Morgunblaðið - 01.05.1992, Síða 44

Morgunblaðið - 01.05.1992, Síða 44
44 ftlORGUEJBLAÐIÐ yöSTUDAGUR 1. MAÍ 1992 Jens Einarsson var mættur á æfingu í fyrradag með Hornfirðingana, en svona í gamni var sagt að hinir háu og traustu veggir Reiðhallarinnar hentuðu hinurn ólmu Hornfirðingum vel. Hestadagar í Reiðhöllinni: Gæðingaval á afmæli Fáks Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Alexander Hrafnkelsson hyggst ríða blindreið á Hestadögum en á æfingu sagði hann það ekki skipta höfuðmáli hvort hann væri með augun byrgð eða ekki því á þeim skeiðsýningum sem hann hefði tekið þátt í hefði hann ekki séð svo mikið í hálfrökkvuðum salnum, en þess má geta að Alexander er með mjög skerta sjón. Allt fór þetta vel á æfingunni og ekki vafðist fyrir honum að finna hurðina á fullri ferð út úr salnum og þurfti ekki einu sinni að hafa hendur á „stýrinu". af mörgum líkleg til að hrista vel upp í einkunnaskalanum í vor ef hún mætir til keppni. Mikill fjöldi kynbótahrossa kemur fram og má þar nefna 10 stóðhesta sem hlotið hafa fyrstu verðlaun og 5 aðra ósýnda hesta. í kringum 20 úrvalshryssur verða sýndar og kynntar auk þess sem nokkrir af stóðhestum frá stóð- hestastöðinni munu mæta á laugardags- og sunnudagssýning- arnar. Hornfirðingar verða með númer í sýningunni og verða þar að sjálfsögðu sýndir hestar af hornfirskum meiði. _ Það sem á kannski eftir að vekja mesta athygli er efalítið framlag Alexanders Hrafnkelss- onar sem ætlar að sýna hest á tölti í höllinni með bundið fyrir augun, en ekki lætur hann þar við sitja því hann hyggst hleypa hestinum á fulla ferð í gegnum salinn og taka hann til kostanna. Þá verður sérstök ræktunarsýn- ing, ekki í líkingu við það sem hefur getið að líta á svipuðum sýningum heldur mun sá kunni hestamaður Hinrik Ragnarsson mæta þar sjálfur með afkomendur sína sem allir eru harðsvíraðir hestamenn og má þar nefna son hans, Ragnar Hinriksson, þann eina og sanna, dótturson hans, Hinrik Bragason, og sonardóttur- ina, Eddu Rún Ragnarsdóttur. Gæti þetta orðið allt að 17 manns. Alls verður boðið upp á þijár sýningar föstudag, laugardag-og sunnudag og hefjast allar klukkan 20.30. Auk stöðvarhesta voru nokkrir aðrir folar, sem voru í tamningu á stöðinni, dæmdir. Fjórir þeirra hlutu fyrstu verðlaun og stóð efst- ur Kjamar frá Kjamholtum með 8,11, en hann er undan Kolgrími frá Kjarnholtum og Hrefnu frá Holtsmúla. Tamningamenn á stöðinni í vetur vom Eiríkur Guð- mundsson og Þórður Þorgeirsson auk Elvars Einarssonar sem var þar í verknámi á vegum Bænda- skólans á Hólum. í dómnefnd sátu Þorkell Bjamason, Kristinn Huga- son og Jón Vilmundarson. I gær var dómstörfum haldið áfram er dæmd voru hross sem reyna skal með á fjórðungsmóti Vestlend- inga á Kaldármelum auk þess sem mönnum var gefinn kostur á að koma með ungfola til skoðunar. Meðal þeirra sem áttu að mæta til dóms var Kveikur frá Miðsitju sem stóð efstur fjögurra vetra hesta á Landsmótinu 1990. Það var mál manna sem fylgd- ust með dómunum að aldrei fyrr hafi sést eins jafn hópur að gæð- um á stöðinni. Allir verða folarnir sýndir á laugardag og hefst sýn- Morgnblaðið/Valdimar Kristinsson „RÆKTUNARSÝNING“ HINRIKS Hinrik Ragnarsson sá kunni hestamaður mætir ásamt afkomendum sínum og tengdabörnum á Hestadaga í Reiðhöllinni um helgina en meðal hestamanna er haft á orði að hann þyki öðrum fremur hafa gefið af sér marga góða hestamenn. Þar gefst brekkudómurum tækifæri til að meta „ræktunarárangur" Hinriks og vafalaust fær hann sinn dóm og þá í formi BLUP-einkunnar eða kynbótamats eins og það heitir víst á íslensku máli. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðrún Jóhanna Þórðardóttir, Guðný Eysteinsdóttir, Sveinn Ragnarsson, Jóna Margrét Ragnarsdóttir, Edda Rún Ragnarsdótt- ir, Helga Claessen, Ragnar Hinriksson, Hinrik sjálfur, Edda Ragnarsdóttir, Hinrik Bragason og Hulda Gústafsdóttir. Hestar Valdimar Kristinsson Lokaspretturinn í starfsemi Reiðskólans hf. verður um helg- ina þegar skólinn heldur hátið- lega Hestadaga í samvinnu við hestamannafélagið Fák. Er hér jafnframt um að ræða afmælis- hátíð Fáks, sem er sjötugur um þessar mundir. Að venju verður mikið í dag- skrá hátíðarinnar lagt og boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði. Mörg af bestu hrossum landsins munu koma þama fram og má þar nefna Gými frá Vindheimum og Hektor frá Akureyri, sem eru hæst dæmdu gæðingar landsins hvor í sínum flokki. Félag tamn- ingamanna hefur alla jafna séð um fánareið í upphafi Hestadaga en nú munu 24 Fáksmenn sjá um þann þáttinn og eru það að sögn fulltrúar hins almenna hesta- manns. Að sögn Jóns Alberts Sigurbjörnssonar reiðhallarstjóra verður meiri fjöldi manna og hesta í mörgum atriðum en verið hefur á sambærilegum sýningum. Börn og unglingar verða með fjölbreyti- legar sýningar og verða í það minnsta þrír hópar og í einum hópnum verða börn 6 til 10 ára. Félag tamningarmanna verður með töltsýningu og Sigurbjörn Bárðarson sýnir hlýðniæfingar þar sem blandað verður saman slakandi hlýðniæfmgum og af- kastareið á öllum gangi. Tvö al- hliðahross verða sýnd saman, Só- krón frá Sunnuhvoli, landsþekkt- ur og margreyndur gæðingur, og Mardöll frá Reykjavík, sem þykir Stóðhestastöð BÍ: Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Farsæll frá Asi stóð efstur í yngri flokknum í fyrra en er nú efstur í eldri flokki ásamt Glæði frá Hafsteinsstöðum með 8,10. Knapi er Rúna Einarsdóttir. stæði beggja megin vallarins. Sýningargestum gefst kostur á að skoða nýja húsið sem þykir eitt glæsilegasta hesthús landsins. Þá verður kvenfélagið Unnur með kaffisölu í Gunnarsholti. Fimm hestar fá fyrstu verðlaun Verða sýndir á sýningu stöðvarinnar um helgina STÓÐHESTAR á Stóðhestastöð Búnaðarfélags íslands í Gunnars- holti voru leiddir fyrir dómnefnd á þriðjudag. Tuttugu og sex hestar fengu fullnaðardóm, tólf fimm vetra hestar og fjórtán fjögurra vetra. Af eldri stöðvarhestum hlutu þrír fyrstu verðlaun en tveir af yngri hestunum. Farsæll frá Ási og Glæðir frá Hafsteinsstöðum stóðu efstir og jafnir í eldri flokki með 8,10 í einkunn en Svartur frá Unalæk stóð efstur í yngri flokki með 8,16, sem þykir einstakur árangur hjá fjögurra vetra hesti. Farsæll er undan Náttfara 776 frá Ytra- Dalsgerði og Vöku 5214 frá Ási en Glæðir er undan Feyki 962 frá Hafsteinsstöðum og Glóð 5181 frá Hafsteinsstöðum. Svartur er und- an Kjarval 1025 frá Sauðárkróki og Fiðlu 5861 frá Snartarstöðum. ingin klukkan 14. Að venju er búist við miklum fjölda gesta á sýninguna en þeir hafa skipt þús- undum á síðustu árum. Verða folamir sýndir á veliinum sem staðsettur er við nýja stóðhesta- húsið. Hefur aðstaða fyrir sýning- argesti verið bætt nokkuð frá því í fyrra á þann veg að nú eru bíla-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.