Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 5
WBjm. , M()RGL,N131At)ID SUNNUPAGUR gfy J^p^,18?3 rrríí- Opinn fundur í Valhöll á þriðjudag Borgarstjóri ræðir um atvinnumálin OPINN fundur um atvinnumál í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 2. febrúar nk. á vegum Félags sjálfstæðismanna í Austurbæ og Norðurmýri. Framsögumaður og gestur verð- ur borgarstjórinn í Reykjavík, Markús Örn Antonsson. Fund- urinn hefst kl. 20.30 og er haldinn í Valhöll, Háaleitisbraut 1. f frétt frá félaginu segir að sjálfstæðismenn og allir áhuga- menn um borgarmál séu hvattir til að mæta. I fréttinni segir ennfremur: „Að undanförnu hefur atvinnuleysi farið vaxandi hér á landi. Víða er hugað að úrræðum til að bægja atvinnu- leysisvofunni frá og blása nýju lífi í atvinnulífið svo hægt sé um leið að vinna okkur út úr þeirri efnahags- lægð sem við höfum búið við um nokkurn tíma. Nýlega samþykkti borgarstjórn fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir yfirstand- andi ár. Þar kemur fram að þrátt fyrir samdrátt í tekjum borgarinnar eru fyrirhugaðar jafnmiklar fram- kvæmdir bæði hjá Reykjavíkurborg og fyrirtækjum hennar á þessu ári og árinu 1992. Til þess að þetta Reynt að lækka ferða- kostnaðinn Á VEGUM Bláfjallanefndar er verið að leita leiða til að lækka kostnað vegna ferða barna og unglinga sem stunda skíði á veg- um íþróttafélaganna á höfuð- borgarsvæðinu. Að sögn Kol- beins Pálssonar, formanns nefndarinnar, eru uppi hug- myndir um að lagt verði upp frá einum stað í borginni með skíða- fólkið i stað þess að smala saman fólki um alla borg, en það hleyp- ir upp kostnaði. Kolbeinn sagði að dýrt væri að leggja stund á skíðaíþróttina. Bún- aður kostar hvem og einn allt að 300 þús. kr., þá er æfingágjald, lyftugjald og kostnaður vegna ferða en venjulegt gjald er 550 krónur fyrir 12 ára og eldri, fram og til baka, og 420 krónur fyrir börn 8 til 11 ára. Sagði Kolbeinn að íþróttafélögin semdu hvert og eitt við sérleyfishafa um afslátt og er hann um 40%. Þá styrki Reykjavík- urborg skíðadeildir félaganna sem nemur 8.800 krónum á hvern keppnismann og er það svipuð upp- hæð og félögin fá í styrk fyrir kepp- endur í handbolta og körfubolta. Theodór Ottósson formaður skíðadeildar Fram sagði að félagið hefði fyrir nokkrum árum brugðið á það ráð að flytja félaga sína með hópferðafyrirkbmulagi í Bláfjöll. Áætlun sérleyfishafa hefði ekki hentað félagsmönnum og fargjöld hefðu reynst hagstæð með þessu móti, 400 kr. fyrir börn yngri en 11 ára en 500 fyrir eldri börn, fram og til baka. ♦ ♦ ♦ náist þarf borgin að taka lán en er um leið að gera sitt til að viðhalda atvinnustiginu hér í borginni. Hver má vænta í þróun atvinnumála í höfuðborginni í náinni framtíð og hver verður hlutur Reykjavíkurborg- ar í þeirri þróun.“ Markús Örn Antonsson Pé-leikhópurinn sýnir Húsvörðinn Pé-leikhópurinn frumsýnir leikrit Harolds Pinter, Húsvörðinn, í kvöld, sunnudagskvöld kl. 20.30 í íslensku óperunni. íslenska þýð- ingu gerir Elísabet Snorradóttir, Andrés Sigurvinsson leikstýrir, Sigurjón Jóhannsson hannar leikmynd og búninga en lýsingu ann- ast Jóhann B. Pálmason og Alfreð Sturla Böðvarsson. Leikarar eru Róbert Arnfinsson, Arnar Jónsson og Hjalti Rögnvaldsson. Húsvörðurinn er þriðja verkefni Pé-leikhópsins frá stofnun hans, en hið fyrsta var einnig eftir Pinter, Heimkoman, sem sýnt var árið 1988. Húsvörðurinn var upphaflega sýndur hér á landi í Þjóðleikhúsinu árið 1962, en við uppfærsluna nú er stuðst við nýja þýðingu. Húsvörður- inn er eitt frægasta verk Harold Pint- er, sem kom fram á sjónarsviðið um svipað leyti og „reiða kynslóðin" í breskri leikritun en tók verk sín tölu- vert öðrum tökum, og þykir eiga meira sameiginlegt með „absúrdist- um.“ Húsvörðurinn fjallar á mein- fyndinn og napran hátt um tvo bræð- ur og flæking sem kemur inn í líf þeirra. Gestakoman hefur ýmislegt óvænt í för með sér og vekur áleitn- ar spurningar, sem verður e.t.v. aldr- ei fullsvarað. Þórscafé gert upp SKIPTUM í búi ÞórshaUar hf. er nú lokið en félagið rak veit- ingastaðinn Þórscafé. Forgangs- kröfur fengust greiddar að fullu en aðeins 2,2% fengust upp í al- mennar kröfur. Þórshöll hf. var tekið til gjald- þrotaskipta í ágúst 1991 og Ingi- mundur Einarsson hdl. skipaður bústjóri þrotabúsins. Samþykktar forgangskröfur námu 492.000 krónum og greiddust þær að fullu. Almennar kröfur námu hinsvegar rúmlega 166 milljónum króna og greiddust upp í þær 3,7 milljónir eða 2,2%. Ekkert greiddist upp í eftirstandandi kröfur. Hjalpargagn fyrír heimilisbókhaldið og skattframtalið Eitt af markmiöum íslandsbanka er aö standa vel aö upplýsingagjöf til viöskiptavina bankans. Þeir eiga því kost á aö fá heildaryfirlit yfir viöskipti sín viö bankann á árinu 7 992. Á viöskiptayfirlitinu kemur fram staöa innlána og skulda viöskiptavinarins um áramót, ásamt ýmsum upplýsingum um vexti og margt fleira. Hér er um aö rœöa hjálpargagn sem kemur aö góöum notum viö heimilis- bókhaldiö og þá ekki síöur viö gerö skattframtalsins. Þú pantar yfirlitiö í nœstu afgreiöslu íslandsbanka, þjónustugjald er 7 90 kr. Innlánsreikningar: Fram koma allar bankabœkur, Sparileibir, orlofsreikningar, gjaldeyrisreikningar og abrir sparireikningar sem skrábir eru á kennitölu vibskiptamanns. Tilgreindir eru innborg- abir vextir og verbbcetur á árinu og staba í árslok. Tékkareikningar: Fram koma, auk innvaxta og stöbu um áramót, þeir yfirdráttarvextir sem vibskiptamabur hefur greitt á árinu vegna yfirdráttarheimildar. Víxlar: Sýnd er upphœb víxla, gjatddagi, forvextir og kostnabur vib kaup á víxium (þ.m.t. stimpilgjöld), vanskilakostnabur og staba í árslok (ógreiddir víxlar). Skuldabréf: Fram koma gjaldfallnar afborganir, verbbœtur og vextir, afborganir af nafnverbi, greiddir dráttarvextir og vanskilakostnabur. Áfallnir vextir frá síöasta gjalddaga til áramáta og eftirstöbvar skulda um áramót. 'SLa\'Dsb. f - -... - ... Ba \>K/ Si»ur(iUr / 102 R’X*Í*vlk SlS *!3<S6 Sis ll^eB *‘nk*b6k Sl3 «67s ®Paru * 37s^e ?rloe,£* J . fy-ídoyri,taUo»Xr .....- " DSO w°Sk/, 'pTAYFl titlit FyTllFl l207< 1992 -233S ®rj 66 52j 5JS 67S67s 6a»lU 5<7 I6703 31. 547 l6703 s«®tal3 " uPPh«s /“■ooo - S°Ooo ,“o.°oo- V°XtÍ"*o,tn A,V-rtir ..... .....--36;666 Sk"IcUr. Í0í-236"""'"'""-- UpPh*« ....f_,os6 ,,ff.; 056 ' :-.f ;f59 ISLANDSBANKI - í takt við nýja tíma!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.