Morgunblaðið - 24.11.1991, Side 35
35
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1991
Almannavarnir Selfoss og nágrennis:
Farið yfir sljórnunar-
viðbrögð í jarðskjálfta
Selfossi.
KOMI til náttúruhamfara, jarðskjálfta eða steðji önnur hætta að,
er unnt að ná til um 170 björgunarsveitarmanna einum og hálfum
tíma frá útkalli. Ennfremur til 17 lögreglumanna, 30 slökkviliðs-
manna og hjálparliðs af höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram á
æfingu sem almannavarnanefnd Selfoss og nágrennis hélt nýlega.
Þar var gert ráð fyrir að öflugur jarðskjálfti yrði á Suðurlandi.
Æfingin var haldin í samvinnu
við Almannavarnir ríkisins, björg-
unarsveitir og lögreglu í Árnes-
sýslu. Um svonefnda skrifborðsæf-
ingu var að ræða þar sem almanna-
varnanefndin fór yfir skipanir og
aðgerðir miðað við aðstæður sem
gefnar voru. Sýslumaður Árnes-
sýslu stjórnaði æfingunni.
Aðgerðir æfingai’innar miðuðust
við að harður jarðskjálfti hefði orð-
ið á svæðinu með upptök við Hest-
fjall og annar með upptök nokkru
vestar. Nefndin fór yfir og vann
eftir þeim áætlunum sem fyrir
liggja varðandi viðbrögð við hinum
ýmsu aðstæðum sem settar voru
upp til að líkja eftir mögulegum
raunveruleika við náttúruhamfarir
sem þessar.
Útkall almannavarnanefndar-
innar hófst klukkan 19.16. Fyrstu
björgunarsveitarmenn tilkynntu
komu sína 24 mínútum síðar og
klukkan 20.37 höfðu 172 björgun-
arsveitarmenn tilkynnt komu sína.
'Búnaður björgunarsveitarmanna
var 18 bílar, 42 sjúkrabörur, 8
bátar, 35 vélsleðar, 4 sjúkraböru-
sleðar, snjóbíll og vörubíll með
krana. Auk þess náðist til 17 lög-
reglumanna, 30 slökkviliðsmanna
og hjálparliðs frá höfuðborgar-
svæðinu.
Að sögn Karls Björnssonar for-
manns almannavarnanefndar Sel-
foss og nágrennis fór æfingin aðal-
lega fram í gegnum símkerfi og
Ijarskiptakerfi. Fram komu ýmsir
stjórnunarlegir hnökrar sem unnt
er að bæta úr. Einnig sagði Karl
að bæta þyrfti við búnaði í stjóm-
stöð svo sem tækjum til fjarskipta.
Að öðru leyti sagði hann æfinguna
hafa gengið vel.
Sig. Jóns.
■ BÓKAÚTGÁFA Menningar-
sjóðs og Þjóðvinafélagsins hefur
gefið út Almanak Hins íslenska
þjóðvinafélags um árið 1992, en
aðalhluti þess ei' Almanak um árið
1992 sem dr. Þorsteinn Sæ-
mundsson stjarnfræðingur hjá
Raunvísindastofnun Háskólans hef-
ur reiknað og búið til prentunar.
Annað efni Þjóðvinafélagsalman-
aksins að þessu sinni er Árbók
Islands 1990 sem Heimir Þorleifs-
son menntaskólakennari tók sam-
an. Þetta er 118. árgangur Þjóð-
vinafélagsalmanaksins sem er 172
bls., prentað í Odda. Umsjónarmað-
ur þess er Jóhannes Halldórsson
cand. mag., forseti Þjóðvinafélags-
ins. Forstöðumenn Þjóðvinafél-
agsins auk Jóhannesar (kosnir á
Alþingi 5. nóvember 1990) eru: Dr.
Jónas Kristjánsson forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar,
varaforseti; dr. Guðrún Kvaran
orðabókarritstjóri; Heimir Þor-
leifsson^ menntaskólakennari og
Olafur Ásgeirsson þjóðskjalavörð-
ur.
■ BÓKA ÚTGÁFAN Forlagið
hefur sent frá sér matreiðslubókina
Villibráð og veisluföng úr nátt-
úru íslands. Höfundarnir eru sjö
íslenskir matreiðslumeistarar sem
sl. vor tóku þátt í alþjóðlegu mat-
reiðslukeppninni American Culin-
ary Classic í Chicago. í kynningu
Forlagsins segir: „í þessa glæsilegu-
bók hafa matreiðslumeistararnir sjö
safnað uppskriftum að 46 réttum
handa þeim sem vilja spreyta sig á
að matreiða villibráð eða aðrar nátt-
úruafurðir. Hér eru forréttir og
súpur, aðalréttir og ábætísréttir.
Leiðbeiningar eru um úrbeiningu á
fugli og fjallað er um soð og sósur.
Bent er á ýmsar jurtir, ber og
sveppi sem nota má við matreiðsl-
una en auk þess gefa matreiðslu-
meistararnir ýmis hagnýt ráð við
matreiðslu. Sjömenningarnir fóru
ekki erindisleysu vestur um haf,
heldur unnu bæði til silfur- og'
bronsverðlauna. Þeir eru Ásgeir
H. Erlingsson, Baldur Öxdal
Halldórsson, Bjarki Ingþór Hilm-
arsson, Sigurður L. Hall, Sverrir
Þór Halldórsson, Úlfar Finn-
björnsson og Örn Garðarsson.
Þetta er samhentur hópur mat-
reiðslumeistara sem hafa sérstakan
áhuga á að sækja sér hráefni og
hugmyndir í íslenská náttúru og
nýta þær fæðutegundir sem þar er
að finna.” Villibráð og veisluföng
úr náttúru íslands er 128 bls., prýdd
íjölda litmynda. Þetta er önnur bók-
in í ritröðinni íslenskt eldhús. Auk
hf. / Elísabet Cochran hannaði útlit
bókarinnar en Sigurgeir Siguijóns^--
son ljósmyndaði. Prentsmiðjan Oddi
hf. prentaði.
AUGL YSINGAR
A TVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu við Ármúla
Stór 240 fm salur á götuhæð til leigu, til
lengri eða skemmri tíma. Tilvalin fyrir veit-
ingarekstur, jóla- eða útsölumarkað. Hús-
næðið er vel innréttað og í góðu ástandi.
Upplýsingar í símum 32244 og 624250 á
skrifstofutíma.
Austurstræti - til leigu
Til leigu er nú þegar ca. 200 fm skrifstofu-
hæð í góðu lyftuhúsi við Austurstræti. Hæð-
inni má auðveldlega skipta í smærri einingar
og kemur til greina að leigja allt niður í eitt
til tvö herb. til nokkurra leigutaka.
Fasteignamarkaðurinn,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700
Til leigu
við Ármúla 60 fm skrifstofuhúsnæði, sem
skiptist þannig: Tvö herbergi, opinn salur,
eldhúshorn og snyrting.
Hagkvæmt og smekklega innréttað hús-
næði. Laust strax.
Upplýsingar í síma 679660 milli kl. 10 og 15.
Óskasttil leigu
Óskum eftir að taka á leigu um 200 fm iðnað-
arhúsnæði í ca tvo mánuði.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
26. nóvember merkt: „I - 9625”.
Óska eftir 50 fm til leigu
Óska eftir húsnæði fyrir sjúkranuddstofu,
helst á Skeifusvæðinu eða í „miðbænum”.
Sturtu- og snyrtiaðstaða æskileg.
Upplýsingar efur Jóhanna í síma 671648.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu skrifstofuhúsnæði með „stúdíó”-
íbúð í miðbænum, 100 fm hæð.
Símkerfi til staðar.
Upplýsingar í síma 15222 frá kl. 9.00-18.00
virka daga.
Frímerkjasafnarar
Norskur frímerkjasafnari óskar
eftir íslenskum frimerkjum í
skiptum.
Skrifið til Roar S. Nilsen, Skytt-
ervn. 96, 1370 Asker, Noregi.
HÚSNÆÐI í
BOÐI
Seyðisfjörður 90 fm
íbúð
til sölu er 90 fm ibúð á Seyðis-
firði.
Upplýsingar í síma 97-21229 og
91-12559.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 3 = 17311258 = ET 2 II
I.O.O.F. 10 = 17311258'/z =
E.T. 2, 9.0
□ GIMLI 599125117 = 6
HELGAFELL 599111257 IV/V 2
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli 11
Sunnudagaskóli kl. 11. Allir
krakkar hjartanlega velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 • S: 11798 -19533
Hressandi útivera með
Ferðaféalginu
Sunnudagsferðir 24. nóv.
kl. 13
a. Hellaskoðun og hellakönnun
í Setbergshlfð. Farið í Kershelli
og fleiri hella í nágrenninu. Hvar
er Hvatshellir? Tilvalin fjöl-
skylduferð. Hafið góð Ijós með.
b. Búrfellsgjá - Húsfell - Vala-
ból. Gengið um Búrfellsgjá yfir
á Húsfellið og til baka um Vala-
ból í Kaldársel. Verð 800 kr., frítt
f. börn m. fullorðnum. Fjölbreytt
gönguland við allra hæfi. Brott-
för frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. (Á Kópavogshálsi
og v/kirkjug. Hafnarfirði).
Félagsvist Ferðafélagsins
verður á miðvikudagskvöldið
27. nóv. kl. 20 (F.l. 64 ára). Spil-
að verður í Borgartúni 6 (Rúg-
brauðsgerðinni). Allir velkomnir,
félagar sem aðrir.
Munið aðventuferðina ( Þórs-
mörk 30.11-1.12.
Laugardaginn 30. nóv. kl. 14
verður stutt gönguferð um
Elliðaárdalinn. Opið hús og
kynning á félagsheimili Ferða-
félagsins í Mörkinni 6 kl. 15-16.
Verið með!
Ferðafélag íslands.
KFUK
KFUM
Kristniboðsféiag karla,
Reykjavík
Fundur verður mánudagskvöldið
25. nóvember kl. 20.30 í Kristni-
boðssalnum, Háaleitisbraut
58-60. Lesið úr bréfi frá Kenyu.
Hugleiðing.
Allir karlmenn velkomnir.
Stjórnin.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Félagsvist
Miðvikudaginn 27. nóv. (FÍ 64
ára) efnir Ferðafélagið til félags-
vistar og verður spilað í Borgar-
túni 6 (Rúgbrauðsgerðinni).
Samkoman hefst stundvíslega
kl. 20.00. Allir velkomnir félagar
og aðrir.
Helgina 30.11.-1.12 verður „að-
ventuferð til Þórsmerkur".
Gönguferðir, kvöldvaka, jóla-
glögg og piparkökur. Missið ekki
af skemmtilegri ferð í skamm-
deginu.
Laugardaginn 30. nóv. verður
stutt gönguferð um Elliðaárdal-
inn. Lagt af stað kl. 14.00 frá
Mörkinni 6. Að lokinni göngu
verður opið hús kl. 15.00-16.00
og kynning á félagsheimili
Ferðafélagsins að Mörkinni 6.
allir velkomnir í létta göngu og
kynningu á nýju húsnæði Ferða-
félagsins.
Ferðafélag (slands.
Skipholti 50b, 2. hæð.
Samkoma í dag kl. 11.00.
Sunnudagaskóli á sama tima.
Allir innilega velkomnir.
KFUK
KFUM
Almenn’ samkoma í kvöld kl.
20.30 í kristniboössalnum Háa-
leitisbraut 58. Upphafsorð: Jón
Ágúst Reynisson. Ræðumaður:
Arnmundur Kr. Jónasson.
Allir velkomnir.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
ÚTIVIST
HALLVEIGARSTÍG 1 • SÍMI 14606
Dagsferð sunnudaginn
24. nóv.
Kl. 13.00: Staðarborg - Keilis-
nes - Flekkuvík. Skemmtileg
gönguleið um minjaríkt svæði.
Verð kr. 1.000,-, frítt fyrir börn
15 ára og yngri i fylgd með full-
orðnum.
Sjáumst!
Útivist.
Aglow - Reykjavík
kristileg samtök kvenna
Fundur verður í kaffisal Áskirkju
mánudaginn 25. nóvember. kl.
20.00. Gestur þessa fundar
verður Carolyn Kristjánsson frá
ísafirði. Kaffiveitingar 300 kr.-
Allar konur velkomnar og hvattar
til að taka með sér gesti.
VEGURINN
v Krístið samfélag
Kl. 11.00 Lofgjörð, fræðslu-
stund, barnakirkja.
Kl. 20.30 Kvöldsamkoma, lof-
gjörð, fyrirbænir, predikun orðs-
ins.
„Guð elskar glaðan gjafara”.
Vertu velkominn.
Sunnudagur:
Samkoma í dag kl. 16.30.
Þriðjudagur:
Biblíulestur kl. 20.30.
Laugardagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
§Hjálpræðis-
herinn
y Kirkjustræti 2
Hjálpræðisherinn
Sunnudagur kl. 16.30. Fjöl-
skyldusamkoma. Síðasta sam-
koma Venke og Ben Nygaard.
Mánudagur kl. 16.00. Heimila-
sambandið.
Allir hjartanlega velkomnir.
fíunhjálp
Almenn samkoma i Þribúðum í
dag kl. 16.00. Dorkas konur sjá
um fjölbreytta dagskrá með
miklum söng og vitnisburðum.
Barnagæsla. Stjórnandi Ásta
Jónsdóttir. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Sunnudagaskóli kl. 11.00. Allir
krakkar hjartanlega velkomnir.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður: Hafliði Kristins-
son. Barnagæsla. Léttur kvöld-
verður eftir samkomu.
Allir hjartanlega velkomnir.