn
fjölmargra íslenskra fyrirtækja, þ. á
m. SÍS, Lysis h/f og Virkis h/f,“
sagði Györfi. „Sýningin í Búdapest
er fyrst og fremst haldin til að kynna
neysluvörur af öllu hugsanlegu tagi,
auk menningarþáttarins. íslendingar
hafa ekki enn verið meðal þátttak-
enda en við teljum þetta mjög gott
tækifæri til að kypna vörur ykkar.
Margar þjóðir eiga þarna fulltrúa,
að þessu sinni gerum við ráð fyrir
að þær verði um 40. Einkum er um
að ræða nágrannaþjóðir okkar en
einnig fyrirtæki í öðrum Evrópulönd-
um, Austurlöndum fjær og nokkrum
ríkjum í Þriðja heiminum.
Sýningarsvæðið er um 80 þúsund
fermetrar að stærð og undanfarin
ár hafa gestir verið rúmlega 800
þúsund þá tíu daga sem sýningin
stendur yfir. Suma dagana er al-
menningi aðeins veittur -aðgangur
eftir hádegi til þess að tryggja við-
skiptafulltrúum gott næði til að sinna
málum sínum.“
Györfi sagði að við skipulag sýn-
ingarinnar væri tekið tillit til óska
alþjóðlegra samtaka í hinum'ýmsu
framleiðslugreinum. Sérstök svæði
væru fyrir húsgagnafyrirtæki, efna-
iðnað, fatnað o.fl. íslenska ullin ætti
fyllilega erindi á síðastnefnda svæð-
ið, svo að dæmi væri tekið.
Monszpart og Boros minntu á
ungverska vörukynningu í Reykjavík
á síðasta ári er hefði haft í för með
sér umtalsverða aukningu á útflutn-
ingi til íslands. Viðskipti landanna
næmu þó enn aðeins nokkrum millj-
ónum Bandaríkjadala á ári en Ung-
verjar hefðu áhuga á að auka þau.
Þeir hefðu einkum keypt héðan fiski-
mjöl en selt hingað vélar, hjólbarða
og leðurvörur. Einnig mætti nefna
viðskipti með tækniþekkingu. í nóv-
ember síðastliðnum hefði verið komið
á laggirnar samstarfsfyrirtæki í
Ungverjalandi með þátttöku Virkis
h/f sem hefði að markmiði að kanna
jarðvarma í landinu og nýtingu hans.
Síðan væri stefnt að því að fmna
markað fyrir þessa þekkingu sam-
starfsfyrirtækisins í öðrum löndum.
Canderel strásæta
75 gr..............298
Steiktur laukur 14A
200 gr.............1 3V
DDS molasykur , _
500 gr..■..........O/
Kellogg's kornfleks_.A
750 gr.............249
Gott morgungull _ 0 _
450 gr.............185
F 77 uppþvottalögur , _
1 Itr..............05
F 77 mýkir _ , -
Devonsheer
kryddraspur ð»
10 oz..............O 3
Wasa Sesam hrökkbrauö
200 gr...............114
Q-Mati< þvottaduft _nn
3,5 kg...............399
Viktoria kremkex _n
300 gr................/9
S.S. sinnep
200 gr................66
Ecjils appelsínudjús y ^
Maggi súpur _A
16 teg................5U
Pfanner eplasafi n _
1 Itr.................85
Melroses te 00
25 st.................9U
Burg soya- og
Kakómalt Hintz - OA
400 gr...................I 89
Kjarna grautar . .Q
Jarðarberja, T Itr.......I 49
Hagkaups
salernispappír
12 rl...........
268
Wita Wrap
plastfilma . 0—
30 m..................IU/
Ora fiskibollur . A-
]h dós..................I U5
Toro
Orientalsk gryte |
Hunts tómatar __
]h dós.................5/
Gold Reef perur no
1/1 dós................89
Neptuna túnfiskur _n
185 gr................./9
Cocoa Puffs
500 gr.......
269
í (jW
Tilboó vikunnar eru fimm:
hris9Ú°n
lSubopoVo
19
250 9r-,pk'
-?9P
6S0
U9r
199
2^o0lnl
Sh***s
5 _