Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993 MILDINÞÍN Logandi standa í langri röð ljósin á gígastjaka Jón Helgason hafði víst aldrei séð eldgos þegar hann í Áföngum hitti svo vel naglann á höfuðið. Rauðar logatungur teygðu sig upp í dökkan vetrarhimin eins og á margarma stjaka sem við flugum í fyrstu flugvélunum tveim inn yfir eldgosið í Heimaey fyrir réttum 20 árum. Ég sé fyr- ir mér hvemig gígsprungan, sem spýtir þessum logum upp í loftið, teygir sig út í höfnina með gufu- strók þar sem mætast heit gos- efnin og ískaldur sjórinn. Og ljós- um prýddir bátamir halda í sveig fyrir hann og út úr höfninni, eins og perlur á bandi. Ekki vitað nema sprangan geti enn lengst og á hverri stundu* lokað höfn- inni. Heyrist í stöðvarstjóranum á flugvellinum rétt við, sem seg- ir að nú virðist vera farið að slett- ast yfir brautarendann — sprang- an þá líklega að lengjast í þann endann. Hvoragt gerðist sem betur fer. Siguijón á Flugmála- stjómarvélinni tekur einn hring: Það er óhætt, ég ætla að reyna að lenda! Það tekst og við rénnum á litlu vélinni á eftir. Við Óli Magg ljósmyndari snúum við til að gefa um morguninn út auka- blað. í vélina er hægt að taka einhveija sem taldir eru ósjófær- ir. Þeirra á meðal kona komin á steypirinn. Við uppriíjanir vegna 20 ára gosafmælisins í fjölmiðlum stendur þessi mynd svo ljóslifandi í huganum. Það era forréttindi blaðamannsins að hafa fengið að upplifa frá fyrstu mínútum öll þessi ólíku eldgós á íslandi. Veg- ur upp argaþrasið í þessu starfi. Á eins eða tveggja ára afmæli gossins fór blaðið að kanna hvað orðið hefði um þetta fólk sem þá flúði í land. Fréttist af fjölskyidu í Sandgerði eða Garðinum og ég fór á vettvang með ljósmyndara. „Ertu blaðamaður?" spurði konan undrandi. En ekki hvað? „Ég hélt að þú værir hjúkrunarkona," sagði hún. Þama var þá komin ófríska konan úr flugvélinni. Hafði fundist hún mun öraggari fyrst þarna var hjúkrunarfræð- ingur að hlú að henni. En bamið fæddist ekki á leiðinni — sem betur fer. Þá hefði „hjúkranar- konan“ komið að litlu gagni. Morguninn eftir var fáliðað úti í Eyjum. Fólkið hafði sýnt alveg ótrúlegt æðraleysi. Labbað sig niður á höfn og yfírgefið Eyjam- ar með bátunum á nokkram tím- um. Nú var mikið öskugos og enginn vissi hvaða stefnu það tæki, svo menn fengu ekki leyfi til að fara út í Eyjar. Þetta fá- menna lið sem eftir var lagði ósérhlífið nótt við dag við að bjarga úr húsunum sem vora að fara undir ösku og kom upp í skóla með frystikistur, ísskápa og húsgögn. Eftir að hafa sent fréttimar um kvöldið fékk ég inni í gamla Hótel Bergi hjá hon- um Sigurði Karlssyni. Ekki kannski á besta stað, en lögregl- an vissi af okkur þar. „Allt tómt, viltu herbergi út að gosi eða bakatil?" sagði hann. Ég lagðist fyrir undir súðinni uppi í þessu stóra bárujámshúsi með útsýni úr rúminu beint að gosinu. Állt í einu var eins og komin væri heimsstyijöld. Gjóskuregnið buldi á þakinu. Eftir nokkra stund heyrðist umgangur niðri. Ég dreif mig í fötin. Þama vora þá komnir tveir menn, sem höfðu verið að bjarga úr húsunum sín- um þegar gjóskugosið herti. Þeir höfðu lagt á flótta og gripið með sér það sem hendi var næst — tvær kampavínsflöskur. Ekki varð svefnsamt það sem eftir var nætur — og við fjögur gátum ekkert betra gert en dreypa á kampavíninu. Er birti þurfti að moka öskuskafli frá hurðinni út á tröppumar til að komast út. Myndin af blaðamanni með gas- grímu á maganum og hjálm sýn- ir aðkomuna. Seinna, þegar gjóskugosið var orðið að hraunflóði sem sótti fram og át upp hvert húsið af öðru, horfði ég um nótt á þetta fallega gamla fjögurra hæða hús, Hótel Berg, rugga lengi undan 20 m háu hrauninu sem lagðist að því og lagði það að velli. Þá sá ég næst liggja við mannfalli í þessum hamföram. Við stóðum þama um nóttina, búið að bera dót út úr fallandi húsinu. Ragn- hildi Steingrímsdóttur, konu Sig- urðar, varð að orði að verst væri að ekkert hefði bjargast af dóti stráksins, þau hefðu átt að grípa fínu járnbrautina-hans. Sigurður kvað enn tækifæri til þess, hún væri í bílskúmum þarna rétt við húsið. Svo stór öskuskafl lá að hurðinni að hann þurfti að smeygja sér inn um rifu og rétta jámbrautina út í pörtum áður en hann kom út sjálfur. Sigurður hafði aðeins gengið nokkur skref þegar framhlið hótelsins kom, skall fram í heilu lagi — yfír bíl- skúrinn. Mikil mildi að ekki varð mann- fall í þessari orastu náttúra- aflanna. Óneitanlega hefði þó verið dramatískt að falla kvik- nakinn í slíku sjónarspili. Laugar- daginn fyrstan í gosi hafði ég milli stríða bragðið mér í sturtu undir súðinni í Hótel Bergi. Varla komin út þegar stór gjóskubomba kom gegnum gluggann yfír sturtunni og splundraði gleri og gjóskumolum um gólfið. Líklegt er þó að þessi forsjála kona hefði sloppið með skrekkinn — því í sturtuna hafði ég farið með hjálm á höfði til að bleyta ekki hárið. Geymdar en ekki gleymdar per- sónulegar myndir, broslegar í alvöranni, gára í sinni þegar ýft er á svona tímamótum. Þar sem blaðamaðurinn situr við tölvu á réttum Gárudegi flóa þær yfir á lesendur. Stórsýning Geirmundar Valtýssonar Geirmundur, Berglind Björk, Guðrún Gunnarsdóttir, Ari jónsson, Maggi Kjartans y YJfsdansinn — t'tt i sandinn i/Zátum sönginn hljóma . lú'er ég léttur - .SAddu við Kg hef bara áhuga á þér . ílfa tímans hjól ■ Tjóðhátið i Eyjum — . //íeð þér Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fýrir dansi Kynnar: Þorgeir Astvaldsson og Margrét Blöndal. .Matseðill: ‘Rjómasúpa •Princcss mcðjucflakjöU Cumba- oij yrisaslcik mcð ijrilíuðam sivppum oij rósmarinsósu Slppelsinurjðmarönd Þríréttaður kvöldverður kr. 3.900,- Verð á dansleik kr. 1.000,- ífMl.pg.IÁND SÍMI 687111 Kris KRISTOFFERSON 19. OG 20. FEBRÚAR Þessi heimsfrægi söngvari og leikari heldur tvenna tónleika á Hótel íslandi. I\lú mæta allir aðdáendur Kris Kristofferson á tónleika sem lengi verða i minnum hafðar. Allir kannast vid lögin: Help me make it Me and Bobby McGee For the Good Times Why Me Loving Her Was Easicr Verð aðgöngumiða: Þríréttaður kvöldverður kr 5.300,- An matar kr 2.500,- Midasala og boröapantanir daglega milli kl. I4-I8 á Hótel íslandi. HEFST ÞRIÐJUDAGINN 2. FEBRÚAR KL. 9.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.