Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993 Jí4\ÍtfMCiA§i! nuuuH W IlVn GOTT KVOLD! eftir Guðna Einarsson VINALÍNA Rauða krossins hefur verið opin á hverju kvöldi í rúmlega eitt ár. Sjálfboðaliðar Vinalínunnar hafa átt um 800 samtöl við fólk sem hringt hefur til þess að ræða um hin fjöl- breyttustu málefni. Rauði kross íslands hóf að starfrækja símaþjónustu fyrir böm og unglinga árið 1987. Sú þjónusta er opin allan sólar- hringinn og hefur löngu sannað gildi sitt. Starfsfólk bama- og unglingasí- mans varð fljótlega vart við að tals- vert var um að fullorðnir hringdu og vildu fá að ræða mál sín. Á félags- málafundi Ungmennahreyfingar Rauða kross íslands (URKÍ) kom upp sú hugmynd að setja á stofn síma- þjónustu fyrir 20 ára og eldri og hófst undirbún- ingur að því í maí 1991. Leitað var upplýsinga víða um þjónustu af þessu tagi, eink- um var tekin til fyrirmyndar starf- semi í Bretlandi sem kallast „Samaritan" (Samveijinn). Flestir hringja í Vinalínuna til þess eins að spjalla við einhvem, enda er Vinalínan ekki síst hugsuð í þeim til- gangi. Ingunn Jónsdóttir kenn- araháskólanemi er ein af frumheijum sjálfboðaliða Vinalínunnar. „Samtölin eru alls ekki öll á nei- kvæðu nótunum, sumir hringja til að spjalla um góða tónleika sem þeir voru á eða um daginn og veginn. Gamalt fólk hring- ir og vill bara tala við einhvern. Það býr í stóru húsnæði og á stóra fjöl- skyldu, en samt kemur enginn í heim- sókn. Atvinnulausir, öryrkjar og sjúklingar hringja oft til að ræða málin,“ segir Ingunn. Fólk með geð- ræn vandamál hefur talsvert hringt, eins viðkvæmar sálir sem taka vandamálafréttimar mikið inn á sig og líður illa. „Nafnið Vinalínan hefur stundum valdið misskilningi," segir Ingunn. „Þetta er ekki skyndikynna- þjónusta," bætir hún við og kímir. Að hjálpa sér sjálfur Símaþjónusta Vinalínunnar kemur ekki í stað félagsráðgjafar, eða fé- lagsmálastofnunar. Sjálfboðaliðun- um er uppálagt að fá þann sem hring- ir til að skoða sjálfur sín mál og koma með tillögur um hvað hægt sé að gera til bóta. „Við hlustum á við- komandi og spyijum síðan: Hvað vilt þú gera?“ segir Ingunn. „Tilgangur okkar er fyrst og fremst að fá fólk til að hjálpa sér sjálft. Það á sjálft að axla ábyrgðina á eigin jífí, en ekki velta henni yfír á aðra.“ Starfs- fólk Vinalínunnar hefur útbúið gagnabanka sem geymir upplýsingar um nær alla samfélagsþjónustu í landinu. Reyndin er sú að fólk er illa upplýst um hvert það á að snúa sér þegar það 'lendir í vanda. Með hjálp gagnabankans er hægt að vísa við- komandi á réttan áfangastað til að vinna úr sínum málum, hvort sem þau snerta áfengisfíkn, sifjaspell eða geðrænan vanda svo eitthvað sé nefnt. „Við ákváðum að svara símhringing- um milli klukkan 8 og 11 á kvöld- in,“ segir Ingunn. „Símtölin standa oft langt fram yfir lokunartíma og ekki óalgengt að tólið sé lagt á eftir miðnættið. Sum kvöld hringir ekki neinn og önnur kvöld er meira að gera. Það er lítið hringt um helgar en þess meira á fimmtudögum, föstu- dögum og laugardögum. Fólk hefur helgamar til að hugsa sín mál og gerir svo eitthvað í þeim eftir helg- araar. Ég er ekki frá því að það sé meira að gera þegar ekki eru Kvöld- sögur á útvarpsstöðinni Bylgjunni." Beinn útlagð- ur kostnaður vegna Vinalín- unnar nam um 1.200 þúsund krónum í fyrra, að sögn Skafta Jónssonar hjá Rauða krossin- um. Inni í þeirri tölu var talsverð- ur stofnkostn- aður vegna aug- lýsinga og sér- fræðiaðstoðar. Þess er vænst að reksturinn verði mun ódýrari á þessu ári. Mikil vinna sjálfboðal- iða er ekki færð í bókhaldinu, en ef sú vinna væri launuð er víst að tölumar yrðu margfalt hærri. Nú starfa um 50 sjálfboðaliðar hjá Vinalínunni og em þeir á aldrin- um 24-70 ára, flestir á þrítugs- og fertugsaldri. Um 20 af þeim sem hófúst handa í janúar 1992 eru enn að störf- um. Margir kallaðír, færri útvaldir Rauði krossinn hefur fjórum sinn- um haldið kynningarfundi um Vina- línuna. Að loknum kynningarfundum er þeim sem hafa áhuga á að gerast sjálfboðaliðar við símsvömn boðið að koma í viðtal. Þar hittir hinn áhuga- sami fyrir 2-3 fyrirspyijendur sem kanna viðbrögð hans við ýmsu því sem upp á kann að koma. Mikil áhersla er lögð á að fólk blandi ekki eigin vandamálum eða skoðunum í starfið. „Við leitum að fólki sem vili gefa af sér á réttum forsendum," segir Ingunn. Til þessa hefur um helmingi þeirra, sem koma í viðtal, verið boðið að taka þátt í þjálfun- amámskeiði. Þar fer fram þjálfun í símsvömn, samtalstækni, að binda enda á símtöl. Fólki er kennt að bregðast við vanda annarra án þess að bugast sjálft. Hver sjálfboðaliði undirritar trúnaðaryfírlýsingu um að greina ekki frá neinu sem hann verð- ur áskynja í starfi sínu hjá Vinalín- unni. Ævinlega em tveir á hverri síma- Ingunn Jónsdóttir Símaþjónusla Rauóa krossíns ffyrir fólk sem vill deila sorgum sinum og gleói meó nafnlaus- um simavini vakt, helst karl og kona. Sjálfboðalið- amir em hvor öðmm til trausts og halds þegar erfið símtöl berast. Sum- ir símavinir vilja einungis tala við sjálfboðaliða af ákveðnu kyni, aðrir vilja tala við einhvem á tilteknum aldri. Hver sjálfboðaliði velur sér „símanafn", dulnefni sem hann notar í starfinu. Ein af starfsreglunum er að aldrei má gefa upp nafn eða heim- ilisfang neins sem hjá Vinalínunni starfar, þar em allir nafnlausir. Sjálfboðaliðunum er skipt í þijá 14 manna hópa og gengur hver hóp- ur vaktir sem standa frá miðvikudegi til þriðjudags, þriðju hveija viku. Að lokinni hverri vaktviku er haldinn handleiðslufundur með Sigtryggi Jónssyni sálfræðingi, sem hefur unn- ið með Vinalínunni frá upphafi. Á handleiðslufundunum er tekið á erf- iðum málum sem kunna að hafa komið upp undanfarna viku. Þar er fólki einnig kennt að taka vandamál- in ekki of mikið inn á sig. Mánaðar- lega em haldnir fræðslufundir fyrir alia sjálfboðaliða. Þar hafa samtök á borð við Nýja dögun, SÁÁ, Sam- tökin ’78 og Vemd kynnt starfsemi sína. Fleiri konur hringja Haldnar eru skrár yfir símtöl sem berast, þeim sem hringir er í sjáifs- vald sett hvaða upplýsingar hann kýs að gefa. Ævinlega er þó skráð hve- nær var hringt, hvers kyns hringj- andinn var og hve lengi símtalið stóð. Fyrstu sjö mánuðina hringdu 440 manns, hringingum fjölgaði eftir því sem á leið og voru flestar í október og nóvember, alls bámst um 800 símtöl. Hvert símtal stóð að meðal- tali í 25 mínútur. Meirihluti þeirra sem hringir em konur á miðjum aldri. Körlum fjöigaði talsvert í árslok og vom margir atvinnulausir í þeirra hópi. Það er mun algengara að ein- hleypir, fráskildir, ekkjur og ekklar hringi en þeir sem em í sambúð af einhveiju tagi. „Þetta eru tvímæla- laus meðmæli með hjónabandinu," segir Ingunn. Einmana fólk virðist í vaxandi mæli leita félagsskapar gegnum síma. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.